Eintak - 09.06.1994, Side 23
þetta er fyrsts ferð okkar um Evr-
ópu. Viö eigum að spila á nokkr-
um hátíðum í sumar, hér og þar
og þetta er allt að fara meira í
gang. Svo fljótlega veröum við alls
staöar."
Hafiö þið ferðast um alla Evrópu í
þessari rútu?
„Já, við erum sextán sem höfum búið
þarna og sofið I rúmlega hálfan mánuð.
Maður gæti hugsað sér aö búa við betri
aðstæður," segir Sara.
Þar sem ímynd, útlit og klæðaburður, hef-
ur alltaf spilað stórt hlutverk í framkomu
Saint Etienne, glamúr útlit er mjög samofið
hugsuninni á bakviö tónlist hljómsveitarinn-
ar, er viö hæfi aö næsta spurning sé:
Gengur ekki hálf illa að viðhalda gla-
múrnum á svona feröalagi?
„Það er mjög erfitt eins og þú sérö en viö
reynum að klæða okkur í samræmi við
feröamátann og rútulífiö" segir Pete. Þau
eru öll þrjú ósköp hversdagslega klædd í
stuttermabolum og gailabuxum.
Af hverju þessi áhersla á ímyndina?
„Þaö er ekki eins og viö setjumst I kringum
borö, líkt og gert er á stjórnarfundum, og
ákveöum hvernig ímynd hljómsveitarinnar
eigi að vera," segir Bob og Sara botnar
þetta fyrir hann:“Mér finnst þaö mjög mikil-
vægt aö klæða sig upp þegar maður er að
fara aö koma fram á tónleikum. Fólk er að
borga fyrir að koma og sjá mann og þá á
maður að líta eins vel út og mögulegt er."
Spilið þið allt læf á tónleikunum?
„Viö erum meö marga aðstoðarmenn þegar
viö spilum á tónleikum sem allir
spila læf en viö notum líka
samplera," segir Pete. „Við viljum
hafa sem mestan kraft í tónlist-
inni þegar við spilum læf, þess
vegna erum við meö svona stóra
hljómsveit," bætir Sara við.
Bob, þú ferð ekki nema stund-
um á svið með hljómsveitinni,
af hverju er þaö?
„Þaö var fyrir ári síöan sem ég
hætti eiginlega alveg að spila meö
læf. Ástæðan fyrir því er aðallega
sú að ég kann best við að horfa
framan I eitt andlit í einu."
Hverjir eru helstu áhrifavaldar
ykkar, hvaða tónlist hafið þið
veriö að hlusta á?
„Ef við tejum nokkra upp má til dæmis
nefna The Fall, David Essex, Bee Gees, Be-
ach Boys og Blondie. Svo höfum við líka
gaman af ýmsu sem er að gerast hérna á
meginlandinu. Viö hittum Stakkaboo í Sví
þjóð hann er skemmtilegur og hann er líka
miklu hærri en mann grunaöi."
Hver er stefnan hjá ykkur?
„Við sjáum fyrir okkur lög í efstu sætum vin-
sældalista út um allan heim," segir Sara og
þar sem þaö var farið aö styttast ískyggi-
lega í aö tónleikarnir hæfust létum viö
þetta vera lokaspurninguna svo þau gætu
nú komist í baö og skipt um föt í rólegheit
unum.
Um kvöldiö fórum viö félagarnir að sjálf-
sögðu á konsertinn, drukkum meiri bjór og
skemmtum okkur konunglega.