Morgunblaðið - 18.05.2005, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2005 37
DAGBÓK
Kristinn Reimarsson, sviðsstjóri af-rekssviðs Íþrótta- og ólympíusam-bands Íslands, segir að undirbún-ingur fyrir Ólympíuleika smáþjóða
gangi vel en elleftu Smáþjóðaleikarnir verða
settir í Andorra mánudaginn 30. maí. Nú sem
endranær senda Íslendingar fjölmenna sveit til
leiks. 120 íþróttamenn keppa fyrir Íslands
hönd sem halda eiga uppi merkjum landans en
Íslendingar hafa jafnan verið sigursælir á
leikunum þar sem íþróttamenn frá Íslandi,
Andorra, Möltu, Liechtenstein, San Marínó,
Kýpur, Mónakó og Lúxemborg, allt þjóðir með
íbúa undir einni milljón, etja kappi í ýmsum
íþróttagreinum. Í fyrsta skipti verður strand-
blak þátttökugrein á leikunum og senda Ís-
lendingar karlasveit til leiks.
„Undirbúningur okkar fyrir leikana hefur
bara gengið ágætlega. Það er auðvitað í mörgu
að snúast og margt sem þarf að gera þegar
svona fjölmennur hópur keppir fyrir okkar
hönd,“ segir Kristinn sem verður aðstoðar-
fararstjóri íslenska hópsins á leikunum.
Ólympíuleikar smáþjóða voru fyrst haldnir í
San Marínó árið 1985 og síðan hafa þeir verið
haldnir á tveggja ára fresti. Á Íslandi fóru
leikarnir fram 1997 en nú er keppt í annað
sinn í Andorra, síðast fóru þeir fram þar árið
1991.
,,Ég hef skoðað aðstæðurnar í Andorra og ég
held að ég megi segja að þær líti bara vel út.
Mannvirkin eru ágæt, það er stutt vegalengd á
milli keppnisstaða og mér sýnist að Andorra-
menn séu ágætlega í stakk búnir að halda leik-
ana,“ segir Kristinn. Um væntingar íslenska
keppnisfólksins segir Kristinn;
,,Við gerum þær væntingar til okkar fólks að
Ísland haldi sínum stalli og verði í efsta sæti.
Við höfum jafnan fengið flest verðlaun á leik-
unum. Á leikunum á Möltu urðum við í öðru
sæti á eftir heimamönnum en við vonumst að
sjálfsögðu til að taka efsta sætið í Andorra.“
Nokkur skörð hafa verið höggvin í íslenska
hópinn. Til að mynda getur sundkappinn Örn
Arnarson ekki verið með og í frjálsíþróttunum
koma Íslendingar til með að sakna Silju Úlf-
arsdóttur og Sunnu Gestdóttur sem hafa verið
sigursælar á síðustu leikum.
Þá keppa skötuhjúin Magnús Aron Hall-
grímsson og Vala Flosadóttir ekki í Andorra
en reynsluboltinn Jón Arnar Magnússon og
Norðurlandamethafinn Þórey Edda Elísdóttir
leiða vaska sveit frjálsíþróttamanna sem jafnan
hafa sópað að sér verðlaunum sem og sund-
fólkið. ,,Það hefur yngst svolítið hópurinn hjá
okkur og yngri íþróttamenn fá gott tækifæri til
að sýna sig og sanna,“ segir Kristinn.
Íþróttir | 120 keppendur frá Íslandi keppa á Smáþjóðaleikunum
Stefnan tekin á efsta sætið
Kristinn Reimarsson
er fæddur og uppalinn
Skagamaður. Kristinn
er 41 árs gamall
íþróttafræðingur að
mennt sem starfað hef-
ur hjá Íþrótta- og
ólympíusambandi Ís-
lands undanfarin ár, nú
sem sviðsstjóri af-
rekssviðs. Kristinn er í
sambúð með Ásdísi
Sigurðardóttur og saman eiga þau Líney Láru
sem er sex mánaða. Kristinn á þrjú önnur
börn, Tinnu Björg 20 ára, Arnþór Inga 15 ára
og Sindra Snæfells 11 ára. Sambýliskona
Kristins á Kristófer 7 ára.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Þekkir einhver fólkið?
MYNDIN er sennilega tekin austur
á Seyðisfirði einhvern tímann á ár-
unum 1910–15. Ég þekki móður
mína Guðrúnu Þorvarðardóttur fyrir
miðju í efri röð og hægra megin við
hana Hermann Vilhjálmsson föð-
urbróður minn. Annað fólk get ég
ekki borið kennsl á en þekki þó
sennilega vel til þeirra.
Myndin gæti verið tekin vorið
1911 en þann vetur mun hafa verið
haldinn ungmennaskóli á Hánefs-
staða- og Þórarinsstaðaeyrum og
þetta gæti vel hafa verið hópurinn
sem var í þeim skóla.
Ef einhver gæti frætt mig um til-
urð myndarinnar eða borið kennsl á
fólkið þætti mér vænt um það. Hafið
þá vinsamlegast samband við mig í
síma 553-4941.
