Vikublaðið - 22.11.1996, Qupperneq 11
VIKUBLAÐIÐ 22. NÓVEMBER 1996
Aherslan er á
Manneskjulegt
í Mosfellsbæ, segir Jónas Sigurðsson,
formaður bæjarrráðs.
S
kjölfar bæjarstjórn-
arkosninganna 1994
mynduðu Alþýðu-
bandalagið og Framsókn-
arflokkurinn meirihluta í
bæjarstjórn. Jónas Sig-
urðsson er oddviti Al-
þýðubandalags og for-
maður bæjarráðs í Mos-
fellsbæ. Vikublaðið fékk
Jónas til að setjast niður
og spjalla um stjórn bæj-
arins og hvernig tekist
hafí að efna kosningalof-
orðin.
þeim tilgangi að skapa hér betri að-
stæður fyrir útivist. Bærinn hefur
keypt land í hjarta bæjarins og erum
við að vinna að umhverfisskipulagi
fyrir það svæði. Jafnframt er hluti af
þessu svæði hugsaður til þess að
styðja við ýmsa listastarfssemi. Við
höfum verið að skoða málefni aldr-
aðra ofan í kjölinn, einkum hjúkrun-
armálin. Við höfum verið að eiga
við heilbrigðisráðuneytið um að
gera úrbætur í heilsugæslumálum,
en það hefur ekki gengið nægilega
vel. Við höfum aukið við í öryggis-
málum aldraðra, bætt inn vaktþjón-
ustu og fleira á dvalarheimili aldr-
aðra sem ekki var áður. Við höfum
tekið á stjómkerfi bæjarins og emm
lega á okkar hendi era hjúkmnarmál
aldraðra. Við höfum gert viðamikla
úttekt á aðstöðu aldraðra hér í bæj-
arfélaginu og er nú væntanleg mjög
yfirgripsmikil skýrsla um þau mál.
Á grundvelli þeirrar skýrslu er
meiningin að búa til stefnumörkun
um hvers konar þjónustu við ætlum
að veita. Þar leggjum við væntan-
lega áherslu á að allir geti búið sem
lengst í sínu heimahúsnæði með þá
þjónustu sem þarf á að halda þar,
hjúkrunarþjónustu. Og svo er bráð-
nauðsynlegt að koma upp hjúkmn-
arheimili, sem við þurfum að eiga
við ríkið um, sem og aukningu á
þjónustu heilsugæslunnar. Svo em
það umhverfismálin og það sem lýt-
Jónas Sigurðsson: „Við höfum lagt mesta áherslu á málefni sem lúta að börnum og
unglingum, auk umhverfísmála. Þar höfum við náð verulegum árangri.”
- Hvað hafið þið verið að gera
það sem af er kjörtímabilinu, sem
þér finnst standa upp úr?
„Þar má fyrst til taka okkar stóra
mál eða skólamálin og þá sérstak-
lega hvað varðar aðstöðu, húsnæði
og umhverfi skólanna. Á þetta höf-
um við lagt mikla áherslu og orðið
mjög mikið ágengt. Við erum nú
þegar búin að taka í notkun við-
byggingu við gagnfræðaskólann,
sem þannig hefur verið stækkaður
um þriðjung. Það húsnæði var tekið
í notkun núna í haust. Svo emm við
að fara af stað með skólastarf á vest-
ursvæðinu, sem er nýbygginga-
svæði. Einnig höfum við tekið
ákvörðun um að byggja við einn
leikskólann, í þeim tilgangi að auka
plássið þar og bæta við einni deild á
næsta ári sem ætti að ná því að láta
biðlista hverfa að mestu.”
- Hvernig hefur tekist að efna
önnur loforð?
„Það hefur tekist vel. Við höfum
lagt mesta áherslu á málefni sem
lúta að bömum og unglingum, auk
umhverfismála. Þar höfum við náð
verulegum árangri. Við höfum lagt
vemlega áherslu á umhverfismálin í
núna búin að ganga frá breytingum
á því. Við höfum einfaldað kerfið
með að markmiði að gera það skil-
virkara, þannig að glögg skil séu á
milli annars vegar embættismanna
og hins vegar nefndakerfisins. Við
höfum fækkað nefndum verulega,
sett saman undimefndir skyldra
málaflokka og stillt málefnum þann-
ig upp að embættismannakerfið og
nefndakerfið vinni betur saman.
Einnig höfum við tekið vemlega á
ýmsum innri málefnum stjómkerfis-
ins sem lúta að fjármálunum, en það
hefur gert alla vinnu við t.d. fjár-
hagsáætlun markvissari en áður.”
- Hver eru næstu mál á dag-
skrá?
