Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.2005, Page 12

Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.2005, Page 12
12 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 12. febrúar 2005 Paul Giamatti leikur á mótiEdward Norton í væntanlegri mynd frá Bull’s Eye Entertain- ment, sem ber nafnið The Illusion- ist. Giamatti tekur þá á ný þátt í mynd með fram- leiðanda Side- ways, Michael London. Áætlað er að tökur hefj- ist í Prag í apríl. Illusionist segir sögu töfra- manns í Vín í upphafi 20. aldar sem verður ást- fanginn af konu, er lofuð er prinsi. Hann notar mátt sinn til að ná henni aft- ur og veikja konungsættina í Vín. Neil Burger leikstýrir myndinni. Hann skrifaði líka handritið eftir smásögu Steven Miller, Eisenheim the Illusionist.    Dylan McDermott leikur á mótifyrrum Ungfrú heimi, Aishwarya Rai, í myndinni The Mistress of Spices eftir leik- stjórann Paul Mayeda Berges. Tökur hefjast í næstu viku. Mistress of Spices er gerð eftir bók Chitra Divakaruni en hún seg- ir frá indverskri konu, sem rekur kryddbúð í San Francisco. Krydd- in hennar virðast hafa kraftinn til að lækna vanda- mál viðskiptavina sinna en það breytist þegar hún verður ást- fangin af Banda- ríkjamanni. Gurinder Chadha, sem skrifaði Bend It Like Beckham framleiðir myndina ásamt Deepak Nayar. McDermott var að klára mynd með Kevin Spacey, Morgan Freeman og Justin Timberlake. Rai lék síðast í Bride and Prejud- ice eftir Chadha.    Leikstjórinn Raja Gosnell leik-stýrir endurgerð á myndinni Yours, Mine and Ours. Dennis Quaid og Rene Russo fara með hlutverkin sem Henry Fonda og Lucille Ball voru í árið 1968. Búist er við því að myndin verði frumsýnd í nóv- ember á þessu ári. Í upphaflegu myndinni segir frá ekkjumanni sem á tíu börn sem giftist ekkju með átta börn en myndin er byggð á sannsögulegri bók Helen Eileen Beardsley frá 1964, sem heitir Who Gets the Drumsticks? Endurgerðin fylgist með tveim- ur einstæðum foreldrum sem ætla að stinga af og gifta sig en verða að kljást við börn sín, sem reyna að koma í veg fyrir hjónabandið.    Mel Gibson er búin að klippamynd sína Píslarsögu Krists upp á nýtt. Búið er að skera á milli fimm og sex mínútur af ofbeldis- fyllstu atriðum myndarinnar. Ný útgáfa myndarinnar verður sýnd í 500–750 kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum frá 11. mars. „Það hefur verið uppi sú krafa frá kristilegum hópum að myndin verði sýnd aftur um páskana. Það hefur líka verið rætt mikið um of- beldið. Mel vildi reyna að koma til móts við það fólk með því að gera nýja útgáfu sem er ekki eins hörð. Vonandi á þetta fólk eftir að fara á myndina, ekki síst yngra fólkið,“ sagði Bruce Davey, samstarfs- félagi Gibsons, í samtali við Var- iety. Þessi útgáfa er jafnvel hugsuð til þess að hún henti til sýninga um hverja páska og eiga enn fleiri bíó- gestir því eftir að sjá þessa vinsælu mynd. Erlendar kvikmyndir Félagarnir Thomas Haden Church og Paul Giamatti úr Sideways. Indverska leikkonan Aishwarya Rai. Dennis Quaid Það rann upp fyrir mér þegar ég las umandlát Ossie Davis að það er ekki alltafstjörnuskari, peningabruðl, verðlaunafárné eitthvað annað slíkt veraldlegt prjál sem gerir kvikmynd minnisstæða og merkilega. Oftar en ekki eru það litlu atriðin, þar sem allt leggst á eitt að gera þau framúrskarandi, að augnablikum sannleikans. Kvikmyndagerðarmönn- unum tekst að fanga töfra sem fylgja manni, jafnvel eins lengi og minnið bregst ekki. Eitt slíkt prýðir The Hill, fáséða stríðsádeilu eft- ir Sidney Lumet frá 1965. Baksviðið er Afríkuland