Morgunblaðið - 29.05.2005, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 29. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
*Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting í 7 nætur og íslensk
fararstjórn. Barnaafsláttur er ekki veittur.
Ver›i› er netver›. Bóka flarf og grei›a
sta›festingargjald, e›a fullgrei›a fer› á netinu.
Ef bóka› er símlei›is e›a á skrifstofu, grei›ist
bókunar- og fljónustugjald, sem er 2.000 kr.
á mann.
Úrval-Úts‡n
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100
Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600
Selfossi: 482 1666 www.urvalutsyn.is
Mimosa – Frábærar íbúðir
39.900* kr.
Verðdæmi:
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
85
47
05
/2
00
5
Ítalíutilboð í júní
á mann óháð fjölda, þó lágmark 2 í íbúð í eina viku.
Ítalía
Lido di Jesolo
HERMÖNNUM Varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli hefur fækkað
um meira en helming á síðustu
tveimur áratugum, úr rúmlega
3.100 árið 1986 í um 1.450 um síð-
ustu áramót. Fækkunin hefur ekki
verið jafnmikil í röðum fjölskyldu-
manna og íslenskra starfsmanna á
vellinum en hún er samt sem áður
veruleg eða um 35–40%. Flugvélum
og öðrum búnaði hefur sömuleiðis
fækkað verulega. Þrátt fyrir það
eru tekjur Íslendinga af Varnarlið-
inu enn um 1,1% af vergri lands-
framleiðslu og 2,7% af útflutnings-
tekjum.
Við lok kalda stríðsins urðu
þáttaskil í rekstri varnarstöðv-
arinnar. Samkvæmt upplýsingum
frá Varnarliðinu var orrustuflug-
vélum fækkað úr 18 í 12 strax árið
1991 og árið eftir var rekstri
AWACS ratsjárflugvéla hætt. Á ár-
unum 1990–1996 fækkaði flugvélum
varnarliðsins úr 37 í 18 og her-
mönnum um þriðjung, úr 3.300 í
2.200. Árið 1991 var varnarstöðin á
Keflavíkurflugvelli sjöundi stærsti
byggðakjarni landsins með um
5.400 íbúa en hún er núna í 11. sæti
með rúmlega 3.300 manns innan
vallargirðingar. Rétt er að taka
fram að engir íslenskir starfsmenn
liðsins búa á varnarsvæðinu. Breytt
staða í heimsmálunum varð til þess
að íslensk og bandarísk stjórnvöld
gerðu sérstaka bókun við varn-
arsamninginn árið 1994 þar sem
m.a. var kveðið á um að a.m.k. fjór-
um orrustuflugvélum skyldi haldið
úti á Keflavíkurflugvelli ásamt
nauðsynlegum búnaði til virkra loft-
varna.
Lægri tign
Allt frá því Bandaríkjafloti tók
við rekstri varnarstöðvarinnar árið
1961 var yfirmaður hennar flotafor-
ingi (aðmíráll) af lægstu gráðu. Sú
staða jafngildir einnar stjörnu hers-
höfðingja en alls eru stjörnurnar
fjórar. Það endurspeglar minnk-
andi umsvif Varnarliðsins að í fyrra
tók ofursti úr flughernum við yf-
irstjórn á vellinum en ofurstatign er
einni gráðu lægri en tign aðmíráls.
Að sögn Friðþórs Eydals, upp-
lýsingafulltrúa Varnarliðsins, hefur
það valdið nokkrum misskilningi að
yfirmaður Varnarliðsins sé úr flug-
hernum og margir talið það til
marks um að flugherinn hefði tekið
við stjórn varnarstöðvarinnar. Frið-
þór segir að svo sé ekki og bendir á
að yfirstjórn Varnarliðsins sé svo-
nefnd samræmd herstjórn, þ.e. yf-
irmaður hennar og starfslið geti
komið úr öllum deildum Banda-
ríkjahers, þ.e. flota, landher eða
flugher. Varnarstöðin sé hins vegar
rekin af Bandaríkjaflota sem fyrr.
Ótímabært sé að spá fyrir um hvort
því verði breytt í framtíðinni.
Að sögn Friðþórs er flug-
vélakostur Varnarliðsins að jafnaði
fjórar til sex F-15 orrustuflugvélar
sem skipt er út á þriggja mánaða
fresti vegna hagræðis í viðhaldi, ein
eldsneytisbirgðavél og fjórar björg-
unarþyrlur, auk einnar varaþyrlu.
Friðþór segir að þyrlurnar fari
endrum og sinnum til æfinga í öðr-
um löndum í 2–3 vikur í senn og þar
séu æfð ýmis atriði sem ekki sé
hægt að æfa hér á landi, s.s. að
herma eftir björgunarflugi yfir víg-
velli. Ávallt séu ein til tvær þyrlur
til taks hér á landi. Þá hafi þyrlur
frá liðinu verið sendar til að taka
þátt í ákveðnu verkefni í Sierra-
Leone árið 2003 sem hafi tekið
lengri tíma.
