Morgunblaðið - 28.05.2005, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
YFIR 200 þúsund Íslendingar eru
skráðir í miðlægum gagnagrunni lög-
reglu en grunnurinn heldur utan um
bæði dagbók og málaskrá lögreglunn-
ar.
Grunnurinn geymir því mikið
magn persónuupplýsinga og mikil-
vægt að tryggja að aðgangur að
skránni sé takmarkaður, eins og fram
kemur í nýjum úrskurði Persónu-
verndar í máli starfsumsækjanda hjá
tollstjóra sem veitti samþykki sitt fyr-
ir því að skoða mætti málaskrá henn-
ar hjá lögreglu. Persónuvernd komst
að þeirri niðurstöðu að tollstjóra hefði
verið óheimilt að afla upplýsinganna,
eins og fram kom í blaðinu í gær.
Aðgangur takmarkaður
við lögreglu
Jónmundur Kjartansson, yfirlög-
regluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra,
segir að upplýsingar úr gagnagrunn-
inum séu ekki veittar nema hinn
skráði leiti eftir þeim sjálfur. Allir
þeir sem skráðir eru í gagnagrunn
lögreglunnar hafa rétt á að fá afrit af
þeim upplýsingum sem þar er að
finna, skv. 8. gr. reglugerðar 322/2001
um meðferð persónuupplýsinga hjá
lögreglu og skriflegum beiðnum um
slíkt er best að beina til embættis rík-
islögreglustjóra.
Jónmundur segir að aðgangur að
upplýsingunum sé takmarkaður við
lögreglu og að aðrar ríkisstofnanir
hafi ekki aðgengi að þessum upplýs-
ingum. Lögreglumenn hafa almennt
aðgang að upplýsingum síðustu fimm
ára, en yfirmenn lögregluembætta
hafa fullan aðgang sem og lögreglu-
menn sem sinna sérstökum verkefn-
um. Samkvæmt reglugerðinni er
Fangelsismálastofnun og ákæruvald-
inu veittur aðgangur að upplýsingum
eins og nauðsyn krefur til að sinna
lögboðnum verkefnum. Jónmundur
segir að auk þess hafi verið í gangi
samstarf milli tollstjóra og lögreglu í
tengslum við fíkniefnamál og hafi
embætti tollstjóra því verið veittur
aðgangur að grunninum.
Dagbók og málaskrá ólík
Miðlægi gagnagrunnurinn var sett-
ur saman árið 1988, að sögn Jón-
mundar. Eins og áður sagði byggist
grunnurinn á annars vegar skráning-
um í dagbók lögreglu og hins vegar í
málaskrá en þessar skrár eru ólíkar.
Dagbókin heldur utan um öll verkefni
lögreglu og er ekki takmörkuð við
sakamál. Þannig kemur til dæmis
fram í dagbók ef lögregla aðstoðar við
einhver smáviðvik. Málaskrá heldur
hins vegar utan um allar kærur til
lögreglu og koma þar fram upplýs-
ingar úr lögregluskýrslum um aðila
sem tengdust málinu með einhverjum
hætti.
Í reglugerðinni segir m.a. að í mála-
skrá skuli fara upplýsingar um nöfn
málsaðila og annarra sem málið varð-
ar, ásamt kennitölu, lögheimili og
dvalarstað. Miðlægur gagnagrunnur
geymir því ekki eingöngu upplýsing-
ar um brotamenn, heldur ýmsa fleiri.
Þar geta verið nöfn þeirra sem eru
staddir á brotstað þegar lögregla
kemur og tekur niður nöfn þeirra og
fólk sem tilkynnir árekstur, svo dæmi
séu tekin. Í úrskurði Persónuverndar
er tekið dæmi um mann sem er gest-
komandi í húsi þar sem fíkniefni finn-
ast. Ef nafn hans færi í lögreglu-
skýrslu kæmi það fram í málaskrá
lögreglu, þótt hann tengdist málinu
ekki á neinn hátt að öðru leyti. Við-
komandi yrði þó ekki skráður í kerf-
inu sem kærður.
