Vikublaðið - 08.04.1994, Page 4
4
VIKUBLAÐIÐ 8. APRIL 1994
Schindler 's List ★ ★ ★ ★
Sýnd í Háskólabíó
Leikstjóri: Steven Spielberg
Aðalhlutverk: Liam Neeson, Ben
Kingsley, Ralph Fiennes.
Spielberg er óumdeilanlega einn
af hæfileikaríkustu leikstjórum
sem saga kvikmyndanna hefur
alið af sér. Alit fólks á því fer þó
svolítið eftir því hvort litið er á
kvikmyndir sem viðskiptagrein eða
listgrein. F.f fyrri póllinn er tekin í
hæðina efast enginn um yfirburði
Spielbergs þar eð myndir hans hafa
halað inn nóg fjárinagn til að opna
þrjár nýlendur á Mars. Listamaðurinn
Spielberg hefur hins vegar átt í vand-
ræðum með að sannfæra vantrúaða
um ágæti sitt, þær myndir hann hefur
eytt hvað mestum metnaði í hafa verið
hunsaðar af gagnrýnendum og öðrum
sem hafa viðurværi af því að veita lis-
tamönnum viðurkenningu.
En loks ko'm að því að Spielberg
gerði mynd sem virðist falla „fag-
mönnum" flestum vel í geð og mynd
hans „Listi Schindlers" hefur hlaðið
utan á sig ýinis konar viðurkenning-
um. Þegar horft er á myndina er auð-
velt að sjá hvað heillar, þrátt fyrir að
sumum finnist efni myndarinnar hafa
verið margtuggið í áranna rás, er ekki
hægt að segja annað en að hér sé urn
að ræða magnþrungnustu endursögn
á einu dekksta tímabili inannkyns sem
ég man eftir. Ilver einasti svarthvíti
rannni færir áhorfandann inn í miðju
atburðanna og gerir hann að vitni að
óbeisluðu hatri og fyrirlitningu. Með
hliðsjón af því að nýnasisini og þess
konar óþverri þrífst enn hér á jörð er
ekki hægt að segja að mynd þessi sé
tímaskekkja að neinu leyti. Það er
bitur staðreynd að kynþáttahatur dví-
nar lítið og mynd þessi ætti að opna
augu fólks fyrir því sem slíkur
hugsanagangur getur leitt til.
Leikhópurinn undirstrikar bæði
þjáninguna og niðurlæginguna sem
svífur yfir vötnum. Liam Neeson er
ótrúlega sterkur í titilhlutverkinu
þrátt fyrirað sumir hafi orðið til að
gagnrýna þátt hans í myndinni. Ralph
Fiennes, í hlutverki einnar samvisku-
lausustu mannskepnu sem ég man
eftir að hafa séð á hvíta tjaldinu, lifir
hvað lengst í minninguni, persóna
Eitt gyðingabartiaima í Lista Schindlersfinnur sérfelustað í útrýmingarbúðunum
- kamarinn.
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
28. MAÍ1994
Leiðbeiningar um undirbúning og framkvæmd
1. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla mun hefjast fyrsta virka dag eftir 2. apríl, þ.e.. 5. april
2. Krafa um bundnar hlutfallskosningar i sveitarfélagi með 300 íbúa eða færri
berist oddvita yfirkjörstjórnar bréflega eigi síðar en...........................16. apríl
3. Sveitarstjómarmaður, sem skorast undan endurkjöri, skal tilkynna yfirkjörstjórn
þá ákvörðun sina eigi siðar en...................................................23. april
4. Framboðsfrestur rennur út kl. 12 á hádegi........................................30. apríl
5. Framlengdur framboösfrestur, ef aðeins kemur fram einn listi, rennur út......... 2. maí
6. Kjörskrá skal lögð fram eigi síðar en............................................ 4. maí
og skal framlagning hennar auglýst fyrir þann tima.
7. Kjörskrá skal liggja frammi til kjördags.
8. Kærufrestur til sveitarstjómar vegna kjörskrár rennur út kl. 12 á hádegi.........14. mai
9. Yfirkjörstjóm auglýsir framboðslista þegar eftir að listar hafa verið úrskurðaðir
gildir og merktir.
