Vikublaðið - 19.11.1992, Side 1
Stöðugar hótanir
„Mér fyndist það undarlegt ef
verkalýðshreyfingin yndi því að
semja við stjórnvöld um efna-
hagsaðgerðir undir stöðugum
hótunum um skerðingu félags-
legra réttinda og framkvæmd
stjórnarstefnunnar," segir Kári
Arnór Kárason, formaður Verka-
lýðsfélags Húsavíkur og Alþýðu-
sambands Norðurlands, en viðtal
við hann er á opnu blaðsins í dag.
Óheft sókn
á Islandsmið
baksíða
✓
A toppinn í norskri
pólitík
10
Græna netið er
svarið
11
Stóra ASÍ-tilraunin
og litla byltingin
Fréttaskýring
Páls Vilhjálmssonar
4
Sjávarútvegssamningur Islands og EB - Ágreiningur í ríkisstjóminni
jón Baldvin vill fall-
ast á veiðikröfur EB
*
Þorsteinn Pálsson heldur fast við kröfur Mendinga
Jón Baldvin Hannibalsson hef-
ur undanfarna daga tekið upp þá
línu að Islendingar verði nú að
fallast á fiskveiðikröfur Evrópu-
bandalagsins til þess að EES-
samningurinn nái fram að ganga.
Þessu hefur Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsráðherra neitað.
Verði kröfur Evrópubandalagsins
samþykktar eins og Jón Baldvin vill
nú, fela þær í sér að bandalagið hef-
ur, í tengslum við EES-samninginn,
náð fram hreinum fiskveiðiréttindum
í íslenskri lögsögu eins og það hefur
farið fram á síðan 1976. Drög að
fiskveiðisamningi íslands og EB eru
í Brússel talin mikill sigur fyrir
samningamenn EB.
Rætur vandans eru þær að með
ónákvæmu orðalagi í svokallaðri
Oporto-yfirlýsingu samdi utanríkis-
ráðherra í raun af sér.
Mikill titringur er í herbúðum Sjálf-
stæðisflokksins vegna þessa máls.
Og Jón Baldvin neitar að láta
EES-santninginn falla á tíma. Þess
vegna berst hann nú harðri baráttu
bak við tjöldin fyrir því að íslending-
ar fallist á fiskveiðikröfur EB.
Sjá nánar síðu 13.
Bókamenn
fagna
Þeir senda báðir frá sér bækur fyrir
þessi jól, Thor Vilhjálmsson og
Þorsteinn Gylfason. Bók Thors ber
titilinn Raddir úr garðinum og
hefur að geyma endurminningar,
en bók sína nefnir Þorsteinn Til-
raun um heiminn og er hún heim-
spekilegs efnis. Um síðustu helgi
hittust þeir í Norræna húsinu þar
sem fjöldi manns samfagnaði Thor
Vilhjálmssyni vegna þeirrar sæmd-
ar er honum hlotnaðist í haust þeg-
ar Sænska akademían veitti honum
bókmenntaverðlaun sem áður hafa
fallið örfáum norrænum úrvalsrit-
höfundum í skaut.
Sjá síðu 6.
Tíl hamingju!
Nú erum við loksins komin með
nýtt málgagn og ég óska okkur öll-
um til hamingju með það. Viku-
blaðið er blað félagshyggjufólks,
jafnréttissinna og allra þeirra sem
um langa hríð hefur skort lifandi
vettvang fyrir stjórnmálaumræðu
og þjóðfélagsrýni. Þá á hlaðið ekki
aðeins að hrærast í valdaklíkun-
um í Reykjavík, heldur líka veita
málefnum landsbyggðarinnar
fulla athygli.
Vikublaðið er ekki flokksmálgagn
í gömlum skilningi þess orðs. Al-
þýðubandalagið hefur að vísu for-
göngu um útgáfu þess og ber fjár-
hagslega ábyrgð á því, en það tekur
jafnframt þá áhættu að veita ritstjóra
fullt sjálfstæði til þess að ritstýra
blaðinu á faglegum grunni. Við trú-
um því einfaldlega að þannig búum
við til betra blað. Nýsköpun í blaða-
mennskufaginu er líka löngu tíma-
bær og ég mun ráða blaðamenn og
lausapenna með tilliti til þess að þeir
séu tilbúnir að takast á við og þróa
nýjan, gagnrýninn og fjörlegan stíl í
blaðamennsku.
Sjálfri finnst mér afar spennandi
að taka við ritstjórn Vikublaðsins.
Ég er stolt af því að vera kona á rit-
stjórastól og ætla mér að láta sjást á
síðum blaðsins að virkur jafnréttis-
sinni heldur þar um stjórnartaumana.
Ákvörðunin var ekki auðveld. Ég yf-
irgef starf verkefnisstjóra norræna
jafnlaunaverkefnisins, sem mér hef-
ur þótt ákaflega vænt um, vegna þess
að ég tel að ég geti sem ritstjóri haft
jafnvel meiri áhrif í jafnréttismálum
en hingað til. En ég þarf tíma til þess
að pakka saman og þvf sest ég ekki í
ritstjórastólinn fyrr en um áramót.
Þangað til munu Einar Karl Haralds-
son og Ólafur Þórðarson hafa um-
sjón með úlgáfunni í samráði við
mig.
Með kœrrí kveðju
Hildur Jónsdúttir
Hildur Jónsdóttir ritstjóri