Morgunblaðið - 01.05.2005, Page 66
66 SUNNUDAGUR 1. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.003
FRÁ SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
SCREAM MYNDIRNAR!
Hún fær þig til að öskra!
Magnaður hrollvekjutryllir frá
Wes Craven!
i il
ll j t lli f
!
WWW.BORGARBIO.IS
Sýnd kl. 8 og 10. 30 B.I 16 ÁRA
Sýnd kl. 3.
Magnaður spennutryllir
T H E INTERPRETER
Forsetinn er í lífshættu og hún er sú eina
sem getur fundið morðingjann
JET LI MORGAN FREEMAN BOB HOSKINS
A FILM BY LOIS LETERRIER
HÖRKU SPENNUMYND FRÁ SÖMU OG GERÐU LÉON OG LA FEMME NIKITA
Hann var alinn upp sem skepna og þjálfaður til að berjast. Nú þarf hann að
berjast fyrir lífi sínu!
Sýnd kl. 6. B.I 16 ÁRA Sýnd kl. 10.30. bi. 16 ára
Nýjasta meistaraverk Woody Allen
Gagnrýnendur eru sammála um að þetta sé hans
besta mynd í mörg ár. Mynd sem engin sannur
kvikmyndaáhugamaður má missa af!
Sýnd kl. 2, 4 og 6. m. ísl tali
Sýnd kl. 2. m. ensku tali
Sýnd kl. 8 og 10.30.
ÓÖH DV
Sýnd kl. 5.30 og 8. B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
V I N S Æ L A S T A M Y N D I N
Í U S A U M H E L G I N A
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15. b.i. 12. áraSýnd kl. 6, 8 10 og 12. B.I 12 ÁRA
Heimsfrumsýningi i
Heimsfrumsýning
Frá leikstjóra
Die Another DayFrá leikstjóra
Die Another Day
Will Smith er
Framlengt til 2. maí
Helftina af „kvikmyndaöld-inni“ bar Metro-Goldwyn-Mayer höfuðog herðar yfir önnur
kvikmyndaver, í augum bíógesta
stóð það fyrir Hollywoodglysið. Þar
var ætíð mikil áhersla lögð á lau-
flétta og stjörnumprýdda afþrey-
ingu sem rataði beint í mark hjá
áhorfendum. Annað kom á daginn
þegar smekkur bíógesta umsnerist í
takt við breyttan tíðaranda of-
anverðrar 20. aldarinnar. Fyrr í
mánuðinum, þegar það var gleypt af
japanska risaveldinu Sony (Col-
umbia Pictures), var MGM orðið
hnignandi fjölmiðlaveldi. Umfang
þess alltof einhliða, það framleiddi
og dreifði kvikmyndum og sjón-
varpsefni og samanstóð af móð-
urfyrirtækinu MGM Studios, sem
einnig rak og átti United Artists.
Stöðnunin og léleg stjórnun varð því
endanlega að falli.
„Fleiri stjörnur
en á festingunni“
Áratugum saman á fyrri hluta og
fram yfir miðja síðustu öld stóð
MGM undir þessum hástemmdu
einkunnarorðum hér að ofan. Að
komast á samning hjá stærsta kvik-
myndaveri Hollywood var eftirsótt
stöðutákn, ekki aðeins hjá kvik-
myndaleikurum heldur leikstjórum
sem öðrum fag- og tæknimönnum í
kvikmyndaiðnaðinum. Gráglettni
örlaganna hagaði því svo til að sama
ár og MGM var stofnað með lúðra-
blæstri og söng hóf Columbia Pict-
ures göngu sína, nánast án þess að
eftir því væri tekið. Columbia mátti
jafnan standa í skugganum af MGM
og reyndar öllum öðrum kvik-
myndaverum Hollywood, því það
var gegnum tíðina, ásamt Universal,
dvergrisinn í kvikmyndaborginni.