Jónmundur segir að málaskráin og
dagbókin séu saman í gagnagrunnin-
um, sem nú kallast í daglegu tali „lög-
reglukerfið“, og ekki séu gerð form-
leg skil þar á milli. Þannig er ekki
skilið á milli þeirra sem skráðir eru í
dagbók annars vegar og í málaskrá
hins vegar.
Rangar upplýsingar
skal leiðrétta
Í 12. grein reglugerðarinnar er tek-
ið fram að hafi rangar eða villandi
persónuupplýsingar verið skráðar,
eða skráningin farið fram í heimild-
arleysi, skuli lögregla sjá um að þær
upplýsingar verði leiðréttar, eða þeim
eytt.
Jónmundur segir að slíkar leiðrétt-
ingar komi stundum eftir ábendingar
hins skráða.
Upplýsingum getur verið eytt úr
gagnagrunninum þegar þær eru ekki
lengur nauðsynlegar í þágu lögreglu-
starfa vegna aldurs upplýsinga eða af
öðrum ástæðum, eins og fram kemur í
13. grein reglugerðarinnar.
Upplýsingar um 200 þúsund Íslendinga eru skráðar í miðlægan gagnagrunn lögreglu
Skráðir eiga rétt á
upplýsingum um sig
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
Við hæfi að staldra
við og sýna þakklæti
Morgunblaðið/Þorkell
Flugfólk annast hugvekju, söng og hljóðfæraleik við flugguðsþjónustuna.
Flugguðsþjónusta í Grafarvogskirkju
FLUGGUÐSÞJÓNUSTA verður
haldin í Grafarvogskirkju á morgun,
sunnudaginn 29. maí, kl. 11. Er það í
fyrsta sinn sem slík guðsþjónusta er
haldin hér á landi.
Rafn Jónsson flugstjóri er fulltrúi
Félags atvinnuflugmanna í undir-
búningsnefnd guðsþjónustunnar.
Hann segir að Björn Þverdal, gæða-
stjóri Flugfélags Íslands, hafi átt
hugmyndina að þessari athöfn. Að-
alþema hennar verður að þakka
áfallalítið farþegaflug hér, en ekki
hefur orðið stórslys í innanlandsflugi
síðan flugslysið varð í Skerjafirði
sumarið 2000. Þá hafi flug Íslendinga
á alþjóðlegum flugleiðum gengið
slysalaust frá 1978. „Það er við hæfi
að staldra við og sýna þakklæti fyrir
hve vel hefur gengið. Einnig verður
þeirra sem farist hafa í flugslysum
minnst í athöfninni,“sagði Rafn. „Ef
allir eru taldir hér á landi sem vinna
að flugi á jörðu og í lofti, þá skipta
þeir þúsundum.“
Rafn segir marga samverkandi
þætti hafa stuðlað að auknu flugör-
yggi á undanförnum árum. „Flug-
vélaflotinn er almennt nýrri og full-
komnari en áður var. Síðan hefur
flugleiðsögutækni fleygt gríðarlega
fram bæði í lofti og á jörðu. Einnig er
óhætt að segja að flugmenn séu bet-
ur menntaðir nú en áður. Allar reglur
hafa verið hertar gríðarlega og eft-
irlit flugmálayfirvalda hefur stórauk-
ist. Ég held að þessir þættir hafi ráð-
ið mestu um fækkun óhappa í flugi.“
Starfsfólk í flugstarfsemi hér á
landi annast guðsþjónustuhaldið að
mestu. Benóný Ásgrímsson, yfirflug-
stjóri Landhelgisgæslunnar, mun
flytja hugvekju. Þá mun flugfólk ann-
ast fjölbreyttan söng og hljóðfæra-
leik. Meðal annars mun Flugfreyju-
kórinn, sem hefur æft undir stjórn
Magnúsar Kjartanssonar, syngja
ásamt félögum úr kvartett flugstjóra,
Þuríður Sigurðardóttir myndlistar-
maður og fyrrverandi flugfreyja
syngur einsöng og organisti er Ólaf-
ur W. Finnsson flugstjóri. Prestur er
sr. Vigfús Þór Árnason.
