24 stundir - 31.07.2008, Blaðsíða 29

24 stundir - 31.07.2008, Blaðsíða 29
24stundir FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 29 Þjóðhátíð í Eyjum er ætluð fyrir alla fjöl- skylduna og ýmislegt fleira er hægt að gera í Heimaey en að drekka öl og hlýða á tónlist. Á vefsíðunni Ganga.is má finna upplýs- ingar um nokkrar gönguleiðir á eyjunni, sem og annars staðar á landinu, við allra hæfi. Eldfell er yngsta fjall á Íslandi en það myndaðist í gosinu árið 1973. Við lok goss- ins var fjallið um 220 metra hátt en það hef- ur síðan sigið um 18-20 metra. Það tekur um hálfa til eina klukkustund að ganga á topp Eldfells og þaðan er frábært útsýni yfir Vestmannaeyjar. Gengið er frá Upplýsinga- miðstöð Vestmannaeyja. Auðvelt er að ganga á Ofanleitishamar frá Kaplagjótunni í Herjólfsdal og suður meðfram Hamrinum. Þá endar maður í Klaufinni sem er sandfjara við Stórhöfða. Þessi ganga tekur um eina og hálfa klukku- stund en þeir sem vilja lengja hana, eða bara taka aðra styttri göngu, geta gengið Stórhöfðahringinn. Stórhöfði er syðsti punktur Heimaeyjar og þar hefur verið mönnuð veðurathugunarstöð frá 1921. Hringurinn í kringum höfðann er um hálf- ur kílómetri og tekur einungis um hálftíma að ganga hann. Þar er mikið fuglalíf og er meðal annars talið að þar sé stærsta lunda- byggð í heimi. Loks er hægt að ganga á Dalafjall en best er að hefja þá göngu við Friðhafnarskýlið. Er þá gengið með fjöllunum inn í Herjólfs- dal og upp afmarkaðan stíg úr botni dalsins. Þar er frábært útsýni yfir Heimaey og til meginlandsins. Þeim sem vilja kynna sér þessar göngu- leiðir nánar er bent á að góð göngukort fást hjá mörgum þjónustuaðilum í Vest- mannaeyjum. haukurj@24stundir.is Það er nóg að gera fyrir útivistarfólk á þjóðhátíð Margar góðar gönguleiðir er að finna í Vestmannaeyjum Útivist á útihátíð Breyttu til og farðu í gönguferðir. Hátíðin Ein með öllu og allt und- ir fer sem kunnugt er fram á Ak- ureyri um helgina. Búist er við margmenni og fjölbreytt dagskrá verður alla dagana. Þeir hátíð- argestir sem eiga sjaldan leið í höfuðstað Norðurlands ættu að slá tvær flugur í einu höggi og kynna sér þau fallegu svæði sem finna má í nágrenni bæjarins. Perla Eyjafjarðar Hrísey tilheyrir Akureyrarbæ og siglt er þangað á einnar til tveggja stunda fresti. Hver ferð tekur aðeins um 15 mínútur og því er staðsetningin engin fyr- irstaða. Á þessari svokölluðu perlu Eyjafjarðar má meðal annars fara í skoð- unarferð með vagni dregnum af traktor, skoða há- karlasafnið, fara í sund og síðast en ekki síst eru góð- ar gönguleiðir. Eyjan er um 7 km á lengd og breiðust 2,5 km. Þar eru þrjár merktar gönguleiðir, sú græna, sú gula og sú rauða. Eru þær á bilinu 2,3 til 5 km langar. Miklir garðar liggja um eyjuna þvera og endi- langa og eru þeir taldir vera mjög fornir. Einnig er gaman að rölta um og virða fyrir sér fuglalífið. Sérstakur trjásýnistígur Skógrækt hófst í Kjarnaskógi árið 1946 en þar var þá skóglaust með öllu og landið nýtt til beitar og kartöfluræktar. Í dag er þar mikill og fjölbreyttur trjágróður og aðstæða til útivistar góð. Sérstakur trjásýnistígur liggur í gegnum hjarta skógarins með- fram Brunná en þar að auki liðast gott kerfi göngustíga um skóginn. Nær allar plöntur Íslands Í lystigarði Akureyrar, sem opnaður var almenningi árið 1912, má finna nánast allar ís- lenskar plöntur, eða um 400 teg- undir, og þar að auki rúmlega 7.500 erlendar tegundir. Garðurinn var stofnaður að frumkvæði Önnu Schiöth árið 1910 en Margarethe Schiöth, tengda- dóttir hennar, hélt starfinu áfram síðar. Í garð- inum má finna brjóstmynd af Margarethe þar sem á er letrað: „Hún gerði garðinn frægan.“ hj Fagurt umhverfi Akureyrarbæjar

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.