Vikublaðið - 19.11.1992, Side 13
Fimmtudagur 19. nóvember 1992
VIKUBLAÐIÐ
13
Sjávarútvegs- og fískveiðisamningur Islands og Evrópubandalagsins
Uppgjöf í sjónmáli?
Eftir hlé frá því í júní berast nú loks
fréttir af því að haldinn verði um
næstu mánaðamót fundur í samn-
ingaviðræðum íslands og EB um
samskipti á sviði sjávarútvegs.
Hannes Hafstein, samningamaður
fslands, hefur undanfarnar vikur átt
óformlegar einkaviðræður við full-
trúa EB. Niðurstaða þessara þreif-
inga er að EB heldur fast við upphaf-
legar kröfur sem Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsráðherra og samtök sjáv-
arútvegsins á íslandi hafa í hálft ár
neitað að fallast á.
Málið er að komast í eindaga.
Sjávarútvegssamningur íslands og
EB verður að liggja fyrir áður en 2.
umræða um EES-samninginn fer
fram á Alþingi. Evrópubandalagið
setur það sem skilyrði af sinni hálfu
að áður en EES-samningurinn gangi
í gildi hafi tvíhliða samningur tekist
milli íslands og EB um samskipti á
sviði sjávarútvegs. Jón Baldvin
Hannibalsson hefur undanfarna daga
tekið upp þá línu að íslendingar
verði nú að fallast á ifiskveiðikröfur
EB til þess að EES-samningurinn
nái fram að ganga. Þessu hefur Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
neitað.
OPORTO-yfirlýsingin
Rætur vandans eru þær að með
ónákvæmu orðalagi í Oporto-yfir-
lýsingunni samdi Jón Baldvin í raun
af sér. Þar stendur að EB eigi að fá
heimild til að veiða 3000 tonn af
karfa en Islendingar heimild til þess
að veiða 30 þúsund tonn af loðnu.
Gallinn er bara sá að Evrópubanda-
lagið getur gengið að því vísu að
veiða karfann en loðnan er eins og
allir vita dutlungafullur fiskur. Is-
lendingar hafa enga tryggingu fyrir
því að ná loðnunni á móti. Þess
vegna var það krafa sjávarútvegsráð-
herra og hagsmunasamtaka í sjávar-
útvegi á Islandi að í sjávarútvegs-
samningnum yrði tryggt að fiskur
kæmi á móti fiski en ekki bara heim-
ild á móti heimild. Kveðið yrði á um
það að íslendingar fengju sinn hluta
og þá gæti Evrópubandalagið veitt
karfann. Fulltrúar Evrópubandalags-
ins segja hinsvegar hart nei við þess-
ari kröfu. Ef Islendingar geti ekki
veitt loðnuna þá sé það bara þeirra
vandamál og Evrópubandalagið geti
ekki gert að því þótt íslendingar fari
heim með „öngulinn í rassinum".
Jakob Jakobsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar, hefur bent á að
hin svokölluðu „gagnkvæmu skipti á
veiðiheimildum" séu blekking vegna
þess að 30 þúsund tonna loðnukvóti
sé „pappírsloðna". Gildandi samn-
ingur Islendinga við Grænlendinga
og Norðmenn um skipti á loðnukvót-
anum er nefnilega þannig úr garði
gerður að sá hluti kvóta Grænlend-
inga sem ekki er veiddur fyrir vertíð-
arlok fellur sjálfkrafa í hlut íslend-
inga og reyndin er sú að EB, sem
hefur keypt þennan kvóta, hefur
sáralítið getað nýtt sér hann.
DRÖGIN TALIN SIGUR
FYRIR EB
Evrópubandalagið hefur útbúið
drög að fiskveiðisamningi sem felur
í sér almennar heimildir Evrópu-
bandalagsins til að veiða innan ís-
lenskrar fiskveiðilögsögu. í þeim
drögurn er ekki eitt einasta orð um
gagnkvæmar veiðiheimildir sem
tryggja að Islendingar nái sínum afla
á móti afla Evrópubandalagsins.
Hannes Hafstein, samningamaður
íslands, mun í reynd hafa fallist á
þessi drög í einkaviðræðum.
Verði kröfur Evrópubandalagsins
samþykktar eins og Jón Baldvin vill
nú, fela þær í sér að bandalagið hefur
í tengslum við EES-samninginn náð
fram hreinum fiskveiðiréttindum í
íslenskri lögsögu eins og það hefur
farið fram á síðan 1976. Samnings-
drögin eru því í Brússel talin mikill
sigur fyrir samningamenn EB.
í Oporto-yfirlýsingunni stendur
að loðnuréttindi Islendinga séu ein-
ungis bundin við árið 1993, en rétt-
indi EB til þess að veiða 3000 tonn
af karfa séu hinsvegar ekki tíma-
bundin. 3000 tonna veiðiheimild
innan íslenskrar fiskveiðilögsögu sé
í reynd framlag íslendinga til EES-
samningsins.
MIKILL TITRINGUR
Mikill titringur er í herbúðum
Sjálfstæðisflokksins vegna þessa
máls. Þorsteinn Pálsson og forystu-
menn sjávarútvegsins neita að hverfa
frá fyrri kröfum. Þær voru í surnar
kynntar í sjávarútvegsnefnd Alþingis
sem einróma studdi þær. Guðmund-
ur H. Garðarsson, sem lengi var full-
trúi Sjálfstæðisflokksins í landhelg-
isnefnd, situr nú á þingi. Hann hefur
ítrekað að ekki komi til rnála að
Sjálfstæðisflokkurinn fari nú að
samþykkja kröfur frá EB sem ætíð
var neitað að samþykkja meðan Geir
Hallgrímsson var forsætisráðherra.
En klukkan gengur. Jón Baldvin
neitar að láta EES-samningana falla
á tíma. Þess vegna berst hann nú
harðri baráttu bak við tjöldin fyrir
því að íslendingar fallist á fiskveiði-
kröfur Evrópubandalagsins.
Bogni stjómarflokkarnir í þessu
máli má öllum ljóst vera að íslend-
ingar hafa borgað tollaívilnanir á
EB-markaði með veiðiheimildum
fyrir EB á íslandsmiðum. Þar með
væri fallið frá mikilvægasta grund-
vallaratriði íslenskrar utanríkisstefnu
í fiskveiðiréttindamálum frá fyrstu
dögum þorskastríða og stækkun
landhelginnar.
OÐ AVOXTUN
Á UNDANFÖRNUM ÁRUM SÝNIR AÐ
VERÐBRÉFASJÓÐIR
KAUPÞINGS ERU
TRAUSTSINS VERÐIR
Þegar þú kaupir veröbréf skiptir
meginmáli,hve örugg veröbréfin eru og
hve góöa ávöxtun þau gefa, þegar til
lengri tíma er litiö. Á tíu ára starfsferli
Kaupþings hefur reynslan kennt spari-
fjáreigendum aö þeir geta treyst okkur
þegar þeir leita aö góöum kosti á
íslenskum veröbréfamarkaöi.
Veröbréfasjóöir Kaupþings eru dœmi um
fjárfestingarleiö sem hœgt er aö reiöa sig
á um leiö og þeir gefa mjög góöa ávöxtun.
::
SPARISJÓÐIRNIR
®BÚNAÐARBANKINN
-Traustur banki
KAUPÞING HF
Löggilt verðbréfafyrirtœki
Kringluntii 5, stmi 689080
í eigu Búnadarbatika íslands
og sparisjóðanna
KAUPÞING HF. - FRAMTÍÐARÖRYGGl í FJÁRMÁLUM