Vikublaðið - 22.11.1996, Qupperneq 7
VIKUBLAÐIÐ 22. NOVEMBER 1996
Bandalagsmðstefha BSRB:
Skerðing atviimuleysisbota
með öllu oásættanleg
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja hélt
bandalagsráðstefnu sína dagana 18.-19. nóv-
ember. Ráðstefnugestir voru á annað hundrað-
ið enda fóru þar fram mikil og fjörug skoðana-
skipti um þau mál sem heitast brenna á launa-
fólki í dag. Mikill einhugur rfkti á ráðstefnunni
um kröfuna um hækkun launa og voru rfkið og
Reykjavíkurborg gagnrýnd harðlega fyrir
stefnu sína í launamálum.
Dess að launafólki verði tryggð hlutdeild í góðæri
ajóðarinnar með hækkun kauptaxta. Auk þess sé
3rýnt að minnka vægi eftirvinnunnar með hækkun
grunntaxta.
í kjaramálaályktun mótmælir BSRB einnig boð-
aðri launastefnu ríkisins og Reykjavíkurborgar
sem byggir á því að auka vægi viðbótarlauna á
kostnað grunntaxta. Þessi stefna muni leiða til
aukins launamisréttis og því Ijóst að Reykjavíkur-
borg ætlar ekki að skipta efnahagsbatanum jafnt
Pétur Jónsson tók sem
dæmi um óráðsíu Sjálf-
stæðisflokksins að þegar
sá flokkur var við völd var
ákveðið að verja fimm
hundruð mifljóna til átaks-
verkefna, sem skiluðu svo
engu.
ústsdóttir forseti borgarstjómar. „Þá
á ég við uppbyggingu hjólreiðastíga
og göngustíga ekki síst til þess að
draga úr bílaumferð um borgina.
Með uppbyggingu hjólreiða- og
Fjármálin tekin
föstum tökum
Reykjavíkurlistinn tók við ekki
við góðu búi af Sjálfstæðisflokknum.
En með því að taka fjármálin föstum
tökum hefur náðst mikill árangur á
því sviði. „Áður en Reykjavíkurlist-
inn kom til ráku fjármál Reykjavík-
urborgar á reiðanum. Þeirri óheilla-
þróun hefur nú verið snúið við og ár-
angurinn er að koma í ljós. Fjárhags-
áætlanir em nú gerðar til þriggja ára
og hverri stofnun og ráði borgarinnar
gert að skila nákvæmri starfsáætlun
til framtíðar. Þegar Reykjavíkurlist-
inn tók við stjóm borgarinnar var
halli borgarsjóðs um þrír milljarðar á
ári en það samsvarar um 30 milljörð-
um hjá ríkinu. Halli borgarinnar fyrir
árið 1996 er hins vegar áætlaður um
fimm hundmð milljónir. Það þætti
víst frétt til næsta bæjar ef ríkinu
tækist að ná sínum halla niður í
fimm milljarða á tveimur ámm”,
sagði Sigrún Magnúsdóttir.
Pétur Jónsson borgarfulltrúi tók
sem dæmi um óráðsíu Sjálfstæðis-
flokksins að þegar sá flokkur var við
völd var ákveðið að verja fimm
hundmð milljóna til átaksverkefna,
sem skiluðu svo engu. Reykjavíkurl-
istinn tók á málinu, greindi vandann
og sagði að nú væri varið um 40
milljónum til átaksverkefna þessa
árs. aþ
Frá bandalagsráöstefnu BSRB: Pess var krafist að launafótki veröi tryggð hlutdeild í
góðæri þjóðarinnar með hækkun kauptaxta.
í ályktun um lífeyrismál er því fagnað að náðst
hafi samkomulag við ríkisvaldið um endurskoðun
á Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, en þar er tekið
tillit til sjónarmiða opinberra starfsmanna. Þann ár-
angur þakkar ráðstefnan baráttu opinberra starfs-
manna sem skilaði þeim árangri að fyrri frum-
varpsdrög voru dregin til baka og endurskoðuð.
Það verklag sem upp var tekið í framhaldi af því
segir BSRB til fyrirmyndar og er þess vænst að
framhald verði á því.
Bandalagsráðstefna BSRB leggur áherslu á að
atvinnuleysisbætur verði á engan hátt skertar í
nýju frumvarpi um atvinnuleysistryggingar.' Sam-
kvæmt frumvarpinu er fyrirsjáanlegt að atvinnu-
leysisbætur hinna verst settu muni skerðast og er
það með öllu óásættanlegt að mati BSRB.
