Morgunblaðið - 29.05.2005, Qupperneq 56
56 SUNNUDAGUR 29. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Reyndu að vera þolinmóður í dag. Það
er auðvelt að missa sig út í barnalega
þrjósku, sem alls ekki fellur í kramið.
Það veistu reyndar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið er nánast heltekið af því að
festa kaup á einhverju. Hugsaðu þig
tvisvar um áður en þú kastar pen-
ingum á glæ. Það er ekki þér líkt.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Valdabarátta er líkleg í nánu sambandi
í dag. Ástæðan er líklega sú að tvíbur-
inn er að reyna að breyta einhverjum
nákomnum, eða öfugt. Það kallast af-
skiptasemi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Skrýtnar tilfinningar krauma í krabb-
anum í dag. Hann er nánast með ár-
áttu. Láttu það ekki á þig fá, þessi líð-
an breytist innan tíðar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Kraftmiklar tilfinningar gera vart við
sig í samböndum ljónsins í dag.
Reyndu að sýna þolinmæði í sam-
skiptum við aðra. Ekki valta yfir neinn
og sýndu sanngirni.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Samskipti við yfirboðara og eru tvísýn
í dag og erfitt að ná málamiðlunum.
Þetta er bara spurning um hver eigi að
vera við stjórnvölinn.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Forðastu rifrildi um stjórnmál og trú-
mál í dag. Þú átt ekki gott með að sýna
hlutleysi og ert reyndar nánast með
eitthvað á heilanum. Sýndu af þér
kæti.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn er of ákafur og ástríðu-
fullur þessa dagana og á því ekki að
reyna að deila neinu með öðrum í dag
eða áætla hver á hvað.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Stoltið hleypur með fólk í gönur í dag.
Allir eru að reyna að sanna að þeir hafi
rétt fyrir sér. Gættu þess samt að láta
ekki vaða yfir þig.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin vill koma umbótum til leið-
ar í vinnunni í dag. Hún hefur komið
auga á betri vinnuaðferðir og vill ger-
bylta kerfinu. Vandinn er að hugs-
anlega eru ekki allir sammála henni.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú fellur hugsanlega fyrir einhverjum
í dag. Ef það gerist má reikna með því
að um eftirminnilegt og stormasamt
samband geti verið að ræða.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn gerir stórbrotnar breytingar
á heimili sínu í dag. Kannski leggur
hann nýjar línur í samskiptum við aðra
fjölskyldumeðlimi. Hann vill taka til
hendinni.
Stjörnuspá
Frances Drake
Tvíburar
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert vel gefin manneskja, áhrifamikil
og fylgin þér þegar kemur að hugsjónum
þínum. Þú gefur þig ekki ef til átaka kem-
ur og reyndar eru áskorun og dramatík
þér vel að skapi. Þú ert fljót að hugsa,
hnyttin og hrífandi.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 greftra, 4 býsn,
7 bjúga, 8 dáin, 9 stúlka,
11 magurt, 13 rúða, 14
krafturinn, 15 þungi, 17
menn, 20 annir, 22 skrökv-
að, 23 kostnaður, 24 eld-
stæði, 25 nytjalönd.
Lóðrétt | 1 flokkur, 2 alir,
3 mannsnafn, 4 líf, 5 elsku-
leg, 6 gustar, 10 tímarit,
12 ádráttur, 13 hávaða, 15
slátra, 16 úrkomu, 18 álít-
ur, 19 sjófuglar, 20 fyrir
stuttu, 21 á stundinni.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 agnarsmár, 8 lýsir, 9 róaði, 10 æsa, 11 trauð, 13
feiti, 15 helga, 18 snara, 21 tóm, 22 letji, 23 áfall, 24 ald-
urtili.
Lóðrétt | 2 giska, 3 afræð, 4 skraf, 5 ábati, 6 slit, 7 hiki, 12
ugg, 14 ern, 15 hæli, 16 lítil, 17 atinu, 18 smátt, 19 aðall, 20
auli.
