Morgunblaðið - 18.05.2005, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 18.05.2005, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2005 23 UMRÆÐAN Frábær tilboð fyrir 10 manns eða fl eiri www.esja. is Dugguvogi 8 Sími 567 6640 Hellur steinar borðinu skuluð þið þekkja þær Á yfir- HELLUR STEYPA RÖR MÚRVÖRUR EININGAR Reykjavík: Malarhöf›a 10 - S. 540 6800 Hafnarfir›i: Hringhellu 2 - S. 540-6855 Selfossi: Hrísm‡ri 8 - S. 540 6881 www.steypustodin.is Hellur og steinar fást einnig í verslunum BYKO        F A B R I K A N     SUMARIÐ & GARÐURINN Þorsteinn H. Gunnarsson: Nauðsynlegt er að ræða þessi mál með heildaryfirsýn og dýpka umræðuna og ná um þessi málefni sátt og með hagsmuni allra að leiðarljósi, bæði núverandi bænda og fyrrverandi. Dr. Sigríður Halldórsdóttir: Skerum upp herör gegn heimilisofbeldi og kortleggj- um þennan falda glæp og ræðum vandamálið í hel. Svava Björnsdóttir: Til þess að minnka kynferðisofbeldi þurfa landsmenn að fyrir- byggja að það gerist. For- varnir gerast með fræðslu al- mennings. Jóhann J. Ólafsson: „Lýð- ræðisþróun á Íslandi hefur, þrátt fyrir allt, verið til fyr- irmyndar og á að vera það áfram.“ Pétur Steinn Guðmunds- son: „Þær hömlur sem settar eru á bílaleigur eru ekki í neinu samræmi við áður gefnar yfirlýsingar fram- kvæmdavaldsins, um að skapa betra umhverfi fyrir bílaleigurnar.“ Guðmundur Hafsteinsson: „Langbesti kosturinn í stöð- unni er að láta TR ganga inn í LHÍ og þar verði höfuð- staður framhalds- og háskóla- náms í tónlist í landinu.“ Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar REKSTRARFORM fyrirtækja var lengi eitt helsta deiluefnið í stjórnmálabaráttunni. Jafn- aðarmenn vildu ríkisrekstur og áætlunarbúskap en íhaldsmenn vildu einkarekstur. Hér á landi var það að vísu lengi svo, að Sjálf- stæðisflokkurinn hélt vörð um mikinn op- inberan rekstur, t.d. hjá Reykjavíkurborg og raunar einnig hjá ríkinu. Í dag vilja jafnaðarmenn aðeins takmarkaðan opinber- an rekstur. Þeir telja, að ná megi mark- miðum opinbers reksturs með ráðstöf- unum í skattamálum og eftir öðrum leið- um. Jafnaðarmenn vilja að heilbrigð- iskerfið og skólakerfið sé í hönd- um hins opinbera svo og ýmis mikilvæg stór fyrirtæki eins og orkuveitur. Sjálfstæðisflokkurinn hefur fallið frá hinum mikla op- inbera rekstri, sem hann beitti sér áður fyrir og stóð vörð um. En segja má, að við Íslendingar höf- um farið úr einum öfgum í aðrar í þessu efni. Áður átti nær allt að vera í höndum hins opinbera, ríkis eða sveitarfélaga. En nú vilja menn einkavæða allt. Í því efni eltir hver annan. Síminn gott ríkisfyrirtæki Ég tel, að stefna einkavæðingar sé komin út í hreinar öfgar. Það er ekki lengur spurt hvernig rekstur opinberra fyrirtækja gangi. Það er talað um einkavæðingu rík- isfyrirtækja enda þótt rekstur þeirra gangi mjög vel, sé til fyr- irmyndar og skili eiganda sínum miklum arði. Gott dæmi um slíkt fyrirtæki er Síminn. Um langt skeið hefur Síminn verið fyr- irmyndar ríkisfyrirtæki. Fyr- irtækið hefur verið mjög vel rekið og það hefur skilað miklum hagnaði, iðu- lega 2–3 milljörðum kr. á ári. Er mjög ólíklegt, að einkaað- ilar hefðu gert betur í því efni. En hvers vegna á þá að einka- væða Símann? Má ekki ríkið eiga fyrirtækið áfram? Hvers vegna má ekki Síminn áfram vera eign