Morgunblaðið - 18.05.2005, Síða 18

Morgunblaðið - 18.05.2005, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR GLERÁRKIRKJA Lögmannshlíðarsókn Aðalfundur Aðalfundur Lögmannshlíðarsóknar verður haldinn í safnaðarsal Glerárkirkju fimmtudaginn 26. maí kl. 20.00. Dagskrá: • Venjuleg aðalfundarstörf. • Kosningar. • Önnur mál. Sóknarnefnd. AKUREYRI LANDIÐ Tónleikar | Tónlistarmaðurinn Mugison heldur tónleika á Græna hattinum á Akureyri í kvöld kl. 21.00 en húsið verður opnað kl. 20.00. Þetta eru fyrstu tónleikar kappans hérlendis eftir vel heppn- aða tónleikaferð um Evrópu. Stofnfundur Nýs afls á Norðurlandi Áhersla á stóriðju og virkjanir STOFNFUNDUR Nýs afls á Norð- urlandi var haldinn á Hótel KEA í gærkvöld. Tilgangurinn með stofnun félagsins er að stuðla að uppbygg- ingu stóriðju á Norðurlandi og að vatns- og gufuafl á Norðurlandi verði nýtt og beislað í því skyni. Félagið leggur höfuðáherslu á að kynna kosti Eyjafjarðar sem heppilegs staðar fyrir stóriðju. Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að standa fyrir op- inni umræðu um málið og með útgáfu á kynningarefni. Fram kemur í tilkynningu frá und- irbúningsnefnd að hópur fólks sem áhuga hafi á uppbyggingu atvinnu- lífs hafi að undanförnu komið saman til funda og undirbúið stofnun félags. Á Norðurlandi er mikið af óbeislaðri orku bæði í fallvötnum og jarðvarma og mun félagið bæði með beinum og óbeinum hætti beita sér fyrir því að þessi orka verið beisluð og nýtt til eflingar atvinnulífs. Þá leggur félag- ið áherslu á að snúa við þeirri nei- kvæðu umræðu sem verið hefur í landinu um virkjanir og stóriðju. Framhaldsstofnfundir Nýs afls á Norðurlandi verða haldnir á Siglu- firði í kvöld og á Dalvík á morgun, fimmtudag. Skipulags- og bygginga- fulltrúi Akureyrarbæjar Telur upp- sögn í starfi ólöglega AKUREYRARBÆR hefur auglýst stöðu skipulags- og byggingafulltrúa lausa til umsóknar. Bjarni Reykjalín hefur gegnt þessari stöðu undanfarin ár en umhverfisráð Akureyrarbæjar lítur svo á að hann hafi sagt upp starfi sínu í lok síðasta mánaðar. „Ég hef ekki sagt upp en þeir hjá Akureyr- arbæ telja að ég hafi gert það. Nú er ég að leita réttar míns og er með lög- fræðinga að vinna fyrir mig í þessu máli,“ sagði Bjarni, en hann lítur svo á að réttur sinn hafi verið brotinn. Bjarni sagði að hart hefði verið lagt að sér að segja upp út af máli sem kom upp. „Mér fannst mikið meira gert úr því máli en ástæða var til, því ég taldi mig hafa getað skýrt mín mál öll. Þeir hafa greinilega ekki tekið þá skýringu gilda og ákveðið að fara út í þetta. Þannig að ég er hættur, þar sem mér sagt ólöglega upp og er að leita réttar míns,“ sagði Bjarni. Í bókun umhverfisráðs frá 4. maí sl. kemur m.a. fram að ráðið líti svo á að Bjarni hafi sagt upp starfi sínu hjá Akureyrarbæ föstudaginn 29. apríl með tölvubréfi frá lögmanni sínum sem staðfest var af hálfu Akureyrar- bæjar sama dag. „Í tölvubréfinu kem- ur fram að Bjarni muni nú þegar und- irrita uppsagnarbréf sitt. Einnig samþykkir lögmaðurinn fyrir Bjarna hönd samkomulag um starfslok hans við Akureyrarbæ og að gengið verði strax frá starfslokasamningi,“ segir ennfremur í bókun ráðsins. Guð- mundur Jóhannsson formaður um- hverfisráðs sagði engu við bókun ráðsins