Morgunblaðið - 28.05.2005, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 11
FRÉTTIR
STEINUNN Valdís Óskarsdóttir,
borgarstjóri, segir að þótt skipu-
lagshugmyndir sjálfstæðismanna
séu athyglisverðar geti þær
sprengt upp
lóðaverð í borg-
inni. Eins veki
athygli að í til-
lögunum sé nán-
ast ekkert vikið
að Vatnsmýr-
inni.
„Mér finnst
þetta athyglis-
verðar hug-
myndir og fegin
að fá loksins
uppbyggilegar hugmyndir frá D-
listanum. Það vekur þó athygli það
sem er ekki í þessum tillögum, til
dæmis er alveg litið framhjá
Vatnsmýrinni. Mér finnst það líka
athyglisvert að þetta er óljóst og
til langrar framtíðar og virðist
ekki taka mið af næsta kjörtíma-
bili,“ segir Steinunn og bætir við
að þær miklu fjárfestingar sem
ráðast á í veki upp ákveðnar
spurningar, sérstaklega miðað við
lóðaverð eins og það er í dag.
„Þessar hugmyndir geta sprengt
upp lóðaverðið sem mörgum þykir
auðvitað nógu hátt fyrir.“
Dýrt að fara út í
landfyllingar og brúargerð
Tillögur sjálfstæðismanna gera
ráð fyrir að með landfyllingunni
myndist aukið lóðaframboð og
lóðaverð lækki í kjölfarið. Steinunn
segist ekki gefa mikið fyrir þá út-
reikninga.
„Það vita allir að bæði er dýrt að
gera landfyllingar og ég tala nú
ekki um að gera brú út í Viðey.
Mér finnst líka ansi mikið á sig
lagt að finna svæði undir 30.000
manna byggð en líta alveg framhjá
Vatnsmýrinni. Ég held að það
helgist af því hve skiptar skoðanir
eru í þeirra hópi um Vatnsmýrina,
að menn hafi ekki getað komið sér
saman um að spila henni út,“ segir
Steinunn.
Hún segir að hugmyndir um
Vatnsmýrina séu það sem greini á
milli fylkinganna, þar sem R-list-
inn vilji horfa til Vatnsmýrarinnar
og þéttrar byggðar þar en sjálf-
stæðismenn segi pass við Vatns-
mýrinni.
„Það er auðvitað mjög sérstakt
að búa til land með þessum mikla
tilkostnaði meðan til staðar er land
í Vatnsmýrinni þar sem hægt væri
að fara í þéttari byggð með minni
tilkostnaði.“
Búið að kjósa um flugvöllinn
Í tillögum sjálfstæðismanna er
talað um að láta vinna hagkvæmni-
athugun á Vatnsmýrinni og gefa
svo borgarbúum kost á að taka
upplýsta ákvörðun um málið.
Segja sjálfstæðismenn að til
greina komi að halda aðrar kosn-
ingar um framtíð flugvallarins, en
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti
sjálfstæðismanna, sagði að fyrir-
hugaðar viðræður borgaryfirvalda
og samgönguráðuneytisins um
framtíð svæðisins geri niðurstöðu
kosninganna frá 2001 um framtíð
flugvallarins í raun að engu.
Steinunn segist vera ósammála
þessu. „Það er búið að kjósa um
framtíð flugvallarins og niðurstaða
liggur fyrir. Þó ekki hafi borið
mikið á milli er búið að kjósa um
þetta svæði og nú er í gangi vinna
sem miðar að því að draga fram
þessa mismunandi kosti.“
Steinunn segir að sá grundvall-
armunur sem er á skipulagshug-
myndum R-listans og sjálfstæðis-
manna, endurspeglist vel í
tillögum D-listans. Hún segir sjálf-
stæðismenn vilja dreifða borg með
því að byggja í útjaðrinum en
horfa framhjá þeim miklu mögu-
leikum sem liggja í Vatnsmýrinni.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir um tillögur D-listans
„Þessar hugmyndir geta
sprengt upp lóðaverðið“
Steinunn Valdís
Óskarsdóttir
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
HÓPUR kvenna með víðtæka
reynslu úr atvinnulífinu var meðal
þeirra sem gerðu tilboð í Símann, í
samstarfi við erlenda aðila. Hóp-
urinn stendur að einkahlutafélag-
inu D8, sem er kennt við upphafs-
reit svörtu drottningarinnar í skák.
