Eintak - 04.08.1994, Blaðsíða 31
Ótrúlegt efni Valsmaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen hefur leikið frábærlega með Valsmönnum og verður FH-ingum áreiðanlega erfiður íkvöld. Hann skoraði einmitt sig-
urmark Valsmanna ífyrri umferðinni og verður því án efa vel gætt íkvöld.
Fjórir leikir í Trópídeildinni á dagskrá í kvöld
Tólfta umferð Trópídeildarinnar
hefst í kvöld með fjórum leikjum.
Henni lýkur síðan á sunnudags-
kvöld með leik Pram og Þórs í
Laugardalnum.
1 Keflavík taka heimamenn á
móti KR-ingum. Bæði lið hafa leik-
ið ágætlega að undanförnu og því
verður áreiðanlega um skemmti-
lega og spennandi viðureign að
ræða. Bikardraumur KR-inga gæti
sett strik í reikninginn hjá þeim,
ólíkt Keflvíkingum sem dottnir eru
út úr bikarkeppninni. Fyrri leikur
liðanna endaði með m jafntefli í
vesturbænum en í fyrra tóku KR-
ingar ÍBK í bakaríið með stórsigri,
4:1, í Keflavík.
í Eyjum fer fram sannkallaður
baráttuleikur. Eyjamenn taka þá á
móti Blikum úr Kópavoginum og
þurfa bæði lið nauðsynlega að
vinna leikinn. Eyjamenn hafa löng-
um verið erfiðir heim að sækja og í
síðasta heimaleik sínum völtuðu
þeir yfir slaka Þórsara 6:1. Þeir eru
hins vegar ótrúlega ójafnir í leik
sínum og til marks urn það töpuðu
þeir síðasta útileik sínum, gegn Val,
5:1. Blikar hafa verið að leika ágæt-
lega úti á velli en hafa verið lánlaus-
ir upp við markið og því ætla þeir
örugglega að breyta.
Á Kaplakrikavelli mætast síðan
FH-ingar og Valsmenn. Hér gæti
orðið um mjög spennandi viður-
eign að ræða, bæði lið unnu sæta
sigra í síðustu umferð og koma því
full sjálfstrausts til leiks. FH-ingar,
sem eru í öðru sæti deildarinnar,
leika oftast af mikilli yfirvegun og
hafa gefið fá stig á heimavelli. Vals-
liðið sigraði þá hins vegar á heima-
velli fyrr í sumar með marki Eiðs
Smára Guðjohnsen og því hafa
heimamenn harma að hefna.
Fjórði leikurinn fer síðan fram á
Stjörnuvellinum. Þar taka Stjörnu-
menn, botnlið deildarinnar, á móti
íslands- og bikarmeisturum Skaga-
manna, sem reyndar eru einnig
efstir í deildinni sem stendur. Lík-
legt er að þessi leikur reynist
heimamönnum erfiður. Marka-
skorunin hefur verið mikill höfuð-
verkur Garðbæinga og gegn sterkri
vörn meistaranna er ekki líklegt að
hann lagist. Þó er hugsanlegt að um
vanmat Akurnesinga verði að ræða
og því verða Stjörnumenn að taka á
öllu sem þeir eiga til að dreifa.
Skagamenn unnu sannfærandi sig-
ur í síðustu umferð og koma því ör-
ugglega grimmir til leiks og spila til
sigurs.
Síðasti leikurinn fer síðan fram á
sunnudagskvöld. Þá taka Framarar
á móti Þórsurum frá Akureyri.
Bæði lið eiga við vandræði að etja
og stöðugleiki hefur ekki verið eitt
af þeirra einkennum í sumar. Þórs-
arar hafa hins vegar alltaf haft mjög
gott tak á Frömurum og skemmst
er að minnast bikarleiksins fyrir
tveimur vikum er þeir sigldu yfir
liðið 4:1.