í síðari heimsstyrjöldinni, vettvangurinn fanga- búðir Breta þar sem þeir typta eigin hermenn fyr- ir óhlýðni. Einn þeirra er þeldökkur, óbreyttur hermaður (Davis) sem fær að lokum meira en hann getur kyngt af stéttaskiptingu, hroka og kvalalosta yfirmanna búðanna. Rífur sig úr úni- forminu og heldur á nærunum einum á fund stór- bokkans sem stjórnar fangelsinu. Tyllir sér hjá honum, býður sjálfum sér af vindlabirgðum flemtri slegins stjórans (Harry Andrew), um leið og hann tilkynnir að nú sé nóg komið af vitleysunni, hann sé hættur þátttöku í stríðsbrölti Hans hátignar. Frábær leikhópur kemur við sögu auk þeirra Andrews, þ.á m. Sean Connery (ofantekinn við að hreinsa af sér Bond-stimpilinn), Sir Michael Red- grave, Ian Bannen, Roy Kinnear, Ian Hendry, allir eru þeir horfnir í grámósku tímans en eftir stend- ur stór og stæðilegur rumurinn, svartari en nóttin, gefandi skít í kerfið, tottandi sinn stórsígar með glott á vör. Nokkur slík augnablik úr íslenskum myndum hafa fest rætur í huganum, t.d. kórsöngur gangna- manna á heiðum uppi í Landi og sonum, litla blóm- ið á eyðisandinum sem verður undir hestshófanum í Útlaganum; atriðið þegar Geiri (Gísli Hall- dórsson), dregur líkkistu Stellu (Sigríður Haga- lín), gömlu æskuástarinnar, á sjálfum sér í sand- inum á bernskuslóðunum í Börnum náttúrunnar. Þessi andartök eru engu síðri en önnur frægari, líkt og þegar blinda stúlkan fær sjónina í Borg- arljósum Chaplins og sér ekki litla flækinginn. Þannig mætti lengi telja en aðeins aftur til stór- mennisins sem var að kveðja. Ossie Davis var margt og mikið fleira en afburðaleikari á sviði og í kvikmyndum í hartnær sex áratugi. Hann var kunnur baráttumaður fyrir kynþáttajafnrétti og flutti m.a. aðal líkræðuna við útför blökku- mannaleiðtogans Malcolms X (sama árið og hann lék í The Hill). Hann var orðlagður mannvinur sem var alltaf tilbúinn að rétta þeim hjálparhönd sem minna máttu sín. Var fremstur í tugum, ef ekki hundruðum mótmælagangna gegn hvers kyns órétti og fordómum, var hundeltur af and- amerísku nefnd nornaveiðara McCarthys á fimmta ártatugnum (hún kom ekki á hann höggi), og var í meira en hálfa öld hamingjusamlega giftur leikkonunni Ruby Dee ( 1924–), sem lifir mann sinn. „Eitt lítið andartak…“ ’Oftar en ekki eru þaðlitlu atriðin, þar sem allt leggst á eitt að gera þau framúrskarandi, að augnablikum sannleik- ans. ‘ Eftir Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is Þ ótt hún hafi leikið á móti Michael Douglas, Mel Gibson, Denzel Washington og Ralph Fiennes telst hún vart vera kvikmyndastjarna. Ekki sökum þess að hún hafi ekki nóg til að bera – hún er með hæfi- leikaríkari kvikmyndaleikkonum sem fyrir finnast og fegurð hennar er óumdeild – heldur vegna þess að hún hefur valið að feta aðra og heldur grýttari slóð en flestir aðrir sem fengið hafa sams konar tækifæri. Hún ákvað ung að fara ótroðnar slóðir. Það lá nefnilega ekki beinast við fyrir dóttur kjarneðl- isfræðings og kvensjúkdómalæknis (móðir hennar er eðlisfræðingurinn) að feta leiklistarbrautina. Enda lagði hún fyrst stund á háskólanám í heimspeki og hagfræði áður en hún fékk inngöngu á leiklistarbraut hins virta Listaháskóla Ástralíu, fyrst Kanadabúa. Fljótlega eftir útskrift, árið 1988, vakti hún athygli fyrir frammistöðu sína í ástralska sjónvarpsdramanu Bangkok Hilton þar sem hún lék á móti Nicole Kidman. Stóra tækifærið kom svo þegar henni bauðst aðalhlutverk í mynd landa hennar, hinni virtu en mjög svo umdeilda David Cronenberg, Crash. Þar leikur hún á móti James Spader, konu sem