ríkisins, fólksins í landinu? Hvers vegna má ekki íslenska rík- ið áfram fá 2–3 milljarða á ári í arð af þessu góða fyrirtæki? Hvers vegna þarf að afhenda ein- hverjum fáum einstaklingum þetta góða fyrirtæki og láta þá hirða arðinn af því, sem íslenska ríkið hefur byggt upp? Þessum spurn- ingum hefur ekki verið svarað. Ég blæs á þá röksemd, að ríkið eigi ekki að eiga og reka fyrirtæki í samkeppnisrekstri. Síminn er í dag hlutafélag, að mestu í eigu ríkisins. Það nýtur engra sérrétt- inda. Það situr við sama borð og önnur fyrirtæki í þessari grein. Það keppir á jafnréttisgrundvelli. Og það er aðalatriðið. En það virðist vera stefnuatriði núverandi ríkisstjórnar að láta flokksvini og flokksgæðinga fá bestu fyrirtæki landsins. Við sölu Símans má al- menningur ekki eignast neitt í fyrirtækinu, ekki fyrr en eftir 3 ár, þegar það hefur hækkað mikið í verði og kaupendur hafa grætt mikið af því, sem þeir þurfa að borga út í fyrirtækinu. En þegar hlutabréfin hafa stórhækkað þá má almenningur kaupa hlutabréf í því á uppsprengdu verði! Þetta er línan sem þeir Halldór og Davíð komu sér saman um. Einkavinavæðingin heldur áfram! Það á að halda áfram á sömu braut og þegar bankarnir voru einkavæddir. Þá varð samkomulag um að íhaldsvinir fengu Lands- bankann og Sambandsvinir fengju Búnaðarbankann. Og það varð einnig samkomulag um að „selja“ þessum aðilum bankana á út- söluverði. Einkavinirnir, sem fengu að kaupa þessa banka, hafa rakað til sín milljörðum í gróða. Nú á að endurtaka sama leikinn með Símann. En þjóðinni virðist nú nóg boðið: Hún hefur risið upp og mótmælt og stofnuð hefur ver- ið hreyfing um kaup almennings á Símanum. Agnes Bragadóttir, blaðamaður á Mbl., hratt þessari hreyfingu af stað með einni lítilli grein í Mbl. Ef ekki er unnt að stöðva sölu Símans og hafa fyrirtækið áfram í eigu ríkisins, er það næstbesti kosturinn, að almenningur kaupi fyrirtækið og enginn eigi stóran hlut í fyrirtækinu. Rangt að einkavæða báða bankana Einkavæðingin er komin út í al- gerar öfgar og er ég algerlega sammála Vinstri grænum í því efni. Ég tel t.d. að það hafi verið alrangt að einkavæða báða rík- isbankana, þ.e. viðskiptabankana. Ríkið hefði átt að eiga og reka áfram annan bankann. Með því hefði mátt tryggja betri þjónustu við landsbyggðina og tryggja, að a.m.k annar þessara banka hefði hagsmuni fólksins og fyrirtækj- anna á Íslandi í fyrirrúmi en hugs- aði ekki um það eitt að hámarka gróða sinn og fjárfesta erlendis. Bankarnir eru komnir út í alls konar brask og fylgja tæpast lög- um við kaup á hlutum í öðrum fyr- irtækjum. Þeir eru iðulega komnir út í atvinnurekstur í greinum óskyldum bankastarfsemi. Það er ekki hlutverk bankanna. Hlutverk þeirra er að reka bankastarfsemi. Hvorki bankamálaráðherra né fjármálaeftirlitið gerir alvarlegar athugasemdir við þetta. Ég tel því, að það komi fyllilega til greina að breyta rekstrarformi annars bank- ans á ný. Við þurfum að staldra við á braut einkavæðingar og stíga jafn- vel einhver skref til baka. Einkavæðing komin út í öfgar Björgvin Guðmundsson fjallar um einkavæðingu bankanna ’Við þurfum að staldra við á braut einkavæðingar og stíga jafnvel einhver skref til baka.‘ Björgvin Guðmundsson Höfundur er viðskiptafræðingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.