Eintak - 04.08.1994, Page 11
Jóhönnuarmurinn óhræddur við sérframboð
Kanna grundvöll
víðtæks samstarfs
á vinstri vængnum
Krístín Ástgeirsdóttir, þingmaður Kvennalistans, segi^foKvennalistinn bjóði fram
einn og óskiptur, Finnur Ingólfsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sýnir sam-
starfi lítinn áhuga en Ólafur Ragnar Grímsson formaður Alþýðubandalagsins telur
hljómgrunn fyrir samfylkingu félagshyggjufólks.
Kristín
ÁSTGEIRSDÓTTIR,
„Kvennalistinn býð-
ur fram einn og
óskiptur."
Ólafur Ragnar
Grímsson
„Það er Ijóst að
það er mjög mikill
áhugi fyrir því að
mynda víðtæka
breiðfylkingu félags-
hyggjufólks."
Finnur
Ingólfsson
„Ég tel mjög ólíklegt
að til nokkurs sam-
starfs komi á vinstri
vængnum. “
Jóhanna Sigurðardóttir dvelur
í Reykjavík þessa dagana eftir að
hafa ferðast um Norðurland, Aust-
urland og vesturhluta Suðurlands.
Á næstunni heldur hún ferð sinni
áfram og fer um Vesturland og á
Vestfirðina. Jóhanna hefur á þess-
ari ferð sinni verið að reyna að afla
sér stuðnings og kannað grundvöll
fyrir sérframboði eða „samfylkingu
jafnaðarmanna.'1
„Hljómgrunnurinn fyrir máli
hennar hefur verið mjög góður hér
á Austurlandi," sagði Hermann Ní-
elsson, varaþingmaður Alþýðu-
flokksins sem býr á Egilsstöðum.
Hann sagðist styðja Jóhönnu heils-
hugar og útilokaði ekki að fara
fram með henni fari hún í sérfram-
boð. „Jóhanna er með áherslur sem
mér líkar vel. Annars er þetta frekar
óljóst ennþá hvernig fer með fram-
boð hennar, hvort farið verði í sér-
framboð eða boðið fram á breiðari
grundvelli. Þetta skýrist allt á allra
næstu dögum.“
Meðal helstu stuðningsmanna
hennar eru einnig Lára V. Júlíus-
dóttir, Ólína Þorvarðardóttir,
Þorlákur Helgason og Pétur Sig-
urðsson. Pétur er formaður Al-
þýðusambands Vestfjarða.
„Jóhanna hefúr ekki ennþá kom-
ið til Vestfjarða og ég hef ekki haft
tækifæri til að tala við hana. Ég fer
ekki leynt með að ég er stuðnings-
maður hennar skoðana.“
Þorlákur Helgason, sem hefur
verið einn helsti skipuleggjandi
ferðar Jóhönnu um landið, segir að
það sé rnikið af fólki sem muni
ganga til liðs við Jóhönnu fari hún í
sérframboð.
„Það er gífurlega margt fólk búið
að gefa sig fram við Jóhönnu. Það
verður úr miklu að moða ef til sér-
framboðs kemur,“ sagði hann og
taldi útilokað að hún færi fram
undir merkjum Alþýðuflokksins.
„Ég tel það algerlega vonlaust. Jón
Baldvin Hannibalsson er búinn
að mála Alþýðuflokkinn út í horn
með afstöðu sinni til ESB. Það
verður fullt af fólki í framboði með
Jóhönnu sem vill sækja um, en líka
fólk sem er á móti því. Það er ekki
hægt að njörva Jóhönnu við ein-
hvern flokk sem ætlar að hafa eitt
mál á dagskrá í kosningunum.“
Samvinna með
Kvennalista og
Alþýðubandalagi?
Það er mikill áhugi fyrir því hjá
Jóhönnu og stuðningsmönnum
hennar að fara út í víðtækt samstarf
á vinstri vængnum og mynda
„samfylkingu jafnaðarmanna.“
Þetta virðist vera hugmynd um
samvinnu Kvennalista, Alþýðu-
bandalags, Jóhönnuarms Alþýðu-
flokksins og óflokksbundinna. Jó-
hanna sagði í samtali við EINTAK í
gær, sem birtist á þessari síðu, að
hún hafi átt óformlegar viðræður
við bæði Alþýðubandalag og
Kvennalistann um samstarf. Fram-
sóknarflokkurinn virðist út úr þess-
ari mynd.
Ekki virðist þó vera mikill áhugi
fyrir samstarfi innan Kvennalistans
ef marka má orð Kristínar Ást-
geirsdóttur, þingmanns Kvenna-
listans, í samtali við ElNTAK á
þriðjudaginn. Hún taldi ákaflega
ólíklegt að til samstarfs kæmi á
vinstri vængnum og það lægi í það
minnst skýrt fyrir að Kvennalistinn
byði fram einn og óskiptur. Það
væri nú þegar búið að ákveða. „Það
þarf mildu lengri tíma og umræðu
ef til einhvers samstarfs á að
koma,“ sagði hún.
