Morgunblaðið - 28.05.2005, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Flestir munu kannast viðorðatiltækin láta ljós sittskína og setja ekki ljóssitt undir mæliker. Þau
eiga rætur sínar í Biblíunni (Matt.
5, 15) og vísar ljós upprunalega til
‘góðverka’ en síðar til ‘hæfileika’
og mæliker merkir ‘mæliaskur;
ker, ílát til að mæla e-ð í’. Sá sem
er góður með sig lætur bera á
þekkingu sinni eða hæfileikum,
lætur ljós sitt skína, og um þann
sem lætur ekki lítið yfir eigin verð-
leikum getum við sagt: Hann setur
ekki ljós sitt undir mæliker. Í
Kastljósi var nýlega (11.4.05) rætt
um formannsefni Samfylking-
arinnar og þá var sagt: hans [Öss-
urar] störf eru undir mælikeri
þessa dagana í merkingunni ‘störf
hans eru í brennidepli, til skoð-
unar’. Umsjónarmaður taldi satt
að segja að um mismæli væri að
ræða enda hefur Össur vænt-
anlega engan áhuga á að setja
störf sín undir mæliker í hefðbund-
inni merkingu. En það var ekki svo
vel að dæmið væri stakt því að
tveimur dögum síðar gat að líta
svipaða málbeitingu: Þeir sem
hefja leik á því að gagnrýna vinnu-
brögð hljóta að hlíta því að þeirra
eigin vinnubrögð séu sett undir
mæliker (Mbl. 13.4.05). Umsjón-
armaður hélt að umrædd orða-
tiltæki væru býsna gagnsæ að
merkingu en dæmin benda til að
svo sé ekki. Vel má vera að merk-
ing orðsins mæliker sé ekki skýr í
huga allra en hér sem endranær
ber að fara eftir málvenju.
Í pistlum sínum hefur umsjón-
armaður nokkrum sinnum vikið að
því að í máli sumra virðist nokkur
óvissa um notkun forsetninganna
að og af. Þessi óvissa leiðir til þess
að notkun forsetningarinnar að
færist í vöxt á kostnað forsetning-
arinnar af. Grunnmerking forsetn-
ingarinnar að vísar m.a. til hreyf-
ingar, t.d. ganga að e-u (tilboði),
vinna að e-u, stefna að e-u o.s.frv.
Forsetningin af vísar hins vegar til
hreyfingar af stað (hvaðan) en
einnig til háttar, t.d. vinna að e-u af
alefli og vinna af heilum hug. Sam-
kvæmt þessu ætti að vera skýr
merkingarmunur á orðasambönd-
unum vinna af heilindum og vinna
að heilindum. Hið fyrra er algengt
og auðskilið en hið síðara sam-
ræmist ekki málvenju. Í Frétta-
blaðinu var þó að finna eftirfarandi
dæmi: ég þekkti ekki leikhúsfólk
að öðru en vinna að heilindum hvað
með öðru (6.5.2005).
Af svipuðum toga eru fjölmörg
önnur dæmi. Þannig er mikill
munur á því að taka sér alræð-
isvald og taka að sér tiltekið verk-
efni. Þessum orðasamböndum
virðist hafa slegið saman í eftirfar-
andi dæmi: taka að sér alræðisvald
(Útv. 1.4.05). –
Fram til þessa
hafa menn lagt
fram tillögur um
e-ð eða tillögur til
breytingar á lög-
um en nú er öldin
önnur, t.d.: til-
lögur að breyt-
ingum (Fréttabl.
13.5.04); leggja
fram tillögur að
kjarasamningi
(Fréttabl. 6.5.04);
lagt fram breyt-
ingartillögur við
tillögu samgönguráðherra ... að
samgönguáætlun (Mbl. 9.5. 2005)
og ... frumvarp að lögum [þ.e. til
laga] (Mbl. 17.3.05). Slík dæmi eru
ekki til fyrirmyndar.
