24 stundir - 27.06.2008, Qupperneq 34
34 FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2008 24stundir
Leikkonan Ágústa Eva Erlends-
dóttir sýnir á sér enn aðra hlið í
kvöld þegar hún tekur upp á því
að syngja lög Joao Gilberto og
fleiri á tónleikum í Fríkirkjunni.
Fram til þessa hefur leikkonan
falið bossanova-genið í sér fyrir
alþjóð en getur hún ekki hamið
sig lengur og stökk því á tækifær-
ið að spila með brasilíska gít-
arleikaranum Ise Poletino.
„Óskar Guðjónsson kom nokkr-
um sinnum í Svalbarðaþáttinn og
spilaði. Svo þegar hann og fleiri
ákváðu að setja upp þessa tón-
leika hringdu þeir í mig,“ segir
Ágústa en úrval íslenskra djass-
leikara koma líka fram. „Þetta er
mikill heiður því ég ber svo mikla
virðingu fyrir þeim öllum af því
þeir spila svo fallega tónlist.“
Tónleikarnir hefjast klukkan tíu.
Gústa syngur
Gilberto
einfalt og geta leikmenn hamrað
sig í gegnum leikinn á skömmum
tíma með því að nota bara einn
takka til að lemja óvinina. Það
koma þó stöku kaflar í leiknum
þar sem reynir aðeins meira á
hæfni leikmanna en þeir kaflar eru
fáir og stuttir.
Kung Fu Panda er, sem barna-
leikur, fyrirtaksfjárfesting. Krakkar
munu án nokkurs vafa geta
skemmt sér yfir leiknum klukku-
tímum saman án þess að kvarta
eða kveina.
Tölvuleikir viggo@24stundir.is
Það er svo gott sem algild regla í
heimi tölvuleikjanna að ef leik-
urinn er byggður á kvikmynd þá er
lítið í hann varið. Ef leikurinn er
svo byggður á barnamynd þá eru
væntingarnar enn þá minni enda
þeir oftast sálarlaust rusl sem er
einvörðungu búið til svo að unnt
sé að kreista meiri pening út úr al-
menning. Kung Fu Panda er hins
vegar undantekning á þessari reglu
því ekki nóg með það að leikurinn
sé vandaður þá er hann meira að
segja nokkuð skemmtilegur.
Leikurinn segir frá pandabirn-
inum Po og Kung Fu félögum hans
þar sem þeir freista þess að verjast
árásum hins illa Tai Lung á meðan
Po fetar sínar leið í átt að örlögum
sínum, sem eru að verða hinn
goðsagnakenndi drekastr-
íðsmaður. Það er virkilega gaman
að sjá hvað mikill metnaður hefur
verið lagður í leikinn. Hann lítur
mjög vel út og finnst manni oft
eins og maður sé að horfa á teikni-
mynd fremur en að spila tölvuleik.
Svo er virkilega gaman að Jack
Black skuli sjálfur tala inn á leik-
inn.
Spilun leiksins samanstendur af
hinu hefðbundna hoppi og skoppi,
sem virðist vera regla í barna-
leikjum, og svo Kung Fu-
slagsmálum þar sem Po og félagar
berja líftóruna úr margs kyns
óvinum svo sem svínum, naut-
gripum og krókódílum. Stjórnkerfi
leiksins er, skiljanlega, nokkuð
Klár í Kung Fu Po kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að Kung Fu og fer létt með
að lúberja krókódíla, svín og fleiri kvikindi.
Undantekningin sannar regluna
Sumarsmellur FM957 er keppni fyrir alla tónlist-
armenn sem telja sig hafa það sem þarf til að semja lag
sem slær í gegn.
Dýrt að fullklára lag í hljóðveri
„Hugmyndin á bak við keppnina er að hjálpa nýj-
um tónlistarmönnum að koma sér á framfæri,“ segir
Brynjar Már, útvarpsmaður á FM957. „Það er fullt af
góðum tónlistarmönnum þarna úti sem hafa ekki efni
á því að fara í hljóðver með lögin sín enda getur það
kostað 3-400 þúsund krónur að fullklára lag.“
Sigurvegari keppninnar fær þessa vinnu hins vegar
gefins og starfsmenn FM957 munu jafnvel útvega
söngvara ef lagahöfundur hefur enga slíka á sínum
snærum.
„Við höfum nú þegar fengið rúmlega 50 lög send en
gerum ráð fyrir allt að 200 lögum áður en yfir lýkur.“
Fresturinn til að skila inn lögum er til 4. júlí en þá
munu starfsmenn útvarpsstöðvarinnar loka sig af og
hlusta á öll lögin. „Okkur finnst sanngjarnara að
hlusta á lögin á sama tíma frekar en að hlusta á eitt og
eitt og mynda okkur skoðun eftir því hvernig skapið
er. Við getum þá líka strax sigtað út topp 30, topp 20
og svo loksins topp 10.“ Hægt verður að hlusta á tíu
efstu lögin á vefsíðunni www.fm957.is. Þar munu
hlustendurnir velja besta lagið sem fer beint í hljóðver
og þaðan í spilun á FM957.
iris@24stundir.is
Hlustendur velja besta lagið
FÓLK
24@24stundir.is a
Það eru fullt af góðum tónlistarmönnum
þarna úti sem hafa ekki efni á því að fara í
hljóðver með lögin sín enda getur kostað 3-400
þúsund krónur að fullklára lag. fréttir
Grafík: 79% Ending: 69%
Spilun: 74% Hljóð: 81%
Kung Fu Panda
16+
NIÐURSTAÐA: 76%
Aðþrengdur Afsakið að ég er til!
EI TTHVAÐ EFTIR
AF LASAGNA?
ÉG SKAL ATHUGA. EF EKKI
ÞÁ ER NÓG TIL AF KÁSSU
OG GÚLLAS I
ÓLÍKT DONNER FÓLK INU. KOM TUPPERWARE
FÓLKIÐ VEL UNDIRBÚIÐNEI ÉG FER EKKERT Í ÞETTA DÆMI AÐ VIÐ SKIP-TUM UM HLUTVERK ... ALLT OF MIKIÐ DRAMA.
Bizzaró
Líkami minn er í tómu
messi og hangir á bláþræði,
en billinn minn er með bestu
vél sem sést hefur á markaði
í dag - Allir læknavinirnir
mínir mæla eindregið með
honum
MYNDASÖGUR
Allt fyrir útihátíðina
veislurnar & partíin
pöntunarsími: 6613700
Ertu að flytja, láttu fagmenn
sjá um verkið fyrir þig
Örugg og trygg
þjónusta
Síðumúla 3 · Sími 553 7355
Hæðasmára 4 · Sími 555 7355
30% afsláttur af
fatnaði