Vikublaðið - 19.11.1992, Page 7
Fimmtudagur 19. nóvember 1992
VIKUBLAÐIÐ
7
ÍVAF
Bjargaðu mér, Brynjólfur!
Það var viðtalstími hjá ráðherra
landbúnaðar- og samgöngumála í
landbúnaðarráðuneytinu um dag-
inn. Hópur fólks settist inn á skrif-
stofu Halldórs Blöndals og ekki
leið á löngu uns ráðherrann snarað-
ist út á gang og kallaði til Brynjólfs
Sandholt yfirdýralæknis: „Brynj-
ólfur, þú verður að bjarga mér, það
er komið til mín fólk frá Hunda- og
kattavinafélaginu og ég veit ekker
um þau mál.“ Yfirdýralæknir brást
vel við og er þeir komu aftur inn á
ráðherraskrifstofuna sagði Halldór
ákveðinn: „Hér er ég nú kominn
með yfirdýralækni mér til trausts
og halds, og segið mér hvað ykkur
er á höndum."
Það varð vandræðaleg þögn en
loks sagði formælandi hópsins: „Ja
við erum komin hér frá Félagi leið-
sögumanna og vildum ræða okkar
málefni við samgönguráðherra."
Framleiðsla á sannleika
Stefán Olafsson, prófessor og
fulltrúi Alþýðuflokksins í stjórn
Járnblendiverksmiðjunnar, ritaði
grein í Morgunblaðið í þann mund
sem greiða átti atkvæði á Alþingi
um þingsályktunartillögu þar sem
gert var ráð fyrir að þjóðin fengi að
játa eða neita EES-samningnum.
Prófessorinn hafði allt á hornum
sér í sambandi við þjóðaratkvæða-
greiðslur og kosningar yfirleitt og
taldi auðsæilega best að úrvalssveit
gáfuntanna tæki ákvarðanir með
vissri hliðsjón af skoðanakönnun-
um meðal pöpulsins, sem gæfu
betri mynd af raunverulegum vilja
hans heldur en kosningar þegar bú-
ið væri að æsa lýðinn og rugla með
hverskyns áróðri. Rifjaðist þá upp
það sem rithöfundurinn Milan
Kundera hefur sagt um málið:
„Skoðanakannanir hafa orðið
að þingi sem er óslitið á fundi í
þeim tilgangi að framleiða sann-
leikann. “
Sannleikurinn fæst semsagt hjá Fé-
lagsvísindastofnun HÍ og kostar
víst.
Halli hagfræðingur
- Á sjálfshóli er mark takandi
því það kemur frá hjartanu.
Ráðherrastfllinn
„Erfiðir tímar fara í hönd. At-
vinna og heill þúsunda er í veði.
Það er því vægast sagt ömurlegt að
sjá einn forkólfa ríkisstjórnarinnar
og brautryðjanda bjórs á íslandi
veifa lítrakönnu af bjór á nýjasta
uppátæki innifólksins - október-
fest! Það vantaði bara! Einn af for-
ystumönnum atvinnurekenda hélt
því raunar fram nýlega, að hlutverk
stjómvalda ætti að vera að kenna
fólki að lifa við atvinnuleysið.
Hætt er við að stíll utanríkisráð-
herra, vina hans og viðhlæjenda sé
venjulegu fólki, hvað þá atvinnu-
leysingjum, ofviða.“
(Jóhann Tómasson læknir í
Morgunblaðinu 14. nóvember)
Tóti tappi
- Málið er einfalt: Til þess að
hægt sé að lifa við atvinnuleysi
þarf að deila út bjór í staðinn fyrir
atvinnuleysisbætur.
Allt nema frjáls samkeppni
„Nú höfum við markaðsbúskap
um allan heim. En það er orð, sem
hefur afar mismunandi merkingu.
I Austur-Evrópu þýðir markaðs-
búskapur, að fólkið sem þar býr
eigi að vera markaður fyrir okkar
vörur.
Hjá Evrópubandalaginu er með
markaðsbúskap átt við heimsins
viðamestu tilraun til þess að
stjórna hagkerfum aðildarlandanna
með aðferðum skrifræðisins.
I þróunarríkjunum hefur orðið
markaðsbúskapur þá meiningu að
íbúar þar eiga að halda kjafti, hlýða
tilskipunum Alþjóðabankans og
vera góðir.
Það er bara eitt sem orðið mark-
aðsbúskapur þýðir hvergi nokkurs-
staðar í heiminu — og það er
FRJÁLS SÁMKEPPNI."
(Ame Herlöv Petersen rithöf-
undur í SALT , 1992)
Konni kaupmaður
- Við höfum frjálst samráð um
að hafa ekki franskt verð á vörunni.
Vald og vígaferli í Noregi
I norskum stjómmálum er heitt í
kolunum. Þannig segir um Gro
Harlem Bmndtland í nýútkominni
bók sem nefnist „Makt og manne-
fall“ að „hún hafi orðið stjórnmála-
maður af tilviljun, fræg fyrir slysni
og forsætisráðherra vegna mis-
skilnings.“ Ekki nema von að ann-
ar norskur krati, útvarpsstjórinn
Einar Förde, láti hafa eftir sér:
„Meðan maður þolir að lesa um
það að maður sé þorskur á þutru
landi, þá gengur alveg ágætlega að
vera útvarpsstjóri."