Orðatiltækið hafa ekki erindi
sem erfiði (‘ná ekki markmiði sínu
(þrátt fyrir mikla viðleitni)’) á sér
fornar rætur því að svipað orðafar
er að finna í Eddukvæðum. Ætla
má að það hafi lengi verið í föstum
skorðum. Nýlega rakst umsjón-
armaður á dæmi um afbökun þess:
Japanski utanríkisráðherrann
hafði ekki árangur sem erfiði er
hann flaug til Peking ... (Fréttabl.
16.4.05).
Nýlega (Mbl. 15.5.05) las um-
sjónarmaður ágæta grein eftir
Freystein Jóhannsson í Morg-
unblaðinu um svo kallað Dýra-
fjarðarmál (tilraunir Frakka til að
ná fótfestu á Vestfjörðum um
miðja 19. öld). Þar fór saman
skemmtilegt efni og áhugavert og
ágæt framsetning. Þar var t.d.
komist svo að orði: En Repp reri
ekki einni ár í Dýrafjarðarmálinu
og Á hinn bóginn hafa Danir vafa-
laust rennt í grun, að ... Í fyrra
dæminu notar greinarhöfundur
sjaldgæft orðatiltæki sem að mati
umsjónarmanns hljómar vel og er
fyllilega gagnsætt að merkingu. Í
síðara dæminu er um að ræða
orðasamband sem er nokkuð á
reiki í nútímamáli: renna grun í e-ð
eða (síður) e-n rennir grun í e-ð.
Notkun greinarhöfundar er í sam-
ræmi við málvenju og uppruna.
Nafnorðið skotspónn merkir
‘skotskífa, skotmark’ og af því eru
mynduð orðasamböndin hafa e-n
að skotspæni ‘veitast að e-m, hæð-
ast að e-m; beina spotti sínu að
e-m’ og heyra e-ð á skotspónum ‘fá
lausafregnir um e-ð/af e-u’. Þessi
orðasambönd eiga sér langa sögu í
íslensku og eru hluti af eðlilegu
máli. Hitt er nýtt og getur ekki tal-
ist til fyrirmyndar að beina skot-
spónum að e-u ‘gagnrýna e-ð’ eins
og lesa mátti í grein í Morgun-
blaðinu: Í báðum greinunum er
skotspónunum beint að svokölluðu
‘tveggja lækna mati’ (Mbl. 7.4.05).
Úr handraðanum
Sagnarsambandið dirka e-ð upp
er hvorki að finna í íslenskum
orðabókum né í skrám Orðabókar
Háskólans. Umsjónarmanni er það
þó tamt, t.d. dirka upp lás/læsingu/
peningaskáp í merkingunni ‘stinga
upp’. Það mun einnig vera kunnugt
í myndinni dýrka e-ð upp, e.t.v.
með vísan til þess er ‘e-ð er opnað
með brögðum, töfrað upp’. Annar
kostur er sá að telja að framburð-
armyndin dírka hafi orðið dýrka
við ofvöndun (eða misskilning).
Orðmyndina dirka má telja rétta
og er hún fengin úr dönsku: dirke
noget op, dirke en lås op. Það vísar
til þess að d. dirk er heiti á verk-
færi sem þjófar nota en það mun
vera skrautyrði myndað af þ.
Didrich, sbr. einnig karlmanns-
heitið Dirk. — Það er því í alla
staði rétt sem stóð í Fréttablaðinu:
komst úr klefa sínum með því að
dirka upp lás (11.05.2005).
Í pistlum sín-
um hefur um-
sjónarmaður
nokkrum
sinnum vikið
að því að í
máli sumra
virðist nokkur
óvissa um
notkun for-
setninganna
að og af.
jonf@hi.is
ÍSLENSKT MÁL
Jón G. Friðjónsson 52. þáttur
Í BYRJUN þessa mánaðar stóð
yfir sérstakt átak á vegum ÍSÍ um
aukna hreyfingu sem fólst í því að
hvetja fólk til að hjóla eða ganga í
eða áleiðis í vinnuna í stað þess að
nota einkabílinn. Þannig er hægt að
slá margar flugur í
einu höggi, þ.e. efla
heilsu, vernda um-
hverfi og spara fé.
