Morgunblaðið - 28.05.2005, Side 4
4 LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
EKKI MISSA
LEGVATNIÐ
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Þegar ég æsti mig sagði
hann: „Ekki missa legvatnið.“
LJÓÐABÓK SEM BREYTIR ÞVÍ
HVERNIG ÞÚ HUGSAR UM
LJÓÐABÆKUR.
ÚTGÖNGULEIÐIR EFTIR STEINAR BRAGA
„MAÐUR vill segja sem minnst áður
en sjópróf og skýrslutökur hafa farið
fram,“ sagði Jóhann Gunnarsson frá
Dalvík en hann var skipstjóri á lettn-
eska togaranum Gídeon sem brann
og sökk á Flæmingjagrunni síðast-
liðinn miðvikudag. Mikill eldur kom
upp í vélarrúmi togarans og síðan
leki.
Vélarrúmið fylltist af sjó
Þegar rætt var við Jóhann var
hann ásamt áhöfninni af Gídeon um
borð í evrópska veiðieftirlitsskipinu
Jean Charcot. Það var á leið til St.
Johns í Nýfundnalandi og væntan-
legt þangað síðdegis í gær.
Jóhann lýsti at-
burðarásinni um
borð í Gídeon.
„Það kom upp
eldur í vélarrúm-
inu og drapst á
vél. Við settum
kolsýruna á og
biðum eðlilegan
tíma. Þegar hann
var liðinn var far-
ið aftur niður og
þá var vélarrúmið að fyllast af sjó.“
Jóhann segist hafa kallað mennina
til baka úr vélarrúminu og þeir hafi
ráðið sínum ráðum stundarkorn.
„Við sendum þá aftur og þá var kom-
ið langt upp fyrir vélar og ekkert
hægt að gera.“
Strax var sent út neyðarkall sem
heyrðist um borð í Pétri Jónssyni.
Hann var kominn á vettvang eftir
klukkustund og tíu mínútur eða svo.
„Hann tók áhöfnina um borð. Síðan
fylltist togarinn og seig rólega. Hann
fór niður klukkan tíu að íslenskum
tíma og hvarf alveg,“ sagði Jóhann.
Áhöfninni heilsast vel
Enginn úr áhöfninni slasaðist og
eru allir í góðu líkamlegu ástandi, að
sögn Jóhanns, þótt sumir hafi orðið
fyrir nokkru andlegu áfalli.
Jean Charcot, sem flutti áhöfnina í
land, var áður franskt rannsókna-
skip en sinnir nú eftirliti með veiðum
á kvóta Evrópusambandsins utan
200 mílna landhelgi Kanada á þess-
um slóðum. Um borð eru eftirlits-
menn sem heimsækja veiðiskipin og
skoða afla og veiðarfæri. „Manni líð-
ur bara vel hérna. Aðbúnaður er all-
ur mjög góður. Þeir eiga þakkir
skildar,“ sagði Jóhann.
Um borð í Gídeon voru tveir aðrir
Íslendingar auk Jóhanns, Bjarni
Jakobsson yfirvélstjóri og Haukur
Jónsson vinnslustjóri. Aðrir í 15
manna áhöfn togarans eru m.a. frá
Lettlandi, Litháen, Hvíta-Rússlandi
og annars staðar að úr Austur-Evr-
ópu.
Gídeon var í eigu útgerðarfélags-
ins Gídeons hf. Framkvæmdastjóri
þess er Bergvin Fannar Jónsson. Að
hans sögn var ætlunin að taka
skýrslur af skipshöfn og hafa sjópróf
í St. John’s í gær eða í dag. Þá er
stefnt að því að koma skipverjum
heim um helgina.
Togarinn Gídeon brann og sökk á Flæmingjagrunni síðastliðinn miðvikudag
Mikill leki í kjölfar eldsvoða
Jóhann
Gunnarsson
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
BJÖSSI á Katastöðum, eða Kristbjörn Benja-
mínsson eins og hann heitir í þjóðskrá, náði
þeim áfanga að verða 100 ára í gær.
Jóhanna Óskarsdóttir er systurdóttir Bjössa
og hafði í nógu að snúast við fjörug veisluhöld í
tilefni dagsins þegar blaðakona Morgunblaðs-
ins hringdi í hana. Jóhanna er eitt af fjórum
systurbörnum Bjössa úr Reykjavík og segir
þau systkinin öll hafa dvalið í sveit hjá honum í
æsku og ávallt haldið mjög góðum tengslum
við Bjössa og systkini hans tvö sem bjuggu
með honum á Katastöðum. Þau voru bæði kom-
in yfir áttrætt er þau létust og móðir Jóhönnu
er 95 ára svo segja má að nokkurt langlífi sé í
ættinni.