„Okkur fannst þetta vera leið til
þess að auka áhrif kvenna með því
að koma að stóru fyrirtæki eins og
Símanum sem eigendur,“ segir
Dagný Halldórsdóttir, forsvars-
maður og stjórnarformaður D8.
Dagný starfar í dag sem aðstoð-
arforstjóri Neyðarlínunnar, en var
áður aðstoðarforstjóri Íslandssíma,
og stofnaði og rak netveituna
Skímu. Auk hennar eru Arndís
Kristjánsdóttir og Sigríður Hall-
grímsdóttir skráðar í stjórn félags-
ins, skv. upplýsingum úr hluta-
félagaskrá Ríkisskattstjóra.
Dagný segir að aðrar konur sem
standi að D8 ehf. séu allar með
reynslu sem nýtist við rekstur fyr-
irtækis á borð við Símann, svo sem
á sviði stjórnunar, rekstrar og fjár-
festinga, að ógleymdri mikilli
reynslu úr upplýsingatæknigeiran-
um og fjarskiptaumhverfinu. Hún
vill ekki gefa upp hvaða aðrar kon-
ur standi að D8 að svo komnu
máli.
Hópur kvenna
gerði tilboð
í Símann
„ÉG er aðeins að glíma við lofthræðsluna,“
sagði ein konan í gönguhópnum sem gekk í
Laufskörð við Esjuna eldsnemma í gærmorg-
un, og var ekki að furða því skörðin eru snar-
brött og hrasi menn getur fallið verið hátt og
sjálfsagt banvænt. Þó að flestir göngumenn
hafi borið sig vel er öruggt mál að marga sundl-
aði þegar þeir lögðu út á einstigið sem hlykkj-
ast eftir norðurhlíðum skarðanna. Og hefði
Ferðafélag Íslands ekki verið nýbúið að leggja
göngustíg og leggja keðju á erfiðustu staðina
er hætt við að fleiri en einn hefðu orðið frá að
hverfa sökum loft- eða lífhræðslu og hinum
hefði örugglega liðið talsvert verr.
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra var
meðal göngumanna og blés hann vart úr nös.
Gangan í gærmorgun var fimmta morg-
unganga Ferðafélagsins í þessari viku og urðu
Laufskörðin fyrir valinu m.a. til að vekja at-
hygli félagsmanna og annarra göngugarpa á
þeim framkvæmdum sem staðið hafa yfir í
skörðunum. Þar hefur hópur sjálfboðaliða frá
Ferðafélaginu lagt ágætan göngustíg og með
því gert leiðina færa flestum. Með meitlum,
slaghömrum og haka hefur verið gerður ágæt-
ur stígur, þó hann sé svo sem ekki sérlega
breiður, sérstaklega ekki að mati lofthræddra.
Rafstöð sem vegur 16 kíló var sömuleiðis
borin upp að skörðunum til að hægt væri að
bora göt fyrir járnhæla sem reknir voru niður
meðfram stígnum. Í járnhælana var síðan fest
keðja sem göngufólk getur gripið í til halds og
trausts. Framkvæmdunum er ekki að fullu lok-
ið en væntanlega verður allt til reiðu í næstu
viku.
Umbætur á Þverfellshorni
handan við hornið
Fyrir þá sem ekki er vel kunnugir Esjunni er
rétt að taka fram að Laufskörðin eru á milli
Móskarðahnjúka og Hátinds Esjunnar,
skammt vestan við Skálafell. Svo örmjóir eru
tindarnir í skörðunum að hægt er að setjast
klofvega á þá þannig að annar fóturinn er sunn-
anmegin og hinn norðanmegin við fjallið.
Gönguleiðin er afskaplega falleg og um-
hverfið bara talsvert hrikalegt á köflum. Blaða-
manni þótti sem Esjan hefði aldrei verið fal-
legri en í morgunsólinni í gærmorgun en það er
auðvitað mögulegt að hið fádæma góða veður,
útsýni svo langt sem augað eygði og hin feiki-
lega góða stemning í gönguhópnum hafi aukið
enn á fegurð fjallsins.