Sjálfur hafði ég ekki
hjólað að ráði í áratug
þegar ég lagði af stað á
hjólinu ofan frá rótum
Vatnsendahæðar nið-
ur í miðborg Reykja-
víkur. Það tók rétt ríf-
lega hálftíma að hjóla
þessa 10 kílómetra
sem leið lá á stígum,
m.a. meðfram Elliða-
ánum, í Laugardalnum
og meðfram Sæbraut-
inni. Leiðin til baka
var vissulega erfiðari,
enda dálítið upp í móti
síðasta spölinn. Það
verður að viðurkenn-
ast að maður var dálít-
ið lúinn eftir fyrstu
ferðirnar og aumur á
vissum stöðum fyrstu
dagana. En það leið
hjá. Það er líka ágætt að vita af því
að ef maður þreytist, eða ef það rign-
ir eða hvessir verulega er yfirleitt
hægt að fara með hjólið í strætó!
Nagladekk eru
mikill skaðvaldur
Það sem vakti fyrst athygli mína á
hjólaleiðinni voru öðru vísi hljóð, þ.e.
árniðurinn og fuglasöngurinn í
Elliðaánum, og svo þungur umferð-
arniðurinn á Reykjanesbraut og
Miklubraut sem var meiri en ég
hafði heyrt áður, innilokaður í einka-
bílnum. Ég tók eftir því að talsvert
margir voru enn á nagladekkjum
þótt nokkuð væri liðið á maímánuð.
Nagladekkin valda ekki aðeins meiri
hávaða við umferðaræðar, heldur
heyrði maður bókstaflega hvernig
þau rifu upp malbikið, og svo dreifa
þau ryki og tjöru yfir næsta ná-
grenni, valda miklum
skaða á götum og eru
sögð stuðla að heilsu-
farsvandamálum. Þá
var nú viðkunnanlegra
að finna angan af gróðr-
inum í Laugardalnum
og lykt af sjávarþangi
við Sæbrautina.
Bætt lýðheilsa
Þetta hjólreiðaátak
leiðir hugann að um-
ræðu um umhverfi og
lýðheilsu sem staðið
hefur yfir í Reykjavík í
tengslum við endur-
skoðun á umhverf-
isstefnunni Staðardag-
skrá 21. Nokkur atriði
eru talin geta bætt lýð-
heilsuna verulega. Eitt
er aukin hreyfing. Ann-
að er aukin fé-
lagsþátttaka af ýmsu
tagi. Hið þriðja er
minni loftmengun í
borginni. Það sem mestri loftmeng-
un veldur er umferðin, bæði út-
blástur frá bifreiðum og svo nagla-
dekkin sem rífa upp talsvert af
malbiki ár hvert.
Það hlýtur því að vera forgangs-
atriði að draga úr loftmengun frá
umferðinni. Einfaldasta og áhrifa-
ríkasta ráðið er að geyma einkabíl-
inn heima, að minnsta kosti við og
við, og prófa í staðinn að ganga,
hjóla eða nota strætó á leið í vinn-
una. Þar munar um hverja ferð.
Sumir hjóla alla daga, aðrir í fáein
skipti í viku eða sjaldnar. Á þann
hátt getur fólk bætt heilsu og sparað
útgjöld. Ekki er verra að þá verða
bílastæðavandamál minni við vinnu-
staði. Það er því hægt að fella nokkr-
ar keilur í einu í þessu ef viljinn er
fyrir hendi.
Hjólað í vinnuna
Stefán Jóhann Stefánsson
fjallar um gildi hjólreiða
Stefán Jóhann
Stefánsson
’ Það hlýtur þvíað vera for-
gangsatriði að
draga úr loft-
mengun frá um-
ferðinni.‘
Höfundur er Samfylkingarfélagi og
fulltrúi Reykjavíkurlistans í Um-
hverfisráði Reykjavíkur.
Fréttasíminn
904 1100
ÉG LEGG BARA FYRR AF STAÐ!
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grunda
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
27
94
7
05
/2
00
5