Morgunblaðið - 18.05.2005, Side 4
BURÐARÁS, sem er í eigu Lands-
bankans, KEA, Ólafur Jóhann
Ólafsson rithöfundur, Talsíma-
félagið ehf. og Tryggingamiðstöðin
skiluðu í gær inn sameiginlegu til-
boði í 98,8% hlut ríkisins í Síman-
um. Samkvæmt tilboðinu hafa
þessir fjárfestar gert samning við
Almenning ehf. um að öllum Ís-
lendingum verði gefinn kostur á að
kaupa samtals 30% hlut í Símanum
í opnu útboði, um leið og fært þykir
að skrá Símann á markaði og eigi
síðar en sex mánuðum eftir að
kaupin fara fram. Samkvæmt til-
boðinu, verður enginn fjárfestanna
með meira en 35% hlut, eftir að
30% hafa verið seld til almennings
á markaði.
Aðkoma almennings tryggð
Í tilkynningu frá hópnum er haft
eftir Agnesi Bragadóttur, formanni
stjórnar Almennings, að þessi nið-
urstaða sé félaginu mikið fagnaðar-
efni. Fái hópurinn að kaupa Sím-
ann þá hafi aðkoma almennings að
Símanum verði tryggð, á sambæri-
legum eða jafnvel betri kjörum en
fagfjárfestarnir kaupi á. Agnes
segir ennfremur að forsvarsmenn
Almennings ehf. séu afar ánægðir
með hina breiðu samsetningu og
reynslu fjárfestanna sem gert
hefðu tilboð í Símann. „Við treyst-
um þessum hópi fjárfesta afar vel,
til þess að leiða Símann til aukins
vaxtar og arðsemi, hér innanlands
sem utan,“ segir Agnes í tilkynn-
ingu hópsins.
Talsímafélagið, einn aðilinn í
hópnum, er í eigu bræðranna Sig-
urðar Gísla og Jóns Pálmasona,
kennda við Hagkaup, Ingimundar
Sigfússonar, fv. sendiherra, Bolla
Kristinssonar, eiganda verslunar-
innar 17, og Arnars Bjarnasonar
rekstrarhagfræðings.
Samkvæmt tilboðinu hafa fjár-
festarnir skuldbundið sig til þess
að selja 30% hlutinn til almennings
á sömu kjörum og þeir koma til
með að kaupa sína hluti á, að því
undanskildu, að kostnaður sem
fellur til vegna tilboðsgerðar og út-
boðs, fellur ekki á almenning, held-
ur á þann hóp fjárfesta sem nú hef-
ur gert tilboð í Símann, að því er
segir í tilkynningu hópsins.
Einnig segir að fram komi með
skýrum hætti í tilboðinu að fjár-
festarnir stefni á alþjóðlega sókn ef
þeir eignast Símann. Tilgreina þeir
m.a. í tilboði sínu hvers konar sókn-
arfæri felist í því fyrir fyrirtækið,
að Ólafur Jóhann Ólafsson, með
sína alþjóðlegu reynslu, Björgólfur
Thor Björgólfsson, stjórnarfor-
maður Burðaráss, með sínar fjár-
festingar í erlendum símafyrir-
tækjum, og Óskar Magnússon,
forstjóri TM og fyrrum forstjóri Og
Vodafone með sína miklu reynslu,
sameini krafta sína og þekkingu í
þágu Símans, með það að markmiði
að efla fyrirtækið og auka vöxt þess
á innlendum sem erlendum mörk-
uðum á komandi árum.
Starfsemi út á land
Einnig kemur fram í tilboði fjár-
festanna að þeir vilji beita sér fyrir
því að ákveðin starfsemi Símans
verði flutt út á land, reynist skoðun
á slíku fyrirkomulagi hagkvæm og
til hagsbóta fyrir félagið.
Loks segir í tilkynningu hópsins
að þeir Friðrik Jóhannsson, for-
stjóri Burðaráss, Sigfús Ingimund-
arson, framkvæmdastjóri Talsíma-
félagsins ehf., Óskar Magnússon,
forstjóri TM, og Andri Teitsson,
framkvæmdastjóri KEA, bindi allir
miklar vonir við „þennan góða fjár-
festingarkost, í þágu eigin fyrir-
tækja, Símans sjálfs og starfs-
manna hans og síðast en ekki síst, í
þágu þorra Íslendinga og við-
skiptavina Símans.“
Það var Fyrirtækjaráðgjöf
Landsbankans sem annaðist ráð-
gjöf fyrir fjárfestahópinn og Al-
menning ehf.
Almenningur ehf. fékk breiðan hóp fjárfesta til að gera tilboð í Símann
Öllum Íslendingum gefinn
kostur á að bjóða í 30% hlut
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
4 MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Úrval-Úts‡n
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100
Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600
Selfossi: 482 1666 www.urvalutsyn.is
Central Hotel
Örfá herbergi í boði á Central Hotel.
