Vikublaðið - 10.06.1994, Page 10
10
í dagslns ftnn
VIKUBLAÐIÐ I0.JUNI 1994
Þegar Moggaritstjórarnir voru
búnir að jafna sig á úrslitum kosn-
inganna fóru þeir í fylu og skrifuðu
leiðara um að úrslitin hefðu ekki
komið á óvart. Niðurstaðan var síð-
an óborganleg; að í borginni væri ó-
breytt staða!!! Síðan snéru ritstjór-
arnir sér að þorskinum en fengu
Agnesi litlu Braga til að skrifa um
„valdarán" og „blekkingarslagorð"
vinstra pakksins. Agnes brást ekki
sínum mönnum og básúnaði að
engin hreyfing fólksins væri til og
að þeir flokkar sem standa að
Reykjavíkurlistanum væru ósam-
starfshæfir. Vonandi er öflugt loft-
ræstingarkerfi í Moggahöllinni
nýju.
Agnes segir: „Hér er algerlega
um persónubundinn kosningasigur
Ingiþjargar Sólrúnar Gísladóttur að
ræða, sem ein hélt uppi kosninga-
baráttu og ein var í sviðsljósinu all-
an tímann." Er Agnesi sjálfrátt? Var
hún full? Vitaskuld var meginá-
herslan lögð á borgarstjóraefnið
sem að auki skipaði baráttusætið.
Hvaða frambjóðendum öðrum en
Arna flíkaði Sjálfstæðisflokkurinn?
Var Árni á kappræðufundi Stöðvar
2? Já. Var Arni á kosningafundi
sjónvarpsstöðvanna kvöldið fyrir
kjördag? Já. Var einhver annar en
Árni (og Bryndís) útmálaður sem
öruggur og traustur í auglýsinga-
flóðinu? Nei. Var frambjóðandan-
um í áttunda og baráttusætinu
hampað? Nei. Árni var sóló og sam-
kvæmt röksemdafærslu Agnesar
voru því úrslitin persónubundinn
ósigur hans. Andrés Magnússon
stuttbuxnaíhald skilur þetta og er
búinn að kveða upp dóm. Arni
verður ekki leiðtogi íhaldsins í
borginni. Það verður annað hvort
Inga Jóna Þórðardóttir skýrslu-
skríbent eða Gunnar J. Birgisson ís-
leifs Gunnarssonar. Ekki það að
þeim hafi verið hampað í kosninga-
baráttunni. Fengu kannski að ferja
gamlingja til Valhallar og koma
smávegis fram á meinlausum út-
varpsstöðvum.
Og nú er Arni kominn til síns
heima, aftur orðinn ffamkvæmda-
stjóri Stjórnunarfélagsins. Stöðunni
var haldið ómannaðri meðan Árni
var borgarstjóri í skamma hríð í
Losningaslagnum. Hvað segir það
okkur? Pælið í því.
Hafið þið annars tekið eftir því að
Guðmundur Magnússon hefur eng-
an grátleiðara skrifað í DV um
„fall" borgarinnar? Er hann búinn
að læsa sig inni á klósettinu eða er
einfaldlega búið að þagga niður í
honum? Um Pressuna er ekki
margt að segja. Pressan hefur á-
kveðið að snúa sér að knattspyrnu.
Komin í aðra deild. Alltaf í boltan-
um. Frikki í AB veit að á eftir bók
kemur bolti.
Og Stöð 2. Allt í einu er íslenskur
bítill frá Los Angeles búinn að ræna
völdunum. Reynslumestu bisness-
menn þjóðarinnar létu bítilinn, og
svo óþokkann Jón Ólafsson f Skíf-
unni/Sporinu, valta yfir sig með
amerískum aðferðum. Nú verður
fféttadeildin skorin verulega niður
og lögð meiri áhersla á afþreyingar-
efriið sem bítillinn hefur umboð
fyrir vestra. Stöð 2 og Bylgjan
leggja síðan höfuðáherslu á tónlist
og myndbandsefni frá Skíf-
unni/Spori. I stuttum fréttapistlum
les Elín Hirst um nýja geisladiska
frá Jóni og Co.
Innan úr ráðhúsinu er það að
frétta að Jón G. Tómasson er sagð-
ur ætla að sækja um nýja vinnu en
skyndileg kurteisi og stimamýkt
Riddara Reykjavíkur var fyrsta ó-
yggjandi vísbendingin um úrslitin í
Reykjavík.
Rithöndin
Gefst aldrei upp
Skriffin þín segir að
þú sért skapmikil og
hafir sterkar tilfinning-
ar. Þú getur verið óvæg-
in og í orðum þínum er
oft broddur. Lífsbarátt-
an er þér oft hörð, eig-
inlega stöðug ganga
móti stormi. En þú
gefst yfirleitt aldrei upp.