Konurnar haldið í honum lífinu
Bjössi var bóndi á Katastöðum í Núpasveit í
Öxarfirði mestan sinn starfsaldur en flutti
seinna inn á Kópasker. Hann vann þar við slát-
urgerð Norður-Þingeyinga og þótti mjög góður
verkstjóri þar en að sögn Jóhönnu var slát-
urgerðinni hætt eftir að hann hætti störfum
þar sem gæðin þóttu ekki hin sömu og hjá
Bjössa. „Þar vann hann með mörgum fallegum
konum sagði hann og minnist þessa tíma með
mikilli gleði,“ upplýsir Jóhanna og segir hann
halda því fram að það hafi haldið í sér lífinu,
en Bjössi er piparsveinn. Einnig hafi það allt
að segja hvað konurnar í Hvammi á Húsavík,
þar sem hann býr núna, séu góðar við hann.
Þar hefur hann búið í átta ár, líður mjög vel og
hælir öllum þar í hástert.
Gaf húsið sitt til dagvistar aldraðra
Bjössi hefur prjónað teppi fram á þennan
dag en byrjaði á að mála þegar hann flutti í
Hvamm og segir Jóhanna að honum hafi aldrei
fallið verk úr hendi og hafi hann stundað
handavinnu af miklum móð í Hvammi. Ekki
megi svo gleyma því að út hafi komið fyrir vini
og vandamenn kver með ljóðum eftir Bjössa
sem nefnist Ljóð og lausavísur, en hann hafi
verið afskaplega duglegur að yrkja og ort mik-
ið um samferðafólk sitt. Hann hafi verið eft-
irsóttur til að fara með ljóð á ýmsum sam-
komum og oft beðinn að yrkja.
Þegar Bjössi flutti í Hvamm úr húsinu Mörk
á Kópaskeri gaf hann kvenfélagi Núpasveitar
húsið til dagvistar fyrir aldraða, en Hvammur
á Húsavík hefur nú umsjón með dagvistinni.
Jóhanna sagði einmitt að von væri á heilum
hópi vinkvenna Bjössa úr kvenfélaginu í heim-
sókn í dag, laugardag.
Kristbjörn Benjamínsson frá Katastöðum hélt upp á 100 ára afmælið í gær
Er afskaplega ánægður í Hvammi
Hér er Bjössi ásamt Sigurði Pétri Björnssyni
(Silla) sem gegndi starfi fréttaritara Morg-
unblaðsins á Húsavík í 64 ár.
Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson
Kristbjörn Benjamínsson eða Bjössi á Katastöð-
um ásamt frændsystkinum sínum Ámunda Erni
og Maríu Lóu í afmælinu í gær.
TALIÐ er að skipverji á fiskibát, sem
rak að landi skammt frá Bolung-
arvík í gærmorgun, hafi orðið bráð-
kvaddur um borð. Hann var einn í
bátnum.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Bolungarvík barst tilkynn-
ing frá Neyðarlínunni um klukkan
11 í morgun um að lítinn fiskibát
hefði rekið að landi undir Stigahlíð
skammt utan Bolungarvíkur. Björg-
unarbátar frá Bolungarvík og Ísa-
firði voru sendir á vettvang og kom
fyrsti báturinn á staðinn um klukkan
10.50. Þegar að var komið reyndist
skipverjinn látinn.
Að sögn Jónasar Guðmundssonar,
sýslumanns í Bolungarvík, er talið að
maðurinn hafi orðið bráðkvaddur
um borð. Málið er í rannsókn. Ekki
er hægt að greina frá nafni hins
látna að svo stöddu.
Talinn hafa orðið
bráðkvaddur
NÝJA hótelið í miðborg Reykjavík-
ur, í gamla Eimskipafélagshúsinu,
Radisson SAS 1919, verður opnað
föstudaginn 10. júní.
Andri Már Ingólfsson, forstjóri
Heimsferða sem á hótelið, segir allt
verða til reiðu og að starfsfólkið
hafi þá fengið nokkurt ráðrúm til
að undirbúa reksturinn.