MGM varð til árið 1924, við sam-
runa þriggja lítilla framleiðenda;
Metro Picture, Goldwyn Picture og
Louis B. Mayer Pictures, sem öll
höfðu starfað innan við áratug.
Þriðji áratugurinn var tími mikilla
sviptinga í hinum unga kvikmynda-
iðnaði og það varð MGM til happs
að fá þegar til liðs við sig Irving
Thalberg, einn farsælasta framleið-
anda sögunnar og goðsögn í iðn-
aðinum. „Undrabarnið“ Thalberg
var umsvifalaust gerður að fram-
leiðslustjóra fyrirtækisins, þótt
hann væri aðeins 24 ára gamall.
Kvikmyndaverinu var því frá upp-
hafi stjórnað af færustu mönnum
sem völ var á, allt þangað til að halla
tók undan fæti.
Gullaldarár MGM
Undir handleiðslu Thalbergs tók
MGM þegar að blómstra, stefnan
var skýrt mörkuð á heimsþekktu
vörumerki kvikmyndaversins; undir
öskrandi ljónshausnum stóðu hin
fleygu orð: „Ars gratia artis“ – „List
fyrir listina“. Um miðjan fjórða ára-
tuginn var kvikmyndaverið komið á
toppinn, ekki síst sakir sígildra
kvikmynda sem stóðu undir lof-
orðum vörumerkisins. Fjölmargar
dáðustu stjörnur kvikmyndaheims-
ins, líkt og Greta Garbo, Gary Coo-
per, Joan Crawford, James Stewart
og Clark Gable, voru samnings-
bundnar MGM. Thalberg féll frá í
blóma lífsins árið 1936 og Mayer tók
við stjórntaumunum. Áherslurnar
breyttust því Mayer hugsaði fyrst
og síðast um hagnaðinn. Myndir
sem höfðuðu til fjöldans urðu meira
áberandi en á meðan hinn menning-
arlegar sinnaði Thalberg réð ríkjum
í kvikmyndaverinu.
Mayer tókst afburðavel að sinna
bæði listinni og alþýðunni, því fjórði
og fimmti áratugur síðustu aldar er
kallaður með réttu gullöld MGM. Á
þessu tímabili voru frumsýndar of-
urvinsælar kvikmyndaperlur á borð
við Á hverfanda hveli – Gone With
the Wind, Grand Hotel og Galdra-
karlinn í Oz (The Wizard of Oz).
Meðan ásíðari heimsstyrjöldinni
stóð breyttist tónninn hjá kvik-
myndaiðnaðinum og stjörnurnar
voru á þeytingi um allar jarðir að
skemmta hermönnunum og selja
ríkisskuldabréf. Tími gafst til að
byggja upp teiknimyndadeild, sem
stóð lengi föstum fótum með hina sí-
vinsælu Tomma og Jenna í far-
arbroddi. Þeir voru líkt og flest sem
deildin hannaði sköpunarverk snill-
inganna Williams Hanna og Josephs
Barbera.
Að loknum hildarleiknum árið
1945 stokkuðu stjórnendur MGM
spilin, þörf var á breytingum og upp
rann blómaskeið söngva- og dans-
mynda. Kvikmyndaverið hafði á sín-
um snærum fjölda hæfileikafólks á
þessu sviði, nöfn eins og Ginger
Rogers, Frank Sinatra, Fred As-
taire, Gene Kelly og Judy Garland.
MGM blómstraði fram yfir miðja
öldina, en þá fóru að koma í ljós
brestir í vinsældum hinna fokdýru
söngvamynda kvikmyndaversins,
afleiðingin sú að menn fóru að spara
en það bitnaði á gæðunum og hagn-
aðartölurnar urðu lægri en áður
þekktist. Óeining varð innan stjórn-
arinnar sem datt að lokum niður á
þá lausn að finna nýjan Thalberg.