Þótt þinn innri maður
sé staddur í neyð hlustar
þú ekki á hann en held-
ur þínu striki. Það sem
þú ætlar þér kemst Jóhanna Sigurðardóttirfélagsmálkkaráðherra.
venjulega í framkvæmd
fyrr eða síðar. Þú munt af mörgum
talin ýtin.
Þú metur mildls traust fjölskyldu-
og vináttubönd. Astir finnast þér helst
fyrir unglinga. Enda munt þú gera svo
miklar kröfur til mannkosta maka að
ekki væri á margra færi að uppfylla
þær.
Þú ert áreiðanleg og getur vel þag-
að yfir leyndarmáli. Þegar þú ert ein
eða með fáum erm róleg og mild. Þú
þarft að veita þér það sem oftast og
líka að fara ein til fjalla eða eitthvað í
kyrrð. Þú hefur áhuga á tónlist og ert
líka listræn í höndum. Að teikna og
búa til tuskubrúður myndi eiga vel við
þig. Þú berð virðingu fyrir göinlu
fólki og átt létt með að umgangast það
og læra af því.
Þú vilt hafa fallegt í kringum þig,
bæði úti og inni. Vinnur rnikið, smnd-
um meira en þú gemr með góðu móti.
Þú ert gjöful. Heimili þitt er fallegt og
listrænt - það er að segja ef það er eins
og þú óskar þér. Þú ert góð heim að
sækja.
Uppeldi mun fremur laust í reipun-
um hjá þér en þú hefur þó mikinn
memað fyrir hönd barna þinna. Sam-
viskusemi er ríkur þáttur í skapgerð
þinni. Mundu að láta ekki vinnuna
gleypa þig.
Gangi þér vel.
R.S.E.
Listahátíð
Lýðveldisdansar á Listahátíð
Itilefni lýðveldishátíðar íslendinga
sýnir íslenski dansflokkurinn á
Listahátíð í Reykjavík þrjá nýja ís-
lenska balletta eftir þær Hlíf Svavars-
dótmr, Nönnu Olafsdótmr og Maríu
Gísladóttur. Þá koma tveir aðaldans-
arar frá San Francisco ballettinum,
þau Anthony Randazzo og Elisabeth
Loscavio, og sýna tvídans úr Þyrnirós
eftir Helga Tómasson. Sýningar
verða í Borgarleikhúsinu laugardag-
inn 11. júní kl. 14.00 og sunnudaginn
12. júní kl. 14.00 og 20.00
Það fer vel á því á lýðveldisafmæl-
inu að sýna verk eftir nokkra af þeiin
íslendinguin sem hafa verið braut-
ryðjendur í íslensku listdanslífi og
borið hróður landsins erlendis.
Dansarnir eftir þær Maríu, I llíf og
Nönnu eru allir samdir sérstaklega
fyrir dansara íslenska dansflokksins.
Hlíf Svavarsdóttir nefhir sitt verk
Fram, aftnr, til hliðar - og heim og
er það samið við tónlist eftir Snorra
Sigfús Birgisson og Jón Leifs. Verk
Nönnu Olafsdótmr er samið við
ljóðabálkinn Tímann og vatnið eftir
Stein Steinarr, eitt ástsælasta skáld ís-
lendinga á 20. öld. í verkinu fléttast
saman dans og upplesmr á ljóðinu;
Hjalti Rögnvaldsson leikari les. Verk
Maríu Gísladótmr heitir Sumar-
myndir og er samið við tónlist sænska
tónskáldsins Lars Erik Larsson.
Allir dansarar íslenska dansflokks-
ins taka þátt í sýningunni nú í vor.
Leikmynd og búningar eru í hönd-
um þeirra Guðrúnar Svövu Svavars-
dótmr og Karls Aspelund. Sýningar-
stjóri er Kristín Hauksdóttir og ljósa-
hönnun annast Björn B. Guðmunds-
son.
Hjartagátan
Setjið rétta stafi í reitina neðan við krossgámna. Þeir mynda þá örnefni. - Lausnarorð krossgámnnar í síðasta blaði
er Kópasker.
