Eintak - 04.08.1994, Síða 32
Baldur Bragason er óðum að ná sér eftir mótorhjólaslys
„Erbúinn að leggja
hjólinu
„Þetta var auðvitað gríðarlegt
sálrænt áfall. Ég var kominn í
landsliðið í fótbolta og framtíðin
var nokkuð björt,“ segir Baldur
Bragason knattspyrnumaður sem
nú býr á Ólafsfirði. Baldur lenti í
hræðilegu mótorhjólaslysi á síðasta
ári og hefur ekkert spilað síðan.
Hann þótti einn besti leikmaður
landsins, lék frábærlega fyrir Vals-
menn og var nýbúinn að tryggja sér
sæti í landsliðinu. Þá kom áfallið,
mörg rifbein brotnuðu, hálsinn
brákaðist og krossbönd slitnuðu í
hné.
„Mér var sagt að þetta væri búið.
Ég mætti þakka fyrir ef mér tækist
að labba aftur, en hvað fótboltann
snerti væri slíkt útilokað," segir
hann. Baldur eyddi mestum hluta
síðasta tímabils á sjúkrastofnunum
og fór í mjög flókinn uppskurð fyr-
ir átta mánuðum. Sá uppskurður,
sem fram fór í Svíþjóð, tókst
þokkalega og Baldur viðurkennir
að batinn hafi verið meiri og skjót-
ari en hann þorði að vona. „Ég er
farinn að geta hlaupið nokkuð og
fýrir mig skiptir það mjög miklu
máli. Ég var mjög langt niðri ef ég
hugsaði um fótbolta, og sú tilhugs-
un að geta ekki sparkað aftur var
mér afar þungbær.
Kærastan mín vinnur á Siglufirði
og ég ákvað að týlgja henni þangað
í sumar. Síðan atvikaðist það að
mér gafst tækifæri til að æfa hjá
Leiftursmönnum á Ólafsfirði og því
tók ég auðvitað fegins hendi.“
Baldur skipti yfir í Leiftur á dög-
unum og vakti það undrun margra.
Sögusagnir fóru af stað og menn
töluðu um að stjórn Vals hefði
samið af sér. Baldur segir þetta vit-
leysu.
„Ég er bara í láni frá Valsmönn-
um og skipti aftur þangað að loknu
tímabilinu. Leiftursmenn hafa ver-
ið mér gríðarlega hjálpsamir í
meiðslunum og ég fæ það seint
fullþakkað. Einar Einarsson
sjúkraþjálfari hefur haft mig í sér-
stakri meðferð og ég hef lagt mig
allan fram. Þetta er í raun eins og
atvinnumennska hjá mér, því ég æfi
tvisvar á dag auk kvöldæfinga með
Leiftri, og ég ætla mér að verða
góður á ný.“
Er það raunhœft markmið?
„Ja, læknar segja ekki og telja mig
alls ekki færan um að leika á næst-
unni. Ég er hins vegar staðráðinn í
að sanna mig fyrir þeim og svo er
ég nú líka mjög óþolinmóður að
eðlisfari. Það er aldrei að vita
hvernig þetta fer, ég er reyndar
mjög þreyttur eftir æfingar og fmn
að ég gæti aldrei leikið heilan leik
eins og er en koma tímar, koma
ráð. Eru ekki gamlir og meiddir
leikmenn alltaf settir í vörnina?
Kannski verður það gert við mig,
kannski verð ég í vörn Leifturs
undir lok tímabilsins."
Ertu búinn að leggja mótorhjól-
inu?
„Já, það er alveg á hreinu. f>etta
var bara tímabil í mínu lífi og
kannski alveg nauðsynlegt að láta
gamla drauminn rætast. Auðvitað
fylgir þessu mikil áhætta og því fór
sem fór. Annars er ég líka búinn að
uppgötva fleira en fótboltann. Við
unnustan eigum von á barni eftir
mánuð og eins og er kemst fátt
annað að í huganum. Við flytjum
síðan suður í haust og ég fer að
kenna. Síðan vonast ég ti! að geta
leikið með Valsmönnum strax á
næsta ári.“©
■.
Glæsilegt hlaup Morcelis
Alsírmaðurinn Noureddíne
Morceli setti glæsilegt heimsmet í
3000 metra hlaupi á þriðjudagskvöld.
Metið setti hann á Grand Prix-mót-
inu í Mónakó og bætti þar með
tveggja ára gamalt met Kenýamanns-
ins Moses Kiptanui um tæpar íjór-
ar sekúndur. Sergei Bubka átti ekki
góðan dag, eftir glæsilegt heimsmet á
sunnudag stökk hann aðeins 5,70 m á
mótinu og sagðist, að því lolcnu, ætla
að taka sér örlitla hvíld og blés þar
með af áform um að keppa á Evr-
ópumeistaramótinu sem fram fer í
Helsinld í næstu viku.O
Nú styttist í
handboltavertíðina
Fer Geir
íVal?
Nú eru allar líkur taldar á því að
Geir Sveinsson, fyrirliði íslenska
landsliðsins í handbolta, leiki með
íslandsmeisturum Vals á næsta
keppnistímabili.
Geir lék með spænska félaginu
Avidesa á síðasta keppnistímabili
ásamt Júlíusi Jónassyni en litlar
likur eru taldar á því að um endur-
nýjun-samnings verði að ræða. Júlí-
us mun leika í þýskalandi á kom-
andi tímabili og mun það ráða
nokkru um ráðahag Geirs í málinu.
Geir hefur æft með Valsliðinu að
undanförnu og herma heimildir
blaðsins að einungis sé eftir að
ganga frá nokkrum lausum endum
varðandi félagaskiptin. Ljóst er að
um gríðarlegan liðsstyrk er að ræða
fyrir Valsmenn og að þeir mæta til
leiks sem líklegir meistarakandídat-
ar í haust.
Heimildir EINTAKS herma einnig
að hornamaðurinn Sigurpáll Árni
Aðalsteinsson sé á leiðinni í KR.
Sigurpáll, sem lék með Selfyssing-
um á síðasta tímabili, er mjög
marksækinn leikmaður og hefur
oftar en ekki verið í hópi marka-
hæstu leikmanna deildarinnar.
Hann hefur áður leikið með Akur-
eyrarliðunum KA og Þór, enda
fæddur og uppalinn fýrir norðan,
en vegna náms í íþróttakennarahá-
skólanum á Laugarvatni ákvað
hann á síðasta ári að leika með liði
Selfoss. Fari svo að Sigurpáll skipti
yfir í KR er hann annar leikmaður
liðsins sem gerir það. Hinn fýrri er
markmaðurinn góðkunni Gísli
Felix Bjarnason.O
Landsleikir
aði Norðmenn með tveimur mörk-
um gegn einu í gær. Þetta var fyrsti
leikur liðsins á Norðurlandamóti
drengjalandsliða sem fram fer í
Danmörku þessa dagana. Mörk
liðsins gerðu Árni Ingi Pjeturs-
son, KR og Haukur Ingi Guðna-
son, UMFG.
Landslið kvenna, skipað leik-
mönnum yngri en 20 ára, tapaði
hins vegar fýrir Svíum, 5:1, á opna
Norðurlandamótinu í gær. Leikur-
inn fór fram í þýskalandi og skoraði
Margrét Ólafsdóttir mark Is-
lands í leiknum.O