Andri Már segir að búið sé að
ráða allt starfsfólk og hluti þess sé
þegar kominn til vinnu. Verið er að
koma fyrir húsgögnum og þrífa og
segir hann allt verða tilbúið nú
strax eftir helgi. Þá muni starfsfólk
geta æft og undirbúið reksturinn
og hafi til þess 10 daga.
Hann segir upphaflega hafa stað-
ið til að opna 17. maí en horfið var
frá því og ákveðið að ljúka öllum
frágangi áður en opnað yrði. Tekið
hafði verið við bókunum með fyr-
irvara og var gestum sem áttu bók-
að á þessum tíma útveguð önnur
gisting.
Radisson SAS 1919
opnað 10. júní
MAÐURINN sem smitaðist af her-
mannaveiki, trúlega á ferðalagi á
Ítalíu, liggur enn á gjörgæsludeild
Landspítalans í Fossvogi. Að sögn
vakthafandi svæfingalæknis seinni-
part dags í gær var líðan mannsins
þá óbreytt en hafði ekki versnað.
Manninum er haldið sofandi í önd-
unarvél. Fram kom í Morgunblaðinu
í gær að starfsfólk sjúkrahússins tel-
ur sér ekki fært að gefa upp hvort
maðurinn sé talinn í lífshættu.
Vaktlækni var ekki kunnugt um
að fleiri Íslendingar sem komu frá
Ítalíu á sama tíma og veiki mað-
urinn, hafi greinst með her-
mannaveiki. Ennfremur sagði hann
að ekki hefði frést af uppruna smits-
ins.
Haldið sofandi
í öndunarvél
LANDSSAMBAND íslenskra út-
vegsmanna, LÍÚ, fær aðgang að
trúnaðarupplýsingum í gögnum olíu-
félaganna, eftir að áfrýjunarnefnd
samkeppnismála hefur vísað frá
kærum sem bárust frá Olíuverzlun
Íslands og Keri hf., móðurfélagi Ol-
íufélagsins Esso. Félögin kærðu þá
ákvörðun Samkeppnisstofnunar að
fallast á beiðni LÍÚ um að fá afhenta
ákvörðun samkeppnisráðs um ólög-
mætt samráð olíufélaganna með
þeim upplýsingum sem áður höfðu
verið felldar út vegna trúnaðar.
Samkeppnisstofnun hafði ekki
fallist á það með félögunum að í
gögnunum væru viðkvæmar við-
skiptaupplýsingar heldur að veru-
legu leyti sögulegar upplýsingar. Því
stæðu ákvæði upplýsingalaga ekki í
vegi fyrir því að fallast á beiðni LÍÚ.
Áfrýjunarnefndin segir m.a. að
beiðni LÍÚ hafi einkum verið byggð
á upplýsingalögum og ákvörðun
Samkeppnisstofnunar sé einnig reist
á grundvelli þeirra laga. Samkvæmt
lögunum sé heimilt að bera synjun
stjórnvalds um að veita aðgang að
gögnum samkvæmt lögunum undir
sérstaka úrskurðarnefnd um upplýs-
ingamál sem úrskurðar um ágrein-
inginn. Þar sé hins vegar ekki
minnst á kæruheimild þess sem
kann að eiga andstæða hagsmuni ef
stjórnvald heimilar aðgang að upp-
lýsingum. Í því tilviki gildi því al-
mennar reglur um stjórnsýslukærur
og stjórnsýslukæra fresti ekki rétt-
aráhrifum upphaflegrar ákvörðunar.
Í úrskurði áfrýjunarnefndar segir
m.a. að ekki verði séð að samkeppn-
isleg rök leiði til þess að ólík máls-
meðferð skuli gilda um aðgang al-
mennings að upplýsingum í
samkeppnismálum fremur en í öðr-
um málum sem upplýsingalög taki
til. Því beri að vísa þessu máli frá
áfrýjunarnefndinni.
LÍÚ íhugar enn bótakröfu
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, segir niðurstöðu
áfrýjunarnefndar ekki koma sér á
óvart. Hún auðveldi upplýsingaöfl-
unina en hafi hins vegar lítil áhrif á
þá mögulegu ákvörðun LÍU að fara í
skaðabótamál á hendur olíufélögun-
um vegna meints verðsamráðs. Þau
mál séu enn í vinnslu og engar end-
anlegar ákvarðanir verið teknar.
LÍÚ fær aðgang að trúnað-
argögnum olíufélaganna