Eintak

Ataaseq assigiiaat ilaat

Eintak - 04.08.1994, Qupperneq 9

Eintak - 04.08.1994, Qupperneq 9
Framboðshugleiðingar í Norðurlandskjördæmi vestra Pálmi óráðinn Fari hann ekki fram stendur baráttan milli Vilhjálms Egilssonar og séra Hjálmars Jónssonar. Kristján Möller, Jón Hjartarson og ÖssurSkarp- héðinsson mögulegir frambjóðendurAlþýðuflokksins. Það gæti stefnt í breytingar á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðurlands- kjördæmi vestra. Pálmi Jónsson sem skipað hefur íyrsta sæti lista flokksins um langa hríð sagðist í samtali við EINTAK vera óviss hvort hann gæfi kost á sér áfrarn. Næsti maður á eftir Pálma er Vilhjálmur Egilsson, formaður Verzlunarráðs íslands, en sú hugmynd hefur legið í loftinu um hríð að hann flytji sig um set og fari í framboð í Reykja- vík. Vilhjálmur hefur hins vegar neitað því og segist ætla að halda sig í sama kjördæmi. Hætti Pálmi, er líklegt að Vilhjálmur sækist eftir fyrsta sætinu. Heimildir innan Sjálfstæðisflokksins telja stöðu hans þó ekki sterka í kjördæminu enda er pólitík Vilhjálms ekki í líkingu við annarra landsbyggðarþing- manna eins og síðustu yfírlýsingar hans um ESB-málið bera glöggt vitni. Annar hugsanlegur arftaki Pálma hefur verið nefndur til sögunnar en það er séra Hjálmar Jónsson, sóknarprestur á Sauðárkróki. Hann þykir nokkuð vinsæll í kjördæminu og flestir telja að hann myndi sigra Vilhjálm hvort sem það væri í bar- VlLHJÁLMUR EGILSSON Fer ekki suður heldur stefnir á fyrsta sætið ef Pálmi hættir. áttu um fyrsta eða annað sætið. Hjálmar hefur þó ekkert gefið út á hvort hann hyggi á framboð. Alþýðuflokkurinn missti sinn mann í kjördæminu í síðustu kosn- ingum en sá var Jón Sæmundur Sigurjónsson. Hann er hættur í pólitík og búist er við að Jón Hjartarson, skólameistari á Sauð- árkróki eða Kristján Möller, for- seti bæjarstjórnar á Siglufírði, leiði PÁLMI JÓNSSON Segir óvíst hvort hann muni gefa kost á sér áfram. lista Alþýðuflokksins í kjördæm- inu. Einnig hafa verið vangaveltur um að Össur Skarphéðinsson umhverfismálaráðherra bregði sér norður en vitað er að formaðurinn, Jón Baldvin Hannibalsson, er ekki fráhverfur þeirri hugmynd. Vilji Össurar er þó ekki jafn ljós. Staðfest hefur verið að Ragnar Arnalds mun áfram bjóða sig fram í fyrsta sætið fyrir Alþýðubandalag- Össur Skarphéðinsson Jón Baldvin ekki fráhverfur því að Össur fari norður. ið en sögusagnir um að hann sé að hætta í pólitík hafa lengi verið á kreiki. Páll Pétursson mun áfram gefa kost á sér í fyrsta sætið hjá Fram- sóknarflokknum og næsta víst er að Stefán Guðmundsson verði áfram í öðru sæti. Að sögn Páls verður lík- lega raðað upp á listann þar sem lít- ill tími gefist til að hafa prófkjör.© Framboðsmál á Suðurlandi Hættir Jón Helgason? Eggert Haukdal hefur ekkert látið uppi um áform sín um fram- boð fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Suð- urlandskjördæmi, komi til kosn- inga í haust. Talið er næsta víst að þeir Þorsteinn Pálsson og Árni Johnsen rnuni bjóða sig fram og líklegt er að Drífa Hjartardóttir muni hugsa sér til hreyfings, ef Egg- ert ákveður að hætta, en hún hefur verið varaþingmaður flokksins í kjördæminu. Ekki er búist við átökum f her- búðum Framsóknarflokksins, en að sögn Jóns Helgasonar hafa haust- kosningar ekkert verið ræddar inn- an kjördæmisráðs flokksins enn sem komið er. „Ég vil hins vegar ekkert segja um mín áform, komi til kosninga," segir Jón. „Ég mun fyrst ræða við mína flokksfélaga, áður en ég gef út yfirlýsingar um það í fjölmiðlum.