Vikublaðið - 22.11.1996, Blaðsíða 8
VIKUBLAÐIÐ 22. NÓVEMBER 1996
viti
Resan till Melonia
Sænsk teiknimynd
fyrir alla fjölskylduna.
Norræna húsið býður eins og áður upp
á fjölbreytta dagskrá um helgar.
Sunnudaginn 24. nóvember kl. 14:00
sýnir húsið sænsku teiknimyndina Res-
an til Melonia. Við förum í ferð til hinnar
fögru töfraeyju Melonia. Þar búa tröll-
karlinn Prospero, dóttir hans Miranda,
mávurinn Ariel og fleiri vinir þeirra.
Ekki langt undan, á svörtu eyjunni Plu-
tonia, búa svo hinir gráðugu verk-
smiðjueigendur Slug og Slagg. Myndin
snýst um baráttu góðs og ills eins og
öll spennandi ævintýri.
Teiknimyndin er ætluð allri fjölskyld-
unni og fékk mjög lofsamlega dóma í
Svþjóð þegar hún var frumsýnd þar fyr-
ir nokkrum árum. Aðgangur er ókeypis.
Bókaútgáfan IÐUNN hefur gefið út nýja skáldsögu eftir Vigdísi
Grímsdóttur og nefnist hún Z, ástarsaga. Þetta er fimmta
skáldsaga höfundar, sem einnig hefur sent frá sér smásagna-
söfn og Ijóðabækur.
Fyrri skáldsögur Vigdísar eru Kalda-
Ijós, Ég heiti ísbjörg Ég er
Ijón, Stúlkan í skógin-
um og Grandavegur 7.
Bækur Vigdísar hafa
jafnan vakið mikla at-
hygli og fengið frábæra
dóma gagnrýnenda. Þær
hafa m.a. verið þýddar á
sænsku, dönsku, finnsku
og frönsku. Fyrir skáldsög-
una Grandavegur 7 hlaut
Vigdís íslensku bókmennta-
verðlaunin 1994 og hún hefur
hlotið margvíslegar aðrar við-
urkenningar fyrir verk sín.
Skáldsagan Z hefur undirtitilinn
ástarsaga og í kynningu segir m.a.: Á hrímkaldri vetrarnóttu rekja
tvær ólíkar systur sögur sínar, lýsa ferðum sínum um lendur ást-
arinnar, og grímurnar falla ein af annarri uns sér í bera kviku.
Þegar dagur rennur er allt breytt... Ögrandi söguefni verður að
magnaðri skáldsögu um ást og afbrýði. Úr óigandi sárum tilfinn-
ingum skapar Vigdís Grímsdóttir óvenjulega og seiðandi ástar-
sögu.
Ikvöld frumsýnir Þjóðleikhúsið nýtt leikrit, Kennarar óskast, eftir Ólaf
Hauk Símonarson. Þessi frumsýning er merkileg fyrir þær sakir að
Ólafur Haukur er fyrstur leikskálda til þess að eiga tvö stykki á sviði
Þjóðleikhússins. Leikritið Þrek og tár hefur gengið fyrir fullu húsi frá
byrjun og virðist ekkert lát á vinsældum þess en yfir 25 þúsund manns
hafa nú séð það.
Leikstjóri Kennarar óskast er Þórhallur Sigurðsson en hann hefur
starfað mikið með Ólafi Hauki undanfarinn áratug.
Kennarar óskast gerist í samtímanum eins og títt er um leikrit Ólafs
Hauks en frá því er í raun ekki nema ein undantekning en það er Þrek
og tár sem gerist í kringum 1960.
í Kennarár óskast er sögusviðið lítill skóli úti á landsbyggðinni en Ól-
afur Haukur hefur gjarnan notað vinnustaði sem sögusvið, til dæmis í
Bílaverkstæði Badda og Kjöti.
Kennarar óskast fjallar um ung kennarahjón sem flytjast út á land að
vetrarlagi til þess að hefja nýtt líf. Hugmyndir þeirra eru nokkuö á skjön
við lífviðhorf heimamanna og því getur reynst öruggast að sameinast
með öllum tiltækum ráðum gegn boðberum breytinga.
