24 stundir - 31.07.2008, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 24stundir
Alla daga
frá10til 22
800
5555
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@24stundir
Það eru margir sem halda að Hel-
ena sé dóttir Árna golfkennara
Jónssonar á Akureyri. „Nei, ég er
sko ekki dóttir hans, en þú ert ekki
sá fyrsti sem spyrð mig að þessu. Ég
var einu sinni rangfeðruð í beinni
útsendingu í sjónvarpi og ég var
voða sár yfir því og pabbi enn
meira. Pabbi minn er Árni Árna-
son, ekki Jónsson,“ segir Helena og
brosir blítt, enda aldrei langt í bros-
ið og kímnina hjá henni.
Hún er fædd í Reykjavík, flutti
ung til Akureyrar og var þar til tví-
tugs en þá hélt hún til Skotlands í
St. Andrews-háskólann samfara því
að leika golf á styrk þar. Hún var
þar í eitt ár en kom þá heim og sett-
ist að í Reykjavík þar sem hún gekk
til liðs við GR. Hún er búin að vera í
klúbbnum í fjögur ár og ná tveimur
Íslandsmeistaratitlum í höggleik.
„Það er ekki svo slæmt, er það?!“
hlær Helena.
Ævintýraferð með bakpoka
Hún lauk BA í sálfræði í vor og
vinnur í sumar hjá BYR í Árbænum
og fer í skóla aftur í haust, eða hvað?
„Nei, ég ætla að taka mér pásu í vet-
ur og ferðast aðeins og golfsettið
verður ekki með í för. Það er ekki
oft sem maður skilur það eftir, en
það verður gert núna. Ég og Þórdís
Edda Jóhannesdóttir vinkona mín
ætlum að láta gamlan draum rætast
um að ferðast með bakpoka og setj-
um stefnuna á Suður-Asíu og Ástr-
alíu. Við verðum á ferðinni í tæpa
þrjá mánuði, frá lokum október og
fram yfir áramótin,“ segir Helena
sem verður 24 ára í lok október.
„Þetta verður ógeðslega
skemmtilegt og ég er mjög spennt.
Við fljúgum til Bangkok, förum síð-
an upp til Laos og þaðan niður til
Malasíu og ætlum að læra að kafa
þar og fara síðan til Ástralíu og kafa
í kóralrifjunum,“ segir Helena og er
komin hálfa leiðina þangað.
Miður mín yfir landsliðinu
Það kemur annar svipur á Hel-
enu þegar hún er spurð út í lands-
liðið. „Mér skilst að það verði ekki
sent lið á Heimsmeistaramótið og
mér finnst það bara virkilega slæmt
mál. Við erum búnar að keppa að
þessu í tvö ár. Við erum ógeðslega
svekktar enda hafa ekki verið nein
verkefni fyrir okkur í sumar og
þetta var það sem við höfðum
hlakkað til og stefnt að. Þetta hefur
verið þvílíkt keppikefli hjá manni
að komast í liðið en svo verður ekki
farið. Ég er miður mín út af þessu,“
sagði Helena og bætir við: „Þetta er
meira en eitthvert hobbý hjá
manni. Við eyðum brjáluðum tíma
í golfið þannig að þetta voru mjög
leiðinlegar fréttir sem maður fékk í
gær,“ segir Helena.
18. á Jaðri í uppáhaldi
Þegar hún er spurð hvort hún
eigi sér einhvern uppáhaldsgolfvöll
á landinu færist bros yfir andlit
hennar. „Jaaaá, það er Grafarholtið
og völlurinn heima á Akureyri.“
En uppáhaldsholur – kannski sú
16. í Eyjum þar sem hún fékk örn
einn daginn? „Já, hún er í fínu
uppáhaldi núna. Annars eru þær
nokkrar. Átjánda heima á Akureyri
er æðisleg, frábær lokahola,“ segir
Helena.
Spurð um hvernig taugarnar hafi
verið í umspilinu og bráðabanan-
um í Eyjum segir Helena: „Það er
eiginlega allt í móðu. Ég einbeitti
mér svo rosalega að því að vera í
núinu og missa mig ekki. Ég andaði
djúpt og talaði við kaddýinn minn
um eitthvað allt annað á milli
högga,“ segir Helena og segir að-
spurð að líklega hafi sér þótt ljúfara
að vinna um helgina en þegar hún
vann í fyrsta sinn 2006. „Núna er
maður kannski að stimpla sig betur
inn, að vinna þetta í annað sinn,“
segir Íslandsmeistarinn.
Meistarataktar Helena
Árnadóttir er ósátt við að
kvennalandsliðið fer ekki
á heimsmeistaramótið í
Ástralíu í haust.
Ætla að læra að
kafa í Malasíu
Íslandsmeistarinn og vinkona hennar fara í þriggja mánaða bakpokaferðalag
Það er engin lognmolla
hjá nýkrýndum Íslands-
meistara kvenna í högg-
leik, Helenu Árnadóttur
úr Golfklúbbi Reykjavík-
ur. Hún fagnaði sigri í
Vestmannaeyjum á
sunnudaginn, er miður
sín vegna þess að
kvennalandsliðið verður
ekki sent á Heimsmeist-
aramótið og ætlar í haust
með vinkonu sinni í bak-
pokaferðalag til Suður-
Asíu og Ástralíu.
Pása Helena ætlar í þriggja mánaða
bakpokaferðalag í haust.
➤ Lokaholurnar á Landsmótinuí Eyjum eru enn í móðu hjá
Helenu sem reyndi að ein-
beita sér að núinu og ræddi
við kaddýinn milli högga um
eitthvað allt annað en golf.
➤ Kristín Margrét Axelsdóttir,móðir hennar, úlnliðsbrotn-
aði illa á þrettándu holu á
öðrum degi.
MEISTARINN
24stundir/Brynjar Gauti
24
st
un
di
r/
Á
rn
i S
æ
b
er
g
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Þetta hefur verið þvílíkt keppikefli hjá
manni að komast í landsliðið en svo
verður ekki farið. Ég er miður mín út af þessu.