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
maður Alþýðubandalagsins, sagði í
gær að hann hefði ekki átt fund
með Jóhönnu að undanförnu og
ætti því erfitt með að fjalla ítarlega
um málið.
„Mér er kunnugt um óformlegar
viðræður. Það hafa margir af mín-
um félögum rætt við hana og hún
rætt við marga. Annars er þetta víð-
tækara en bara þessar tvær eining-
ar.“
Verða formlegar viðrœður við jó-
hönnu á nœslunni um sameiginlegt
framboð?
„Ég get ekki metið það á þessu
stigi. Við höfum ekki tekið neina
slíka ákvörðun. Fyrst verður Davíð
Oddsson að ákveða að rjúfa þing.
Það er ekki hundrað prósent víst
þótt ég telji að hann geti ekki bakk-
að út úr því eftir síðustu yfirlýsing-
ar sínar.“
Þegar Ólafur var spurður að því
hvaða líkur hann teldi á að Alþýðu-
bandalagið og Jóhanna Sigurðar-
dóttir og hennar fólk byðu sameig-
inlega fram sagði hann: „Málið er
miklu víðtækara en svo að það sé
hægt að láta það rúmast innan
slíkrar flokkunar og þess vegna
snýst það á næstunni um hvort
nægilega ríkur pólitískur vilji sé
fýrir því að margvíslegir aðilar taki
höndurn saman. Jóhanna og henn-
ar stuðningsmenn eru aðeins hluti
af þeirri mynd. Það er ljóst að það
er mjög mikill áhugi fyrir því að
mynda víðtæka breiðfylkingu fé-
lagshyggjufólks sem væri bæði
mynduð af stjórnmálaflokkum en
ekki síður af miklum fjölda einstak-
linga sem hafa staðið til hliðar og
utan við flokkakerfið."
Kvennalistinn œtlar að bjóðafram
einn og óskiptur setn og Fratnóknar-
flokkurinn. Erekki bara utn Jóhönnu
og Alþýðubandalagið að rœða?
„Það hefúr engin stofnun tekið
þetta mál til umfjöllunar í Kvenna-
listanum. Og mér fyndist það
slæmt ef einhver 50 til 100 manna
hópur í Kvennalistanum ætlar á
allra næstu dögum að segja sig frá
framþróun íslenskra stjórnmála."
Finnur Ingólfsson þingmaður
Framsóknarflokksins sýndi sam-
starfi lítinn áhuga í samtali við EIN-
TAK á þriðjudag og sumir þing-
rnenn flokksins hafa tekið sterkara
til orða og nánast útilokað að
Framsóknarflokkurinn taki þátt í
neinu samstarfi.
„Ég tel ákaflega litlar líkur á að til
einhvers samstarfs komi á vinstri
vængnum,“ sagði hann. „Til þess er
tíminn of knappur og auk þess er
samstarf ólíkra stjórnmálaafla til
Alþingis illframkvæmanlegt.“ ©
„Þrýstingur á að menn fínni
samfýlkingargrundvöll“
Segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB sem hefur átt
fundi með Jóhönnu Sigurðardóttur undanfarið um samfylk-
ingu jafnaðarmanna.
Ögmundur Jónasson, forntað-
ur BSRB, hefur undanfarið átt
fundi með Jóhönnu Sigurðar-
dóttur og ýmsum öðrum aðilum á
vinstri væng stjórnmálanna um
hugsanlegt framboð til næstu al-
þingiskosninga. „Ég hef verið að
ræða við hana og ýmsa aðra um
hvernig megi þjappa mönnum
kringum jafnaðarstefnuna. Það er
mikil gerjun í gangi og menn fylgj-
ast spenntir með því hvað er að ger-
ast. Meðal annars vegna þeirrar
ferðar sem Jóhanna hefur lagt upp í
íslenskum stjórnmálum."
ögmundur segir að engin niður-
staða sé enn komin eftir þessar
þreifingar. „Þetta er allt mjög óljóst
ennþá. Ég held hins vegar að það sé
mikill þrýstingur á að menn finni
einhvern samfylkingargrundvöll.