Vel staðsett og gott 3ja stjörnu hótel í Plaka-
hverfinu við rætur Akrapolis. Hótelið var
endurnýjað fyrir Ólympíuleikana 2004.
49.920* kr.
Ver› á mann í tvíbýli:
Flugsæti: 39.620 kr. skattar innifaldir.
* Innifalið: Beint flug, skattar, gisting með morgunverði í 4 nætur
og íslensk fararstjórn. Ekki innifalið: Ferðir til og frá flugvelli
erlendis, 1.900 kr. fram og til baka. Verð m.v. að bókað sé á
netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis bætist við
2.000 kr. bókunar- og þjónustugjald á mann.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
28
38
9
05
/2
00
5
Aþena 26. maí • 4 nætur
Örfá sæti laus!
ÓLAFUR Jóhann Ólafsson rithöfundur segist í
samtali við Morgunblaðið dást að því framtaki al-
mennings að tryggja sér tækifæri til að bjóða í
Símann. Það sé sömuleiðis klárt að félagið Al-
menningur, með Agnesi Bragadóttur fremsta í
flokki, hafi verið hvatamaður að þessu bandalagi.
Ólafur Jóhann segist vera að taka virkan þátt í
íslensku viðskiptalífi í fyrsta sinn og því hafi
hann velt þessu verkefni vel fyrir sér. „Við sem
erum innan hópsins höfum átt ágætar samræður
síðustu daga og mér sýnist við vera að horfa í sömu átt. Það skipt-
ir miklu þegar menn koma úr öllum áttum,“ segir Ólafur Jóhann
en nokkrir aðilar höfðu áður sett sig í samband við hann og óskað
liðsinnis til að kaupa Símann, með vísun til reynslu hans af áþekk-
um rekstri.
Hann segist hafa hafnað þeim boðum, eða þar til Agnes hafði
samband. Eftir vandlega athugun hafi hann ákveðið að slást í för-
ina, enda mikil reynsla innan hópsins af rekstri og fjármögnun
símafyrirtækja.
Skynsamleg stefna
„Mér fannst standa upp á mig að leggja hönd á plóginn og stuðla
að því að sem breiðustum hópi landsmanna gæfist tækifæri til að
fjárfesta í Símanum og þá á þeim kjörum sem hann væri keyptur á.
Mér fannst það skynsamleg stefna og mikilvægt að það væri gert í
sátt við guð og menn, þannig að landsmönnum þætti ekki hlutur
sinn fyrir borð borinn. Það er mín reynsla í viðskiptum að skærur
séu engum til góðs,“ segir Ólafur Jóhann.
Hann segir að sameiginleg framtíðarsýn hópsins geti gagnast
Símanum. Markmiðið sé að efla fyrirtækið þegar fram líða stundir.
Hópurinn sé skemmtilega saman settur og blandaður.
Ólafur Jóhann Ólafsson segist vera að taka þátt
í íslensku viðskiptalífi í fyrsta sinn
Dáist að framtaki
almennings
RÍKISSAKSÓKNARI hefur ákært þrjá
karla og eina konu í Dettifossmálinu svo-
kallað fyrir amfetamínsmygl upp á tæp 7,7
kg frá Hollandi síðastliðið sumar. Enn-
fremur er einum úr hópnum gefið að sök
smygl á 2 þúsund LSD skömmtum frá Hol-
landi í félagi við fimmta sakborninginn en
sá er einnig ákærður fyrir vörslu á 4 þús-
und skömmtum af LSD í Hollandi. Konan í
hópnum er og ákærð fyrir vörslu á rúmum
100 gr. af amfetamíni og 1,5 gr. af kókaíni.
Varðandi smyglið á 7,7 kg af amfetamíni
segir samkvæmt ákæruskjali að fíkniefn-
unum hafi verið pakkað inn í loftpressu
sem flutt var inn til landsins með vörusend-
ingu í Dettifossi. Fundust fíkniefnin við leit
tollvarða 21. júlí.
Við þingfestingu voru brotin játuð að
litlu leyti. Aðalmeðferð fer fram 31. maí.
Ákært fyrir fíkni-
efnasmygl í kílóavís
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur nú til með-
ferðar mál tveggja unglingspilta sem grun-
aðir eru um að hafa þvingað sjö ára dreng
ofan í ruslatunnu við íbúðarhús á Seltjarn-
arnesi. Tunnuna skorðuðu þeir undir lág-
um svölum hússins með þeim afleiðingum
að tunnulokið sat fast og gat drengurinn
ekki bjargað sér hjálparlaust. Tvær konur
sem voru á kvöldgöngu urðu hins vegar
varar við bank innan úr tunnunni og þegar
þær aðgættu málið nánar var þeim ljóst
hvers konar meðferð drengurinn hafði ver-
ið beittur. Lögreglan tilkynnti barnavernd-
aryfirvöldum málið eins og vaninn er með
svo ung börn sem grunuð eru um brot.
