24 stundir - 31.07.2008, Side 21
Í góðu formi Eiríkur
byrjaði að undirbúa sig í
maí og er kominn í gott
hlaupaform.
„Ég er að undirbúa mig fyrir
hálfmaraþon en ég hef tekið 10
km nokkrum sinnum, t.d. í fyrra,
en alltaf verið í alveg glötuðu
formi,“ segir Eiríkur Ásþór Ragn-
arsson tónlistarmaður en hann
stefnir á þátttöku í Reykjavíkur-
maraþoni Glitnis 23. ágúst næst-
komandi. Segist hann hafa byrjað
að undirbúa sig í maí en það var
mamma hans sem manaði hann
að taka þátt, enda hefur hún sjálf
tekið þátt oft áður. Segir hann
mikilvægt að fara ekki of geyst við
upphaf undirbúnings.
„Maður byrjar náttúrlega bara
á því að hlaupa en ég gúglaði bara
eitthvert plan sem hjálpaði mér að
ná góðum tíma. Svo byrjarðu að
hlaupa hraðar en síðast og svo
enn hraðar í næsta skipti. Maður
má samt ekki ofgera sér því mað-
ur getur farið illa með sig. Ég er
t.d. strax kominn með svokallað
hlauparahné og það kemur bara
til af því að ég er óvanur og ég
hita ekki nóg upp. En það er ekki
neitt alvarlegt. Ég þarf bara að
hvíla mig í rúma viku.“
Margar mismunandi leiðir
Margar sögur fara af því hvern-
ig best sé að undirbúa sig fyrir slík
hlaup.
„Mamma mín segir mér eitt,
vinur minn annað og fagmanna-
síður á netinu eitthvað allt annað.
En auðvitað gengur þetta allt bara
út á það sama; að hlaupa.“
Hann ætlar því að halda
ótrauður áfram eftir smá hvíld en
stefnir á að hlaupa heilt maraþon
síðar.
„Það verður ekki seinna en eftir
tvö ár. Maður þarf að vera vel
undirbúinn andlega og líkamlega
og ef ég verð í góðu hlaupaformi
þarf ég vonandi ekki nema um 18
vikur til að undirbúa mig fyrir
heilt maraþon.“ haukurj@24stundir.is
Eiríkur Ásþór Ragnarsson ætlar að hlaupa hálfmaraþon í ágúst
Snýst auðvitað bara um að hlaupa
24stundir/Allan Sigurðsson
24stundir FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2008 21
Lögmál 4: Bikarinn er fullur og froðutoppurinn
rís upp yfir brúnina. Þá er froðusveðjan tekin.
Henni er beint frá líkamanum og strokið lárétt með
45 gráðu halla, hársbreidd yfir brúninni. Stærstu
loftbólurnar hafa leitað efst í froðuna og mistakist
þetta skref munu þær springa þeim afleiðingum að
froðan fellur hratt. Án froðunnar er ölið varnar-
laust og verður flatt á skammri stundu.
Lögmál 5: Að lokum verður að tryggja að froðu-
toppurinn sé af nákvæmlega réttri þykkt.
Fullkomnunin felst í smáatriðunum: Í 33 cl
bikar skal froðan vera nákvæmlega 3 cm. Hvorki
meira né minna. Þetta samsvarar samanlagðri
breidd vísifingurs og löngutangar þess sem
njóta skal.
Jeantex Bike TransAlp-fjalla-
hjólakeppnin fór fram í 11. skipti
dagana 19.- 26. júlí. Leiðin liggur
frá Füssen í Þýskalandi til Riva
del Garda á Ítalíu. Tveir hjól-
reiðamenn keppa saman í liði og
hét lið Íslendinganna Freys og
Darra því skemmtilega nafni
„Brekkubanarnir“. Að þessu
sinni hófu 587 lið keppni og 500
luku henni. ej
TransAlp-keppnin
Hjólreiðakapparnir Freyr
Franksson og Darri Mikaelsson
ráðast yfirleitt ekki á garðinn þar
sem hann er lægstur. Fyrir þremur
árum hjóluðu þeir um Nepal og
Tíbet þar sem þeir komu meðal
annars við í grunnbúðum Everest-
fjalls. Á dögunum voru þeir síðan
fyrstir Íslendinga til að ljúka
TransAlp-fjallahjólakeppninni
sem þykir mikil þrekraun.
