Vikublaðið - 19.11.1992, Side 10
10
VIKUBLAÐIÐ
Fimmtudagur 19. nóvember 1992
ERLENDIR ÁHRIFAMENN
A toppiim í norskrí pólitík
„Maður tekur ekki að sér
Norska verkamannaflokk-
inn upp á eitt til tvö ár,“ seg-
ir Torbjörn Jagland og gefur
þar með til kynna að hann
ætli sér langt líf á toppnum í
norskum stjórnmálum.
Óvænt afsögn Gro Harlem
Brundtlands sem formanns
ruddi brautina að for-
mennskunni fyrir Jagland
sem síðastliðin sex ár hefur
verið framkvæmdastjóri
flokksins.
Ahugann á stjórnmálum
hefur Torbjöm Jagland haft
með í farteskinu frá unga
aldri. Faðir hans var virkur í
félagsstörfum og íþrótta-
hreyfingu og fimmtán ára að
aldri var Torbjörn fyrst kos-
inn til trúnaðarstarfa. Hann
er nú 42 ára að aldri og síð-
ustu 15 ár hafa stjórnmálin
tekið allan hans tíma.
Hann var formaður sam-
taka ungra jafnaðarmanna
1977 til 1981 og eftir það var
honum falið að undirbúa
nýja stefnuskrá Verka-
mannaflokksins. Þegar Ivar
Leveraas hætti sem fram-
kvæmdastjóri og gerðist
bankastjóri íHusbanken 1986
var komið að Torbjöm Jag-
land að setjast í það sæti sem
valdamiklir menn eins og
Martin Tranmel og Hákan
Lie höfðu skipað áður. Há-
punkturinn á valdaferli þeirra
var einmitt framkvæmda-
stjórastaðan en Jagland gengur
feti lengra inn í völundarhús
norskra stjómmála.
Hann er fimmti leiðtogi
Verkamannaflokksins frá því
1945 svo að því má gera
skóna að hann gegni for-
mennskunni um tíu ára skeið
að minnsta kosti.
Eins og vænta má af fyrr-
verandi framkvæmdastjóra
heldur hann því fram að
flokksvélin sé vel smurð, þó
Hinn nýi formaður
Verkamannaflokksins í
Noregi þarf að ausa
hálfsokkinn bát því
fylgi flokksins hefur
ekki mœlst minna frá
því á þriðja áratug aldar-
að stuðningur almennings við
Verkamannaflokkinn hafl
ekki mælst minni frá því á
þriðja áratug aldarinnar. Um
25% landsmanna lýsa nú
stuðningi við flokkinn og um-
ræðan um aðild Noregs að
Evrópubandalaginu hefur
reynst honum erfið, enda þótt
fylgismenn aðildar að EB hafi
haft ömggan meirihluta á
flokksþinginu. Nýi formaður-
inn telur að það muni reynast
erfítt að hífa flokkinn mikið
uppfyrir 30% í næstu kosn-
ingum meðan hann er í ríkis-
stjóm og atvinnuleysi og EB-
deilur setja svip á þjóðlífið.
Viðfangsefni hans verður
að snúa fylgiskúrvunni upp-
ávið.
Boðskapur formannsins er
þó ekki neinn fagnaðarboð-
skapur. I bók sem hann átti
hlut að og kom út fyrir þremur
árum undir nafninu „Noregur
eins og við viljum“, sagði þá-
verandi framkvæmdastjóri að
ekki væri rúm fyrir umbætur
nema miðaldra fólk léti af
kröfupólitík sinni,
sætti sig við
minna en það
hefði og
léti meira renna til smábarna-
fjölskyldna og eldra fólks.
Thorbjöm Jagland heldur
því enn fram að þeir sem hafi
vel borgaða- vinnu verði að
sýna samstöðu með öðmm en
sjálfum sér og sínum líkum
þegar minna sé orðið til skipt-
anna. Norskt samfélag sé ekki
þannig vaxið að hægt sé að ná
svo miklu af hinum ríku að
það skili umtalsverðu í kass-
ann til þess að deila út til
þeirra sem hafa það skítt eða
hafa orðið undir. Hann er
sannfærður um að hinn breiði
fjöldi vilji sýna samstöðu og
sætta sig við minna ef byrðar
séu lagðar á fólk á réttlátan
hátt.
Fyrir sex ámm sagði Tor-
bjöm Jagland, sem er giftur
og faðir tveggja sona, að hann
gæti ekki hugsað sér að lifa
lífí þingmanns á Stórþinginu.
Nú hefur Gro Harlem
Bmndtland skorað á kjör-
nefnd Verkamannaflokksins í
Buskerud að stilla Jagland
upp í fyrsta sæti við næstu
þingkosningar. Torbjörn
segir skoðanir sínar hafa
breyst á 6 ámm og ekki sé
hægt að gegna flokksfor-
mennskunni án þess að vera
á þingi. Sjálf hefur Gro Har-
lem Brundtland sagt að það
sé óhjákvæmilegt fyrir for-
sætisráðherra í Noregi að
hafa reynslu frá setu á Stór-
þinginu. Og Torbjöm Jagl-
and slær því föstu opinber-
lega að hann ætli sé ekki að
verða hreppapólitíkus á
þingi heldur vinna með
hagsmuni landsins alls að
leiðarljósi.
Einkalífið ber nýi for-
maðurinn ekki á torg en
hann hefur ekki komist und-
an að greina frá því að uppá-
haldsmatur hans er lútfiskur
og þorskhausar með öli og
genever.
( Byggt á grein eftir
Reidar Rotevatn Drammens
Tidende - Buskemds Blad.)
Thorbjörn Jagland heldur því enn fram
að þeir sem hafi vel borgaða vinnu verði
að sýna samstöðu með öðrum en sjálfum
sér og sínum líkum þegar minna sé orð-
ið til skiptanna.
O
n
o
11
o
Verðlaunagáta
Verkefni ykkar, lesendur góðir, er að lesa texta
út úr myndagátunni.
Lausnir sendist Vikublaðinu, Laugavegi 3,
101 Reykjavík. Skilafrestur er tvær vikur. Verð-
laun eru bók Thors Vilhjálmssonar, Raddir í
garðinum, sem nýkomin er út hjá Máli og
menningu.