Vilhjálmur Árnason frá
Háeyri við Seyðisfjörð,
Dalbraut 25, Reykjavík.
Er mannréttindabrot
ÉG ER lungnasjúklingur sem er bú-
inn að ferðast mikið um heiminn og
þarf súrefni í flugvélunum, sem er
orðið algengt. Hef ég ferðast svona í
mörg ár og hefur alltaf verið fín
þjónusta hjá flugfélögunum.
Nýlega pantaði ég mér ferð á veg-
um Heimsferða til Króatíu og var
búin að ganga frá henni og sagði
þeim frá minni þörf fyrir súrefni.
Stuttu síðar fékk ég upphringingu
frá Heimsferðum og var mér þá sagt
að flugfélagið (ítalskt) neiti að
ferðast með sjúkling með súrefni og
megi ég ekki taka eigin súrefniskút
með í vélina.
Vegna þessa talaði ég við lögfræð-
ing sem sagði mér að þetta væri
mannréttindabrot. Hef ég flogið með
mörgum flugfélögum, innlendum
sem erlendum, en aldrei lent í þessu
áður.
Gylfi Baldursson.
Hringur í óskilum
HAMRAÐUR giftingarhringur
fannst á LSH, Landspítala við
Hringbraut. Áletrunin er frekar
ógreinileg en virðist vera Þorbjörg
eða Þorbjörn og svo dagsetningin
7.12.38. Ef einhver kannast við þessa
lýsingu, getur hann nálgast hringinn
hjá Elsu í s. 543 3607 eða 543 3608.
Legasy er týndur
LEGASY, sem er Persi, týndist sl.
sunnudag í Grafarholtinu. Þeir sem
gætu gefið upplýsingar um hann eru
vinsamlega beðnir að hafa samband í
síma 566-6872, 898-6526 og 892-6801.
TÓNLEIKAR í
minningu Ian
Curtis (1956–
1980), söngvara
Joy Division,
fara fram í kvöld
á Gauki á Stöng
klukkan 21 en í
dag eru nákvæm-
lega 25 ár síðan
Curtis tók eigið
líf. Joy Division er hiklaust ein
magnaðasta sveit sem pönkbylgjan
gat af sér og margir þættir hjálp-
uðust að við að búa Joy Division
heillega, dularfulla og stílhreina
ímynd sem er jafnheillandi í dag og
hún var fyrir tæpum aldarfjórð-
ungi. Lyklaðir og myrkir textar Ian
Curtis og hin dramatísku örlög
hans ollu því að goðsögnin hefur lif-
að fram á þennan dag.
Arnar Eggert Thoroddsen,
blaðamaður og gagnrýnandi, mun
rekja æviferil Curtis og Birgitta
Jónsdóttir fer með ljóð hans. Þeir
sem spila eru Hanoi Jane, Tauga-
deildin, Worm is Green, Magga
Stína og Hr. Ingi R, Ghost Division,
Singapore Sling og Sólstafir.
Joy Division-
minningartónleikar
Ian Curtis (1956–80).
Milljónaútdráttur
Þar sem einvörðungu er dregið úr seldum miðum þarf miðaeigendi bæði að
hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
5. flokkur, 17. maí 2005
Kr. 1.000.000,-
2275 B
7006 G
12483 G
13967 B
23087 G
23356 G
32576 H
39187 G
45197 H
45459 E
,,Einu gildir hvers konar tónlist
hann flytur eða hlustar á, hann
leggur sig allan í tónlistina og í
smitandi brosi hans felst áskorun til
áhorfenda um að njóta sýningarinn-
ar jafn mikið og hann gerir sjálfur.
Mozart eða Gershwin - það gildir
einu. Hlustið og látið hreyfa við
ykkur. Látið hrífast með.”
New York Times
Bobby McFerrin
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000
www.heimsferdir.is
SLÓVENÍA - Bled og Portoroz
23. júní - 2 vikur
með Ásu Maríu Valdimarsdóttur.
RAPALLO - ítalska rivíeran
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Allra síðustu sæti
Sérferðir
í júní
30. júní - 1 vika
með Lilju Hilmarsdóttur.
Aðrar sérferðir í júní uppseldar.
Aðalsafnaðarfundur
Digraneskirkju
sunnudaginn 22. maí kl. 13.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Sjá nánar heimasíðu Digraneskirkju.
Innritun er hafin í sumarbúðirnar við Eiðavatn:
Tímabil Aldur Verð Systkinaafsláttur
1. flokkur 18. - 24. júní 10-13 ára 18.000 10%
2. flokkur 26. júní - 1. júlí 7-9 ára 15.000 10%
3. flokkur 4. - 10. júlí 10-13 ára 18.000 10%
4. flokkur 12. - 17. júlí 7-9 ára 15.000 10%
5. flokkur 20. - 25. júlí 8-13 ára 15.000 10%
Upplýsingar og skráning á heimasíðu Kirkjumiðstöðvarinnar:
www.simnet.is/kma1 og í síma 892 3890.
Kirkjumiðstöð Austurlands
Sumarbúðir við Eiðavatn