Hálft Everest á einum degi
Í TransAlp-keppninni hjóla
þátttakendur frá Þýskalandi til
Ítalíu, alls um 666 km leið og nem-
ur samanlögð hækkun tæpum
22.000 metrum. „Þetta eru svaka-
legar hækkanir. Þær samsvara sem
nemur tíu Hvannadalshnúkum.
Mesta hækkunin á einum degi var
tæpir 4000 metrar sem er um það
bil helmingur af Everest,“ segir
Freyr og bætir við að hækkanirnar
séu langerfiðasti hluti keppninnar.
Ekki er auðvelt að finna hentug
æfingasvæði undir slík átök í ná-
grenni höfuðborgarinnar. „Við
höfum yfirleitt hjólað hér í bæn-
um. Það eru í raun engin almenni-
leg æfingasvæði hér nema þá helst
Kambarnir og Reykjadalurinn,“
segir Freyr.
Lítil hvíld í átta daga
Keppnin skiptist í átta leggi sem
dreifast á jafnmarga daga. Hjól-
reiðakapparnir eru því undir gríð-
arlegu álagi meðan á keppni stend-
ur. „Menn sváfu ekki meira en
fjóra til fimm tíma. Svo var morg-
unmatur kl. 6 á morgnana, lagt í
hann kl. 9 og hjólað í 6-10 tíma á
dag,“ segir Freyr og bætir við að þó
nokkrir hafi dottið út úr keppni.
„Það er mikið af slóðum þarna þar
sem ýmsar hættur leynast og
menn voru að slasa sig. En þetta
var gríðarlega vel skipulagt og
menn á mótorhjólum, þar á meðal
læknar, sem voru alltaf til staðar ef
eitthvað kom upp á,“ segir Freyr.
Magnað umhverfi
Þrátt fyrir álagið gafst mönnum
færi á að njóta náttúrufegurðar-
innar á leiðinni. „Þetta er alveg
magnað umhverfi. Maður kemst
ekki í tæri við neitt flottara en
þetta,“ segir Freyr. „Maður ein-
beitir sér samt mest á slóðana og
reynir að hafa athygli á því sem
maður er að gera. Ef maður ætlaði
að njóta einhvers annars en bara
að hjóla þyrfti maður að gefa sér
lengri tíma í þetta,“ bætir hann
við. einarj@24stundir.is
Luku TransAlp-fjallahjólakeppninni fyrstir Íslendinga
Hækkun á við tíu Hvannadalshnúka
Þrekvirki Freyr Franks-
son og Darri Mikaelsson
luku TransAlp-hjólakeppn-
inni fyrstir Íslendinga.
Ef menn verða á ferðalagi um
helgina er tilvalið að staldra við
öðru hverju til að hreyfa sig. Það
er góð hugmynd að hafa hand-
hæg leiktæki með í farangrinum
sem hægt er að grípa í nánast
hvar sem er. Boltar, frisbídiskar,
sippubönd, tennis- og badmin-
tonspaðar henta til dæmis vel og
taka lítið pláss í farangursgeymsl-
unni. Þá er einnig tilvalið að
bregða sér í langar sem stuttar
gönguferðir í íslenskri náttúru og
þvo af sér ferðarykið í einni af
mörgum sundlaugum landsins. ej
Hreyfing á
ferðalaginu
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Þetta eru svakalegar hækkanir. Þær samsvara sem nemur tíu
Hvannadalshnúkum. Mesta hækkunin á einum degi var tæpir
4000 metrar sem er um það bil helmingur af Everest.
heilsa