Dore Schary varð fyrir valinu en
hann náði ekki að lægja öldurnar
innan MGM né að bæta fjárhags-
stöðuna svo viðunandi væri. Schary
leitaðist við að færa framleiðsluna
nær raunveruleikanum en fjær
Hollywoodglysinu, sem gerði orðið
lítið fyrir kassann. Aðalhluthafinn
Mayer setti stjórninni úrslitakosti,
annar hvor yrði að víkja, hann eða
Schary. Mayer til mikillar undrunar
og gremju varð hann undir í slagn-
um, 27 ára ferli í fremstu röð móg-
úla Hollywoodborgar var þar með
lokið.
Þrátt fyrir sviptivinda gekk kvik-
myndaverið bærilega fram eftir
sjötta áratugnum og margar heims-
frægar myndir á borð við An Am-
erican in Paris, Singing in the Rain
og The Asphalt Jungle urðu til í
stjórnartíð Scharys. MGM hóf að
sýna myndir í CinemaScope, nýrri
tækni sem fundin var upp af 20th
Century Fox, til höfuðs nýjustu
ógninni, sjónvarpinu, sem var í stór-
sókn á sjötta áratugnum.
Ljónið lækkar róminn
Sjónvarpið boðaði breytta tíma í
Hollywood, rótgróið veldi kvik-
myndaveranna riðaði til falls og
MGM var síður en svo undantekn-
ing. Örlögin höguðu því svo að 1957,
árið sem forkólfurinn Mayer féll frá,
var það fyrsta sem kvikmyndaverið
sýndi tap á rekstrinum. Árið á und-
an hafði einnig reynst erfitt, einkum
sakir mikils kostnaðar við gerð
myndarinnar Raintree County, en
saga hennar var samfelldur hrak-
fallabálkur. Aðalkarlleikarinn,
Montgomery Clift, lenti í alvarlegu
bílslysi, vinkona hans og aðal-
leikkonan Elizabeth Taylor neitaði
að fá annan leikara í hans stað.
Framleiðslan tafðist mánuðum sam-
an með óheyrilegum kostnaði og
stóð ekki undir væntingum þegar
hún var loksins tilbúin til sýningar.
Í kjölfarið mátti Schary hirða pok-
ann sinn, sem varð ekki til að bæta
efnahaginn því skarð hans reyndist
ekki auðfyllt.
Áföllin riðu yfir. Sjónvarpið gjör-
breytti afþreyingarvenjum Banda-
ríkjamanna til langframa, byltingin
bitnaði illa á kvikmyndaverunum
sem voru lengi að eygja nýju mögu-
leikana sem jafnframt opnuðust.
Um leið og bíógestum fækkaði stór-
skaðaðist teiknimyndaframleiðslan
og til að bæta gráu ofan á svart
lagði MGM nánast aleiguna undir í
endurgerð Ben Húr (’59). Kvik-
myndaverið náði að bjarga sér frá
gjaldþroti (líkt og 20th Century
Fox, sem var í svipaðri stöðu á þess-
um tíma vegna Kleópötru). Ben Húr
gekk afar vel og innbyrti fleiri Ósk-
arsverðlaun en nokkur önnur mynd.
Hún varð, ásamt Gigi (’58), ein sú
mest sótta í sögu fyrirtækisins og
stærstu vandræðunum var afstýrt í
bili. Stórmyndir á borð við 2001: A
Space Oddyssey og Doctor Zhivago
reyndust líka góð mixtúra við hæs-
inni í gamla ljóninu.
Erfiðleikarnir voru samt skammt
undan, sem gerði kvikmyndaverið
Kvikmyndir | Síðasti gamli Hollywoodrisinn hefur verið tekinn yfir af alþjóðlegu fjölmiðlaveldi
Metró-ljónið hljóðnar
Um miðjan aprílmánuð urðu tímamót í kvikmyndasögunni
þegar hið gamalfræga MGM var selt öðru kvikmyndaveri.
Sæbjörn Valdimarsson rifjar upp sögu þessa fornfræga
fyrirtækis sem hélt að það lifði að eilífu á fornri frægð.