24 stundir - 27.06.2008, Page 27
24stundir FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2008 27
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
„Þetta er eins og risastórt ættar-
mót,“ segir Brynja Bjarnfjörð
Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri
Hamingjudaga á Hólmavík sem
fram fara um helgina. „Maður þarf
reyndar ekki að vera í einhverri
klíku til að koma hingað en hér er
rosalega mikið af brottfluttum og
fólki sem er ættað héðan. Þetta er
eins og þegar laxinn leitar á æsku-
slóðir. Það eru allir að koma heim,“
bætir hún við.
Bæjarbúar taka virkan þátt í
gleðinni og meðal annars verða
veittar viðurkenningar fyrir skreyt-
ingar á húsum og hverfum. „Við
ætlum að leyfa öllum sem taka þátt
í hátíðinni að endurnefna götur
bæjarins með skírskotun til galdra.
Göturnar fá þá undirtitil eins og á
Fáskrúðsfirði þar sem þær bera
frönsk heiti,“ segir Brynja og nefnir
Ástargaldursstræti og Tilberastíg
sem dæmi.
Öskur og skítkast
Hamingjudagar hefjast í dag og
lýkur á sunnudag með Furðuleik-
unum á Sauðfjársetrinu á Sævangi.
„Þar er meðal annars keppt í öskri
og skítkasti,“ segir Brynja og árétt-
ar að þar sé átt við skítkast í eig-
inlegri merkingu orðsins. „Fólk fær
hanska og svo kastar það skít í ein-
hvern sem hefur boðist til að sitja
fyrir.
Síðast var það framkvæmda-
stjóri hátíðarinnar en ég veit ekki
hvort mig langi til að láta kasta skít
í mig,“ segir Brynja Bjarnfjörð
Magnúsdóttir að lokum.
Hamingjan ríkir á Hólmavík
Öskur, skítkast og
eintóm hamingja
Keppni í öskri og skít-
kasti er meðal annars á
dagskrá Hamingjudaga á
Hólmavík. Brottfluttir
Hólmvíkingar setja sterk-
an svip sinn á hátíðina
enda margir sem nota
tækifærið til að vitja
æskuslóðanna.
Kassabílarall Meðal
annars verður keppt í
kassabílaralli á Ham-
ingjudögum á Hólmavík.
Mynd/hamingjudagar.is/
Ingimundur Pálsson
➤ Hamingjudagar á Hólmavikhafa verið haldnir á hverju ári
frá árinu 2005.
➤ Dagskrá hátíðarinnar og frek-ari upplýsingar má nálgast á
vefsíðunni www.ham-
ingjudagar.is.
HAMINGJUDAGAR
„Það er yfirleitt sami kjarninn
sem kemur á hátíðina á hverju ári
og maður er farin að kannast við
andlitin mörg hver. Þetta eru þessir
hörðu blúsarar sem koma þó að
við séum hérna lengst norður við
heimskautsbaug,“ segir Gísli Rúnar
Gylfason sem heldur Blúshátíð á
Ólafsfirði í níunda skipti nú um
helgina. „Þetta er í rauninni elsta
blúshátíðin sem haldin er á land-
inu. Við fögnum tíu ára afmæli á
næsta ári og það er nokkuð ljóst að
þá verður gaman,“ bætir hann við.
Sterk tónlistarhefð
Það ætti heldur engum að leiðast
á hátíðinni í ár enda margir góðir
listamenn sem koma fram á henni.
Þar á meðal eru Ellen Kristjáns-
dóttir og Gunnar Eyþórsson,
Gæðablóð, Margrét Guðrúnar og
Bandið hans pabba að ógleymdu
KK bandinu. „Tónlistarhefðin hér í
Ólafsfirði er alveg gríðarlega sterk
og mikil hefð fyrir henni. Við höf-
um náttúrlega mikið notað heima-
menn á hátíðinni líka. Við eigum
það mikið af góðu tónlistarfólki
hérna og við leyfum því að vera
með,“ segir Gísli.
Auk tónleika verður efnt til úti-
markaðar á laugardeginum og þá
veður brasilíski gítarsnillingurinn
Thiago Trinsi með blúsnámskeið í
tengslum við hátíðina.
Nánari upplýsingar má nálgast á
blues.fjallabyggd.is.
Eintómur blús á Ólafsfirði
Blúsað fyrir norðan
Tónleikar fyrir náttúrunna
Það verður án efa þéttsetinn
bekkurinn í Laugardalnum á laug-
ardag þar sem Björk, Sigur Rós og
Ólöf Arnalds halda stórtónleika í
þágu íslenskrar náttúru. Gleðin
hefst kl. 17 og stendur fram á
kvöld.
Siggi og mafían
Sigurður Guðmundsson og
Memfismafían fagna útgáfu plöt-
unnar Oft spurði ég mömmu á
Græna hattinum á Akureyri á laug-
ardagskvöld. Fluttar verða gamlar
og góðar dægurperlur.
Allir á Esjuna
Esjudagur Ferðafélags Íslands og
SPRON fer fram laugardaginn 28.
júní. Fjölbreytt dagskrá fyrir alla
fjölskylduna verður í boði svo sem
ratleikur, gönguferðir, Esjuhlaup,
leikir og sprell. Dagskrá hefst kl.
13. Þátttaka er ókeypis og allir vel-
komnir.
Föstudagsfiðrildi
Skapandi hópar Hins hússins
setja svip sinn á miðbæinn í dag kl.
12-14. Boðið verður upp á gjörn-
inga, dans og tónlist af ýmsu tagi
svo fátt eitt sé nefnt. Jafningja-
fræðsla Hins hússins verður síðan
með uppákomu á Austurvelli kl. 16
í tilefni af opnun nýrrar heimasíðu.
Það besta í bænum
Gamlir glæsivagnar lífga upp á
götur bílabæjarins Selfoss um
helgina þar sem Fornbílaklúbb-
urinn heldur landsmót sitt. Mót-
ið hefst með akstri um bæinn í
kvöld kl. 20 þar sem sýslumað-
urinn Ólafur Helgi Kjartansson
leiðir. Slegið verður upp sýningu
á svæðinu á morgun kl. 13-18 auk
þess sem ýmiss konar afþreying
fyrir börnin verður í boði.
Ökuferð aftur í tímann