í kjaramálaályktun frá ráðstefnunni krefst BSRB
né láta láglaunafólk njóta hans. Með stefnu sinni
segir BSRB Reykjavíkurborg ganga þvert á yfirlýst
markmið sín og setja fram sömu launastefnu og
ríkisstjórnin.
BSRB krefst þess í ályktun um velferðarþjónust-
una að heilbrigðisstofnunum sé tryggt nægilegt
fjármagn til að veita þjónustu þá sem þeim er ætl-
að að veita lögum samkvæmt. Gjaldtöku í heil-
brigðis- og menntakerfi er mótmælt og sýnir hinn
nýi „fallskattur” að hugmyndaflugi skattheimtu-
manna ríkisvaldsins eru lítil takmörk sett þegar lít-
ilmagninn á í hlut. Lýst er yfir eindregnum stuðn-
ingi við kröfur námsmanna um samtímagreiðslur
lána því er alfarið hafnað að námsmönnum sé gert
að leita dýrra einstaklingslausna með því að velta
á undan sér bankalánum með tilheyrandi vaxta-
byrði meðan á námi stendur.
um lóðum til atvinnufyrirtækja eins
og á kjörtímabili Reykjavíkurlistans.
Þetta er svo mikil breyting að hún
telst vera um þriðjungur af því sem
hefur verið úthlutað í áttatíu ár. Það
sýnir bara að fólk og fyrirtæki sækja
til borgarinnar og telja einmitt hafn-
arsvæðið ákjósanlega staðsetningu.”
Sigrún Magnúsdóttir: „Áður
en Reykjavíkurlistinn kom
til ráku fjármái Reykjavíkur-
börgar á reiöanum. Þeirri
óheillaþróun hefur nú verið
snúiö við og árangurinn er
að koma í Ijós.
Reykjavík verði hrein
og vistvæn borg
„Átak Reykjavíkurlistans í um-
hverfismálum er það sem mér finnst
standa upp úr,” segir Guðrún Ág-
göngustíga er aðgengi fatlaðra einnig
stórbætt í borginni. Reykjavíkurlist-
inn vill jafnvægi í umferðinni og við
höfum látið gera miklar endurbætur
á leiðakerfi SVR og verður enn unn-
ið í mikið í þeim málum.”
Einnig má nefna að heilmikið átak
hefur verið gert í endurvinnslu sorps,
nú er dagblöðum safnað í þartilgerða
gáma og sagði Guðrún það sérlega
ánægjulegt hversu vel borgarbúar
hefðu tekið við sér í þessum málum.
En er Reykjavík hrein borg? „Það
er tvennt sem gerir það að verkum
að Reykjavík getur ekki talist hrein-
asta höfuðborg Norðursins. í fyrsta
lagi hefur strandlengjan ekki verið
hreinsuð og enn á eftir að ljúka hol-
ræsagerð borgarinnar. I öðru lagi er
það hin gífurlega umferð borgarinnar
en hún er á við 300.000 manna borg
en Reykvíkingar eru um 100.000.
Við erum ekki hrein og vistvæn á
meðan þessir hlutir eru í ólagi og eru
þetta að mínu mati mikilvægustu
skreftn í umhverfismálum borgarinn-
ar”, sagði Guðrún Ágústsdóttir.
Launamismun
kynjanna útrýmt
Reykjavíkurborg stendur nú fyrir
jafnréttisátaki en samkvæmt könnun
sem var gerð á launakjörum karla
annars vegar og kvenna hins vegar
kom í ljós mikill munur. Reykja-
víkurlistinn ætlar að útrýma þessum
launamismun, að sögn Guðrúnar Ág-
ústsdóttur, og gæti það orðið gott
fordæmi fyrir allt landið.
„Þetta er í fyrsta skipti sem
Reykjavíkurborg þorir að taka á
þessum málum með myndarlegum
hætti. Reykjavíkurlistinn er einnig
fylgjandi sveigjanlegum vinnutíma
til þess að koma til móts við bama-
fjölskyldur í borginni en auk þess má
nefna hugmyndir um styttingu
vinnutímans og tilraun með fæðing-
arorlof karla. Við megum aldrei taka
ofan jafnréttisgleraugun, allar
ákvarðanir okkar verða að lúta jafn-
rétti”, sagði Guðrún Ágústsdóttir.
Ráðhús Reykjavíkur
innkeyrsla í kjallara fráTjarnargötu
bíUttnAa «tr a
götukortum
PjÍnuslujkrá
|H Bílastæðasjóður