Vikublaðið - 08.04.1994, Blaðsíða 8
8
Samfélaffíð
VIKUBLAÐIÐ 8. APRIL 1994
Konur
til sölu
kosta
eina tölu
Um kvenmynd í'íslenskum fjölmiðlum
Eitt veggspjaldannasem Ýmsar konur útbjuggufyrir kynningarfund á Hótel Borgþar sem kvennaþingið sem haldið verður íFinnlandi
í ági'tst var kynnt. A því má sjá brot afþví sem Ýmsar konurfundu í atbugunum sínum.
Ieina tíð sást varla bert hold í ís-
lenskum blöðum nema í Samúel,
og þá alls ekki íslenskt. Nú eru
aðrir tímar og vikublöðin keppast við
að birta myndir af íslenskum fyrirsæt-
um, gjarnan án fata. Það virðist vera
hluti af því að vera töff hjá blöðunum
að daðra við bert hold. Vart þarf held-
ur að rifja upp fjaðrafokið í kringum
nektannyndir sem voru birtar án sam-
þykkis fyrirsætu á dögunum.
Jafh árvisst og að farfuglar koma á
vorin er val á fegurðardrottningum Is-
lands og fyrirsætum í Elite, Ford og
hvað þær nú heita allar þessar kepp-
nir, og fjölmiðlansinna þessu vali af
milum áhuga.
Kannanir sýna að hlutur kvenna í
fréttum er margfalt minni en karla og
einnig virðist umfjöllun um konur
vera á annan hátt, a.m.k. hjá ákveðn-
um prentmiðlum.
Berar konur og eilífur
æskublómi
I tæpt ár hefur hópur ungra kvenna
úr ýmsum áttum komið saman og rætt
stöðuna í jafnréttismálum, en þær
kalla sig Ymsar konur. Eyja Margrét
Brynjarsdóttir er meðal þeirra. Hún
kynnti niðurstöður athugunar Ymissa
kvenna á hvernig konur birtast mynd-
rænt í blöðum á fyrirlestri sem Kven-
réttíndafélag Islands gekkst fyrir í
nóvember s.l. „I hvert sinn sem hóp-
urinn hittist hafði einhver eitthvað
nýtt fram að færa sem okkur þótti lít-
illækkandi fyrir konur," segir Eyja
Margrét. „Við fórum því að fletta
blöðum og skoða hvernig konur birt-
ust í þeim og fyrir kynningu á Nor-
disk forum, kvennaþinginu sem hald-
ið verður í Finnlandi í ágúst, útbjugg-
um við veggspjöld með því sem við
höfðum fundið."
Eyja Margrét segir að niðurstöður
Ymissa kvenna hafi verið mjög á einn
veg þó athugunin hafi ekki verið vís-
indalega unnin. I fyrirlestrinum sagði
hún að ef fjölmiðlar eiga að vera speg-
Nýleg dæmi
úr fjölmiðlum
ilf samfélagsins er helmingur kvenna
18 ára fegurðardrottningar. Hinn
helmingur þeirra reyndi allt til þess að
líkjast fegurðardrottningunum og
æðsta takmarkið virtist vera glæsilegt
útlit og eilífur æskublómi. Ennfremur
að frá fjölmiðlum flæði myndir af mis-
mikið klæddum, grannholda stúlkum
sem lygna aftur augunum og eru á
svipinn eins og þær bíði óþreyjufullar
eftir því að einhver karlmaður komi
og geri eitthvað við þær. Með öðrum
orðum sýni fjölmiðlar konur sem kyn-
verur, þöglar og meðfærilegar.
Dr. Sigrún Stefánsdóttir, frétta-
maður og lektor í hagnýtri fjölmiðlun,
segir „fallegar konur" ekki vera áber-
andi sem umfjöllunarefni í sjónvarps-
fréttum ef frá eru taldar góðviðris-
myndir úr sundlaugunum. Annað sé
hins vegar uppi á teningnum í auglýs-
ingum og þegar „falleg" kona liggur
t.d. á bíl í auglýsingu án þess að finna
megi vitræna skýringu er um mis-
notkun að ræða. „Nektarmyndir í
vikublöðunum eru tímaskekkja og ef
ritstjórar blaðanna haldi að þetta selji
er það argasti misskilningur. Ég hef
furðað mig á þessum myndum í blöð-
unum því þær verða aldrei fallegar í
prentun. Þetta verða svartar klessur.
