Morgunblaðið - 28.05.2005, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 28.05.2005, Qupperneq 64
FJÖLMENNI var á glæsilegum lokatónleikum tón- leikaferðalags Kristins Sigmundssonar og Jónasar Ingimundarsonar um Norðurlönd sem fóru fram í Klettakirkjunni í Helsinki föstudagskvöldið 20. maí. Á dagskrá tónleikanna voru íslensk sönglög m.a. eftir Jón Leifs, Atla Heimi Sveinsson og Sigfús Einarsson, söngljóð eftir Franz Schubert og óperuaríur úr Rak- aranum í Sevilla og Don Carlo. Tvö stærstu dagblöð Finnlands, Helsingin Sanomat og Hufvudstadsbladet, birtu afar jákvæðar umsagnir í kjölfar tónleikanna. Eftir tónleikana birtist gagnrýni í Helsingin Sanomat eftir Hannu-Ilari Lampila, einn að- altónlistargagnrýnanda Finna, undir yfirskriftinni: „Mikill maður með mikla rödd. Með hlýju og næmi kom Kristinn Sigmundsson, sá og sigraði … Líkamleg stærð bassasöngvara og bassabaritóna þarf ekki endilega alltaf að vera í samræmi við umfang sjálfrar radd- arinnar. Hinn stóri íslenski víkingur, Kristinn Sig- mundsson, bassasöngvari, veldur ekki vonbrigðum. Röddin er jafn stæðileg og maðurinn sjálfur. Það er þó ekki stórfengleiki raddar Kristins Sigmundssonar sem er áhrifamestur í söng hans, heldur kjarnríki, hlýja, fegurð og margbreytileiki hennar … Svona einlægar og ekta tilfinningar eru sjaldséðar nú til dags.“ Síðar í gagnrýninni stendur: „Í flutningi sínum á þremur óperuaríum sannaði Kristinn Sigmundsson að hann tilheyrir meisturunum á sínu sviði … Samspil Kristins Sigmundssonar og Jónasar Ingimundarsonar, píanóleikara, var fullkomið. Píanóleikarinn hafði sér- stakan hæfileika til að bregðast við sístreymandi og lif- andi flutningi listamannsins … Í lokin tók söngvarinn aríu úr Rakaranum frá Sevilla eftir Rossini. Kristinn Sigmundsson sleppti sér alveg í samsuðu af kómískri illgirni og vitleysu hlutverksins og hreif áhorfendur með sér.“ Eftir tónleikana var móttaka í bústað sendiherra- hjónanna í Helsinki, Jóns Baldvins Hannibalssonar og Bryndísar Schram. Þar var margt um góða gesti úr tónlistar- og menningarlífi Finna, m.a. Monica Groop óperusöngkona sem söng með Kristni í Kölnaróperunni og Petri Sakari sem er Íslendingum að góðu kunnur sem stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Tónlist | Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingimundarson Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingimundarson í Klettakirkjunni í Helsinki. Glæsilegir tónleikar í Helsinki 64 LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ VERKIÐ er einskonar göng með inn- byggðri fjarvíddarvillu byggð úr ein- angrunarplasti og hengd í loftið þannig að þau svífa rétt yfir yfirborði gólfsins og fara á hreyfingu við minnstu snertingu. Áhorfandinn verður fyrir tvenns konar skyntrufl- unum fyrir vikið, bæði hvað varðar lengd ganganna og vegna hreyfing- arinnar sem valda ekki ósvipaðri skynvillu og menn verða fyrir þegar þeir eru ekki vissir um hvort báturinn hreyfist eða bryggjan og áhrifin ekki ólík vægri sjóriðu. Carsten Höller lagði stund á nám í landbún- aðarfræðum með atferli skordýra sem sérgrein, en í framhaldi af því fór hann að skapa myndlist. Það má segja að sérgrein hans nú sé að kanna atferli sýningargesta í innsetningum sínum og gagnvirkum