Vikublaðið - 19.11.1992, Page 12
12 VIKUBLAÐIÐ Fimmtudagur 19. nóvember 1992
Verkaskipting á heim-
ilum hefiir lítíð breyst
Vinnuframlagið er
nœstum því það
sama nema
hvað stœrri
hluti vinnu
kvenna er
ólaunaður og
ósýnilegur,
gefur lítil sem
engin réttindi
og reiknast
hvergi inn í
þjóðhags-
reikninga.
mmBm
Raunverulegt jafnrétti kvenna og
karla verður aldrei að veruleika
nema því aðeins að sambýlisfólk og
foreldrar ungra barna skipti með sér
ábyrgð og verkum á heimilunum.
Þetta má lesa úr viðhorfum fólks
eins og þau koma fram í Lífsgilda-
könnun Félagsvísindastofnunar Há-
skóla íslands frá 1990. Meira en
helmingur svarenda taldi það nauð-
synlega forsendu fyrir farsælu
hjónabandi að hjón skiptu með sér
heimilisverkunum.
En hvernig lítur raunveruleikinn
út í ljósi þeirra takmörkuðu upplýs-
inga sem til eru um verkaskiptingu
og samvinnu um heimilisstörf og
umönnun bama.
í lífskjarakönnun Hagstofu Is-
lands og Félagsvísindastofnunar frá
1990 kemur fram að karlar eyddu að
jafnaði 6 klukkustundum á viku í
heimilisstörf en konur 19. Með til-
komu barna verður framlag kvenna
í sambúð með börn að meðtaltali 27
stundir á viku en karla í sambúð
með börn 8 stundir. Konan bætir við
sig átta tímum en karlinn tveimur.
Karlar vinna lengri vinnutíma ut-
an heimilis en helmingur giftra
kvenna skilar fullum vinnudegi á
vinnumarkaðinum.
Á skýringarmyndinni er sýndur
samanlagður heildarvinnutími karla
Stefanía Traustadóttir
og kvenna annars vegar í launa-
vinnu utan heimilis og hinsvegar í
ólaunaðri vinnu við heimilisstörf.
Eins og sjá má er munurinn næsta
lítill. Vinnuframlagið er næstum
því það sama nema hvað stærri hluti
vinnu kvenna er ólaunaður og
ósýnilegur, gefur lítil sem engin
réttindi og reiknast hvergi inn í
þjóðhagsreikninga.
Það sem kannski er athyglisverð-
ast við þessar niðurstöður er sú
staðreynd að upplýsingar úr eldri
könnunum, t.d. frá 1975, gefa lítið
sem ekkert tilefni til bjartsýni um
breytingar. Það sem hefur breyst á
undanförnum árum er að konur hafa
aukið vinnuframlagið á fyrstu vakt-
inni, það er í launavinnunni, dregið
að einhverju leyti saman seglin á
annarri vaktinni, það er í heimilis-
störfunum, og aukið framlag sitt á
þriðju vaktinni, það er með þátttöku
í félagsstörfum og stjórnmálum í
takt við kröfuna um jafnrétti á öll-
um sviðum.
Það er ekkert skrítið þótt eitthvað
láti undan þegar stjórnvöld, at-
vinnulíf og karlar koma ekki meira
til móts við konur en raunin er á.
Meira um það síðar.
Stefanía Traustadóttir
Samanlagður vinnutími kvenna
og karla innan og utan heimilis
80
70
60
50
40
30
20
10
Konur Karlar
launavinna heimavinna
Morgunkaffi ABK
Alþýðubandalagið í Kópavogi mun í vetur verða með opið hús í Þinghóli,
Hamraborg 11, alla laugardaga kl. 10-12. Þar munu bæjarfulltrúar flokksins,
Valþór Hlöðversson og Elsa S. Þorkelsdóttir, verða til viðtals ásamt lykilfólki
félagsins í ráðum og nefndum á vegum Kópavogskaupstaðar.
Kópavogsbúar eru eindregið hvattir til að líta inn, fá sér kaffísopa og koma
erindum á framfæri við bæjarfulltrúana.
Bæjarmálaráð ABK
Fundur bæjarmálaráðs verður haldinn mánudaginn 23. nóvember kl. 20:30 í
Þinghóli, Hamraborg 11. Nefndafólk er hvatt til að mæta.
Stjórnin
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins
Kyöldverðarfimdur með Andile Yawa
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins verður með kvöldverðarfund næsta
laugardag, 21. nóvember, að Laugavegi 3, 5. hæð.
Til okkar kemur Andile Yawa, sem er forseti WFDY og fulltrúi Æskulýðs-
samtaka Afríska þjóðarráðsins. Hann mun ræða um æskulýðsmál og ástandið
í Suður-Afríku.
Eftir umræðurnar um þessi mál og önnur verður síðan kvöldvaka með
óvæntum atriðum fram eftir nóttu.
Húsið verður opnað klukkan átta og er áætlað að borðhaldið hefjist hálf-
tíma síðar.
Maturinn kostar 600 krónur.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Opinn
í'undur um
Suður-Aíríku
Félag stjórnmálafræðinema í Há-
skóla íslands heldur opinn fund
um Suður-Afríku og æskulýðs-
mál í Odda, stofu 101 (á móti
Norræna húsinu), laugardaginn
21. nóvember nk. kl. 17:00.
Frummælandi er Andile Yawa
forseti WFDY (World Federation
of Democratic Youth) og fulltrúi
Æskulýðssamtaka Afríska þjóð-
arráðsins, ANC.
Opið
hús
Málfundafélag alþjóðasinna
og aðstandendur vikublaðsins
Militant halda OPIÐ HÚS með
Suður-Afríkumanninum Andile
Yawa, forseta World Federation
of Democratic Youth, og John
Cox frá Young Socialists í
Bandaríkjunum.
Fundarstaður: Klapparstíg 26,
2. hæð t.v.
Fundarími: Laugardaginn 21.
nóvember kl. 12:00 - 14:00
Kaffiveitingar.
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa í
1. flokki 1989
1. flokki 1990
2. flokki 1990
2. flokki 1991
Innlausnardagur 15. nóvember 1992.
1. flokkur 1989 Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000 7.107
50.000 71.075
500.000 710.751
1. flokkur 1990 Nafnverð: 5.000 50.000 500.000 Innlausnarverð: 6.275 62.751 627.506
2. flokkur 1990 Nafnverð: Innlausnarverð:
10.000 12.379
100.000 123.795
1.000.000 1.237.949
2. flokkur 1991 Nafnverð: Innlausnarverð:
10.000 11.507
100.000 115.070
1.000.000 1.150.703
Innlausnarstaður:
Veðdeild Landsbanka íslands r
Suðurlandsbraut 24.
C&l HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS l
LJ HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 - 108 HEYKJAVlK ■ SÍMI 696900 5