24 stundir - 31.07.2008, Blaðsíða 6

24 stundir - 31.07.2008, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 24stundir TB W A \R E Y K JA V ÍK \S ÍA barna en tilviljun ræður því í hvaða einstaklingum þetta gerist. Fyrstar sinnar tegundar Rannsóknirnar eru þær fyrstu sinnar tegundar þar sem sýnt er fram á slík tengsl milli geðsjúk- dóma og úrfellinga í erfðamengi í stóru þýði og er vonast til að þessar uppgötvanir muni því leiða til þess að hægt verði að greina einstak- linga með geðklofa fyrr en ella og hefja meðferð fyrr. Í samstarfi Niðurstöðurnar voru kynntar í samstarfi við Landspítala, Evrópu- sambandsstyrkta rannsóknahóp- Vísindamenn hjá Íslenskri erfðagreiningu greindu í banda- ríska vísindatímaritinu Nature í gær frá úrfellingum sem fundist hafa í erfðamengi mannsins sem auka áhættu þeirra sem þær bera á því að fá geðklofa. Fimmtánfaldar líkur Í greininni kemur fram að um það bil eitt af hverjum fimm þús- und fæddum börnum bera í sér slíkar úrfellingar, en þær allt að fimmtánfalda líkur á því að við- komandi einstaklingar greinist með geðklofa. Þar sem úrfelling- arnar verða við kynfrumuskiptingu geta þær erfst frá foreldrum til inn SGENE og samstarfsaðila í Noregi, Kína, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Finnlandi, Skotlandi, Englandi, Ítalíu og Hollandi. elias@24stundir.is Vísindamenn hjá Íslenskri erfðagreiningu birta grein í Nature Hægt að greina geðklofa fyrr Íslensk erfðagreining Miklar vonir bundnar við uppgötvanir. Ónæmisdeild Landspítalans tek- ur nú þátt í fjölþjóðlegri tilraun á lyfinu Actemra, nýju lífvirku lyfi við iktsýki sem hefur verið í prófun undanfarin ár. Hefur lyfið þegar verið samþykkt til notkunar í Japan auk þess sem búist er við að Mat- væla- og lyfjastofnun Bandaríkj- anna (FDA) leyfi það á næstunni. Gerist það er það ákveðinn gæða- stimpill sem eykur líkurnar á að það verði leyft í Evrópu og þar með hér, að sögn Arnórs Víkingssonar, sérfræðings í gigtsjúkdómum á Landspítala. Iktsýki er eitt algengasta afbrigði liðagigtar og hrjáir um eitt prósent þjóðarinnar. Að sögn Arnórs virka þau iktsýkislyf sem þegar eru á markaði vel á flesta sjúklinga en þó er um fimmtungur sem þau duga ekki á. Fyrir þann hóp gæti nýja lyfið komið að góðum notum. thorakristin@24stundir.is Framboð á meðferð við iktsýki að aukast Nýtt gigtarlyf í prófun hérlendis Þegar gengið er niður Laugaveg má nú víða sjá lítil blá hús sem minna á dúkkuhús. Þau eru hins vegar með þaki sem hægt er að lyfta svo hægt er að henda niður í þau rusli enda eru þau í raun ruslafötur, dul- búnar sem hús. Jakob Frímann Magnússon mið- borgarstjóri segir ruslaföturnar ekki settar niður í samráði við hann, borgarstjóra eða yfirmann eignasviðs borgarinnar. „Kannski er einhver hér að bregðast við hinu akureyrska græna fram- taki með því að bæta við ruslafötum og ekki ætla ég að lasta framtaks- semi ef hún er til bóta en almenn þumalfingursregla er sú að borgin sé með í ráðum þegar götur og gangstéttir eru annars vegar.“ aak Hulduruslafötur í miðborg Arnarsetur Íslands, sem hefur verið í undirbúningi á Króks- fjarðarnesi, hefur nú sett upp bráðabirgðatengingu við vef- myndavél sem staðsett er við arn- arhreiður við Breiðafjörð. Er sýnd ný mynd á nokkurra sek- úndna fresti á vefnum eyjasigl- ing.is. Þegar leyst hefur verið úr ákveðnum tæknimálum verður hægt að sjá hreyfimynd af fjöl- skyldunni á Reykhólavefnum. þkþ Arnarhreiður í beinni á vefnum Kynnisferðir hafa boðist til að standa straum af kostnaði við hönnun, gerð og uppsetningu á viðvörunarskilti í Reynisfjöru. Miklar umræður hafa verið um hver skuli kosta skilti á þessum vinsæla ferðamannastað, en þýsk hjón voru þar hætt komin í síð- ustu viku. Þórarinn Þór, sölu- og markaðs- stjóri Kynnisferða, segir að fundað verði með sveitarstjórn Mýrdalshrepps og björg- unarsveitum um útfærslu skilt- isins í ágúst. Líklega muni verða um eitt stórt skilti að ræða, með viðvörunum á nokkrum tungu- málum. hos Vilja kosta skilti í Reynisfjöru Eftir Björgu Evu Erlendsdóttur