Morgunblaðið - 27.03.2005, Qupperneq 24
Lítið ber á demöntum í Evrópu á tímabilinu í kringum 1000 e.Kr. enda áttu tengsl
steinsins við rómverska verndargripi og austurlensk töfratákn lítt upp á pallborðið
hjá kirkjunnar mönnum. Þrátt fyrir að lítið beri á steininum sjálfum lifir hug-
myndafræðin að baki honum góðu lífi og tekur umtalsverðum breytingum líkt og
merkingarfræði annarra steina. Sérstök fræðirit um gimsteina, svo nefnd Lapid-
aries, nutu líka mikilla vinsælda á miðöldum, en þar eru eldri rit um steinafræði
endurtúlkuð með áherslu á sérkenni, styrk og læknisfræðilega eiginleika hvers
steins.
Marbode, biskupinn af Rennes (1061–1081), er einn þeirra sem taka demantinn
til umfjöllunar. Í De gemmarum, sem fjallar um læknisfræðilega og yfirnátt-
úrlega eiginleika gimsteina, segir hann demantinn vinna gegn óvinum þess sem
hann ber auk þess að gera hann ósigrandi. Steinninn bægi þá frá óhreinum öndum
og slæmum draumförum og vinni gegn eitri og deilum, sem og að lækna og bægja
frá vitfirringu.
Læknislyf og ólyfjan
Hope-demanturinn, eða Vonardemanturinn eins og heiti hans gæti útlagst á ís-
lensku, er efalítið einn illræmdasti demantur sögunnar. Steinninn hefur á sér orð
sem sannkallaður ólukkudemantur og heitið því óneitanlega kaldhæðnislegt.
Þessi blái 45,5 karata demantur kom á markað í London 1830 þar sem Henry
Philip Hope keypti hann, og dregur steinninn því í raun nafn sitt af honum en ekki
voninni sem í nafninu felst. Hope-fjölskyldan lést í sárri fátækt og sams konar ör-
lög biðu Edwards McLeans sem síðar eignaðist demantinn, sem nú er geymdur í
Smithsonian-safninu í Washington. Nokkur leyndardómur hefur hvílt yfir uppruna
Hope-demantsins sem margir gimsteinafræðingar telja í raun vera Bláa Tavenier-
demantinn, sem hafi verið endurskorinn til að leyna upprunanum. Sá steinn var
upphaflega í eigu Lúðvíks 14. og meðal krúnudjásna er hurfu í frönsku bylting-
unni. Sumir dýrgripanna fundust á nýjan leik eftir byltinguna en ekkert hefur
spurst til demantsins bláa.
Vonarsteinninn
The Great Star of Africa, eða Afríkustjarnan mikla, vegur 530,2 karöt og er hluti
af Cullinan-steininum – stærsta demanti sem fundist hefur. Cullinan-steinninn vó
3.106 karöt er hann fannst í námu í Suður-Afríku árið 1905. Suður-afrísk stjórn-
völd færðu Játvarði VII Bretlandskonungi steininn síðan að gjöf árið 1907 og var
hann skorinn í níu stóra steina og um 100 litla ári síðar. Stærstu steinarnir eru
þekktir bæði sem Afríkustjörnurnar og eins sem Cullinan I, II, III o.s.frv. Stærst-
ur þeirra er Afríkustjarnan mikla sem nú prýðir veldissprota bresku krúnunnar.
Afríkustjarnan mikla
Demantar henta óneitanlega vel í hinar ýmsu gerðir skartgripa. Demanturinn er
þó líklega hvergi vinsælli en við gerð trúlofunarhringa – a.m.k. víða á Vestur-
löndum, þótt önnur sé hefðin hér á landi. Demantshringurinn sem tákn um ástir og
hjónaband á sér líka sögu sem spannar í það minnsta rúm tvö þúsund ár og er elstu
heimildir um demantsgiftingarhringa að finna hjá rómverska gamanleikjahöfund-
inum Plautusi á 2. öld f.Kr. Siðurinn virðist með tímanum aðlagast kristinni trú
því heilagur Ágústínus sér, á 4. öld e. Kr., ástæðu til að grátbiðja presta um að
gifta fólk jafnvel þótt engin hringaskipti eigi sér stað. Einn fyrsti demants-
trúlofunarhringurinn sem sögur fara af er hins vegar frá 15. öld. En hringinn
færði Maximilian I, keisari Hins heilaga rómverska keisaradæmis, unnustu sinni
– Maríu hertogaynju af Búrgund – árið 1477 til staðfestingar sambandi þeirra.
Tryggðabandið
Steinninn er líklega einn þekktasti demantur sem um getur. Sagan segir að hann
hafi verið tekinn úr eigu indverska furstans af Malwa árið 1304, eftir að hafa ver-
ið öldum saman í eigu fjölskyldunnar. Koh-i-noor á þá að hafa verið geymdur í vel
vörðum fjársjóðshirslum í Delhi allt þar til Nadir Persíukeisari hafði steininn á
brott með sér 1739. Það var hann sem gaf steininum nafnið Koh-i-noor – eða
Ljósafjallið. Fjöldi annarra ævintýra fylgdi í kjölfarið uns demanturinn komst í
eigu Austur-Indíafélagsins sem gaf Viktoríu Bretadrottningu hann árið 1850.
Koh-i-noor er nú meðal bresku krúnudjásnanna og vegur tæp 109 karöt.
Koh-i-noor
DEMANTAR DÝRASTA DJÁSNIÐ
Eitt mesta úrval
af demantsskartgripum
Allar stærðir demanta fáanlegar
Lokkar, men og hringir
sími 551 3014 hjwatch@simnet.is
Látið drauminn rætast
með Vísa og Euro vaxtalaust
Glæsilegir skartgripir
Laugavegi 15 • sími 511 1900 • www.michelsen.biz