Göngustígurinn sem nú hefur verið lagður í
Laufskörðin er að sönnu mikil samgöngubót
sem dregur verulega úr slysahættu og vænt-
anlega einnig úr lofthræðslu. Þó að flestir
þeirra 8–10.000 manna, sem slegið hefur verið
á að klífi Esjuna árlega, gangi á Þverfellshorn,
leggja æ fleiri á lítt troðnari leiðir á fjallið og
nærfjöll þess.
Nú er í bígerð að bæta verulega efsta hluta
gönguleiðarinnar á Þverfellshorn og hefur sú
áætlun verið rædd á æðstu stöðum, þ.e.a.s.
milli forsætisráðherra og borgarstjóra Reykja-
víkur. Þegar svo valdamiklir embættismenn
eru komnir í málið getur varla verið langt að
bíða þar til framkvæmdir hefjast.
Villugjarnt og slysahætta efst
Svo heppilega vildi til að forsætisráð-
herrann, Halldór Ásgrímsson, var einmitt einn
þeirra sem gekk um Laufskörðin í gærmorgun.
Hann var því spurður um fyrirhugaðar úrbæt-
ur á Þverfellshorni. „Ég hef orðið var við það
nokkrum sinnum þegar ég hef farið upp á Esj-
una að fólk er að villast efst í klettunum og
þarna hafa orðið slys. Það er til mikillar fyr-
irmyndar sem Ferðafélag Íslands er að gera í
Laufskörðunum og það þarf að gera það sama
efst í Þverfellinu. Þeir segja mér að þeir ætli að
gera það og mér finnst að það þurfi að ganga í
það sem fyrst. En auðvitað þurfa Reykjavík-
urborg og ríkið að hjálpa til við þetta því þetta
er vinsælasta leið Reykvíkinga þegar þeir fara í
fjallgöngur. Þetta er nú ekki mikið mál, það
þarf bara að koma þessu í gang,“ sagði Halldór.
Aðspurður sagðist Halldór fara annað slagið
í fjallgöngur þó hann væri ekki ekki eins dug-
legur og hann vildi. Hann hefði þó farið tvisvar
upp á Esjuna í þessum mánuði og ferðin í gær-
morgun var því þriðja ferðin á fjallgarðinn í
mánuðinum. „Að mínu mati er ganga á Esjuna
besta leiðin til að þjálfa sig fyrir sumargöng-
urnar og að mínu mati eru þeir færir í flest sem
fara sæmilega léttilega á Esjuna,“ sagði hann.
Gönguleiðin kynnt í sumar
Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR og fyrr-
verandi forseti Ferðafélagsins til níu ára, hefur
haldið utan um göngustígagerðina í Lauf-
skörðum en tekur strax fram að hugsuðurinn á
bak við stíginn sé Valdimar Valdimarsson.
Höskuldur segir að stígagerð um skörðin hafi
staðið til áratugum saman en í vor hafi menn
loks drifið sig af stað.
Í sumar ætlar Ferðafélagið að kynna ræki-
lega gönguleiðina í Laufskörð, m.a. með því að
gefa út barmmerki með mynd af Laufskörðum
og útbúa kort af gönguleiðum uppi á Esjunni.
Drög að slíku korti verða birtar á vef Ferða-
félagsins og þar geta menn lagt fram at-
hugasemdir og tillögur. Það er því viðbúið að
vinsældir Laufskarðanna aukist hratt og er það
verðskuldað.
Göngustígagerð Ferðafélags Íslands í Esjunni miðar að því að draga úr slysahættu
Dregið úr
lofthræðslu í
Laufskörðum
Ferðafélag Íslands hefur lagt göngustíg um
einstigið í Laufskörðum og forsætisráðherra
hefur rætt við borgarstjóra um svipaðar um-
bætur á Þverfellshorni
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Áður en komið er upp að Laufskörðum eru snarbrattir klettar á vinstri hönd. Gönguleiðin er
þó flestum fær, sérstaklega að lokinni stígagerð Ferðafélagsins.
Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, og Hall-
dór Ásgrímsson forsætisráðherra ganga
öruggum skrefum á nýja göngustígnum.
Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, hefur
haldið utan um framkvæmdir í skörðunum.
Hann veit fátt betra en ganga í skörðin þegar
kvöldsólin skín.
Morgunblaðið/Rúnar