1— I 1 7— T— ts> T™ P 10 II 12 13 W
14 3 /5^ 10 2 /6 5 V y *Ó —^ y 9 74 —
7 !8 n 20 21 i? (? 13 2 22 )(& q~ <3? S'
1? 2 \8 11 5~ 2T~ 4 (p ¥ 17 %
P Ti \r 13 25' 2T t— TT~ 2Í 1* 5Z
W 15~ 20 JZ V 12 J5~ b Ó? 15 52 24 27
28 21 2 2~ T s 15~ 20 2 v >7- 20 22 15~ 2
1S 2 (o 11 15' 2o 2 4 s 21 22 20 V 30
T1 Jb 22 13 24 31 1S~ 2 V 24 ¥ 13
9 ¥ ttz: V 21 1 10 V 3/ 2/ 7 W~ 22
JV !b V io (o isr T~ 3o 15~ 2
(p 13 14 V 7- 2 1/ iT V 2! 13 13 V 11 )í>
2 13 17- 15~ y 15~ r 22 13 V Ti— 1— 73 12
12 13 S (q 20 i 21 2 /<?
Tilveran
og ég
Hinir aðskiljanlegusm kvillar og
innanmein eru uppgötvuð nú-
orðið. Sumir éta of mikið, aðrir of
lítið og jafnvel er til í dæminu að
menn éti ekki neitt. Fólk tekur til á
háaloftinu eða í kjallaranum og
hendir fortíð sinni. Þetta leiðir til
þunglyndis, hármissis eða
steinsmugu og er vandlæknað.
Flestir þessara sjúkdóma hafa fram
að þessu verið ókunnir en nú er allt
uppgötvað, fær latneskt heiti og sál-
fræðingarnir, alkemistar nútímans,
fima eins og púkinn á fjósbitanum.
Þó er einn sjúkdómur sem þess-
um mönnum hefur yfirsést og skal
þeim hér með bent á hann. Ég kann
ekki latínu og á því erfitt með að
finna rétt nafn en telefonmanía held
ég nái þokkalega megineinkennum
sjúkdómsins. Það er frænka mín ein
sem þjáist af telefonmaníu. Sjúk-
dómurinn lýsir sér þannig að sá sem
er haldinn honum verður viðþols-
laus ef hann er í nágrenni við ónot-
aðan síma. Einkennin minna einna
helst á það sem gerist hjá venjulegu
fólki þegar það heyrir ungbarn
gráta. Einhver frumstæð hvöt fær
fólk til að gera sitt besta til að hugga
barnið. Allir dragast að því eins og
flugur að vínarbrauði. Og menn
linna ekki látum fyrr en búið er að
hugga barnið.
Fólk sem haldið er telefonmaníu
sýnir sömu einkenni þegar það
verður vart við að sími er í nágrenn-
inu og stendur ónotaður. Maður
verður fyrst var við einhvern óró-
leika. Augnaráðið verður flöktandi,
sjúklingurinn iðar í stólnum og
fæturnir virðast vera með einkatíma
í steppdansi. Síðan hálfrísa rnenn
upp, setjast aftur en spretta síðan á
fætur og stika einbeittir að síman-
um. Sjúkdómseinkennin hverfa um
leið og tólið er komið í hendur hins
sjúka og farið er að velja eitthvert
númer. Öll símtöl eru löng og þó
svo það komi fyrir að gert sé hlé
brjótast fráhvarfseinkennin fljótlega
aftur upp á yfirborðið Og næsta törn
hefst.
Þessi frænka mín er stórskæð
þegar hún kemur í heimsóknir.
Hún hringir hvert á land sem er og
gerir engan greinarmun á því hvort
bún er að hringja þvert yfir götuna
eða til Vestur-Bengal. Drjúgur
hálftími er, held ég, stysta símtal
kellu. Þá sleppi ég því að vísu þegar
hún hringdi í klukkuna hér um dag-
inn. Þá lét hún sér tíu mínútur duga
en bætti sér það upp með því að
hringja strax í veðrið og síðan í
gengisskráningu Seðlabankans.
En yfirleitt reynir hún nú að
hringja í einhvern sem hún kannast
við og halda uppi samræðum.
Raunar duga þessari frænku minni
ákaflega stutt kynni til að telja sér
bæði rétt og skylt að hringja ef hún
kemur einhvers staðar auga á síma
sem virðist yfirgefinn og einmana.
Þá nægir að hafa heyrt fórnar-
lambsins getið á hárgreiðslustofu
eða líkamsræktarstöð. Það er líka
nauðsynlegt fyrir frænku mína að
hafa marga í takinu því þeir eru fáir
sem umbera vaðalinn í henni til
lengdar. Þeir eru ófáir sem taka
símann úr sambandi um leið og þeir
heyra hver er hinum megin. Ef til
vill verða menn umburðarlyndari
þegar pestin hefur fengið latneskt
heiti og búið er að koma upp sjálf-
styrkingarhópum og sálfræðingar
farnir að taka stórfé fyrir með-
höndlun.