Það er því ljóst að um spennandi
umferð verður að ræða og viðbúið
er að fólk flykkist á völlinn til að
styðja sína menn. Eftir þessa um-
ferð verða vatnaskil á Islandsmót-
inu, lokaþriðjungurinn fer í hönd
og baráttan um titla og sæti gerist
greinilegri.0
Dómarar
umférð-
arínnar
Dómarar í 1. deild hafa
verið mikið í umræðunni að
undanförnu. Eins og venju-
lega eru ekki allir á eitt sáttir
um ágæti frammistöðu
þeirra, en auðvitað geta þeir
gert mistök eins og aðrir. í
tólftu umferð dæma þessir
dómarar. Þeir koma alíir frá
stórum Reykjavíkurfélögum
utan einn, sem kemur frá fé-
laginu Hamri Hveragerði.
Gylfi Þór Orrason Eyjólfur Olafsson
Fram Víkingi
Dæmir leik ÍBK og KR. Dæmir Sjörnuna og ÍA.
Olafur Ragnarsson Kristinn Jakobsson
Hamri KR
Dæmir leik FH og Vals. Dæmir leik ÍBV og UBK.
Gísli Guðmundsson
Val
Dæmir leik Fram og Þórs.
SPAIR
Eggert Magnússon formaður
KSÍ er spámaður tólftu umferðar.
Hann er, eins og gefur að skilja,
mikill áhugamaður um íþróttina
og er öllum hnútum kunnugur um
hérlent tuðruspark.
ÍBK - KR....2:2
„Þetta verður hörkuleikur tveggja
jafngóðra liða. Bœði lið leika ágœtan
sóknarleik og því verða mörg mörk
skoruð.
FH - Valur—.1:1
FH-ingar skora ekki mikið af ittörk-
um og breyta því varla í þessutn leik.
Valsmenn eru á uppleið ogþví
skipta liðin stigum.
l'BV - UBK....1:0
Hér er utn verulega mikilvœga við-
ureign að rœða. Þctta er svokallaður
„sex stiga“ leikur þar setn nauðsyn-
legt erfyrir bæði lið að bera sigur lir
býtum. Þetta geturfarið á hvorn
veginn sem er en líklega vegur
heimavöllurinn þungt.
Stiarnan - ÍA....1:3
Þetta verður erfitt fyrir Garðbœinga.
Skagamenn eiga besta lið landsins,
eins og er, og að satna skapi hafa
Stjörnumenn ekki verið sannfœr-
andi.
Fram - Þ6r....6:3
Hér verður um galopinn leik að
rceða. Varnir liðanna hafa ekki verið
sterkar og liðin afskaplega rokkandi.
Þess vegna verður þetta örugglega
tnjög skemmtilegur leikur á að
horfa. “
Leikbönn vegna
áminninga
Fimm
leikmenn
íbann
Fimm leikmenn 1. deildar
voru úrskurðaðir í leikbann á
fundi aganefndar á þriðjudag.
Bönnin eru vegna áminninga.
Fyrir fjórar eða sex áminningar
fengu þeir Drazen Poduna-
vac, FH, Zoran Miljkovic íA,
Goran Micic Stjörnunni, Þórir
Ólafsson ÍBV og Rastislas
Lazorik hjá UBK leikbönn.
1. deild
Staðan
IA 11 18:4 24
FH 11 11:6 21
ÍBK 11 20:12 18
KR 11 15:8 15
Fram 11 17:18 14
Valur 11 16:20 13
ÍBV 11 13:16 13
UBK 11 11:25 11
Þór 11 17:21 10
Stjarnan 11 9:17 8
Markahæstir:
Bjarni Sveinbjörnsson.Þór: 9
Óli Þór Magnússon, ÍBK: 8
Sumarliði Árnason, ÍBV: 7
Mihajlo Bibercic, ÍA: 7
Helgi Sigurðsson, Fram: 6
31
FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1994
>port