Þura þögla
Ég ætla að biðja ykkur fyrir það,
en mér er sagt að Gunnlaugur
guðsmaður sé farinn að efast um
EES. Hvaða stoð er í EES ef kratar
ætla að setja útgerðarfyrirtækin í
prestakallinu á hausinn? Atkvæði
hans verður dýrt í EES málinu.
PINGMÁL
I engslaleysi er vandi
skóla og atvinnulífs
í mörg ár hafa átt sér stað miklar um-
ræður um nauðsyn þess að auka
samvinnu skóla og atvinnulífs. Þrátt
fyrir almennan vilja um aukna sam-
vinnu hefur árangurinn ekki verið
sem skyldi. Einn höfuðvandi fslenska
framhaldsskólakerfisins í dag er að
ekki hefur tekist að skapa nægjanleg
tengsl við atvinnulífið, en þetta er ekki
síður vandi atvinnulífsins.
Þetta kemur fram í greinargerð
við tillögu til þingsályktunar um sér-
stakt tilraunaverkefni framhalds-
skóla á Austurlandi, sem Einar Már
Sigurðarson flutti á Alþingi þar sem
hann sat í fjarveru Hjöleifs Gutt-
ormssonar.
I greinargerðinni segir ennfremur
að á Austurlandi séu tengsl skóla og
atvinnulífs með þeim hætti að búast
megi við að auðvelt verði að koma á
l greinargerðinni segir enn-
fremur að á Austurlandi séu tengsl
skóla og atvinnulífs með
þeim hœtti að búast
tnegi við að auðvelt
verði að koma á
góðu samstarfi
milli aðila,
staðið að
skipulegan
markvissr
hátt.
góðu samstarfi milli aðila, verði
staðið að því á skipulegan og mark-
vissan hátt. Framhaldsskólar á Aust-
urlandi hafa haft með sér náið sam-
starf um margra ára skeið, m.a. í
stjórnunamefnd framhaldsnáms á
Austurlandi, sem starfað hefur á
annan áratug. Með tilkomu Farskóla
Austurlands, sem var fyrsti skóli
sinnar tegundar á landinu og er sam-
starfsverkefni Verkmenntaskóla
ver
þv
Austurlands og Atvinnuþróunarfé-
lags Austurlands, hefur samstarf
skóla og atvinnulífs aukist verulega.
Menntaskólinn á Egilsstöðum hefur
skipulagt skógræktarbraut í sam-
vinnu við Skógrækt ríkisins og Hér-
aðsskóga, og fjarkennsla hefur verið
stunduð við skólann í tilraunaskyni
um nokkurt skeið. Þá má nefna að
nýlega hefur Verkmenntaskóli Aust-
urlands fengið heimild, í tilrauna-
skyni til fimm ára, til að þróa nýtt
fyrirkomulag við gerð iðnnáms-
samninga, þar sem skólinn er milli-
líður milli iðnnema og meistara.
Einar Már vill að tilraunin nái til
starfsnáms, verkmennta og fullorð-
insfræðslu og í þingsályktunartillög-
unni er gert ráð fyrir að menntamála-
ráðherra verði falið að undirbúa mál-
ið í samráði við framhaldsskóla og
fulltrúa aðila vinnumarkaðarins.
Einar Már Sigurðarson vill að
Austurland verði vettvang-
ur Jyrir sérstakt tilrauna-
verkefni í sambandi við
tengsl skóla og atvinnu-
tífs.
Aðalfundur miðstjómar
Hafmrfirði 28. - 29. nóvember 1992
Aðalfundur miðstjórnar Alþýðubandalagsins verður haldinn í Veitingahúsinu
Firðinum, Strandgötu 30, laugardag 28. nóvember og sunnudag 29. nóvember
næstkomandi. Efnahags- og atvinnumál, flokksstarf og viðhorf vinstri manna til
umhverfis og hagvaxtar eru helstu mál miðst jórnarfundarins að þessu sinni.
DAGSKRÁ
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER:
Kl. 09:30 Setning
Almennar stjórnmálaumrœður
* Stjórnmálaviðhorfið
Framsögumaður Ólafur Ragnar
Grímsson
* Tillögur í efnahags- og atvinnu-
málum.
Framsögumenn Ragnar Amalds
og Steingrímur J. Sigfússon
* Umræður
Kl. 12:00 Hádegisverðarhlé
Kl. 13:00 Almennar umrœður, fram-
hald
Kl. 17:00 Starfshópar
Kl. 20:00 Kvöldverður/ Kvöldvaka
* Sameiginlegur kvöldverður og
skemmtidagskrá í umsjá heima-
manna.
SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER:
Kl. 09:00 Starfshópar
Kl. 10:30 Umhverft og hagvöxtur:
Viðhorf vinstrí manna
* Álfheiður Ingadóttir, Björn
Guðbrandur Jónsson, Einar Valur
Ingimundarson, Hjörleifur Gutt-
ormsson og Már Guðmundsson
segja álit sitt og svara spumingum
Kl. 13:00 Álit starfshópa, umrœður
og afgreiðsla mála
Kl. 16:00 Önnur mál
Kl. 16:30 Fundarslit
Grímsson
Ragnar Amalds
Steingrímur J.
Sigfússon