að bæta vegna málsins. Borgarnes | Þeir stóðu keikir vin- irnir Páll Einarsson og Sævar Hlíð- kvist Kristmarsson í anddyrinu á verslunarmiðstöðinni Hyrnutorgi í Borgarnesi síðastliðinn föstudag. Þar seldu þeir bók til styrktar Hjálparstarfi kirkjunnar. Bókin, sem inniheldur söguna Matar- hornið, og teikningar, er fumsamin af Páli. Og reyndar átti hann hug- myndina að öllu saman. „Ég gerði söguna fyrst í skól- anum og ákvað um leið og ég skrif- aði hana að mig langaði að selja hana og hjálpa börnum,“ sagði Páll. ,,Það er af því að hann vorkennir þeim,“ bætti Sævar við, en andvirði sölunnar rennur til barnahjálpar kirkjunnar. Sagan fjallar um einhyrning sem týnir horninu sínu og kemst að því að það hafði lent hjá fátækum börn- um og var orðið fullt af mat. „Þess vegna heitir bókin Matarhornið,“ sagði Páll. Hann var ekki lengi að framkvæma, hugmyndin kviknaði 5. maí, sagan var tilbúin til fjölföld- unar 7. maí og tæpri viku síðar fór salan fram. Að sögn félaganna hafði salan gengið nokkuð vel, á fyrstu 16 mínútunum seldu þeir 13 bækur. Hver bók kostar 100 krónur en öllum var frjálst að borga meira. „Það eru margir sem borga meira, nema ein kona sem ætlaði að fá tvær, en átti bara 160 kr. Við létum það ekkert á okkur fá og hún fékk báðar bækurnar.“ Morgunblaðið/Guðrún Vala Ungur útgefandi Páll Einarsson með Matarhornið ásamt vini sínum, Sæv- ari Hlíðkvist Kristmarssyni. Salan rennur til Hjálparstarfs kirkjunnar. Hann vorkennir fátækum börnum Ólafsfjörður | Nemendur í 8. og 9. bekk í Gagnfræðaskólanum í Ólafs- firði hafa nýlokið helgarumönnun sem er hluti af forvarnarverkefn- inu „Hugsað um barn“ og lífs- leikniáætlun skólans. Allir nemend- urnir stóðu sig mjög vel og var meðaleinkunn í 8. bekk 9,4 og 9,0 í 9. bekk og mun það vera hæsta ein- kunn yfir landið enn sem komið er. Unglingarnir vöktu mikla athygli hvar sem þau komu og tóku íbúar vel á móti tilraunaforeldrunum. Nemendur fengur í hendur dúkku sem þeir áttu að annast eina helgi og kynnast þannig þeirri ábyrgð sem fylgir að annast ung- barn. Dúkkan er eftirlíking af ung- barni og þarf sömu umönnun. Hún vaknar eins og ungbarn jafnt um nætur og daga og þarf umönnun sem slíkt. Dúkkan er þannig úr garði gerð að enginn getur sinnt henni né huggað nema „foreldrið“ og því er ábyrgð nemenda mikil. Einn drengur hafði líka að orði er hann skilaði sínu „barni“ á mánu- dagsmorgni að það sem hefði verið skemmtilegast var að „bera 100% ábyrgð á einhverju sjálfur“ og seg- ir það kannski allt sem segja þarf. Markmið verkefnisins er að vekja unglinga til umhugsunar um afleið- ingar ótímabærrar þungunar og leitast við að hafa áhrif á að þeir byrji að stunda kynlíf eldri en nú þekkist og af meiri ábyrgð. Auk þessa fléttast inn fleira fræðsluefni t.d. afleiðingar neyslu áfengis og vímuefna á meðgöngu og eru þar tvær dúkkur notaðar við kennslu sem sýna afleiðingar neyslu áfengis á meðgöngu annars vegar og hins vegar neyslu fíkniefna á meðgöngu. Þá er farið yfir þann kostnað sem fylgir svo og ábyrgt kynlíf og kyn- hegðun. Verkefnið er jafnréttis- sinnað þar sem bæði kynin fengu dúkku til að annast. Foreldrar eru einnig virkir þátttakendur og flest- ir upplifa jákvæða reynslu af því samstarfi sem skólinn á við