24 stundir - 31.07.2008, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 24stundir
Það er meira
í Mogganum
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800
í dag
Fimmtudagur 31. júlí 2008
Veðursældin í máli,
myndum og grafík
» Meira í Morgunblaðinu
Hitabylgja
Baltasar Kormákur fór á
hestbak með Sam Shepard
»Meira í Morgunblaðinu
Heim eftir tökur
Aníka Rós kolféll fyrir
þýsku fatamerki
» Meira í Morgunblaðinu
Frá Myspace í búð
Kvikmyndin Wall-E skart-
ar glæsilegri teiknitækni
» Meira í Morgunblaðinu
Galdrar Pixar
Viðbúnaður og veður fyrir
verslunarmannahelgina
» Meira í Morgunblaðinu
Hvert skal halda?
Eftir Hauk Harðarson
haukurh@24stundir.is
„Það er alltaf talað um grill eins og
einhver vísindi. Sannleikurinn er sá
að þetta er eitthvað það einfaldasta
sem maður gerir. Þú hendir kol-
unum í hrúgu samkvæmt leiðbein-
ingum, hellir yfir þau vökva og
kveikir í og bíður eftir að þau verði
hvít. Þá leggur þú kjötið á grillið og
bíður eftir að það steikist í gegn.
Þetta eru ekki beinlínis geimvís-
indi,“ segir Páll Ásgeir Ásgeirsson,
áhugamaður um útivist og höf-
undur ýmissa leiðsögubóka, þeirra
á meðal er bókin 101 Ísland sem nú
situr í metsölulistum bókabúða.
Einnota grill einföld og góð
Páll segir það verðugt markmið
að leitast við að hafa hlutina sem
einfaldasta í tjaldútilegum. „Ef ég
vil hafa hlutina mjög einfalda, sem
maður á alltaf að leitast við, þá
finnst mér rosalega þægilegt að
nota einnota grill sem hægt er að
kaupa á bensínstöðvum. Enginn
íkveikjulögur eða neitt og þau duga
vel fyrir tvo til þrjá. Eins einfalt og
það getur verið,“ segir Páll en bætir
þó við: „En það má alls ekki skilja
þau eftir úti í náttúrunni og það á
ekki að leggja þetta ofan á grasblett
á meðan grillað er því þá myndast
brunablettur. Best er að grilla á
sandi eða möl eða þá leggja steina
undir grillið.“
Heimsins besta kartöflusalat
Páli þykir ekki mikið til inn-
pakkaðs grillkjöts koma. „Ég vil
vita hvað ég borða. Þess vegna hef
ég tilhneigingu til að sniðganga
þessar vandlega kafkrydduðu grill-
sneiðar. Mér finnst þær frekar
ólystugur matur satt að segja,“ seg-
ir Páll sem vill hafa matinn, eins og
flest annað í útilegunni, sem ein-
faldastan. „Toppgrillmáltíðin í
minni útilegu er ef ég nenni að gera
gott kartöflusalat áður en ég fer að
heiman. Þá hef ég það með mér og
kaupi tvær til þrjár tegundir af
pylsum og grilla þær og borða með
kartöflusalatinu. Allt snýst þetta
um að hafa lífið eins einfalt og
hægt er,“ segir Páll sem deilir upp-
skriftinni með lesendum.
Kartöflusalat Páls Ásgeirs
Hráefni:
2 kg kar töflur
hálfur laukur
tvö græn epli
4 harðsoðin egg
súrmjók
majones
salt
pipar
beikon
Aðferð:
Sjóðið kartöflurnar, afhýðið og
kælið. Skerið kartöflurnar í teninga
og setjið í skál. Fínsaxið hálfan
lauk og tvö græn epli og bætið í
skálina ásamt harðsoðnu eggj-
unum sem eru skorin niður. Búið
til sósu úr súrmjólkinni og majo-
nesinu og kryddið með salti og
pipar. Steikið beikonið, saxið niður
og bætið saman við allt hitt. Þetta
er allt hrært saman og þá er komið
„besta kartöflusalat í heimi“.
Ekki fyrir alveg venjulegt fólk
En hvert skyldi útilegumaður á
borð við Pál Ásgeir fara um sjálfa
verslunarmannahelgina? „Ég ætla
ekki að fara neitt. Ég ætla bara að
vera heima í garðinum, það er ekki
flóknara en það. Sannleikurinn er
sá að það er alltaf gaman að fara í
útilegu og tjalda í fallegum
hvammi við lækjarnið og hafa það
notalegt, fara í skemmtilegar
gönguferðir og komast í samband
við náttúruna,“ segir Páll og heldur
áfram: „En þessar skemmtanir svo-
kölluðu sem eru haldnar um versl-
unarmannahelgina eru náttúrlega
ekki fyrir alveg venjulegt fólk. Ef
þú leggur kalt mat á þetta; fimm
þúsund ungmennum er safnað
saman á tiltölulega þröngu svæði
og þau eru öll viti sínu fjær af
áfengisneyslu, það getur aldrei
orðið skemmtilegt í hinum hefð-
bundna skilningi þess orðs. En ég
tel mig muna það frá því að ég var
miklu yngri en ég er núna að þeim
sem taka þátt í þessu getur þótt
það býsna skemmtilegt svona part
úr nóttu eða svo.“
Páll Ásgeir Ásgeirsson gefur uppskrift að besta kartöflusalati í heimi
Snýst allt um að
gera lífið einfalt
Páll Ásgeir Ásgeirsson,
höfundur leiðsögubók-
arinnar 101 Ísland sem
nú situr á metsölulistum,
leggur mikið upp úr því
að hafa lífið einfalt. Það á
sérstaklega við í tjaldúti-
legum en hann kýs pylsur
á grillið ásamt heimsins
besta kartöflusalati en
gefur lítið fyrir útihátíðir.
Einfaldur Páll Ásgeir vill pyls-
ur og kartöflusalat í útileguna.
➤ Páll Ásgeir hefur gefið útfjölda leiðsögubóka. Þeirra á
meðal er 101 Ísland sem situr
á metsölulistum bókabúða.
➤ Hann gefur lesendum upp-skrift að „heimsins besta“
kartöflusalati“ að eigin sögn.
PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
Til að fá hreinan og fallegan
kjúkling er gott að baða hann upp
úr vatni og ediki. Setjið einn bolla
af ediki og tvo bolla af vatni í skál
og leggið kjúklinginn ofan í. Nudd-
ið kjúklinginn upp úr blöndunni
og endurtakið ferlið einu sinni í
nýrri skál. haukurh@24stundir.is
Baðið kjúklinginn upp úr vatni og ediki áður en hann er eldaður
Kjúklingurinn í bað
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is grillið