„Áframhaldandi uppbygging, sér-
staklega í skólamálum. Þar þarf að
taka vel til hendinni. Annað mál
sem er mjög brýnt og er ekki alger-
ur að þróun bæjarfélagsins. Nú er að
fara af stað vinna við endurskoðun
aðalskipulags. í tengslum við það er
hugmyndin að vinna vel í því og
skapa gmndvallarframtíðarsýn fyrir
bæjarfélagið með tilliti til allra þátta
og með áherslu á manneskjulegt
umhverfi og fjölskylduna.”
- Sérðu fyrir þér sameiginlegt
framboð félagshyggjuflokkanna í
næstu kosningum?
„Við gerðum tilraun um sameig-
inlega lista í kosningunum 1990,
Einingarlistann, en hann fór mjög
illa. Kratamir virðast vera týndir.
Þeir komu ekki að manni síðast og
hafa ekki átt mann hér í bæjarstjóm
í mörg ár. Hins vegar höfum við átt
samstarf við einstaklinga bæði úr
Alþýðuflokki og Kvennalista. Þeir
hafa m.a. setið í nefndum fyrir okk-
ur. Ég er mjög jákvæður fyrir sam-
starfi við þess aðila í næstu kosning-
um. Það hafa hins vegar ekki verið
neinar formlegar viðræður í gangi.
En í tengslum við þær almennu um-
ræður sem eiga sér stað um þessar
mundir, um samstarf eða jafnvel
sameiningu, þá hlýtur sú urnræða að
eiga sér stað hér eins og annarsstað-
ar.” RM
M beytá eittlwftð
(jtCttWÆMÍ?
Hringið þá í ritstjóra Vikublaðsins.
552-8655
Sértilboð til
London
OCk 47A
28. nóvember kr. i U
Flug og hótel
Aðeins l vinnudagur
" 1 Tryggðu þér nú síðustu sættn
til London á iága verðinu í vetur. þessarar mestu hdmsborgar
Evrópu. Viðbótargistirtg á Butlins hótciinu, sem hefur notið
mikilla vinsælda hjá farþegum okkar enda skammt frá
öxíordstræti. Oll herhergi eru með sjónvarp, síma og
baðherbergi. Og að auki getur þú vaiið um fjölda annarra
hótdvalkosta í hjarta London.
Verö kr. 17.570
Flugsæti. Verð mcð fiugvallatskömim,
rnánudagur tti fimmtudágs í okt. og
nóvernber.
Verö kr. 29.270
M.v 2 í herbcrgt, Bútlins Hotel trteð
morgunvcrðí, 28. nóvembei, 3 nxlur.
Skattar innifaldir.
Ótrúlegar undirtekúr
Síðustu Síí’tin í vetur
Hvenær er iaust?
25. nóv. — ! B veti
28. nóv, - 21 sxú
Austurstræti 17, 2. h»d, síttti B62 <1600
UTBOÐ
F.h. Bygingadeildar borgarverkfræðings, er óskað eftirtil-
boðum í viðhald pípulagna í 7 félags- og þjónustumiðstöðv-
um aldraðra.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu vorri á kr. 1.000,-.
Opnun tilboða: þriðjud. 3. desember 1996, kl. 14:00 á
sama stað.
F.h. Reykjavíkurhafnar er óskað eftir tilboðum í sprenging-
ar á Klettasvæði, ámokstur og flutning efnis og nefnist verk-
ið: Klettagarðar - sprengingar.
Helstu magntölur eru:
Gröftur og burthreinsun á lausum jarðvegi: 13.500 m3
Klapparlosun, ámokstur og flutningur efnis: 37.500 m3-
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá þriðjud. 19. nóv.
Gegn kr. 10.000 skilatr.
Opnun tilboða: miðvikud. 27. nóvember 1996, kl. 14:00 á
sama stað.
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings, er óskað eftir
tilboðum í hreinsibúnað og hringrásardælur fyrir nýja sund-
laug í Grafarvogi í Reykjavík.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri.
Opnun tilboða: þriðjud. 10. Desember 1996, kl. 11:00 á
sama stað.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. sjálfseignarstofn-
unar Skógarbæjar óskar eftir tilboðum í sjúkrakallkerfi fyrir
hjúkrunarheimilið Skógarbæ að Árskógum 2, Reykjavík.
Útboðsgögn fást á skrifstofu borri frá þriðjud. 19. nóvem-
ber gegn kr. 10.000 skilatr.
Opnun tilboða: fimmtud. 5. desember 1996, kl. 11:00 á
sama stað.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍNKUBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 -121 Reykjavík
Sími: 552 5800 Bréfasími 562 2616