skúlptúrum um leið og hann beinir sjónum sínum að þeim kerfum sem liggja að baki til- veru mannsins. Samkvæmt texta sem fylgir með sýningunni er áhorfandinn þannig orðinn viðfang listamannsins í rannsóknum hans á skynjun og sál- arfræði, og listamaðurinn einskonar dulbúinn atferliskönnuður. Þessi skil- greining á listamanninum sem vís- indamanni og áhorfandanum sem við- fangi hefur verið áberandi í samtímalistum í þó nokkurn tíma og skilgreiningin ein og sér nær ekki að vera áhugaverð lengur nema útfærsl- an sé þeim mun betur heppnuð. Stundum hefur áhorfandinn það á til- finningunni að listamenn álíti þá ekki skynja né upplifa umhverfi sitt á þann margbrotna hátt sem mögu- leikar þess hafa og verkin bera oft keim af einhverri skynjunaruppeld- isfræði. Þá líkjast innsetningarnar oft strúktúrum á vísindasöfnum og tívolíum sem hafa svipað kennslugildi hvað varðar brellur skynjunarinnar með mismunandi miklu skemmtana- og afþreying- argildi. Þegar gengið er inn í göng Höllers má segja að áhorfandinn upplifi verkið sem skynheild, þar sem blandast saman væntingar vegna fyrirfram gefinna upplýs- inga um eðli og virkni verksins við reynsluheim hans og minning- artengsl á forsendum myndlist- ararfs jafnt sem hið hversdags- lega. Þannig verður efnisnotkunin stór hluti af heildarupplifuninni, lyktin af einangrunarplastinu er mjög sterk og athyglin beinist að áferð og eðli efnisins sem við flest þekkjum sem ódýrt og létt bygg- ingarefni. Það verður þess valdandi að þrátt fyrir sjónrænan massívan þunga innsetning- arinnar þá leiðréttir heilinn sam- stundis þann þátt og áhorfandinn skynjar verkið létt í samræmi við efnið. Verkið nær þar af leiðandi ekki að vekja efasemdir né rugla áhorfandann í rýminu að ráði, hvað þá að kollsteypa forsendum áhorfandans fyrir skynjunum sínum sem samkvæmt texta sýningarinnar er ætlun listamannsins. Þetta kemur þó ekki í veg fyrir að hægt sé að hafa gaman af innsetningunni. Verkið virkar einfalt og tært og nær að hafa áhrif á jafnvægisskynið og fjarvídd- arupplifunina um leið og það kemur örugglega mörgum tímabundnum listunnendum þægilega á óvart hversu fljótlegt er að skoða og upplifa það, nú þegar svo mikið framboð er á myndlist á stuttum tíma. Einfalt, létt og skemmtilegt MYNDLIST Listahátíð Carsten Höller. „Reykjavík Swinging Corridor“. Opið miðvikudaga til sunnudaga 14–18. Sýningin stendur til 10. júlí. Safn Verk Carsten Höller. Þóra Þórisdóttir Morgunblaðið/Golli ÞRÍR af fjórum ljóðaflokkum úr nýrri ljóðabók Njarðar P. Njarð- vík, Aftur til steinsins (Undir regnboga; Veistu eitthvað um vindinn; Steinatal), hafa verið þýddir á búlgörsku og gefnir út í sérstakri bók með heitinu Tajn- opis na dukha (Huldurit andans). Fenginn var Íslendingur í Búlg- aríu, Ægir E. Sverrisson, til að hráþýða ljóðin, en síðan tók við eitt helsta ljóðskáld Búlgara, Ljubomir Levchev. Í formála seg- ist hann sjá í ljóðunum hina venju- legustu hluti umbreytast í goðsöguleg undur, vind- inn, stein- ana, regn- bogann, og jafnvel hrafnarnir sem hoppa á götunum séu ekki venjulegir heldur njósn- arar Óðins. Hann lýkur formála sínum með þessum orðum: „Þakka þér fyrir, gamli vinur minn! Þakka þér fyrir skáldskap- inn þar sem þú sameinar heimsættirnar og þar sem við getum verið saman. Í þetta sinn kemur þú ekki í heimsókn. Með þessari bók verður þú hér að ei- lífu.