“ öruggt er talið að Guðni Ág- ústsson muni bjóða sig fram, en þriðji maður á lista Framsóknar er Þuríður Bernódusdóttir í Vest- mannaeyjum. Stjórn kjördæmisráðs Alþýðu- bandalagsins á Suðurlandi heldur fund í kvöid, og að sögn Margrétar Frímannsdóttur, alþingismanns flokksins í kjördæminu, verður fjallað urn framboðsmál og tilhög- un þeirra á fundinum. „Ég hef ákveðið að bjóða mig fram og veit að í kjördæminu er fullt afhæfu fólki sem vill starfa fyr- ir Alþýðubandalagið.“ Annar mað- ur á lista flokksins er Ragnar Ósk- arsson í Vestmannaeyjum. Framboð með Jóhönnu Margrét segir möguleikann á sameiginlegu framboði hafa verið ræddan innan flokksins og óform- lega á öðrum vettvangi. „Við vorum á fundi með Jó- hönnu Sigurðardóttur í gær,“ segir Margrét. „Þar var ntöguleik- inn á sameiginlegu framboði vinstri flokkanna ræddur og ég verð að segja að mér líst öllu betur á þær hugmyndir en tilkomu nýs flokks á þeim vængi stjórnmálanna. Hins vegar hafa engar formlegar viðræður farið fram milli flokka, en ég er sannfærð um að sameiginlegt Jón Helgason ,Ég vil ekkert segja um mín áform, komi til kosninga. “ framboð er eitthvað sem yngra fólk lætur sig dreyma um að verði að veruleika," segir Margrét Frí- mannsdóttir. © Margrét FrImannsdóttir „Við vorum á fundi með Jó- hönnu Sigurðardóttur í gær. „Þar var möguleikinn á sameig- inlegu framboði vinstri flokk- anna ræddur. Framboðsmál á Vestfjörðum Þiýstá EinarOdd Hann segirhvorki afnéáog vill engar kosningar. EinarK. Guðfinnsson hyggst taka sæti Matthíasar Bjamasonar. Óbreytt ástand i öðrum flokkum. Einar Oddur Kristjánsson Játar hvorki né neitar framboði. Ljóst er að fyrsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins um langt skeið, Matthías Bjarnason, gef- ur ekki kost á sér á ný. Því má bú- ast við hörðum slag þar vestra um fýrsta sætið. Einar K. Guðfinns- son, sem skipaði annað sætið síð- ast, hefur lýst því yfir að hann ætli sér fyrsta sætið. Hvort aðrir sjálf- stæðismenn eru sammála honum er vafamál. Vitað er að Einar Oddur Kristjánsson, fýrrverandi formaður Vinnuveitendasam- bandsins, hefur verið beittur þrýstingi um að bjóða sig fram í fyrsta sætið. Hann hefur áður ver- ið hvattur til að bjóða sig fram fýrir flokkinn þar vestra en hann hefur jafnharðan hafnað því. f samtali við EINTAK vildi hann ekki útiloka neitt í þessu sam- bandi og benti á að engin ástæða væri til að huga að þessu nú þar sem hann sæi engin rök fýrir að kosið yrði í haust. Ekki er búist við neinum rót- Einar K. Guðfinnsson Ætlar sér sæti Matthíasar. tækum breytingum á framboðs- lista Alþýðuflokksins. Sighvatur Björgvinsson mun skipa fýrsta sætið líkt og síðast, en framboðs- mál þar eru ekki svo langt á veg komin að vitað sé hverjir manna munu næstu sæti fyrir