Leikhópurinn er skipaður úrvalsleikurum en það eru þau Sigrún Edda
Björnsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Örn Árnason, Ólafía Hrönn
Jónsdóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Gunnar Eyjólfsson og Harpa Árna-
dóttir.
Skrappverk og
vatnslitamyndir
Á morgun, laugardag, verða opnaðar
þrjár myndlistarsýningar í Nýlistasafn-
inu, Vatnsstíg 3b.
Finnur Örn heldur nú aðra einkasýningu
sína en hann hefur áður tekið þátt í
samsýningum heima og erlendis. Síð-
ustu ár hefur hann starfað sem leik-
myndahöfundur og meðaj annacs gert
leikmyndir við leikritin Ságá ‘öf ■’Véfetuf
bænum, Hárið, Himnaríki, BirtifTg' -o'.fL '
Verk Finns Arnars fjalla um blákaldan
veruleikann og er samsett af veggverk-
um og gólfverkum sem listamaðurinn
kallar „skrappverk".
í Súmsal og á Palli Nýlistasafnsins mun
Ingileif Thorlacius sýna vatnslitamyndir.
Þetta er fimmta einkasýning Ingileifar
en undanfarin ár hefur hún staríað sem.
stundakennari við Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands.
Gestur safnsins í setustofu er Guðrún
Halldóra Sigurðardóttir. Sýningunum
lýkur þann 8. desember nk.
Ljóð eftir
leikskólabörn
Meðfylgjandi ljóð er að finna í
bókinni „Ljóð eftir leikskóla-
börn”, sem Félag íslenskra leik-
skólakennara gefur út.
Egilsstaðir
Það er nótt.
Allar stjömurnar eru að hrapa
á húsið sem við œtlum að flytja í.
Húsið er á Egilsstöðum.
(Björg á leikskólanum
Jöklaborg í Reykjavík)
Ljóð um haustliti
Þeir voru gulir
rauðir og þeir voru
brúnir og grcenir.
Rigningin var á leiðinni
og þá fuku laufm.
Þrjú lauffuku upp á bílinn
og vindurinn kom með eitt
laufinn í bílinn.
(Höfundur: Dagný Björk
á leikskólanum Stöðvarfirði)
A I T 1 12 23
Á J U 2 13 24
B K Ú 3 14 25
D L V 4 15 26
Ð M X 5 16 27
E N Y 6 17 28
É 0 Ý 7 18 29
F Ó Þ 8 19 30
G P Æ 9 20 31
H R Ö 10 21 32
I S 11 22
Setjið rétta stafi í
reitina neðan við
krossgátuna. Þeir
mynda þá nafii á nýrri
ljóðabók. Lausnarorð
krossgátunnar í síðasta
blaði er
MEYVANT.
B" I" w 7 7T" TT ’Hl
n lú 8 )8 5 )b II )b )8 i4 5
2o W~ Zl 22 23 25 25 T~ 15 73 V 1
T~ 12 25 K/ 2lo 5 12 2 7 8 5 V T~ 2? * 1
T /7 8 T~ )3 )5 s? T~ 11 12 8 T~ % 11 M 1
n W~ Zk (s> 8 7 /7 18 5 24 ! 30 12
)2 V 25 )Z II W~ 15 7$ )3 JT~ 15~ )8 V? 31 1
Zi 7 )5 73 /2 V 2J~ T~ 5 1Z 5 T )f 28 ^ 1
n )5 73 17 15 iZ (s> V i4 71“ 18 26 1
)2 9 2(s> )8 15 V )Z l°l b 5 )5 7/ Sz'jl
8 7 )5 25 8 5 )3 19 25 TtT 8 )2 4 l
15 (o | T? 15 ZM 8 )5 V n 76 5 30 V 18 7 j|
73 )Z Ii~\ W 2(o' o )8 5 23 w 5 1 II 72 1
l? 13 ! 1 \25 )Z 13 )5 HJARTAGÁTAN