Morgunblaðið - 28.05.2005, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Landsbanki Føroya
Nordea and Landsbanki Føroya
arrange a DKK 430 million bond
loan for the Faroese government
The Faroese government, Føroya Landsstýri, will issue bonds totalling a nominal amount of DKK 430 million
to refinance outstanding loans. The issue will be arranged by Nordea in co-operation with Landsbanki Føroya
and with Føroya Banki, Føroya Sparikassi, Kaupthing Føroyar and Norðoya Sparikassi as co-managers
(hereafter called the "Consortium").
The bonds will have the following terms:
DKK 430 million 3.5% bullet notes with maturity date 1 June 2010
The notes will be issued and registered with the Iceland Stock Exchange on 1 June 2005 and an application
has been filed with the Iceland Stock Exchange for admission to its official list as from that date. Settlement
of the bonds will take place through the Danish VP-system.
Issue price is 101.64
Copy of the prospectus is available at the website of Landsbanki Føroya: www.landsbank.fo. Documents
mentioned in the prospectus are available for inspection at the registered office of Landsbanki Føroya.
The above mentioned Consortium will purchase the notes and subsequently sell them to investors.
Further notes may subsequently be issued under the note programme.
For further information please call Mr. Christian Hyldahl, Managing Director,
Nordea Markets, on +45 33 33 58 02.
VELGENGNI Latabæjar er slík að í raun er
óhugsandi annað en að þáttaröðin, og þeir sem að
henni standa, nái á „toppinn“ í heimi barnaefn-
isframleiðslu á Vesturlöndum, og jafnvel víðar, að
sögn Oliviers Brémonds, forstjóra Marathon
framleiðslufyrirtækisins, en hann hafði milligöngu
um samning Latabæjar og Disney í Evrópu, sem
undirritaður var í gær.
„Barnaefnismarkaðurinn í Bandaríkjunum og
Evrópu er merkilegur að því leyti að annaðhvort
ertu alls staðar eða hvergi – annaðhvort nýturðu
mikillar velgengni eða engrar,“ sagði Brémond í
samtali við Morgunblaðið. „Ég hef aldrei séð
þáttaröð ná jafnmiklum árangri og Latibær hefur
náð hingað til án þess að viðkomandi þáttur nái að
klára dæmið,“ segir hann.
Brémond segir margt merkilegt við samning
Latabæjar við Disney í Evrópu, sem og svipaða
samninga sem gerðir hafa verið við aðra dreifing-
araðila í öðrum löndum. „Samkeppnin á þessum
markaði er slík að ekki er óalgengt að framleið-
endur nýs barnaefnis bjóði sjónvarpsstöðvum
þáttaraðir sínar endurgjaldslaust, því öllu skiptir
að koma þáttunum í sýningar.“ Latibær hafi hins
vegar getað valið úr hópi áhugasamra kaupenda
og hafi fengið hærra verð en gangi í þessum geira.
Brémond segir menn stundum vanmeta markað
barnaefnis í sjónvarpi. „Í þeim löndum þar sem
meirihluti heimila hefur kapalsjónvarp er áhorfið
mest á þær stöðvar sem sérhæfa sig í sýningu
barnaefnis, s.s. eins og Super RTL í Þýskalandi og
Nickelodeon í Bandaríkjunum. Auk þess er miklu
algengara að barnaefni ferðist á milli landa, að
barnaþættir framleiddir í einu landi höfði til barna
af öðrum þjóðernum.“ Brémond segir börn auð-
veldlega greina vandað sjónvarpsefni frá slæmu.
„Börn eru alls staðar eins, og þau vilja horfa á gott
sjónvarp, rétt eins og foreldrar þeirra.“
Ágúst F. Ingason, aðstoðarforstjóri Latabæjar,
sagði það stefnu fyrirtækisins að láta ekki í ljós
andvirði samninga sem þessara, en sagði þó að
andvirði samningsins væri meira en aðstandendur
Latabæjar hefðu búist við og meira en barnaþætt-
ir væru að fá um þessar mundir.
Marathon, er einn stærsti framleiðandi barna-
efnis í Frakklandi og ber t.a.m. ábyrgð á vinsælum
teiknimyndaþáttum eins og Spæjurum og Gormi,
sem sýndir eru í Sjónvarpinu.
Alls staðar eða hvergi
Ljósmyndari/ Arnaldur Halldórsson
Vinsælt efni Oliver Brémond (t.v.) og Ágúst
Freyr Ingason við undirritun samningsins.
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís-
lands í gær voru fyrir tæplega 3,3
milljarða króna. Þar af voru viðskipti
með hlutabréf fyrir um 782 milljónir
króna.
Mest hækkun varð á bréfum Þor-
móðs ramma-Sæbergs, 5,5%, en fé-
lagið er nú í yfirtökuferli. Mest lækk-
un varð á bréfum Marel, -0,9%.
Úrvalsvísitala aðallista lækkaði
um 0,31% og er nú 3.985 stig.
Marel lækkaði mest
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● FORMLEGA hefur verið gengið frá
ráðningu Frakkans Pascal Lamy til
að gegna formennsku í Heims-
viðskiptastofnuninni, WTO. Hann
mun taka við starfinu hinn 1. sept-
ember næstkomandi.
Haft er eftir Lamy í frétt AP-
fréttastofunnar að hann muni leggja
höfuðáherslu á að leiða til lykta hinar
svokölluðu Doha-viðræður um aukið
frelsi í heimsviðskiptum á vettvangi
WTO.