neðan. Allt verður líklega með kyrrum kjör- um hjá Alþýðubandalaginu. Á þeim bæ verður kjördæmisráð- stefna um næstu mánaðamót þar sem ákveðið verður hvort fara skal fram vorval eða hvort stillt verði upp í sæti á listanum. Ailt bendir til þess að Kristinn H. Gunnarsson bjóði sig aftur fram í fyrsta sætið og ekki er búist við mótframboði. Sömu sögu er að segja af Kvennalistanum og Fram- sóknarflokknum. Jóna Valgerð- ur Kristjánsdóttir mun leiða Kvennalistann áfrarn og Ólafur Þ. Þórðarson býður sig fram í fyrsta sæti hjá Framsóknarmönn- um líkt og síðast. © Framboðsmál á Vesturiandi Sjálfstæðismenn í startholum Sjálfstæðismenn eiga tvo þing- ntenn á Vesturlandi, þá Sturlu Böðvarsson og Guðjón Guð- mundsson. Sturla sagði í samtali við EINTAK í gær að þessi mál hefðu ekkert verið rædd innan flokksins, en hann telur líkurnar miklar á haustkosningum. „Það er ekki víst að til prófkjörs myndi koma, enda var það ekki haldið síð- ast. Þá var skoðanakönnun innan flokksins og það er allt eins líklegt að sú verði raunin nú.“ Ekki er bú- ist við ntiklum átökum innan flokksins með uppröðun á listann og bæði Sturla og Guðjón ætla að gefa kost á sér. í þriðja sæti er Elín- björg Magnúsdóttir bæjarfulltrúi á Akranesi og talið er líklegt að hún muni gefa kost á sér aftur. Ekki búist við átökum í Framsókn Ingibjörg Pálmadóttir, eini þingmaður Framsóknarflokksins í Vesturlandskjördæmi, segir að hún telji haustkosingar meira en líklegar og að flokkurinn hafi gert sérstakar ráðstafanir, til að flýta prófkjöri, verði ákveðið að kjósa í haust. Hvert fiokksfélag í kjördæminu mun tilnefna kandídata og síðan verður kosið um þá á sérstöku kjör- dæmisþingi, þar sem verða tvöfalt fleiri fulltrúar en venjulega,“ segir Ingibjörg. Þessa dagana er ekki bú- ist við neinum mótframboðum gegn Ingibjörgu í efsta sætið, en tal- ið er að margir muni bítast um sæt- ið þar fýrir neðan, sem gæti mögu- lega orðið að baráttusæti. Ekki er að búast við átökum í herbúðum Alþýðubandalagsins á Vesturlandi. Sveinn Kristinsson formaður kjördæmisráðs flokksins segir að framboðsmál hafi enn sem kontið er ekki verið rædd innan flokksins, en næstu daga muni rnenn fara að huga að þessu. Ekki er búist við að uppröðun manna á iistanum muni breytast, en Al- þýðubandalagið á nú einn mann inni á þingi í kjördæminu, Jóhann Ársælsson frá Akranesi. Titríngur í krötum Nokkur titringur hefur undan- farið verið í krötum á Vesturlandi, en sögur hafa gengið þess efnis að Össur Skarphéðinsson umhverf- isráðherra ætlaði að fara fram í kjördæminu. Nú hefur hins vegar dregið úr þessum vangaveltum, sérstaklega eftir að Jóhanna Sig- urðardóttir hefur lýst yfir að hún muni ekki bjóða sig fram undir nterkjum krata. Gísli Einarsson er þingmaður Alþýðubandalagsins á Vesturlandi og ekki er að búast við því að hann láti sæti sitt af hendi. Pólitískur styrkur Gísla verður að teljast all nokkur, enda hrapaði Al- þýðuflokkurinn í sveitarstjórnar- kosningunum, eftir að Gísla naut ekki lengur við á þeim vettvangi.© Q w FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1994

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.