Vikublaðið


Vikublaðið - 22.11.1996, Page 6

Vikublaðið - 22.11.1996, Page 6
1 81» imu i „Éff hef óbilandi tru á dómgreind kjósenda.” Hvar sér þess stað að vinstri meirihluti hefur verið við völd í 2 1/2 ár? „Það er margt sem vitnar um þær áherslu- breytingar sem hafa átt sér stað í stjóm og upp- byggingu Reykjavíkurborgar á þessu kjörtíma- bili. Við höfum lagt áherslu á að búa svo um hnútana að fólki líði vel hérna og koma til móts við þarfir barnafjölskyldna í borginni. Hér á ég við dagvistarmál, skólamál, umferðaröryggis- mál í hverfunum, uppbyggingu grænna svæða, endurbætur á útivistar- og leiksvæ.ðum. Dag- vistar- og skólamál sátu áður á hakanum en við höfum gert þau að forgangsmáli. Leikskólakerfi borgarinnar hefur verið byggt upp og stefnt er að einsetningu grunnskólans á næstu árum. Þá vil ég nefna nýjar áherslur í kjarasamning- um þar sem lögð hefur verið áhersla á að bæta lægstu launin og það hefur meðal annars leitt til þess að laun kvenna hafa hækkað talsvert meira en laun karla. Það hefur vonandi ekki farið fram hjá neinum að að hlutur kvenna í ábyrgðar- og stjómunarstörfum hefur aukist mikið og era þær nú líklega fjóram sinnum fleiri en fyrir tveimur árum. Jafnréttismálin hafa verið forgangsmál og ýmislegt sem lýtur að starfsmannamálum, svo sem gerð starfsmannastefnu. Reykjavíkurlistanum hefur tekist að ná nokkuð góðum tökum á fjármála- stjóm borgarinnar og draga úr þeirri árvissu skuldasöfnun sem hér hef- ur verið og nú er markvisst stefnt að því að ná í jafn- vægi í íjármálum borgar- innar. Reykjavíkurlistinn hefur það að leiðarljósi að starfa á grandvelli jafn- ræðis og heiðarleika, ekki aðeins í borði heldur líka í orði.” Ertu ánægð með þann árangur sem hefur náðst? „Já, ég er mjög ánægð með árangurinn og allt starf Reykjavíkurlistans. Og við eram þó bara rétt að byrja. Ég er mjög ánægð með hvað hópurinn ér samstilltur og þrátt fyrir allar hrakspár hefur starf Reykjavíkurlistans gengið mjög vel. Þetta er ekki þvingað samstarf og ef upp hefur komið ágrein- ingur þá hefur hann verið þvert á öll flokksbönd. Ég leyfi mér að fullyrða að það er mun samhentari hópur sem fer með stjórn borgarinnar núna heldur en sá sem stjórnaði henni á síðasta kjörtímabili og var það þó bara einn flokkur. Það hefur sýnt sig að hjá Reykjavíkurborg er mikill vannýttur mannauður og mikið af fóM sem sýnir framkvæði og hefur mikinn áhuga á að takast á við breytingar. Þá á ég ekki við pólitískar breytingar heldur breyt- ingar í stjómun og skipulagi á vinnuaðferðum. Það hefur verið afar ánægjulegt að vinna með því fólki.” Ertu bjartsýn á að Reykjavíkurlistinn haldi borginni eftir næstu kosningar? „Já, ég er mjög bjartsýn á það. Ég held að Reykvíkingar vilji að réttlæti og ábyrgð ráði för í stjóm borgarinnar og að almannahagsmunir seú þar útgangspunktur en ekki sérhagsmunir. Ég hef óbilandi trú á dómgreind kjósenda.” Er Reykjavíkurlist- inn að missa dampinn við stjórn borgarinn- ar? Hann hefur sœtt vaxandi gagnrýni að undanfömu og hefur verið viðkvœmur gagnvart gagn- rýnisröddum og er nœrtæk- ast að.nefna holrœsamálið. En undanfarið hafa menn helst sett út á hækkun þjón- ustugjalda og kannski ekki síst í Ijósi