Vikublaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 14
14
VIKUBLAÐIÐ ÍO.JUNI 1994
Utboð
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboð-
um í viðbyggingu við leikskólann Brákarborg.
Um er að ræða 125,6 m2 viðbyggingu ásamt tengingu við eldra
hús.
Útboðið nær tii jarðvinnu, uppbyggingar viðbyggingar, fullnaðar-
frágangs ásamt breytingum vegna tengingar við eldra hús.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykja-
vík, gegn kr. 10.000.- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 28. júní. 1994 kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Ruth Magnússon, framkvæmdastjóri Listahátíðar, vill auka til muna kynningu á
Listahátíð erlendis.
Gjaldeyris-
skapandi
Listahátíð
Framlag
Tómasar R. Einarssonar,
kontrabassaleikara
og tónskálds,
til Listahátíðar
er glæsilegt
að þessu sinni.
Listahátíð stendur nú sem hæst
og hefur aðsókn verið góð.
Listaklúbbur Listahátíðar hef-
ur starfað á Sóloni íslandus og hver
uppákoman rekið aðra. Sérstaklega
eru það músíkantar af ýmsum gerðum
og stærðum sem hafa leikið og sungið
fyrir gesti. A Sóloni Islandus stendur
einnig yfir málverkasýning Sigurðar
Guðmundssonar sem sett var upp í
tilefhi Listahátíðar. I kvöld og næstu
kvöld koma fram m.a. Björn
Thoroddsen og félagar, Skárra en
ekkert, Tríó Egils B. Hreinssonar,
Emil og Anna Sigga, Tríó Olafs
Stephenssen og Kvartett Maria með
Reyni Sigurðsson í fararbroddi
Magnús Blöndal Jóhannsson leikur
ffá kl. 15 - 18 sautjánda og átjánda
júní og sérstök vísnakvöld verða á
dagskrá. Þetta er aðeins hluti þess sem
Listaklúbburinn býður upp á á næst-
unni.
A aðalskrifstofu Listahátíðar í
Gimli við Lækjargötu er unnið hörð-
um höndum við ffamkvæmd Listahá-
tíðar. I þessum lidu og þröngu húsa-
kynnum tekst starfsfólki að sinna öll-
um þeim fjölda verkefha sem ráða þarf
framúr á hverjum degi. A undanförn-
uin mánuðum hefur Ruth Magnússon
framkvæmdarstjóri og starfsfólk
hennar unnið langan vinnudag við
undirbúning og ffamkvæmd hátíðar-
innar. Ruth sagði Vikublaðinu að
Listahátíð væri nú, líklega í fyrsta
skipti, að verða gjaldeyrisskapandi bú-
Sonja B. Jónsdóttir, blaðafulltrúi Listahátíðar, og Elsa Guðmundsdóttir, umsjónar-
maður og framkvæmdarstjóri Listaklúbbs Listahátíðar bera saman bækur sína á
Sóloni (slandus. Texti og myndir: Ólafur
áheyrenda á tónleikum Igors Oistrakh
og Nataliu Zertsalovu í íslensku óper-
unni hafi verið útlendingar. Það er
orðið mun auðveldara að fá heims-
þekkta listamenn á Listahátíðina,
heldur eri var. ísland er komið inn á
kortið og Iistamenn vilja gjarnan
koma. Það hefur spurst út hversu mik-
il gróska er í íslensku menningarlífi og
fólk er farið að koma til þess að njóta
menningarinnar, ekki bara til þess að
horfa á Iandslagið, sagði Ruth Magn-
úsdóttir í stuttu spjalli við Vikublaðið.
Það sein ber hæst á Listahátíð á
laugardag, þann 11. júní, eru tónleik-
ar Tómasar R. Einarssonar, kontra-
bassaleikara og tónskálds í íslensku
óperunni. Þar verður frumflutt verk
Tómasar Einslags stórt hrúgald af
grjóti, tónleikur uin Island fyrir 5 ein-
söngvara, ljóðskáld og 7 manna
jasshljómsveit. Ljóðin sem Tómas
hefúr samið tónlist sína við eru eftir
Sigurð Guðmundsson, Ingibjörgu
Haraldsdóttur, Stefán Hörð Gríms-
son, Halldór Laxness, Gyrði Elíasson,
Pétur Gunnarsson og Lindu Vil-
hjálmsdóttur en auk þess hefúr
Tómas samið tónlist við texta úr orða-
bókarhandriti Jóns Olafssonar úr
Grunnavík.