Kaffiveitingar að guðsþjónustu
lokinni eru í boði fyrirtækja og stétt-
arfélaga sem tengjast flugi. Þyrla,
annaðhvort frá Landhelgisgæslunni
eða í einkaeigu, verður væntanlega
við kirkjuna fyrir guðsþjónustu og
um kl. 10.30 munu fallhlífarstökkv-
arar lenda við kirkjuna. Þá mun
Björn Thoroddsen leika listir sinar á
listflugvél yfir Grafarvogi eftir guðs-
þjónustuna.
LEIKSKÓLABÖRNIN á Tjarnar-
landi á Egilsstöðum hittust á Vil-
hjálmsvelli og tóku þátt í Tjarn-
arlandsleikunum 2005. Um
eitthundrað börn og þrjátíu starfs-
menn leikskólans skemmtu sér þar
við ýmsar þrautir, svo sem reip-
tog, sápukúlublástur, jafnvæg-
islistir og langstökk. Að endingu
fékk hver maður gómsæta sam-
loku og safafernu til að næra sig
á, enda allir orðnir svangir eftir
hlaup og hróp. Nú hefur heldur
betur skipt um veður á Héraði, um
miðjan dag í gær var þar sólskin,
hæg norðaustangola og 7 stiga
hiti. Spáð er hlýnandi veðri. Hér-
aðsmenn eru enda allir aðrir í
sinninu og komnir út til vorverka
eftir hraglandann undanfarnar
vikur. Leikskólabörn á Egils-
stöðum gerðu sér glaðan dag á
Tjarnarlandsleikum. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Stokkið
inn
í vorið
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest dóm
Héraðsdóms Norðurlands eystra yf-
ir karlmanni á þrítugsaldri, sem
dæmdur var í 12 mánaða fangelsi
fyrir samræði við 12 ára gamla
stúlku. Var ákærði einnig dæmdur
til að greiða stúlkunni hálfa milljón
króna í miskabætur.
Fram kemur í dómi héraðsdóms
að með því að gerast sekur um kyn-
ferðismök við barn yngra en 14 ára
hefði ákærði brotið ákvæði hegning-
arlaga, sem löggjafinn hefur sett til
að veita æskufólki vernd með tilliti
til kynferðislegrar hegðunar. Yrðu
þessi mörk ekki upphafin með sam-
þykki barnsins. Að áliti dómsins var
brot ákærða alvarlegt og beindist
gegn mikilvægum hagsmunum.
Hann var tvítugur að aldri þegar
hann framdi brotið og hafði þá fjór-
um sinnum hlotið refsingar, m.a.
fyrir þjófnað og líkamsárás.
Í Hæstarétti dæmdu hæstarétt-
ardómararnir Guðrún Erlends-
dóttir, Árni Kolbeinsson, Garðar
Gíslason, Hrafn Bragason og Ingi-
björg Benediktsdóttir. Verjendur
voru Hreinn Pálsson hrl. og Sig-
urður B. Halldórsson hdl. Sækjandi
var Ragnheiður Harðardóttir frá
ríkissaksóknara.
Eins árs fangelsi
fyrir kyn-
ferðisbrot
VÖRÐUR, björgunarskip Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar á Pat-
reksfirði, var kallað út kl. sex í gær-
morgun vegna vélarvana báts um
1,5 sjómílur suður af Látrabjargi.
Björgunarskipið brást þegar við
kalli og kom að bátnum um kl. 8.10.
Á staðnum var hæglætisveður og lít-
ill sjór. Báturinn, sex tonna plastbát-
ur, var dreginn til hafnar á Patreks-
firði. Vörður er eitt þeirra
björgunarskipa sem ætlað er að end-
urnýja í björgunarátaki Slysavarna-
félagsins Landsbjargar. Skv. frétt
frá félaginu þykir ljóst að nýtt skip
hefði verið mun fljótara á vettvang.
Vélarvana
bátur dreginn
til hafnar
LÖGREGLAN í Keflavík hafði í
gær ekki fengið frekari tilkynn-
ingar um mann á rauðum bíl sem
sagður er hafa reynt að lokka ung
börn upp í bifreiðina til sín og segir
Jóhannes Jensson aðstoðaryfirlög-
regluþjónn að hugsanlega hafi um-
fjöllun fjölmiðla um málið orðið til
þess að hrekja manninn á braut.
Hann brýnir fyrir börnum að fara
aldrei upp í bíla með ókunnugum.
Ekkert sést til
rauða bílsins