24 stundir - 31.07.2008, Blaðsíða 25

24 stundir - 31.07.2008, Blaðsíða 25
24stundir FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 25 Það er stundum hægt að fá kjúklingalæri á tilboðsverði og um að gera að næla sér í pakka af þeim. Kjúklingalæri eru hentug í ferðalagið. Grillsósuna er ágætt að gera heima áður en haldið er af stað. Í þessari uppskrift er beikoni vafið um kjúklingalærin áður en þau eru sett á grillið en einnig má nota ítalska parmaskinku. Uppskriftin mið- ast við þrjá. 6 kjúklingalæri 6 beikonsneiðar Grillsósa 2 dl tómatsósa ½ dl hunang 2 msk. olía 2 tsk. karrí 1 msk. Worchestershire-sósa 1 tsk. paprikuduft 2 tsk. sítrónusafi 1/2 tsk. salt nýmalaður pipar Blandið öllu þessu sem upp er talið saman í skál og hrærið vel. Smakkið til og bragðbætið meira ef þörf er á. Vefjið beikonsneiðum utan um lærin og fest- ið með tannstöngli. Penslið kjúklinginn með grillsósunni og leggið á grillið. Eldunartími er 30 mínútur á miðlungshita. Snúið lær- unum við öðru hverju og penslið aftur með sósunni. Gott er að bera fram t.d. grillaðan ananas með þessu, salat og gott brauð. Einnig væri gott að búa til kartöflusalatið hans Páls Ás- geirs hér á síðunni til hliðar og hafa með. Kartöflusalat er oft best daginn eftir að það er búið til. Þessi réttur er upplagður í sumarbústaðnum eða úti í guðsgrænni náttúrunni. GOTT Á GRILLIÐ UM HELGINA Grilluð kjúklingalæri með beikoni Nammi namm Grilluð kjúklinga- læri vafin með beikonsneiðum. Stuðningsmenn forsetaframbjóð- andans Baracks Obama slógu upp heljarinnar grillveislu fyrir gesti og gangandi í Incline Village í Nevada á dögunum. Tímasetn- ingin og staðsetningin var engin tilviljun því á sama tíma á svip- uðum slóðum hélt keppinautur Obama, rebúblikaninn John McCain, hundrað manna einka- fjáröflun. „Mér finnst þetta vera einkennandi fyrir frambjóðend- urna,“ segir skipuleggjandi grill- veislunnar, Walt Borland. „Við stöndum fyrir fjölskylduskemmt- un sem er opin öllum og þar að auki ókeypis á meðan McCain og hans menn eru með fjáröflun sem kostar þúsundir dollara að sækja,“ bætir Borland við. For- setaslagurinn teygir sig víða og allar leiðir eru reyndar til að ná athygli almennings. hh Obama býður í grillveislu Par sem lá í sólbaði fyrir utan hús sitt í Rainhill í Bandaríkjunum taldi sig finna lykt af grillveislu en voru í raun að þefa af eigin húsi sem stóð í ljósum logum. Þau höfðu legið í nokkrar mín- útur þegar þau áttuðu sig á því að eldtungur stóðu út um eldhús- gluggann á húsinu. Parið stökk til og byrjaði að ráðast að eldinum með garðslöngu. Stuttu síðar kom slökkviliðið á vettvang og slökkti eldinn, en eldhúsið var gjörónýtt auk þess sem alvarlegar reykskemmdir urðu í húsinu. Af lyktarskyni parsins að dæma mætti ætla að þau séu alvön því að brenna steikurnar á grillinu. hh Grilllyktin var af húsbruna 18, 25 eða 34 ára? Gunnar Baldursson er 18 ára menntaskólanemi Að kAupA vín er ekkert Grín vinbudin.is takk fyrir að sýna okkur skilríki að eigin frumkvæði þegar þú kemur í vínbúðina. Þannig leggjumst við á eitt um að takmarka aðgengi unglinga að áfengi. Hafðu skilríkin meðferðis E N N E M M /S ÍA /N M 34 68 9

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.