Samdráttur síðustu ára og vöxtur
íslenska hagkerfisins veldur því að
efnahagslegt mikilvægi varn-
arstöðvarinnar hefur snarminnkað.
Hin síðari ár náðu tekjurnar há-
marki á öndverðum níunda ára-
tugnum þegar varnarliðið lagði til
rúmlega 3% af vergri landsfram-
leiðslu og um 8% af útflutnings-
tekjum. Samkvæmt upplýsingum
Seðlabanka Íslands leggur það nú
til 1,1% af vergri landsframleiðslu
og 2,7% af útflutningstekjum. Upp-
hæðin í Bandaríkjadölum hefur þó
heldur aukist hin síðari ár, vænt-
anlega að stórum hluta vegna lækk-
unar á gengi Bandaríkjadals, og var
á síðasta ári 155 milljónir sem jafn-
gildir um 10 milljörðum íslenskra
króna. Rétt er að leggja áherslu á
að nettótekjur af varnarliðinu eru
miðaðar við öll viðskipti og þjónustu
við varnarliðið.
Mikilvægt á Suðurnesjum
Stofnanir og fyrirtæki á Suð-
urnesjum hafa einnig notið góðs af
nálægðinni við Varnarliðið og árið
2003 er talið að þau hafi fengið ríf-
lega 2,7 milljarða í greiðslur fyrir
verktöku og kaup á vörum og þjón-
ustu, samkvæmt upplýsingum frá
Varnarliðinu. Þá hefur Varnarliðið
verið mikilvægur atvinnuveitandi
fyrir íbúa á Suðurnesjum en um
70% af íslenskum starfsmönnum
liðsins eru búsettir þar. Mikilvægi
vallarins fyrir Suðurnesjamenn fer
þó minnkandi því frá því í október
2002 hefur íslenskum starfs-
mönnum á Keflavíkurflugvelli
fækkað um 230 manns. Að auki hafa
verið harkalegar deilur um samn-
inga íslensku starfsmannanna við
varnarliðið og hafa þær ítrekað
endað fyrir dómstólum.
„Ísland úr NATO og herinn
burt,“ kyrjuðu herstöðvarandstæð-
ingar og gera enn. Ísland er ekki á
leið úr NATO en meira en helm-
ingur hersins er farinn burt.
Fréttaskýring | Hermönnum á Keflavíkurflugvelli fækkar jafnt og þétt
Herinn er nú
tæplega hálf-
drættingur
Morgunblaðið/Þorkell
Hermönnum hefur stórlega fækkað, mikið hefur verið um uppsagnir ís-
lenskra starfsmanna og í stað flotaforingja er ofursti við stjórn.
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
GYLFI Arnbjörnsson, framkvæmda-
stjóri Alþýðusambands Íslands, segir
að ekki komi til álita að bregðast við
ofhitnun hagkerfisins vegna slælegr-
ar efnahagsstjórnar stjórnvalda með
því að lækka vaxtabætur sem lág-
launafólk njóti og fella þær niður til að
koma til móts við þá þenslu sem verði
vegna skattalækkana hátekjufólks,
en Geir H. Haarde, fjármálaráðherra,
segir í Morgunblaðinu í sl. fimmtudag
að til greina komi að endurskoða
vaxtabótakerfið frá grunni.
„Það getur ekki verið ætlun ríkis-
stjórnarinnar að mæta eigin þenslu-
áhrifum af skattalækkunum hátekju-
fólks með því að auka skattbyrði á
lágtekjufólk. Alþýðusambandið lýsir
algerri andstöðu við slíka hugsun,“
sagði Gylfi.
Hann sagði að vaxtabætur væru
hluti af langtímafjárfestingu einstak-
linga og viðbrögð eins og þau að af-
nema vaxtabótakerfið væru afskap-
lega óréttlát því með því móti væri
fótunum kippt undan fólki sem tekist
hefði á hendur skuldbindingar til
næstu 20–30 ára. Ef aðstæður ein-
staklinga breyttust vegna betri tekna
skertust vaxtabætur og það væri al-
veg skelfilegt þegar stjórnvöld væru
ár eftir ár að breyta forsendunum í
kerfinu og því sem fólk hefði mátt
gera ráð fyrir. Það
væri búið að gera
slíkar breytingar
margoft og síð-
asta breytingin
hefði verið gerð á
síðasta ári og þá
hefðu vaxtabætur
lækkað.
„Við erum al-
gerlega andvígir
þessu og teljum að
það væri nær að stjórnvöld litu á
þessa greiningu og þessa ráðgjöf og
þennan áfellisdóm OECD og huguðu
að sínu hlutverki, sérstaklega varð-
andi fjárfestingar og skattkerfis-
breytingarnar,“ sagði Gylfi.
Hann sagði að skattkerfisbreyting-
arnar kæmu á mjög vondum tíma og
yllu svo miklum skaða að sú hugsan-
lega hagsbót sem gæti verið að þessu
fyrir almenning hyrfi öll í aukinni
verðbólgu vegna verðtryggingar lána.
