Vikublaðið - 10.06.1994, Page 11
VIKUBLAÐIÐ ÍO.JÚNÍ 1994
11
Baráttufundur ABR:
Fólk er í sigurvímu
Mikil baráttugleði ríkti á fundi
Alþýðubandalagsins í Reykja sem
haldinn var að Laugavegi 3 síðasta
laugardag. Þar fögn menn kosn-
ingaúrslitunum í Reykjavík, sigri
Reykjavíkurlistans á Sjálfstæðis-
flokknum. Auk þess sem úrslitin
hafi voru rædd í þaula urðu mildar
umræður um framhaldið í meiri-
hlutasamstarfinu.
A fúndinum fjölluðu borgaríúlltrú-
arnir Guðrún Ágústsdóttir, verðandi
formaður borgarráðs, og Árni Þór
Sigurðsson um þetta efni og tóku síð-
an margir til máls. Einkum var rætt
um skiptingu fólks í hin ýmsu verkefni
og hvernig best mætd tryggja að
meirihlutasamstarfið gengi snuðru-
laust íyrir sig. Kom frain sú tíllaga að
opnir málefnahópar yrðu settír á lagg-
irnar með meðlimum hinna ýmsu
nefnda borgarinnar. Þar mættí flokks-
bundið jafnt sem óflokksbundið fólk
skrá sig til þátttöku og yrði þá ekki síst
Guðrún Óladóttir varaborgarfulltrúi, Svanhildur Kaaber og Árni Þór Sigurðsson borgarfulltrúi sátu saman á ABR-fundinum.
Hluti fundarmanna á fundi ABR á laugardag. Fundurinn gerði það að tillögu sinni að
settir yrðu é laggirnar opnir málefnahópar um hin ýmsu verkefnasvið borgarinnar.
litið til þess fólks sem kynntist og náði
góðu samstarfi í kosningabaráttunni.
„Nú liggur valdið hjá þessu fólki og
það er eins gott að fólk áttí sig strax á
því hvað það þýðir að vera kominn í
meirihluta. Við viljum valddreifingu
og að sem flestir taki þátt í starfinu og
okkar tillaga er að settir verði á lagg-
irnar opnir málefnahópar sem áhuga-
samt fólk getur skráð sig í,“ segir
Guðrún.
Hún segir að það hafi verið rnjög á-
berandi hversu fólk var baráttuglatt á
fundinum. „Fólk er hátt uppi - ef svo
má að orði komast - í sigurvímu. Því
finnst, og það með réttu, að það sé
komið annað svipmót á borgina. Þar
var yfirbragðið helst tíl blátt en nú fá
allir litir regnbogans að njóta sín. Og
maður finnur í þessari stóru borg há-
væra kröfu um áframhaldandi góða
samstöðu. Þið eigið að standa ykkur,
segir fólkið. Og svo ntun verða,“ segir
Guðrún.
Kuran - Swing kvartettinn og spilar
„Hot club“ músík en þeir hafa einu
sinni áður notið þess heiðurs að
leika á djasshátiðinni á Egilsstöð-
um.
Það hefur færst í vöxt að að-
komufólk stíli upp á dajsshátíðina
og panti sérjafnvel sumarhús á
svæðinu eða dvelji á tjaldstæði
Kaupfélags Héraðsbúa. Þar er m.a.
þjónustuhús, sturtur, þvottavélar
og rafmagn fyrir húsbíla.
Djasshátíðin á Egilsstöðum nýtur
vaxandi vinsælda og virðingar. Há-
tíðin fékk t.d. styrk úr Norræna
menningarsjóðnum á siðasta ári og
fjöldi fyrirtækja, bæjarfélaga og
hreppa á Austurlandi styrkir hátíð-
ina. Rolf Johansen & Co. og Öl-
gerð Egils Skallagrimssonar leggja
líka sitt af mörkum.
Hátíðin stendur frá 23. - 26. júní
og ferfram í Hótel Valaskjálf. Und-
anfarin ár hafa hljóðfæraleikarar
einnig lífgað upp á útimarkaös-
stemninguna á Egilsstöðum með
leik sínum. Verði veðrið gott má
búast við góðri stemningu.
Jasshátíðin
á Egilsstöðum í
band Hornafjarðar og söngkonan
Ragnheiður Sigjónsdóttir láta til sín
heyra og fulltrúar Neskaupstaðar
verða piltarnir i Ullarbandinu. Viðar
Alfreðsson, horn- og trompettleik-
ari, hefur verið gestur hátíðarinnar
undanfarin ár. Að þessu sinni kem-
ur hann fram með Aðalheiði Borg-
þórsdóttur og Garðari Harðarsyni
blúsara. Eftir að Alþýðubandalagið
vann glæsilegan kosningasigur í
Neskaupstað hafa menn þar sótt í
sig veðrið og ungir spilarar þaðan
leika undir stjórn Jóns Lundbergs.
Auk Vina Dóra og Kvintetts Kristins
Svavarssonar koma frá Reykjavík
Árni ísleifsson, prímus mótor
djasshátíðarinnar á Egilsstöðum.
Kuran - Swing kvartettinn mun sveifla Autfirðingum á djasshátíðinni.
Um þessar mundir hijómar á
öldum Ijósvakans lítið sætt lag,
sungið af Bubba Morthens, sem
ber heitið Stína, ó Stína. Höfundur
lagsins, Árni Isleifsson, hefði sjálf-
sagt ekki látið sé detta í hug að
lagið yrði vinsælt á ný si/o mörg-
um árum eftir að það var samið.
Árni á sér langan feril við píanóið
og er, og hefur alla tíð verið, djass-
isti fram ífingurgóma og nú á hann
sum sé eftir langt hlé eitt vin-
sælasta lagið á Ijósvakamiðlunum.
Hann gekk íþað fyrir sjö árum að
setja i gang einstæða djasshátíð í
heimabæ sínum Egilsstöðum þar
sem hann er tónlistarkennari.
Þann 23. júní næstkomandi
gengur svo í garð enn ein hátíðin
þareystra og von erá fjölda gesta.
Undanfarin ár hafa allir helstu
djassleikarar landsins, ásamt er-
lendum gestum, leikið á hátíðinni
og það sama er uppi á teningnum
nú. Frá Ameríku koma tveir virtir
tónlistarmenn.
Þar skal fyrst nefna heiðursgest
hátíðarinnar, Poul Weeden fyrrum
gítarleikara t Count Basie
bandinu, en hann hefur oft
áður heimsótt landann og
haldið fjölda námskeiða víða
um land. Poul Weeden,
kemur ásamt kvintetti Krist-
ins Svavarssonar. Annar
Bandaríkjamaður, sem
einnig hefur heimsótt okkur
áður, mætir á hátíðina með
hörpu sína. Hér er á ferð
Chicago Beau sem getið
hefur sér gott orð hér heima
með Vinum Dóra. Dóri mætir
þvímeð sveit sína og
Chicago Beau þannig að
blúsinn verður í hávegum
hafður á hátíðinni.
Blúsinn verður í hávegum hafður á djasshátíð-
inni sem Chicago Beau heiðrar með nærveru
sinni.
Eitt afþvísem einkennt
hefur djasshátiðina á Eglis-
stöðum er að sveitungar
Árna og nærsveitarmenn
hafa ávallt tekið þátt og svo
er einnig nú. Blúsbandið
Rætur frá Egilsstöðum treð-
ur upp ásamt söngkonunni
Ester Jökulsdóttur, Djass-