24 stundir - 31.07.2008, Blaðsíða 35
24stundir FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 35
Það er ólíklegur dúett er sér
um James Bond lagið fyrir næstu
mynd, Quantum of Solace, en
þau Jack White úr The White
Stripes og Alicia Keys eru búin
að vinna titillag myndarinnar.
Þetta mun vera í fyrsta skipti í
sögu James Bond myndanna sem
titillagið er dúett tveggja söngv-
ara.
Amy Winehouse er átti upp-
haflega að hreppa hnossið klúðr-
aði tækifærinu þegar samstarf
hennar og upptökustjórans Mark
Ronson skilaði engum ávöxtum.
Upptökustjórinn rak hana og
sagði fjölmiðlum að hún væri í
engu ástandi til þess að syngja.
Lagið er samið af Jack White
en hann stjórnaði einnig upp-
tökum og trommaði. Það má því
búast við töluvert öðruvísi lagi en
Chris Cornell bauð Bond aðdá-
endum upp á í síðustu mynd.
Langt er síðan svo mikil eft-
irvænting var eftir nýrri Bond
mynd, en túlkun Daniel Craig á
njósnaranum sló rækilega í gegn
síðast. Myndin kemur í bíó hér í
byrjun nóvember en laginu verð-
ur sleppt lausu þónokkuð fyrr.
biggi@24stundir.is
„Nafn? White...
Alicia White“
James Bond
Það verða þau
Jack White og
Alicia Keys sem
sjá um nýja
Bond-lagið.
Sunnudaginn 3. ágúst verður haldið málþing og tónleikar á Árbæjar-
safni í tengslum við sýninguna Diskó og pönk – ólíkir straumar?
Sýningunni er ætlað að höfða til ungs fólks og þar gefst færi á að kynn-
ast menningu ungs fólks í Reykjavík á árunum um 1980. Á málþinginu
verður reynt að varpa ljósi á ákveðna þætti þessara menningarstrauma
og leitað svara við því hvað einkenndi íslenskt diskó og íslenskt pönk. Í
kjölfar málþingsins verða síðan tónleikar, þar sem gestir geta kynnst á
eigin skinni íslenskri pönktónlist. Málþingið hefst klukkan 16.00 en
tónleikarnir byrja um 16.00 þar sem helstu pönksveitir 9. áratugarins
koma fram. tsk
Diskó og pönk á safn