Sjö ára barn
lokað í ruslatunnu
NOTENDUR
mbl.is geta nú
fengið upplýs-
ingar um gesti,
innlit og flett-
ingar á vefjum mbl.is. Efst í vinstra horni á
forsíðu mbl.is er nú að finna hnappinn
Heimsóknir á mbl.is Þegar smellt er á hann
birtist síða þar sem hægt er að sjá þessar
upplýsingar. Með því að smella á nöfn vefj-
anna efst á síðunni birtast upplýsingar um
hvern vef fyrir sig. Ef notendur staðsetja
bendilinn inni í súlunum birtast nákvæmar
tölur á súlu. Einnig er hægt að smella á ten-
gilinn Skýringar sem er fyrir neðan hverja
mynd til að fá frekari upplýsingar.
Þessar upplýsingar eru byggðar á tölum
frá Samræmdri vefmælingu.
Upplýsingar um
notkun á mbl.is
ÁLFYRIRTÆKIÐ Alcoa, sem
vinnur að byggingu álvers við
Reyðarfjörð, hefur formlega lýst yf-
ir áhuga á að kannaðir verði mögu-
leikar á byggingu og rekstri álvers
á Norðurlandi. Barst Valgerði
Sverrisdóttur iðnaðarráðherra bréf
frá Alcoa í gær þar sem fyrirtækið
greinir frá þessu og kynnti hún er-
indið á ríkisstjórnarfundi í gær
ásamt minnisblaði sem tekið hefur
verið saman um stöðu undirbúnings
vegna hugsanlegrar álversuppbygg-
ingar á Norðurlandi.
Framkvæmdir í
fyrsta lagi 2008
„Mér barst bréf í morgun frá Al-
coa þar sem þeir lýsa formlega yfir
áhuga sínum á að vinna með stjórn-
völdum og sveitarfélögunum fyrir
norðan að undirbúningi hugsanlegs
álvers á Norðurlandi,“ sagði Val-
gerður í samtali við Morgunblaðið.
Að sögn ráðherra verður Fjár-
festingarstofu, sem heyrir undir
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, að
öllum líkindum falið að halda utan
um málið á næstunni en einnig sé
spurning hvað sveitarfélögin á
svæðinu vilji gera. Margvíslegar
rannsóknir þurfi að fara fram m.a. á
hvaða staðsetning komi helst til
greina þannig að allar upplýsingar
liggi fyrir áður en fjárfestirinn tek-
ur mögulega ákvörðun um fjárfest-
ingu. „Tíminn mun síðan leiða í ljós
hvað verður,“ segir Valgerður.
Ekki kemur fram í bréfi stjórn-
enda Alcoa hversu stórt álver fyr-
irtækið hefur áhuga á að reisa á
Norðurlandi. „Þeir segjast gera sér
grein fyrir því að framkvæmdir
muni ekki hefjast fyrr en í fyrsta
lagi árið 2008 og í rauninni fellur
það ágætlega að hagkerfinu. Þá er
fjórða áfanga lokið í Hvalfirði og ál-
verið fyrir austan komið í notkun.
Þeir taka líka fram í bréfinu að þeir
geri sér grein Valgerður segir að
meðal þess sem skipti máli fyrir
hugsanlega niðurstöðu málsins sé
mismunandi orkuverð eftir svæðum
og hafnaraðstaða. Bendir hún á að á
Húsavík sé t.d. góð höfn. „Húsavík
hafi margt fram að færa. Það er
mikil orka í Þingeyjarsýslum en
hins vegar hefur ekki farið fram
nægilega markviss rannsókn á lóð-
inni hvað hugsanlega jarðskjálfta
og fleira varðar. Það þarf að rann-
saka frekar. Hvað Skagafjörð varð-
ar þá eru rannsóknir komnar
styttra á veg þar. Við þurfum að
einbeita okkur að þessu á næstunni
ef vilji er fyrir hendi af hálfu heima-
manna.“
Svigrúm fyrir að minnsta
kosti eitt álver í viðbót
Að sögn Valgerðar létu stjórn-
endur Alcoa fyrst í ljós áhuga árið
2002 á að ráðast í frekari álvers-
framkvæmdir á Íslandi í framhaldi
af framkvæmdunum fyrir austan.
Erindi Alcoa í gær komi því í sjálfu
sér ekki á óvart en málið sé nú
komið á nýtt stig.
„Það er mikilvægt að nýta orku-
lindir okkar til atvinnuuppbygging-
ar en ég hef líka sagt að það hefur
sín takmörk. Þó að ég telji að það
sé ekki komið að því að við stöldr-
um við, þá kemur að því,“ segir Val-
gerður. „Mér finnst vera svigrúm
fyrir að minnsta kosti eitt álver í
viðbót.“
Alcoa lýsir áhuga á
álveri á Norðurlandi
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is