24 stundir


24 stundir - 31.07.2008, Qupperneq 20

24 stundir - 31.07.2008, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 24stundir Lögmál 1: Bikarinn skal vera tandurhreinn, þveginn upp úr fitulausri sápu og skolaður í köldu vatni þar til hann nær sama hitastigi og ölið. Þannig verður froðan þéttari og heldur hvítum hlífiskildi sínum lengur yfir hinum dýrmæta vökva. Minnstu óhrein- indi geta spillt fyrir og mengað fullkomin bragðgæði Stellu Artois. Lögmál 2: Þegar byrjað er að hella er bikarnum hallað um 45 gráður. Þá sjáum við hvernig dýrmætur vökvinn hringar sig ofan í bikarinn og myndar iðuna sem er galdurinn við fljótandi gullgerðarlist. Þegar ölið kemst í samband við súr- efni myndast smám saman þétt froða sem innsiglar inni- haldið og verndar það frá fyrsta sopa til hins síðasta. Lögmál 3: Þegar bikarinn, sem hingað til hefur hallað um 45 gráður, hefur verið fylltur að þremur fjórðu skal hann réttur við. Með jafnri hreyfingu er hann samtímis færður niður frá flösku- opi um sem nemur hæð bikarins. Þannig krýnum við ölið þéttri froðu sem skýlir innihaldi bikars- ins og tryggir ferskleika og líf þessa fljótandi gulls. Eftir Hildi E. Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is Myndlistarkonurnar Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir og Þórdís Jóhannes- dóttir opna sýninguna Flökt í Start Art listamannahúsi í dag klukkan 17. Á sýningunni flétta þær saman hugmyndir sínar með því að nota verk hvor annarrar sem efnivið í nýjar innsetningar, en þær notast við ólíka miðla í listsköpun sinni. „Við höfum báðar unnið töluvert með innsetningar en málverk hefur alltaf verið útgangspunktur hjá mér á meðan ljósmyndir eru helsti útgangspunktur Þórdísar,“ útskýrir Ingunn Fjóla. Vinna hlið við hlið Þórdís og Ingunn kynntust í myndlistardeild Listaháskóla Ís- lands þaðan sem þær útskrifuðust í fyrravor og síðan þá hafa þær verið með vinnustofur hlið við hlið. „En svo ákváðum við að opna á milli stofanna og erum því í raun með eina sameiginlega vinnustofu núna,“ útskýra þær, en bæta því við að þær hafi ekki áður unnið að sömu verkunum. „Við erum að prófa í fyrsta skipti að blanda verk- um og miðlum hvor annarrar sam- an og erum dálítið að fara út í óvissuna með það.“ Þær segjast þó ekki beinlínis vera líkir listamenn. „Verkin okkar eru allavega langt frá því að vera eins, en þó er einhver samhljómur á milli okkar. Það er kannski þess vegna sem við treystum hvor ann- arri til þess að vinna áfram í verk- unum okkar. Það er nokkuð sem ég gæti aldrei gert með hverjum sem er, enda eru verkin eiginlega eins og hálfgerð framlenging af manni sjálfum,“ segir Þórdís. Á vinnustofunni Ingunn Fjóla og Þórdís undirbúa sýninguna. 24 stundir/G.Rúnar Ingunn Fjóla og Þórdís sýna í Start Art Flétta saman hugmyndir Tvær myndlistarkonur flétta saman hugmyndir sínar og vinna með verk hvor annarrar á sýningu sem verður opnuð í Start Art í dag. „Keppendurnir í ár eru samtals átta talsins, þrjár konur keppa um titilinn Draggkóngur ársins og fimm karlar keppa um titilinn Draggdrottning ársins,“ segir Georg Erlingsson, einn aðstand- enda Draggkeppni Íslands 2008. Keppnin fer fram í Íslensku óp- erunni 6. ágúst og er forsala að- göngumiða þegar hafin á Q-bar. Hann segir það vefjast fyrir mörgum hvers vegna orðið dragg er skrifað með tveimur g-um í stað eins en að ástæða þess sé ein- föld. „Orðið drag er tekið beint úr ensku en það varð til á 19. öld meðal samkynhneigðra eða leik- húsmanna og táknaði þá athöfn að fara í föt af hinu kyninu. Á ís- lensku var orðið tekið beint upp úr ensku þegar sýningar af þessu tagi urðu vinsælar seint á síðustu öld. En fyrir nokkrum árum stungu Þorvaldur Kristinsson, fyrrverandi formaður Samtakanna ’78, og Mörður Árnason íslensku- fræðingur upp á rithættinum dragg, enda réttur ritháttur miðað við hvernig orðið er borið fram. Það er nefnilega borið fram eins og „flagg“ sem þýðir fáni en ekki eins og „flag“ sem þýðir drulla,“ segir hann. „Þetta er nýyrði í ís- lensku og það á bara eftir að fest- ast í sessi.“ Kynnir á Draggkeppni Íslands 2008 verður Haffi Haff. Húsið verður opnað klukkan 20 og sýn- ingin hefst klukkan 21. Átta keppendur í Draggkeppni Íslands 2008 Dragg borið fram eins og flagg Skrautleg Konur og karlar keppa í Dragg- keppni Íslands. Blandaður kór frá Björneborg (Pori) í Finnlandi stígur á stokk í Norræna húsinu á morgun, föstu- daginn 1. ágúst klukkan 20. Kór- inn, sem nefnist á finnsku Porin Laulajat, eða Bjarnarborgarsöngv- ararnir, var stofnaður árið 1937 og hélt upp á sjötugsafmæli sitt í fyrra með hátíðarkonsert í Miðborgar- kirkjunni í Bjarnarborg. Söngskrá hans hefur alla tíð verið fjölbreytt og spannað vítt svið, allt frá kirkju- tónlist til skemmtitónlistar. Á efn- isskrá í Norræna húsinu verða meðal annars finnsk þjóðlög, vals- ar, finnskir tangóar og margt fleira. Á sunnudaginn syngur kórinn við messu í Langholtskirkju klukk- an 11 og tekur virkan þátt í guðs- þjónustunni. Þar ætlar kórinn að syngja tvo finnska sálma og einn sænskan. Heimsókn Porin Laulajat hefur verið undirbúin í samvinnu við finnska sendiráðið, Norræna hús- ið, Langholtskirkju og Suomi-fé- lagið. Stjórnandi kórsins er Leelo Lipping fiðluleikari. Aðgangur að hvorum tveggja tónleikunum er ókeypis og allir velkomnir. Tvennir kórtónleikar um helgina Bjarnarborgar- söngvarar á Íslandi LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is a Við erum að prófa í fyrsta skipti að blanda verkum og miðlum hvor annarrar saman og erum dálítið að fara út í óvissuna með það. menning

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.