Annað hvort með flokkunum, eða
þvert á alla stjórnmálaflokka. Menn
standa frammi fyrir mörgum
spurningum sem þeir svara þvert á
alla flokka,“ segir Ögmundur. Að-
spurður útilokar hann ekki að fara í
framboð fyrir næstu alþingiskosn-
ingar. „Ég hef ekki íhugað það enn-
þá. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga
á því sem er að gerast í íslensku
samfélagi og mér finnst það skipta
miklu máli hvernig pólitíkin skip-
ast. Við höfum sannarlega fengið
að finna fyrir því að pólitísk viðhorf
á Alþingi skipta miklu máli. Ég
nefni Evrópustefnuna, þjónustu-
gjöld, menntakerfið og viðhorf til
velferðarkerfisins í heild.“
Þegar ögmundur var spurður að
því hversu einarður stuðningsmað-
ur Jóhönnu hann væri, svaraði
hann: „Ég tek ekki afstöðu til ein-
stakra stjórnmálamanna heldur til
stjórnmálastefnu og hef eins og
margir aðrir verið að ræða það
hvernig hægt sé að vinna jafnaðar-
stefnunni framgang. Það á að reyna
að stuðla að sem víðtækastri sam-
fylkingu fólks úr fleiri en einum
stjórnmálaflokki. Það er mín skoð-
un.“ ©
Ögmundur Jónasson, for-
MAÐUR BSRB
„Það á að reyrta að stuðla að
sem víðtækastri samfylkingu
fólks úr fleiri en einum stjórn-
málaflokki. “
JÓHANNA SlGURÐARDÓTTIR
„Það er mjög fjarlægt að ég fari í framboð fyrir Alþýðuflokkinn.
Ég hef fengið mikla hvatningu um sérframboð hvert sem ég hef
komið. Samfylking jafnaðarmanna er einnig uppi á borðinu. “
„Eg er óhrædd
við að fara í
sérframboð“
segir Jóhanna Sigurðardóttir en hefur
einnig átt í óformlegum viðræðum við
Kvennalista og Alþýðubandalagið.
Jóhanna Siguðardóttir sagði
í samtali við EINTAK í gær að
hún væru alls óhrædd við að fara í
sérframboð. „Ég hef fengið mikla
hvatningu um sérframboð hvert
sem ég hef komið,“ sagði Jóhanna
sem hefur undanfarna daga verið
að ferðast um landið til að sjá
hvernig „landið liggur,“ að eigin
sögn. Hún taldi sig einnig hafa
nægan tíma til að undirbúa sér-
framboð ef af yrði, jafnvel þótt til
haustkosninga komi.
Þegar hún var spurð hvort úti-
lokað væri að hún færi fram fyrir
Alþýðuflokkinn, svaraði hún: „Ég
tel það mjög fjarlægt.“
Jóhanna sagði að hugsanlega
yrði sérframboðið á landsvísu.
Hvaða vonir gerir þú þér um
fylgifarir þú í sétframboð?
„Ég geri mér ekki nákvæmlega
grein fyrir fylginu ennþá. Undir-
tektirnar hafa verið gífurlega góð-
ar en ég get ekki nefnt neinar pró-
sentutölur. Ég hef fengið miklu
betri viðtökur en ég átti nokkurn
tíma von á.“
Átt í óformlegum við-
ræðum við Kvennalista
og Alþýðubandalag
Jóhanna sagði að það væri uppi
á borðinu að stofna samfylkingu
jafnaðarmanna. Aðspurð sagðist
hún hafa átt óformlega fundi með
bæði Kvennalistanum og Alþýðu-
bandalaginu. Þegar hún var spurð
hverja hún hefði hitt sagði hún:
„Ég vil ekki nefna nein nöfn.“
Munsa mfylkittg jafnaðarmanna
innihalda Alþýðuflokkinn?
„Ég er náttúrlega að tala um alla
jafnaðarmenn og félagshyggju
fólk, hvar sem þeir standa.“
Jóhanna kvaðst fylgjandi haust-
kosningum. „Ég held að það sé
allt í lagi að fá haustkosningar.“
Hún sagðist telja mögulegt að
mynda samfylkingu jafnaðar-
manna |>rátt fyrir þröng tíma-
mörk.
Heldurðu að ef afhaustkosning-
um verði séþað til að gera þér erfið-
ara fyrir varðandi sétframboð og
koma ölluttt sameiningardformum
í uppnám?
„Ég vil ekki vera að gera nein-
um upp skoðanir í þessu máli.
Sjálfsagt er þetta einn liðurinn í
haustkosningunum sem flest
bendir til að verði.“
Getur þú hugsað þér að starfa
eitthvað með Alþýðuflokknum eftir
kosningar í ríkisstjórn?
„Ég vil ekki svara þessari spurn
ingu. Við verðurn fyrst að sjá hver
niðurstaðan verður.“
Jóhanna sagðist ætla að gera
grein fýrir framboðsmálum sín-
um strax og Davíð Oddsson for-
sætisráherra hefur gert grein fýrir
því hvort af haustkosningum
verði eða ekki. ©
FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1994
11