“ Bókin er 85 blaðsíður gefin út af Artik 2001. 99 eintök eru inn- bundin, númeruð og árituð. Ljóð Njarðar P. Njarðvík á búlgörsku Njörður P. Njarðvík Leikhúsgestir munið glæsilegan matseðil S: 568 0878 Rokksveit Rúnars Júlíussonar í kvöld Stóra svið Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Í kvöld kl 20 Síðasta sýning CIRKUS CIRKÖR 14.-17. JÚNÍ Sirkusinn sem allir tala um! BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA - gildir ekki á barnasýningar! Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Einleikur Eddu Björgvinsdóttur Í kvöld kl 20, Su 29/5 kl 20, Fi 2/6 kl 20, Fö 3/6 kl 20, Lau 4/6 kl 20, Su 5/6 kl 20, Fi 9/6 kl 20, Fö 10/6 kl 20, Lau 11/6 kl 20 Aðeins 3 sýningarhelgar eftir KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren Í samstarfi við Á þakinu Lau 4/6 kl 14 - UPPSELT, Su 5/6 kl 14 - UPPSELT, Su 12/6 kl 14, Su 12/6 kl 17, Lau 18/6 kl 14, Su 19/6 kl 14, Su 26/6 kl 14 99% UNKNOWN - Sirkussýning CIRKUS CIRKÖR FRÁ SVÍÞJÓÐ Þri 14/6 kl 20, Mi 15/6 kl 20, Fi 16/6 kl 20, Fö 17/6 kl 20 Aðeins þessar sýningar 25 tímar Dansleikhús/samkeppni LR og Íd í samstarfi við SPRON Fi 9/6 kl 20 - kr. 2.500 Einstakur viðburður TRANS DANSE EUROPE Tanec Praha, Tékklandi Su 29/5 kl 20 - Miðasala hjá Listahátíð ÞUMALÍNA Frá Sólheimaleikhúsinu Fi 2/6 kl 20 – kr 1.000 TRANS DANSE EUROPE Nomadi Productions - Finnland Su 29/5 kl 17:00 Miðasala hjá Listahátíð Stóra svi›i› DÍNAMÍT - Birgir Sigur›sson KLAUFAR OG KÓNGSDÆTUR - H.C. Andersen fiETTA ER ALLT A‹ KOMA - Hallgrímur Helgason/leikger› Baltasar Kormákur M†RARLJÓS - Marina Carr Sun. 29/5 nokkur sæti laus. Allra síðasta sýning Smí›averkstæ›i› kl. 20:00 Valaskjálf Egilsstö›um RAMBÓ 7 - Jón Atli Jónasson EDITH PIAF Á AUSTURLANDI - Söngdagskrá Mið. 1/6 kl. 20:00, fim. 2/6 kl. 20:00. Mi›asala á Bókasafni Héra›sbúa. Opi› alla virka daga frá kl. 14-19. Sími 471 1546 9. sýn. fös. 3/6 nokkur sæti laus, 10. sýn. lau. 11/6, 11. sýn. sun. 12/6. Í kvöld lau. 28/5 örfá sæti laus, lau. 4/6 örfá sæti laus, fim. 9/6, fös. 10/6. Aðeins örfáar sýningar vegna fjölda áskorana. Í dag lau. 28/5 kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 5/6 kl. 14:00 nokkur sæti laus. Síðustu sýningar í vor. Í kvöld lau. 28/5 örfá sæti laus, fös. 3/6 nokkur sæti laus, lau. 4/6. Miðasölusími: 551 1200 Netfang: midasala@leikhusid.is Veffang: www.leikhusid.is. Miðasalan er opin kl. 12:30-18:00 mán. og þri. Aðra daga kl. 12:30-20:00. símapantanir frá kl. 10:00 virka daga Þjóðleikhúsið sími 551 1200 ÞÚ VEIST HVERNIG ÞETTA ER Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins. Stúdentaleikhúsið. Þri. 31/5 kl. 20:00 uppselt kl. 22:30 nokkur sæti laus. ÞÚ VEIST HVERNIG ÞETTA ER ÁHUGALEIKSÝNING ÁRSINS 31. MAÍ! loftkastalinn.is 552 3000☎ STÓRKOSTLEGUR SÖNGLEIKUR Nokkur sæti laus í kvöld - Tryggðu þér miða strax! • Laugardag 28/5 kl 20 NOKKUR SÆTI LAUS • Föstudag 3/6 kl 20 LAUS SÆTI • Laugardag 4/6 kl 20 LAUS SÆTI sýnir ENGINN MEÐ STEINDÓRI - fjölskyldusplatter í Möguleikhúsinu Í kvöld kl. 20.00. Síðustu sýningar! Miðasala í s. 551 2525 og á www.hugleikur.is Sýningin hentar ekki börnum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.