24 stundir - 31.07.2008, Blaðsíða 13

24 stundir - 31.07.2008, Blaðsíða 13
24stundir FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 13 Nú stefnir í að sum-arsmellur ársins verðiListahá- skólinn við Lauga- veg. Höfundar þessa einstæða farsa ganga nú hver fram af öðr- um í hraustlegum yfirlýsingum að misathuguðu máli. Þannig lýsir Magnús Skúlason sem sjálfstæð- ismenn eiga að kjósa í skipulags- ráð í stað Ólafar Guðnýjar Valdi- marsdóttur því yfir að vinningstillaga að Listaháskóla sé ekki góð byggingarlist. Magnús bætti svo enn á skemmtunina þeg- ar hann efaðist um það í viðtali við RÚV að nemendur Listaháskóla ættu að vera að ráfa um Laugaveg- inn. Þetta væri nefnilega versl- unargata. Heilindi og traust eru helstueinkunnarorð Ólafs F.Magnússonar, sem segir það helsta einkenni á sjálfum sér að hann meini það sem hann segir. Sú einkunn sem Ólafur gefur sér vekur eng- an fögnuð stjórn- málamanna og fyrr- verandi samstarfsmanna. Þeir spyrja hverj- um hann sýndi heilindi og traust, þegar hann lýsti fullu trausti á setu Ólafar Guðnýjar Valdimars- dóttur í skipulagsráði, samtímis því að hann var að reyna að ná Magnúsi Skúlasyni inn í skipu- lagsráð. Sjálfstæðisflokkurinn í borgarstjórn virðist fátt vita um orð og gjörðir borgarstjóra síns, en segir hann ráða sínum mönnum. Bloggara frá Ólafsvík datt í hug að best væri að fá Listaháskólann þangað til að létta vanda Reykvík- inga. Nú þegar ljóst er að stúd- entar hafa ekki gott af að ráfa um Laugaveginn og borgarstjóri ræð- ur sinni stefnu er spurt: Skyldi Sjálf- stæðisflokkurinn taka undir með Magnúsi um að skólinn eigi jafnvel ekki heima við Laugaveg ef borgarstjóri segir það líka? Sjóðheitt var í gær en spáð erað hitinn í þjóðfélaginuhækki meira á næstunni í pólitík og á vinnumarkaði. Gunn- ar Birgisson í Kópavogi sló keilu í gær þegar hann lokaði bæjarskrif- stofunni vegna veðurs. Ólíkt ýms- um öðrum vinnustöðum var hann aftur opnaður í morgun. beva@24stundir.is KLIPPT OG SKORIÐ Það var hárrétt ábending hjá bankastóra Landsbankans, Sigur- jóni Árnasyni í útvarpsviðtali, að Íslendingar hafi allar forsendur til að lifa góðu lífi haldi þeir vel á málum. Spurning er hins vegar hvernig við berum okkur að. Þar er ég bankastjóranum ekki sammála. Hann sér helst möguleika í áli. Að trúa á eigin getu Íslendingar eru vel menntuð þjóð sem býr yfir miklum sköp- unarkrafti, við erum ekki þjökuð af skrifræðis- og reglugerðarhugs- un úr hófi fram (þótt marga dreymi um það illu heilli að koma okkur kirfilegar undir tilskipana- veldið í Brüssel). Íslendingum vaxa hlutirnir almennt séð ekki í aug- um; tilfinningin er sú að flestu sé hægt að redda. Þessi hugsun er dýrmæt. Þann dag sem við ger- umst sérfræðingar í að ná í pen- inga úr öllum sjóðunum í Evrópu- sambandinu og hættum að stóla á okkur sjálf, þá mun fara að halla undan fæti hjá landanum. Betra er að hafa minni sjóðsaðgang en þeim mun meiri trú á sjálfan sig og vilja til að standa sig. Bankastjóra fatast flugið Aftur að álinu. Bankastjóri Landsbankans orðaði það svo að álframleiðsla snerist um að flytja út orku. Nú væri góður prís á orku í heiminum og um að gera að grípa tækifærið. Virkja án afláts og selja álframleiðendum orkuna. Svo var að skilja að þetta væri tækifæri sem mætti ekki ganga okkur úr greip- um. Kannski kæmi það ekki aftur. Þarna