Morgunblaðið - 28.05.2005, Síða 8

Morgunblaðið - 28.05.2005, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fylgið foringjanum, það er komið nóg af þessu yfirþyrmandi „góðæri“. Lýðurinn verður gerður að aumingjum með þessu. Í kjölfar þess aðóbyggðanefnd lýstieftir eignarréttindum sem féllu innan þjóðlendu- kröfusvæðis ríkisins, hófst kynning á kröfunum sl. miðvikudag. Svæðið sem um ræðir spannar Öxar- fjarðarhrepp, Raufar- hafnarhrepp, Svalbarðs- hrepp, Þórshafnarhrepp, Skeggjastaðahrepp, Vopnafjarðarhrepp, Fljótsdalshérað og Fljóts- dalshrepp. Ljóst er að mikið ber á milli máls- aðila. Skv. áætlun óbyggðanefndar á að flytja málin í haust að fengnum athugasemd- um. Lögmenn telja að úrskurður óbyggðanefndar fáist eftir u.þ.b. ár. Landeigendur vona þó að úr- skurður liggi fyrr fyrir því óviss- an er erfið og nánast óþolandi fyr- ir marga hverja, því viðræður um hagsmuni eru á fleiri vígstöðvum. T.d. er búið að stofna landeigend- afélög bæði á Jökuldal og í Fljóts- dal um virkjunartengda bóta- samninga við Landsvirkjun á grundvelli beins eignarréttar, með fyrirvara um niðurstöðu óbyggðanefndar. Er um stórar fjárhæðir að ræða og fræðilega séð geta þeir sem fengið hafa nú þegar bætur vegna virkjunar- framkvæmdanna orðið endur- greiðsluskyldir. Sjö lögmenn Fari kröfur ríkisins fyrir dóm- stóla, sem líklegt verður að teljast með fjölmörg málanna, tefjast málslyktir enn frekar. Sjö lög- menn annast nú mál fyrir landeig- endur á svæðinu. Einn þeirra, Bjarni G. Björgvinsson hjá Lög- heimtunni, segir varnarbaráttuna verða harða. „Ég leyfi mér þó að vera frekar bjartsýnn fyrir svæð- ið í heild. Ég byggi það á þeim heimildum sem til eru um byggð á hálendinu hér víða og síðan þarf að rekja frá frumheimildum hvernig þetta hefur verið talið til eignar í gegnum tíðina. Auðvitað er þetta flókið og menn að skylm- ast með gamla máldaga og lýs- ingar, annála og ýmislegt aftur í tíðina og á áreiðanleika þessa get- ur oft verið vandasamt mat. Þetta byggist og heilmikið á þekkingu jarðeigendanna sjálfra og kemur í ljós að þeir eru oft býsna fróðir um sínar jarðir og þekkja til gam- alla og kannski lítt kunnra heim- ilda. Að því leyti til er málið út af fyrir sig gott, þó menn séu ekki sammála um hvernig kröfulína ríkisins er dregin. Í þessari um- ferð eru dregnar upp allar þekkt- ar heimildir um jarðir sem undir þetta falla og það út af fyrir sig merkilegt og þarft mál“ segir Bjarni. Reykjahlíð í brennidepli Regula lögmannsstofa fer með málefni um 60 jarða. Segir Frið- björn Garðarsson, lögmaður þar á bæ, að þeim sem vinni fyrir land- eigendur lítist að mörgu leyti vel á fyrir þeirra hönd. „Því er þó ekki að neita að á sumum svæðum eru heimildir mjög á reiki, bæði um stofnun eignarréttar og fram- salsröð. Þetta eru flókin mál og menn þurfa að fara langt aftur í aldir því sönnunarbyrðin er land- eigandans liggur mér við að segja. Ef landamerkjabréf eða annað slíkt liggur fyrir á sönnunarbyrð- in að vera ríkisins, en er það bara ekki í reynd.“ Í upphafi var talið að erfiðast yrði að sanna eignarrétt landeig- enda Brúar á Jökuldal, annarrar stærstu jarðar landsins. Lög- menn eru nú bjartsýnir þar sem áreiðanleg gögn, s.s. þinglýsing, þykja liggja fyrir um landamerki. Svo er einnig um Reykjahlíð, stærstu jörð landsins, sem er í brennidepli á móti Brú. Fleiri mjög stórar jarðir liggja undir, eins og Hof í Goðdölum, sem á land að Hofsjökli og fleiri gamlar jarðir í Skagafirði sem telja sig eiga land inn á Sprengisand og Hofsjökul. Menn horfa og til Nýjabæjarafréttar sem bæði Ey- firðingar og Skagfirðingar reka fé á og alls hins firnastóra svæðis norðan jökla. Þá hafa viðkomandi lögmenn nokkrar áhyggjur af vörnum jarða í Fljótsdal. Ólafur H. Jónsson, formaður landeigendafélags Reykjahlíðar, segir að viturlegra hefði verið að taka á þeim svæðum sem ekki eru með þinglýst landamerki. „Það er vont að þurfa að verja löngu við- urkenndan og þinglýstan eignar- rétt sinn alveg niður í bæjarlæk“ segir Ólafur. „Ef ekki er hægt að samþykkja þinglýsta hundrað ára og eldri gjörninga, hverju megum við búast við í framtíðinni? Það verður fróðlegt að sjá hvað allt þetta mun kosta og hverjar lyktir verða fyrir ríkið.“ Nytjar af hrein- dýrum, en arður af veiðum fellur til ábúenda jarða, gera málið nokkru flóknara en annars staðar. Ríkið hafnar því að ábúendur geti sett fram kröfur um eignarrétt en talið er hæpið að neita þeim um aðild að málum. Mörgum landeigendum hefur brugðið vegna málskostnaðar- ákvarðana óbyggðanefndar þeim í óhag og þykir landeigendum óvið- eigandi að þurfa bera fjárhagslegt tjón vegna mála sem til er stofnað að frumkvæði ríkisins og þeir eru nauðugir að verja hendur sínar gagnvart. Óbyggðanefnd er með þetta til skoðunar. Fréttaskýring | Óbyggðanefnd lýsir eftir athugasemdum við þjóðlendukröfur Skylmast með máldögum Lögmenn landeigenda leita logandi ljósi að gögnum er styðja eignarrétt Óbyggðanefnd hefur svæði 5 til meðferðar. Landeigendur þurfa að sanna eignarréttinn  Óbyggðanefnd kynnir nú þær kröfur sem lýst hefur verið vegna meðferðar þjóðlendumála á Norðausturlandi. Er um að ræða kröfur fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisins um þjóð- lendur, þ.e. landsvæði utan eign- arlanda og einnig kröfur ann- arra um eignarréttindi á sömu svæðum. Kynning krafnanna stendur til 30. júní og þurfa at- hugasemdir að berast Óbyggða- nefnd fyrir 11. júlí nk. Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.