24 stundir - 27.06.2008, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2008 24stundir
afslappað andrúmsloft.“
Ekkert Starbucks!
„Ég hef búið í Williamsburg í
Brooklyn síðastliðin sex ár og
kann mjög vel við mig þar,“ segir
Birgir Sigurðsson tónlistarmaður
sem kallar sig Bigga Bix. „Mikið
líf, góðir veitingastaðir, ekkert
Starbucks eða McDonalds og allir
einstaklega vinalegir og ófeimnir.
Birgir segir matarmenninguna
vera mjög blandaða en þó séu
áberandi asískir, franskir, mexí-
kóskir og ítalskir veitingastaðir.
„Það liggur við að hér opni nýr
veitingastaður á hverjum degi,
kannski ætti maður að opna eitt
stykki íslenskan veitingastað og
bjóða upp á djúpsteikta hrúts-
punga?“
Uppáhaldsstaðurinn kóreskur
„Hangawi, sem er kóreskur
veitingastaður er alveg einstakur.
Maturinn þar er frá annarri plán-
etu og skilur eftir sig yndislegt
eftirbragð. Vatan er indverskur
veitingastaður sem er mjög
skemmtilegur og þjónustan er
mjög persónuleg og heimilisleg.
Geðveikur matur og þeir sem eru
með valkvíða myndu njóta sín vel
því það er enginn matseðill, þú
borgar að mig minnir um tuttugu
dollara fyrir þriggja rétta máltíð,
þetta eru allt svona litlir smáréttir
og þjónninn segir þér frá hverjum
rétti fyrir sig. Máltíðinni lýkur svo
með mangóís og te.“
Zenkichi er síðan nýr japanskur
bistrostaður í Williamsburg sem
er alveg í heimsklassa. Hann er í
dýrara lagi en maturinn er ótrú-
legur, þú færð 10 rétta máltíð fyr-
ir tvo á um 200 dollara en það er
hverrar krónu virði.
Best að villast
„Þar sem maður er í Bandaríkj-
unum má ekki gleyma blessuðum
borgurunum og Dumont Burger í
Williamsburg er með bestu borg-
ara sem ég hef smakkað. Namm!“
Aðspurður hvert hann leiði
gesti sína segist hann trúa því að
það sé skemmtilegast fyrir þá að
villast svolítið í borginni og ekki
að skipuleggja mikið fyrirfram.
„Þá gerast ævintýrin og það er
nóg af þeim í New York.“
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
Auður Karítas á íbúð í Gramercy
sem hún segir rólegt og öruggt
hverfi á New York-mælikvarða.
„Allar fínu frúrnar í hverfinu
eru óhræddar við að ganga um
með sparitöskuna á arminum.
Hverfið dregur nafn sitt af litlum,
fallegum garði sem er eingöngu
aðgengilegur hinum almenna
íbúa hverfisins einn dag á ári.
Hina 364 dagana eru það aðeins
þeir sem búa umhverfis garðinn
sem fá að njóta hans.“
Auður Karítas nefnir fjölda frá-
bærra veitingastaða í hverfi sínu;
Craft, Gramercy Tavern, Per Se og
Casa Mono. „Ég er mikill sælkeri
og elska að borða. Ég á mér því
marga uppáhaldsstaði í New York.
Hér er örlítið brot af listanum.“
Kúbverskur, ítalskur og sushi!
„Café Habana er pínulítill kúb-
verskur staður. Þar er alltaf pakk-
að og mikil stemning. Það er allt
gott á matseðlinum hjá þeim en
ég mæli með margarítunum og
maísstönglunum. Staðurinn er á
horni Prince st. og Elizabeth st.,
og er frekar ódýr. Otto er ítalskur
og tiltölulega ódýr staður á horni
8th st. og 5th ave. Þetta er mjög
skemmtilegur staður og á meðan
maður bíður eftir borði er tilvalið
að fá sér „antipasti“ og einn drykk
eða tvo á barnum frammi. Uppá-
halds sushi-staðurinn minn í New
York er í Noho á Bond street milli
Broadway og Lafayette. Kokkarnir
eru alltaf súperhressir og því mik-
ið fjör ef maður fær sæti hjá þeim
en einnig er hægt að eiga róm-
antíska stund í rökkvuðu horni ef
maður vill svoleiðis frekar. Babbo
er á Waverly Place við Wash-
ington Square Park. Þar ríkir al-
vöru ítölsk sparistemning. Mat-
urinn er ekki ókeypis en
dásamlega góður og það er hugs-
að um mann eins og stórstjörnu.
Ég mæli með gæsalifrar-ravioli
og svarta pastanu, og já, eiginlega
bara öllu. Það er algjör skylda að
fá sér „bellini“ á barnum fyrst.
110 Waverly er á milli 6th ave. og
MacDougal st.“
Námsmannavænir staðir
Spurð hvert hún leiði gesti sína
þegar þeir koma til hennar í New
York segist Auður ekki fara með
þá á dýra staði.
„Þeir gestir sem koma eru oft-
ast að spara aurana sína fyrir búð-
irnar þannig að ég hef lítið verið
að þröngva fínu, dýru stöðunum
upp á gestina, og fer meira bara á
mína námsmannavænu veit-
ingastaði.“
Auður nefnir þá fyrstan veit-
ingastað í West Broadway, Felix.
„Felix er fransk-brasilískur
„brunch“-staður. Þar er mikil
stemning og boðið upp á hressi-
lega kryddaðar blóðmaríur. Þar er
líka brjálað að gera um helgar en
þá koma allir fastakúnnarnir sem
eru búnir að koma á þennan stað
í hundrað ár. Það styttir biðina
eftir borði að fylgjast með þeim
en biðin er alveg þess virði.
Lygilega góðir borgarar
„Á Shake Shack í Madison
Square Park eru lygilega góðir
hamborgarar. Staðurinn er sumsé
í þessum litla garði á 23rd st. á
milli Madison ave. og 5th ave. og
er bara opinn yfir vor- og sum-
artímann. Gaman er að fara að
kvöldi til en þá lýsa seríur upp
garðinn og staðinn. Oft er löng
biðröð en hún gengur hratt og
það er alveg þess virði að bíða.“
Að lokum nefnir Auður Karítas
hverfisstaðinn sinn, Posto Pizza.
„Þetta er ekta „New York hango-
ut“, æðislegar pitsur á horni 18th
st. og 2nd ave., lítill og sjarm-
erandi staður með ódýrt vín og
Uppáhaldsveitingastaðirnir í New York
„Í hverju hverfi á Man-
hattan býr fleira fólk en á
Íslandi þannig að í þeim
hverfum er oftast hægt
að finna alla flóruna, frá
Dunkin’ Donuts og upp í
uppskrúfaða franska Mic-
helin-stjörnustaði,“ segir
Auður Karítas Ásgeirs-
dóttir um matarmenn-
ingu í New York. Birgir
Sigurðsson tónlist-
armaður segir sömu sögu
af flóru matarmenningar
en hann hefur búið í
Williamsburg í Brooklyn
síðastliðin sex ár.
Sælkeri í New York Auður Karítas
hefur ekki farið á mis við fjölbreytta
matarmenningu borgarinnar.
Matarást á New York
Biggi Bix í Brooklyn
Er hrifinn af kóreskum
grænmetismat.
LÍFRÆNIR SAFAR
Fæst í heilsubúðum og helstu
matvöruverslunum landsins