fær kynferðislega fróun út úr því að horfa upp á og lenda sjálf í bílslysum. Þótt þessi djarfa mynd hafi hlotið blendnar viðtökur efaðist enginn um frammistöðu Unger í myndinni, ekki einu sinni hinir jarðbundnu Hollywood-herrar, því eftir nokkrar auðgleymdar óháðar myndir sem dæmd- ar voru til að verma hillur myndbandaleigna bauðst henni hlutverk í þriðju mynd Davids Finc- hers, The Game, þar sem hún lék á móti Michael Douglas, Sean Penn. Síðan þá hefur Unger skipst á að leika í Hollywood-stórmyndum og litlum óvenjulegri myndum. Þannig að á móti hverri Payback, Hurricane hefur hún leikið í minna þekktum – en ekki síður sterkum – myndum á borð við Sunshine eftir István Szabó, The Salton Sea, Thirteen og One Point O, eftir þá Martein Þórsson og Jeff Renfroe. Frægðin er óheilbrigð En þykir hún ekki erfið sem kvikmyndastjarna; að hafa leikið í myndum með Michael Douglas og Mel Gibson en vaði svo út í að leika í „erfiðri“ mynd eftir nær óharðnaðan Íslending og Kan- adamann? „Ekki lengur,“ segir hún og hlær. „Kannski hérna áður, en nú veit mitt fólk orðið að hjartað mitt ræður för. Af því leiðir að ég vel mér stundum hlutverk sem munu seint teljast hefðbundið. Ég ann þessu listformi, að segja sögur með hreyfi- myndum. Ég kæri mig kollótta um allt annað og eltist ekki við neitt sem tengja mætti frægð eða stjörnudýrkun, sem ég tel yfir höfuð óheilbrigða fylgifiska kvikmyndalistarinnar. Michael Douglas er gott dæmi um einhvern sem tekist hefur að ein- beita sér að því sem máli skiptir, þrátt fyrir þá miklu frægð sem hann hefur öðlast. Stjörnudýrk- unin í kvikmyndaheiminum grefur bókstaflega undan frásagnarhefðinni. Hún setur kvikmynda- gerðina úr jafnvægi og stuðlar að rangri forgangs- röðun, sem á endanum bitnar á áhorfendum.“ Unger segist ólíkt sumum öðrum leikurum aldrei hafa litið á kvikmyndir sem sérstakan vett- vang fyrir sig til að öðlast frægð. „Kvikmyndagerð grundvallast af samvinnu margra ólíkra lista- manna fyrst og síðast og það er vegna þessa sem ég laðaðist að þessari listgrein. Ég lagði hana fyrir mig til þess að læra, leita sífellt af tækifærum til þess að vinna með fólki sem ég get dregið lærdóm af, einkum leikstjórum og handritshöfundum. Ég vil bara fá tækifæri til að vinna með slíku hæfi- leikafólki, hvað sem það kostar mig.“ Unger segist aldrei hafa ætlað sér að verða kvikmyndaleikkona til þess eins að græða pen- inga. „Ef ég vildi græða peninga hefði ég farið að vinna á Wall Street. Og ég hef verið lánsöm því mér hefur gefist kostur á að vinna með Óskars- vinningshöfum, bæði leikurum og leikstjórum. Um leið hefur mér hlotnast sá heiður að vinna með mörgum kvikmyndagerðarmönnum sem hafa ver- ið að stíga sín fyrstu skref. Hreinum og tærum röddum sem enn eru ekki farnar að skjálfa af ótta við kvikmyndaiðnaðinn. Þessi dirfska og óslípaða sýn sem ungir og óspjallaðir kvikmyndagerð- armenn hafa er einstök og er aðeins til staðar þeg- ar þeir eru að feta sín fyrstu skref, gera sínar fyrstu myndir. Og ég sækist sérstaklega eftir því að verða vitni að og fá að eiga þátt í svo einstakri upplifun. Það er ótrúlega gefandi að eiga hlut að fyrstu mynd einhvers, vinna með fólki sem enn býr yfir algjöru og fullkomlega ómeðvituðu ótta- leysi, einlægum ásetningi og hreinum hugsjónum. Stundum glata menn þessum góðu gildum, enda getur það verið þrautin þyngri að koma sögu sinni ómengaðri á hvíta tjaldið á tímum kvikmynda- menningar sem ber nákvæmlega enga virðingu fyrir frásögninni. Ég kenni svo sárlega í brjósti um handritshöfunda nú um stundir. Eins vel og ég kann við tæknivinnsluna og þá framþróun sem þar hefur átt sér stað þá getur tæknin aldrei komið í staðinn fyrir góða sögu, og ekki heldur kvik- myndastjörnur, sama hversu skært þær skína. Þannig að þegar mér býðst tækifæri til að vinna með ungum ofurhugum eins og Marteini sem hef- ur fram að færa svo magnaða sögu þá stekk ég á það. Er fullkomlega rökrétt val fyrir mig því fyrir mér þá skiptir sagan öllu máli. Ég væri sann- arlega til í að vinna með honum aftur.