þess að útsvar Reykjavikurborgar er lægra en gengur og gerist. Það virðast reyndar vera skiptar skoðanir innan Reykja-v- íkurlistans um hvort ekki hefði átt að hækka útsvarið strax í byrjun kjörtímabils enda umdeilanlegt afhverju borgin nýti ekki allan þann tekjustofn sem henni ber með lögum. Þá sætir stjóm borgarinnar nú harðri gagnrýni af hálfu BSRB vegna launastefnu sinnar í komandi kjarasamningum en borgin er sögð ganga þvert á marmið sín og vera með sömu launastefnu og ríkisstjómin. Til þess að kanna hvaða andar eru ríkjandi í her- búðum Reykjavíkurlistans hafði Vikublaðið samband við fimm borgarfulltrúa list- ans, þau Guðrúnu Ög- mundsdóttur, Guðrúnu Ag- ústsdóttur, Sigrúnu Magn- úsdóttur, Pétur Jónsson og Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur borgarstjóra til þess að spyrja þau hvað helst einkenndi starf Reykja- vfkurlistans það sem af er kjörtímabilinu og hvernig framtíð borgarinnar blasti við þeim. Það var ekki að heyra ann- að á fulltrúum Reykja víkurlistans en að þeir vœru mjög ánægðir með samstarf- ið og að mikil eining ríkti innan þeirra raða. Það var samdóma álit þeirra að ár- angur afmiklu og góðu starfi Reykjavíkurlistans væri nú að koma í Ijós. Dagvist barna ekki lengur vandamál Guðrún Ogmundsdóttir, formaður félagsmálaráðs Reykjavíkurborgar, segir Reykjavíkurlistann hafa unnið vel í félagsmálum. Mikil áhersla hafi frá upphafi verið lögð á málefni fjöl- skyldunnar og jafnræðisreglan jafnan höfð að leiðarljósi. Dagvistarmálin ber þó hæst en þau mál eru nánast Ieyst. Þörfínni hefur verið fullnægt og er þá ekki eingöngu verið að tala um forgangshópana heldur alla for- eldra borgarinnar. Einsetning grunn- skólans er hafin og er áætlað að verja til þess um fimm milljörðum á næstu þrernur árum. „Annárs er svo margt að gerast. Ég get nefnt dæmi um hjúkrunarheimili í Mjódd sem byrjað verður að taka í notkun á næsta ári. Heimaþjónusta hefur verið aukin við aldraða en það er ekki endilega vísir um góðæri heldur kannski frekar að Guðrún Ágústsdóttir: | Við megum aidrei *lafca ofan jafnréttísgleraugun, állar ákvarðanir okkar verða að lúta jafnrétti skortur hefur verið á sjúkrarými fyrir aldraða. Einnig hefur verið komið á fót fjöl- skylduheimili fyrir konur og böm sem meðferðarúrræði t.d. þegar með- ferð lýkur. Fólk og fyrirtæki sækja til borgarinnar I skipulagsmálum segist Guðrún Agústsdóttir vera hlynnt þéttingu byggðar en þó megi ekki gleyma að hafa það sem hún kallar öndunarop, það þarf að taka frá lóðir fyrir fram- tíðina. Það kom berlega í ljós við Guðrún Ögmundsdóttir: Heimaþjónusta hefur verið aukin við aldraða en það er ekki endilega vísir um góð- æri heldur kannski frekar að skortur hefur verið á sjúkra- rými fyrir aldraða hina miklu uppbyggingu leikskóla borgarinnar að víða var erfitt að ftnna góðar lóðir inni í grónum hverfum. Guðrún nefnir einnig áætlun, sem er komin til framkvæmda, um að breyta iðnaðarhúsnæði í gömlu hverfunum í íbúðarhúsnæði. Þannig hafi orðið til margar nýjar íbúðir og hafi iðnnemar átt þar stóran hlut að máli. „Aldrei áður í sögu borgarinnar hefur Reykjavfkurhöfn úthlutað jafnntörg-

x

Vikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.