hygg ég að Sigurjóni banka- stjóra fatist flugið heldur betur. Í fyrsta lagi erum við að fá mjög lágt verð fyrir orkuna. Í öðru lagi mun orkuvandinn í heiminum aukast fremur en hitt og af þeim sökum erum við ekki að missa af neinu tækifæri núna. Í þriðja lagi væri heppilegra að láta íslensk atvinnu- fyrirtæki og heimili að sjálfsögðu fá orkuna á gjaf- prísum í stað þess að láta fjöl- þjóðlega álrisa njóta vildarkjara. Það væri betra fyrir íslenskt at- vinnulíf. Við skulum ekki gleyma því að virðisaukinn fyrir íslenskt þjóðarbú af álframleiðslu í eigu er- lendra fjárfesta er miklu minni en af nánast öllum innlendum avinnurekstri! Metum Þjórsá að verðleikum Síðast tel ég svo upp það sem mestu máli skiptir. Að umbreyta orku í ál er ekki gert okkur að kostnaðarlausu. Fórnin er ekki smá. Fórnað er náttúruperlum Ís- lands. Sigríður frá Brattholti bjarg- aði Gullfossi á sínum tíma; kvaðst fremur fórna lífi sínu en láta eyði- leggja Gullfoss. Ekki vil ég mann- fórnir. En það er engu að síður okkar kynslóðar að bjarga Þjórsá og Jökulánum í Skagafirði frá skammsýnum og virkjunaróðum stjórnvöldum. Herhvöt Sigurjóns bankastjóra og félaga nú síðast gengur út á að víla ekki fyrir okkur að virkja á kostnað náttúrunnar. Ég hef rætt við fjöldann allan af fólki sem ferðast hefur um landið okkar í sumar, bæði innlent fólk og erlent, frá sér numið af hrifningu. Gullfoss þótti glæsilegur og ógleymanlegt að upplifa flúðasigl- ingar í Jökulánum í Skagafirði, Þjórsá tignarleg. Fórnað fyrir einnota dós Nú er spurningin hvort viljum við heldur: a) Varðveita náttúru- perlur Íslands fyrir komandi kyn- slóðir að njóta. b) Fórna þeim fyrir vafasama skammtímahagsmuni (innspýtingu í efnahagslífið rétt á meðan verið er að virkja og reisa álverksmiðjurnar) og taka þannig þátt í framleiðslu „hreinnar orku“ til að niðurgreiða einnota kókdósir og álbakka undir kjötið á grillið. Ég held þeir kosti tíkall stykkið. Ekki mikið. Enda orkan ódýr. Náttúruperlur á gjafprís. Ætlum við að fara svona með náttúru Ís- lands? Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Höfundur er alþingismaður Enginn veit hvað átt hefur … VIÐHORF aÖgmundur Jónasson Þann dag sem við ger- umst sér- fræðingar í að ná í pen- inga úr öllum sjóðunum í Evrópusambandinu og hættum að stóla á okkur sjálf, þá mun fara að halla undan fæti hjá land- anum. Vinnulyftur ehf. Smiðsbúð 12 • 210 Garðabæ Sími: 544 8444 • Fax: 544 8440 www.vinnulyftur.is Vinnulyftur og jarðvegstæki til leigu og sölu Erum með fjölbreytt úrval af vönduðum vinnulyftum og jarðvegstækjum til leigu og sölu. Ef þig vantar innilyftur eða stórar útilyftur þá höfum við lausnina. Hafið samband og fáið verðtilboð! Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsunum Fákafeni) www.gala.is • S:588 9925 Opið 11-18 og 11-16 lau. ÚTSÖLULOK Enn meiri verðlækkun Skólavörðustíg 7 • 101 Reykjavík • Sími 551 5814 • www.th.is Í rúm 40 ár hefur Tösku og hanskabúðin á Skólavörðustíg haft á boðstólum ríkulegt úrval af ferðatöskum, handtöskum, hönskum og göngustöfum svo fátt eitt sé nefnt. Nú höfum við bætt um betur og opnað verslun okkar á veraldarvefnum þar sem hægt er á aðgengilegan hátt að skoða og gera góð kaup á slóðinni www.th.is Úrval vandaðra vörumerkja eins og Adax, Cavalet, Membur o.fl.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.