“ Gekk í skrokk á Gibson Unger segist hafa séð í þeim Martein og Renfroe eiginleika sem hún hafði áður laðast að í fari ann- arra öllu kunnari kvikmyndagerðarmanna og myndum þeirra sem hún lék í. „Ég sá fyrir mér mynd sem gæti orðið eins og svalt og nýmóðins hjónaband tveggja mynda sem ég hef leikið í, Crash og The Game. Og útkoman varð líka þannig, sem betur fer. En um leið eru hún alveg einstök. Ég er afar stolt af því að hafa fengið að vera með í þessari mynd og óska henni alls hins besta. Mér finnst hún mögn- uð.“ Unger þykir mjög miður að útgáfa leikstjór- anna hafi ekki skilað sér alla leið, að framleiðand- inn hafi tekið völdin og ráðið lokaklippingunni. „Það tekur mig svo sárt að heyra þegar slíkt ger- ist, finn svo til með höfundum þeirra mynda. En hitt er þó til að framleiðendur með mikla reynslu hafi bjargar myndum. Martin Bregman, sem m.a. hefur framleitt margar myndir með Al Pacino sagði mér t.d. að hann hefði bókstaflega bjargað Sea of Love, með því að láta endurklippa hana gegn vilja Harolds Beckers leikstjóra eftir að hún hafði fengið hroðalega útreið á prufusýningum. Á endanum sló myndin í gegn og fékk fína dóma, þökk sé Bregman. Hins vegar man ég eftir öðru dæmi, sem viðkemur mér. Það tengist myndinni Payback, sem átti að vera fyrsta mynd handrits- höfundarins Brians Helgerland, sem ég hef mikl- ar mætur á. Þótt útgáfa hans hafi verið hreint mögnuð þá líkaði framleiðendunum ekki við hversu myrk hún var og hrottafengin, fengu aðra menn til að endurhugsa myndina frá grunni og endurklipptu hana. Í einu atriði í útgáfu Helger- lands, sem er ein af mínum allra eftirlætissenum, lem ég Gibson til óbóta í heilar sjö mínútur eftir að hann kemst að því að persóna mín er háð eit- urlyfjum. Á endanum neyðist hann til að bregðast við og lemur höfðinu á mér í ofn og heldur svo á mér, við bæði alblóðug, inn í svefnherbergi. Afar áhrifamikið atriði, sem var síðan klippt út vegna þess að framleiðendurnir vildu ekki senda frá sér mynd þar sem Gibson væri að berja konu.“ Travolta og Keaton Eftir að hún kláraði One Point O vatt hún enn einu sinni kvæði sínu í kross og lék í tveimur Holly- wood-myndum. Í dramanu A Love Song For Bobby Long leikur hún á móti John Travolta og Scarlett Johansson og segir þau bæði „hreint frá- bær að vinna með.“ Þar var hún líka enn og aftur að vinna með óspjölluðum leikstjóra, Shainee Gabel. Svo lék hún í spennutryllinum White Noise, á móti Michael Keaton, sem frumsýnd var hér á landi nú um helgina. Hún ber Michael Keat- on vel söguna og segist hafa skemmt sér vel við tökur á þeirri mynd, jafnvel þótt hún sé kannski ekki beint henni að skapi. Laðast að hinum óspjölluðu Kanadíska leikkonan Deborah Kara Unger nýt- ur þess að vinna með ungum kvikmyndagerð- armönnum á borð við Martein Þórsson. „Ég væri sannarlega til í að vinna með honum aftur,“ seg- ir hún í samtali við Lesbókina. Eftir Skarphéðin Guðmundsson skarpi@mbl.is Deborah Kara Unger í hlutverki sínu í myndinni White Noise sem nú er sýnd í kvikmyndahúsum hérlendis.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.