beva@24stundir.is Allt er nú óvíst um byggingu nýs Listaháskóla við Laugaveg. Verð- launatillaga um húsið rúmaðist ekki innan gildandi deiliskipulags, sem borgarstjóri og Magnús Skúla- son, verðandi fulltrúi hans í skipu- lagsráði, vilja fylgja út í æsar til að varðveita 19. aldar götumynd Reykjavíkur. Borgarstjóri vísar í bókun skipulagsráðs máli sínu til staðfestingar. Magnúsi líst hvorki á húsið né staðsetninguna og skóla- stjóri Listaháskólans hafnar því að tillögunni verði breytt. Bókun opin í báða enda Fyrrverandi borgarstjóri vísar því á bug að húsin sem borgarstjóri vill varðveita séu 19 aldar götu- mynd. „Þetta er della, nær væri að tala um 20. aldar götumynd, segir Steinunn Valdís Óskar. Ekkert var útilokað og öllum mátti ljóst vera að skipulagið yrði tekið til endur- skoðunar ef svo bæri undir. Ef ekki, hefði það verið tekið skýrt fram í keppnislýsingu,“ segir Stein- unn Valdís Óskarsdóttir, fyrrver- andi borgarstjóri. Hún segir orða- lag bókunarinnar sem borgarstjóri vísi í fela í sér mikla opnun. „Borgaryfirvöld voru með í ráð- um frá upphafi og þessi stjórnsýsla gengur ekki,“ segir hún. Enginn eins og Ólafur F. Ýmis ummæli borgarstjóra í 24 stundum eru röng og hrokafull að mati Steinunnar Valdísar. „Ég mót- mæli því sem að mér snýr, en Ólaf- ur segist vera fyrsti borgarstjórinn sem sé einlægur umhverfissinni. Ég greiddi atkvæði gegn Kára- hnjúkavirkjun og hef sýnt einlægni í umhverfismálum í verki,“ segir Steinunn Valdís. „Ég veit ekki um neinn stjórnmálamann sem talar til samstarfsfólks síns eins og Ólaf- ur F. Magnússon.“ Steinunn telur Ólöfu Guðnýju Valdimarsdóttur hafa sagt við fjöl- miðla það sem allir hefðu átt að segja í hennar sporum að ráðið myndi fjalla um tillöguna. Réttur mánuður er síðan Ólafur F. Magn- ússon lýsti stuðningi við setu Ólaf- ar í skipulagsráði. Á sama tíma virðist hann hafa staðið í viðræð- um við Magnús sem nú er áætlað að taki við. Vaxandi óvissa um Listaháskóla  Borgaryfirvöld með í ráðum um Listaháskóla frá upphafi  Borgarstjóri lýsti trausti á einn en átti í viðræðum við annan Ráðhús Ekki sér fyrir endann á erfiðleikum í borgarstjórn. ➤ Skoða á möguleika á að leyfaupprunalegri götumynd að halda sér, segir í lýsingu vegna samkeppni um nýjan Listaháskóla. ➤ Arkitektar í keppninni lituekki svo á að deiliskipulagið væri endanlegt. SKIPULAG Í UPPNÁMI „Auðvitað hefur steypa og járn hækkað í verði undanfarið en á móti kemur að það er mun auð- veldara að fá iðnaðarmenn, þeir eru bæði ódýrari og hafa meiri tíma,“ sagði húsbyggjandi í Úlfars- árdal sem 24 stundir náðu tali af í gær. Hann hafði lokið við að fjár- magna næstum alla framkvæmd- ina áður en hann hófst handa svo skortur á lánsfé hindraði hann ekki. Annar hafði aðeins orðið var við lánsfjárþurrð en sagðist engu að síður geta haldið áfram með bygg- inguna. Hann sagði flesta þá sem væru að byggja fyrir sjálfa sig halda áfram, það væru helst þeir verktak- ar sem væru að byggja til að selja sem væru stopp. Þó stöðnunin sem orðið hefur á fasteignamarkaði hafi ekki orðið til þess að stöðva framkvæmdir í Úlf- arsárdalnum kemur hún þó illa við marga þeirra. „Ég skilaði ekki inn lóðinni en það hefur ekkert gengið að selja gamla húsið,“ sagði einn viðmæl- enda en bætti við að fjöskyldan væri staðráðin í að klára að byggja og flytja inn. „Þó það seljist ekki strax held ég að það eigi að vera allt í lagi,“ sagði hann og benti á næstu lóð: „Þarna er fólk að byrja að steypa grunn.“ Fólkið sem þar stóð í fram- kvæmdum var ekki á því að hætta við. „Við erum þegar búin að fjár- festa helling í þessu, láta teikna húsið og þess háttar,“ sögðu þau og bættu við: „Við erum með uppá- skrifað lánsloforð og reiknum með að það standi.“ Þau sögðust frekar bjartsýn á að úr þessu rættist. „Við vonum auðvitað að þetta gangi upp, það er ekki inni í mynd- inna að hætta við fyrr en allt þrýt- ur.“ fifa@24stundir.is Húsbyggjendur halda áfram að byggja í Úlfarsárdal Efni hækkar en smiðir lækka

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.