10. Afrit kæru sendist þeim sem kærður er út af kjörskrá eigi siðar en...............17. maí
11. Sveitarstjóm úrskurðar kærur eigi siðar en.......................................21. maí
12. Oddviti sveitarstjómar eða framkvæmdastjóri hennar undirritar kjörskrá.
13. Sveitarstjóm tilkynni hlutaðeigandi, svo og sveitarstjóm sem mál getur varðað, um breytingar
á kjörskrá strax og úrskuröur liggur fýrir.
14. Sveitarstjóm skal senda oddvita yfirkjörstjómar eintak af kjörskrá þegar kjörskráin hefur verið
endanlega undim'tuð.
15. Kjörstjóm tilkynni oddvita yfirkjörstjórnar, svo og sveitarstjórn sem mál getur varðað, um
breytingar á kjörskrá strax og dómur er genginn.
16. Yfirkjörstjóm auglýsir hvenær kjörfundur hefst.
17. Kjörfundi skal slíta eigi síðar en kl. 22 á kjördag.
16. Yfirkjöretjóm augiýsii iivar og rivenær atKvcieOatalning veröur meö nægum fyrirvara á undan
kosningum.
19. Atkvæðatalning hefst svo fljótt sem unnt er að loknum kjörfundi.
20. Yfirkjörstjóm setur notaða atkvæðaseðla undir innsigli að talningu lokinni, þegar kosning er
óbundin.
21. Kæra vegna kosninganna skal afhent hlutaðeigandi sýslumanni innan sjö daga frá þvi að lýst
var úrslitum kosninga.
22. Yfirkjörstjóm eyðir innsigluðum atkvæðaseðlum að kærufresti loknum eða að fullnaöarúr-
skurði uppkveðnum hafi kosning verið kærð þegar kosning er óbundin, sbr. nr. 19.
23. Kjörstjóm skal gefa út kjörbréf til aöalfulltrúa i sveitarstjóm og varamanna þeirra og senda
nýkjörinni sveitarstjórn greinargerð um úrslit kosninganna.
Félagsmálaráðuneytið, 24. mars 1994.
hans hálfþartinn grefur sig inn í
undirineðvitundina og verður sani-
nefnari fyrir það illa í myndinni.
Annar samnefitari er hin títtnefnda
stúlka í rauðu kápunni en hún er tákn
þeirra gyðinga sem Schindler tókst
ekki að bjarga og líklegasta ástæða
samviskubitskastsins sem Schindler
fær í lokin. Þannig er þetta í mínum
skilningi alltént. Sumir vilja ineina að
rauðklædda stúlkan sé eintóm sýndar-
mennska af hálfu Spielbergs og að
atriðið í lokin þar sem Schindler
brotnar niður sé allt of mikil breyting
á hans persónu á stuttum tíma. Eins
og Spielberg setti þetta upp fannst
mér augljóst að dauði rauðklæddu
stúlkunnar skildi eftir djúpt sár í per-
sónu Schindlers, sem kom svo upp á
yfirborðið í títtnefiidu lokaatriði.
En fáir gera meistaraverk öðruvísi
en að einhverja galla sé að finna í
gangverkinu. Veikasti hlekkur mynd-
arinnar að mínu mati er eftirmálinn,
þar sem hinir eftirlifandi „Schindler
gyðingar*“ ganga hring um grafreit
Schindler's og setja steina á legstein
hans. Það var full langt og náði ekki að
koma til skila þeirri dramatík sem það
hefði átt að gera. Að þessu smáatriði
slepptu er myndin gjörsamlega galla-
laus og líður seint úr minni.
*Athyglisveit þótti mér að þýðandinn
skildi túlka „Schindler Jcws“ sem
„Schindler júðar“. Einhverit tíma þótti
,júði“ vera tiiðurlagjandi skammaryrði.
Kannski er þýðandinn svo hámevntaður
aðhann viti betur...?