Hann bætti því við að það væri mik-
ið áhyggjuefni að svona hugmyndir
skyldu líta dagsins ljós. Það væri ver-
ið að fórna þeim sem minnst mættu
sín og hallast stæðu í samfélaginu.
Þeir ættu að bera byrðarnar og þarna
væri verið að kynna til leiks enn eina
áætlunina í þeim efnum. „Það er bara
hreint út sagt skelfilegt að svona hug-
mynd skuli sett fram við þessar að-
stæður og af þessum ástæðum. Það er
auðvitað mjög mikið áhyggjuefni með
hvaða hætti stefnan er mótuð og hvað
það er sem hefur áhrif og forgang í
þeirri stefnu. Það er í það minnsta
ekki það fólk sem við erum að berjast
fyrir og hafa mestar áhyggjur af.“
Endurtekin hagstjórnarmistök
Hann sagði að stjórnvöld væru að
endurtaka sömu hagstjórnarmistökin
og árin 1999–2001 þegar verðbólgan
hefði farið úr 1,5% í yfir 10% og geng-
isvísitalan ekki staðnæmst fyrr en í
151 stigi. „Það er ekki bara okkar
mat. Það er mat alþjóðastofnana. Al-
þjóðabankinn er búinn að koma þessu
á framfæri líka. Allir sem eru með
einhverja heiðarlega efnahagsráðgjöf
og efnahagsumfjöllun, allir nema fjár-
málaráðuneytið, eru þeirrar skoðunar
að það sé verið að gera grundvallar-
mistök í efnahagsstjórn,“ sagði Gylfi.
Framkvæmdastjóri ASÍ segir samtökin algerlega andvíg
endurskoðun vaxtabótakerfisins frá grunni
Verið að fórna þeim
sem minnst mega sín
Gylfi Arnbjörnsson
TÆPLEGA fertug kona hefur verið sýknuð
í Héraðsdómi Reykjavíkur af ákæru um að
hafa stungið sambýlismann sinn með hnífi
ítrekað snemma árs 2004 á heimili þeirra í
Reykjavík.
Fram kemur í dómnum að ákærða og
sambýlismaður hennar voru mjög drukkin
þegar atburðurinn varð. Kom til stimpinga
milli þeirra og fékk sambýlismaðurinn fimm
stungusár, þrjú á brjóst og tvö á kvið, sem
reyndust þó ekki lífshættuleg. Segir að
ákærða hafi frá upphafi neitað sök og sagt
að sambýlismaðurinn hafi hlotið áverkana í
stimpingum þegar hún reyndi að ná af hon-
um hnífnum. Framburður sambýlismanns-
ins hafi ekki verið stöðugur hvað atburða-
rásina varðar og ummerki á vettvangi skeri
ekki úr í þessum efnum. Verði gegn neitun
ákærðu að telja ósannað að hún hafi af
ásetningi lagt til sambýlismanns síns og
beri því að sýkna hana af ákærunni og
leggja allan sakarkostnað á ríkissjóð.
Skylda dómstóla að tryggja
að málsaðilar hafi skjól
Dómarinn segir síðan í dómnum að ekki
verði komist hjá því, þótt það komi ekki við
efni málsins, að víkja nokkrum orðum að
framkomu myndatökufólks í dómshúsinu á
undanförnum misserum. „Teknar hafa ver-
ið myndir af ákærðu þegar hún hefur komið
í dómhúsið vegna málsins, eins og af svo
mörgum öðrum sakborningum hér. Hefur
þessi óhæfa gengið svo langt að ljósmynd-
arar og kvikmyndamenn hafa tekið myndir
af fólki inn í dómsalina og inni í þeim, bæði í
leyfi og óleyfi, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga um
meðferð opinberra mála nr. 19, 1991 og 1.
mgr. 9. gr. laga um meðferð einkamála nr.
91, 1991. Ekki er ofsagt að málsaðilar, eink-
um þó sakborningar, séu stundum eltir um
dómhúsið, alveg inn í dómsalina og niður-
lægðir með nærgöngulum myndatökum.
Liggur það í augum uppi að maður, sem
sækir mál fyrir dómi eða stefnt er fyrir
dóm, á rétt á því að vera látinn í friði, svo að
hann geti gefið sig óskiptan að málinu. Það
hlýtur að vera skylda dómstólanna að
tryggja það að málsaðilarnir hafi skjól fyrir
þessari ásókn svo að þeir geti talist hafa
fengið réttláta málsmeðferð, sbr. 1. mgr. 70.
gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr.
33, 1944, sbr. lög nr. 97, 1995 og 1. mgr. 6.
mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr.
62, 1994. Fyrir utan þau ákvæði réttar-
farslaganna, sem nefnd voru hér að framan,
munu engar reglur hafa verið settar um
myndatökur í dómhúsum landsins, hvorki
af löggjafanum né af húsráðendunum.“
Sýknuð af að
hafa stungið
sambýlismann