heim- ilið. Auðvelt er að meta árangur af þessu verkefni þar sem viðhorfs- kannanir eru lagðar fyrir á undan og eftir hjá nemendum, einnig er lögð könnun fyrir foreldra eftir dúkkuhelgina. Nemendur gera ým- is verkefni sem miða að því að gera þau upplýstari um afleiðingar ótímabærrar þungunar og stuðla að seinkun virks kynlífs. Þórgunnur Reykjalín, skólastjóri Gagnfræðaskólans sem var líka „amma“ þessa umræddu helgi, er mjög ánægð með verkefnið og telur að vel hafi tekist til. Verkefnið hafi verið krefjandi bæði fyrir nem- endur og annað heimilisfólk en fyrst og fremst skemmtilegt og gefi tilefni til ýmissa umræðna sem ann- ars hefðu ekki komið til. Nemendur kynnast krefj- andi „foreldrahlutverki“ Morgunblaðið/Helgi Jónsson Dúkkuverkefni Piltarnir tóku jafnan þátt í verkefninu, þar á meðal Daníel Ólafsson og Hilmir Gunnar Ólason. Morgunblaðið/Helgi Jónsson Dúkkuverkefni Andrea S. Hilmarsdóttir og Áslaug Eva Antonsdóttir með „börnin sín“. Húsavík | Húsvíkingurinn Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir, nemi við Við- skiptaháskólann á Bifröst, hefur að undanförnu unnið að skýrslu um heilsutengda ferðaþjónustu á Húsa- vík. Með henni unnu að verkefninu fimm samnemendur hennar á Bifröst þau Elís Þór Sigurðsson, Halla Björg Evans, Heiðar Örn Stefánsson, Magnús Sigurðsson og Signý Óskars- dóttir. Guðrún Björg segir hugmyndina að þessu verkefni hafa kviknað eftir samtal við Reinhard Reynisson bæj- arstjóra en forsvarsmenn Húsavíkur- bæjar, Atvinnuþróunarfélags Þingey- inga og Heilbrigðisstofnunar Þing- eyinga höfðu verið að velta fyrir sér hvað hægt væri að gera til að efla heilsutengda ferðaþjónustu á svæð- inu og horfðu m.a. til sérstöðu vatns sem fæst úr borholu á Húsavíkur- höfða. Helstu niðurstöður skýrslunn- ar eru að sögn Guðrúnar Bjargar þær að efnasamsetning vatnsins og sér- stöðu þess megi nýta sem sóknarfæri í heilsutengdri ferðaþjónustu í bæn- um. Heilsulind við sundlaug eða Heilbrigðisstofnun Ennfremur segir í skýrslunni „Með byggingu heilsulindar við Sundlaug Húsavíkur og endurhæfingarstöðvar á sama stað eða við Heilbrigðisstofn- un Þingeyinga hefur kröfum um heilsutengda ferðaþjónustu að megn- inu til verið fullnægt. Bæjaryfirvöld, ferðaþjónustu- og verslunaraðilar sem og allir bæjarbúar verða að taka höndum saman og vinna að sameig- inlegu átaki, efla ímynd bæjarins svo þetta geti orðið að veruleika. Grunn- forsenda þess að reka slíka þjónustu í bænum er þó að komið verði á flug- samgöngum til Húsavíkur á ný, eink- um yfir vetrartímann en ætla má að þetta haldist í hendur. Skiptar skoð- anir eru um áhrif mögulegra stóriðju- framkvæmda á svæðinu en varast verður að taka því sem sjálfsögðum hlut að þetta tvennt geti farið saman“. Það er mat skýrsluhöfunda að helsta aðdráttarafl Íslands fyrir er- lenda ferðamenn sé fyrst og fremst ósnortin náttúra og hreina loftið. Vinna skýrslu um heilsutengda ferðaþjónustu á Húsavík Sóknarfæri í vatni úr Húsa- víkurhöfða Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Heilsulind Mat skýrsluhöfunda er að ósnortin náttúra ásamt hreinu lofti sé helsta aðdráttarafl Íslands fyrir erlenda ferðamenn. Botnsvatn er ein af náttúruperlum Húsavíkur. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.