On Deadly Ground }/2
Sýnd í Bíóhöllinni.
Leikstjóri: Steven Seagal
Aðalhlutverk: Steven Seagal,
Michael Caine, Joan Chen.
Oft vill henda að kvikmynda-
fólk ofmetnast og telur sig
geta brauðfætt áhorfendur á
áróðri sem cr til þess gerður að vekja
fólk til umhugsunar um eitt eða annað
inálefni. Einhvern veginn taldi ég víst
að slagsmálahundurinn Steven Seagal
væri ekki líklegasti maðurinn til að
falla í þessa gildru, þar eð myndir hans
hafa verið tiltölulega metnaðar-
snauðar til þessa.
En með þessari myr.d sannar Seagal
að hann er ekki bara ofbeldishneigður
þöngulhaus, hann er ofbeldishneigður
þöngulhaus sem virðist standa í þeirri
trú að hann geti haft eitthvað að segja
í baráttunni um verndun umhverfis-
ins. Allt virkar það mjög ótrúverðugt
þegar hann veldur mun meiri nátt-
úruspjöllum ineð yfirgangi sínum f
myndinni en hann kemur í veg fyrir.
Ilann sannar einnig að leikhæfi-
leikarnir eru ekki þeir einu eiginleikar
hans sem er verulega ábótavant. Ilann
er sumsé einnig skr' Aour fyrir leik-
stjórn á mynd þessari og af hand-
bragðinu a? jæma ætti hann að halda
sig við það að læra línurnar sínar.
Oll hasar- og bardagaatriði eru
fádæma illa uppbyggð og atriðin sem
tengja þau saman eru fyrir neðan allar
hellur hvað drainatískan strúktúr
varðar. Eina sem kemur í veg fyrir að
maður yfirgefi salinn áður en yfir líð-
ur eru samræðurnar sem eru á köflum
svo kostulega tilgerðarlegar í inni-
haldsleysi sínu að það eitt dugar til að
koma manni í gott skap.
Allar þessar tilgangslausu tilraunir
til að miðla boðskapi til áhorfandans
virka eins og árangurslausar tilraunir
móður til að fá þrjóskan þriggja ára
krakka til að taka meðalið sitt. Það er f
raun hálfgerð inóðgun við fullorðið
fólk að sitja yfir þessu. Og til að fyrir-
byggja það að fólk gangi út úr salnum
án þess að hafa fattað boðskapinn
heldur Seagal u.þ.b. finnn mínútna
ræðu í endann um hreinar orku-
auðlindir og vonsku olíufélaga þar
sem fólk er matað á boðskapnum eins
og hann leggur sig. Þessi boðskapur,
sem Seagal notar ómældan tíma í að
reyna að troða ofan í áhorfendur,
komst mun bemr til skila í tíu sek-
úndna atriði í Simpsons jiætti sem
sýndur var nýlega (Fossil Fuel: Use us
and nobody will get hurt) og sannast
þar að hvað áróður sem þennan varðar
virkar kómísk hnitmiðun mun betur
en þegar tönnlast er á sama hlutnum í
níutíú inínútur í veikri vron um að
áhorfandinn gangi út úr salnum betri
og bættari maður en fyrr.
Fyrir þá sem eru í skapi til að sjá
almennilega hasarmynd mæli ég mun
frekar með austurlensku inyndinni
Hardboiled sem er væntanleg á
myndband von bráðar. Hún innihcld-
ur eintóman tilgerðarlausan hasar og
fellur ekki í þann fúla pytt að reyna að
hafa áhrif á þankagang áhorfenda.
Ilasarmyndir eru einfaldlega ekki
rétti miðillinn til þess.
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboð-
um í endurbyggingu þaks á B-álmu Langholtsskóla.
Helstu magntölur eru:
Þak 320 m2
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykja-
vík, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaqinn 13. apríl 1994,
kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Utboð
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboð-
um í gólflökkun í ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar.
Helstu magntölur eru:
Gólffletir 2.200 m2
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvégi 3, Reykja-
vík, gégn kr. 5.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 12. apríl 1994, kl.
14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800