Ég get þess vegna ekki ímyndað mér
að myndirnar selji og spái þeim ekki
langlífi. Lifi þessi blöð af er það fyrir
Myndir: Ol.Þ.
' eitthvað annað en nektarmyndir, ruér
finnst blöðin setja niður við þessar
myndbirtingar og setja þau niður á
lágt plan."
Félagsvísindastofnun
skoðar fréttir
Sigrún Stefánsdóttir gerði könnun
fyrir nokkrum árum á hversu sýnileg-
ar konur væru í fréttum. Sigrún rann-
sakaði tveggja mánaða skammt af
fréttum af hverju ári á 20 ára tímabili.
„Niðurstöðurnar voru sorglegar en
staðfestu það sem mig hafði grunað,
hversu rýr hlutur kvenna væri í frétt-
um," segir Sigrún. „Frá því að nánast
cngin viðtöl væru við konur fyrstu ár-
in upp í að vera 13 prósent þegar best
lét. Síðan hefur Jafnréttisráð fylgt
þessu dálítið eftir og nú stendur fyrir
dyrum að Félagsvísindastofnun geri
úttekt á þessu sama. Mín tilfinning er
sú að það hafi ekkert gerst síðan og
það fellur að þeim tölum sem Jafn-
réttisráð hefur birt."
Sextán prósent viðmæl-
enda í fréttum konur
Elín Arna Þorgeirsdóttir og Hrefna
Guðmundsdóttir gerðu ásamt fleirum
innihaldsgreiningu á fréttum sem
lokaverkefni í fjölmiðlafræði við Há-
skóla Islands. I könnuninni sem tók
yfir 6 vikna tímabil kemur fram að 84
Eyja Margrét Brynjarsdóttir, háskólanemi
„Frá íslenskum fjölmiðlum flœða yfir okkur myndir afmis-
mikið klœddum, grannholda stúlkum sem lygna aftur aug-
unum og eru á svipinn eins og þœr bíði efiir því að einhver
karlmaður komi og geri eitthvað við þœr."
Stöð 2 í febrúar
Frétt frá krýningu ungfrú Norðurlands. Fréttamaðurinn segir frá því að nú ætli hann að gera það sem alltaf er gert í svona frétt-
um, að kyssa fegurðardrottninguna til hamingju. Allt er þetta myndað og síðan segir fréttamaðurinn frá því hvernig tilfmning það
er að kyssa fegurðardrottningu. Stúlkan er hins vegar ekki spurð hvernig það er að kyssa fréttamann um fertugt.
Ríkissjónvarpið 2. mars
í þættinum „í sannleika sagt" hjá þeim Ingó og Völu var 2. mars sl. fjallað um baráttuna við aukakílóin. Þrátt fyrir að gestir kæmu
úr ýmsum áttum snerist umræðan nær eingöngu um konur og útlit þeirra, anorexíur, líkamsrækt, fyrirsætur og fleira. Nær ekkert
var reynt að komast undir yfirborðið og leita skýringa á því hvers vegna konur eru alltaf að hugsa um útlit og megrun eða hver
hefur selt þeim þessa ímynd. Lítið rætt um offitu karla.
Nýleg sjónvarpsauglýsing
Þulurinn hefur yfir texta. „Pú skiptir um sjónvarp, þú skiptir um tannbursta, þú skiptir um bíl" og nefnir eitthvað fleira. Síðan
birtist „falleg kona" liggjandi í rúmi og áhorfendur bíða eftir að þulurinn segji „og þú skiptir um konu". í stað þess nefnir hann
nýtt rúm og þá kemur í ljós að verið er að augiýsa rúmdýnur.
Vikublaðið mælir með bráðskemmtilegri sjónvarpsauglýsingu þar sem ónefndur íslenskur þvottalögur er auglýstur. Ekki er aðeins
um að ræða gott svar við auglýsingaherferð innfiutts töfraefnis heldur er auglýsingin ágætis framlag í umræður umkynjamis-
munun í auglýsingum.