Söngvararnir sem flytja tónleik
Tómasar eru Ragnhildur Gísladóttir,
Bergþór Pálsson, Guðmundur Andri
Thorsson, Sif Ragnhildardóttir og
Einar Orn Bcnediktsson. Hljómsveit-
ina skipa þeir Tómas R. Einarsson á
kontrabassa, Eyþór Gunnarsson á pí-
anó, Matthías ITemstock á trommur,
Sigurður Flosason á altó-og barítón-
saxófóna og bassaklarinett, Oskar
Guðjónsson á tenórsaxófón, Þórir
Baldursson á Hammondorgel og Ein-
ar Örn Benediktsson á trompett. Auk
þess mun skáldið Sjón flytja kvæði við
undirleik hjómsveitarinnar og verða
ljóð og tónlist samin á staðnum. Sér-
stakur gestur verður KK.
skapur. Fyrsta bráðabirgðadagskráin
var tilbúin í janúar s.l. og þá dreift
víða um heini.
Dagskráin var prentuð á ensku og
þýsku og fylgdi með sérstakur pönt-
unarseðill fýrir listunnendur. Sérstök
áhersla var lögð á Niflungahring
Wagners og í kjölfar auglýsinga um
hann bárust fyrirspurnir til Listahá-
tíðar um önnur atriði. Fyrsta pöntun-
in frá útlöndum barst ffá konu á Fidjí-
eyjum. Síðan hafa streymt inn pantan-
ir á atriði Listahátíðar, sagði Ruth.
Flún telur að um það bii helmingur
^S^BÚSETI Húsnæðissamvinnufélagið Búseti
^^húSnæð.ssamvI1£uFélag auglýsir íbúðir til úthlutunar í júní
1994
FÉLAGSLEGAR IBÚÐIR:
(Félagsmenn innan eigna- og tekjumarka geta sótt um þessar íbúöir)
HAFNARFJÖRÐUR: REYKJAVlK: KÓPAVOGUR:
Staður: Stærð m2 Staður: Stærð: 2 m Staður Stærð: 2 m
Suöurhvammur 13 Frostafold 20 3ja 78 Amarsmári 4 3ja 79
4ra 102 Frostafold 20 4ra 88 Arnarsmári 4 2ja 54
Bæjarholt 7 (raöh.) Garðhús 4-6 4ra 115
4ra 129 Berjarimi 1 4ra 87
Birkihlíö 2a 4ra 96 Tindasel 1 (raöh.)
5 115
ALMENN ÍBÚÐ:
(Félagsmenn sem eru yfir eigna- og/eða tekjumörkum geta sótt um þessa íbúö.)
Staður: Stærð: m ™ Áætl. afhend.:
Skólatún 1, Bessast.hreppi 2ja 68,7 maí‘95
Hvemig sótt er um íbúð:
Umsóknir um íbúöimar veröa aö hafa borist skrifstofu Búseta fyrir kl. 15:00 þann 15. þessa
mánaöar á eyöublööum sem þar fást.
Umsóknir gilda fyrir hverja auglýsingu fyrir sig og falla síöan úr gildi.
Félagsmaöur sem sækir um nú og fær ekki ibúð, verður aö sækja um á ný.
Til aö umsókn sé gild er áríöandi aö skattayfirlit (staöfest frá skattstjóra) síöustu þriggja ára
fylgi henni.
ATH! UMSÓKNUM ÞARF AÐ SKILA FYRIR KL. 15 MIÐVIKUDAGINN 15.
JÚNÍ. ÍBÚÐIR VERÐA NÆST AUGLÝSTAR í SEPTEMBER 1994.
Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu Búseta hsf., Hávallagötu 24, s: 25788.
Skrifstofan er opin 10-12 & 13-15 virka daga.