Doha-viðræðurnar eru
forgangsverkefni
Pascal Lamy FASTEIGNAVERÐ mun hækka um
10% það sem eftir lifir þessa árs ef
spá greiningardeildar Landsbanka
Íslands gengur eftir. Telur deildin að
hratt muni draga úr hækkun fast-
eignaverðs þegar líða tekur á sum-
arið. Spáir hún mun minni hækkun
fasteignaverðs á næsta ári en verið
hefur, eða 5% yfir árið í heild. Þetta
kemur fram í nýju riti greiningar-
deildarinnar um fasteignamarkaðinn.
Fyrr í þessum mánuði kynnti
Greining Íslandsbanka spá sína um
þróun fasteignaverðs. Þar kom fram
að deildin spáði því að fasteignaverð
mundi hækka um 15% fram á næsta
ár en verðið muni staðna árið 2007.
Hætta á verðbólu
Fram kemur í sérriti greiningar-
deildar Landsbankans að það er mat
deildarinnar að kaupgeta almennings
muni ekki setja frekari fasteigna-
verðshækkunum skorður í bráð.
Þetta stafi af því að á mælikvarða
kaupgetu sé fasteignaverð í dag um
6% undir 15 ára meðaltali. Útlit í efna-
hagsmálum sé almennt gott og ekki
séu líkur á að kaupmáttur rýrni í
bráð.
Hins vegar segir greiningardeildin
að hátt fasteignaverð valdi því að mik-
ill fjöldi íbúða sé nú í byggingu. Því
telur deildin að mikið framboð nýrra
íbúða muni setja frekari hækkun fast-
eignaverðs takmörk þegar frá líður.
Greiningardeild Landsbankans
segir að ef spá um að hægja muni á
hækkun fasteignaverðs gengur ekki
eftir, og verðið muni halda áfram að
hækka með núverandi krafti, þá sé
verulega hætta á verðbólu. Mikil
kaupgeta almennings um þessar
mundir auki mjög hættuna á að þetta
geti gerst.
Hækkanir éta upp ávinning
„Flestir þeir sem eru að kaupa íbúð
eiga íbúð fyrir,“ segir í sérriti grein-
ingardeildar Landsbankans. „Þeir
hafa því hagnast á verðhækkunum
síðustu ár og geta notað hagnaðinn til
að yfirbjóða hver annan. Við slíkar að-
stæður er stutt í myndun verðspírals
eða verðbólu. Þeir sem eru að kaupa í
fyrsta sinn standa augljóslega höllum
fæti við slíkar aðstæður. Staðan í dag
virðist vera sú að verðhækkanir á
fasteignamarkaði hafi étið upp allan
ávinning stórs hluta ungs fólks af
lækkun vaxta og lengingu lánstíma.“
Spá 10% hækkun
fasteignaverðs
ÖLL starfsemi Bakkavarar Group í
Bretlandi verður sameinuð undir
merkjum Geest eftir að gengið var
endanlega frá yfirtöku Bakkavarar á
Geest í gær. Þetta var tilkynnt á
kynningarfundi Bakkavarar þar sem
kynnt var ný framtíðarsýn félagsins.
Bakkavör innti í gær af hendi loka-
greiðslu vegna yfirtökunnar, 73,7
milljarða króna, og Geest nú endan-
lega komið í eigu hins íslenska fé-
lags.
Samkvæmt tilkynningu frá
Bakkavör til Kauphallar Íslands er
tilgangurinn með þessum breyting-
um „að ná fram sem mestum sam-
legðaráhrifum í rekstri félagsins og
stærðarhagkvæmni auk þess að nýta
til fulls þá þekkingu og reynslu sem
sameinað félag hefur yfir að ráða“.
Forstjóri Geest verður Gareth
Voyle en hann var forstjóri Geest
fyrir sameininguna.
Bakkavör í Bret-
landi verður Geest
Bakkabræður Ágúst og Lýður
Guðmundssynir.
!"!"#$%
!"#
!$
% "&' (&
)* &# &
)#&
$&' (& % "&'
+,"
-# .
/0,. /0 !. , &#(
1
&''% ( )*+#"$
! 0 % "&'
2 &'
20 .&
3(&
$45& .6 && 78,.
/%!
/" 9" /"&' /"0 :
;:## � &
< && " &
=0 00 >/5(,# #(+" ,+% ( ! ,"' ?:..
$&' 40 % "&' ;5 5
%-. "/0+#
@A?B
/4
,
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
,: &#
: ,
> >
> >
> > > > > >
> > >
> >
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
C > DE
>
C DE
C >DE
>
C DE
C >
DE
C >DE
C > DE
C DE
C >DE
C >DE
>
C >
DE
C >DE
>
C >DE
>
>
>
>
C DE
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
2, "'
'# &
; "( 4 " '# F
) /"
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
< 4 *G
;2 H #&" !."'
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
;2> I 0 0"'&' " ".
;2> /:"' " ",##. 0 : "( , &
;2> <,#& : 0 . 0#&& 9"#
;2> (, & G#,,&'
;2> <,#& 5&&" 5 " "( 0 &&
7 'J
/KL D
D
!;/?
MN
D
D
AA -+N
D
D
)!N
7 ,
D
D
@A?N MO 3&,
D
D