Tónlist
Kaffi Kúltúr | Patagonia Jazz Quartet
mun spilar á Kaffi Kúltúr, Hverfisgötu 18,
kl. 21.
Salurinn | Tölvutónlistargúrúinn John
Chowning verður með fyrirlestur og tón-
leika í Salnum í Kópavogi. Flutt verða þrjú
tímamótaverk eftir hann, auk þess sem
hann fjallar um sig og tónlist sína. Tónleik-
arnir verða í surround-hljóði og bestu
hljómgæðum. Aðgangur er ókeypis.
Myndlist
Café Karólína | Hugleikur Dagsson.
Dagsbrún, undir Eyjafjöllum | Ragnar
Kjartansson.
Eden, Hveragerði | Karl Theódór Sæ-
mundsson.
Elliheimilið Grund | Jeremy Deller.
Gerðuberg | Sýningin Stefnumót við safn-
ara II er opin virka daga frá kl. 11–17 og um
helgar frá kl. 13–17. Sjá www.gerduberg.is.
Grafíksafn Íslands | Forum For Kunst.
Gestir: Roswitha J. Pape, Werner Schaub,
Lynn Schoene, Manfred Kästner, Luitgard
Borlinghaus, Elke Wassmann, Klaus
Staeck, Dik Jungling, Werner Richter.
Götur Reykjavíkur | Margrét H. Blöndal.
Hafnarborg | Wilhelm Sasnal, Bojan Sarce-
vic, Elke Krystufek, On Kawara.
Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina-
félags Hallgrímskirkju. Guðbjörg Lind
Jónsdóttir sýnir myndverk í forkirkju og
kór Hallgrímskirkju. Sýningin stendur til 14.
ágúst.
Hallgrímskirkja | Þórólfur Antonsson og
Hrönn Vilhelmsóttir sýna ljósmyndir í Hall-
grímskirkjuturni.
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi | Auð-
ur Vésteinsdóttir.
Hrafnista | Rúna (Sigrún Guðjónsdóttir)
sýnir í Menningarsalnum á fyrstu hæð.
Kling og Bang gallerí | John Bock.
Listasafn ASÍ | Ólafur Árni Ólafsson, Libia
Pérez de Siles de Castro.
Listasafn Árnesinga | Jonathan Meese.
Listasafnið á Akureyri | Matthew Barney,
Gabríela Friðriksdóttir.
Listasafn Íslands | Dieter Roth.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Gabríel
Kuri, Jennifer Allora og Guilliermo Calza-
dilla, Brian Jungen, Hekla Dögg Jónsdóttir,
John Latham, Kristján Guðmundsson.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Dieter
Roth, Peter Fischli, David Weiss, Haraldur
Jónsson, Urs Fischer.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Útskriftarsýning nemenda við Listahá-
skóla Íslands.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Rótleysi – 8
suður-afrískir ljósmyndarar
Mokka-kaffi | Multimania – Helgi Sig. Sjá:
www.hugverka.is.
Norræna húsið | Norski málarinn Örnulf
Opdahl.
Nýlistasafnið | Thomas Hirschhorn.
Skaftfell | Anna Líndal.
Slunkaríki | Hreinn Friðfinnsson, Elín
Hansdóttir.
Smekkleysa Plötubúð – Humar eða
Frægð | Ólöf Nordal og Kelly Parr. Sýningin
heitir Coming Soon er fyrsta úrvinnsla í
samvinnu þeirra.
Suðsuðvestur | Anna Hallin sýnir málverk,
teikningar, vídeó-verk, skúlptúr og vídeó-
auga.
Vatnstankarnir við Háteigsveg | Finnbogi
Pétursson.
Vestmannaeyjar | Micol Assael.
Við Fjöruborðið | Inga Hlöðvers.
Vinnustofa Guðrúnar Kristjánsdóttur |
Guðrún sýnir olíumálverk, myndbandsverk
og innsetningu á vinnustofu sinni, Bald-
ursgötu 12. Sjá: www.gudrun.is.
Listasýning
Iða | Útskriftarnemar í ljósmyndun við Iðn-
skóla Reykjavíkur sýna lokaverkefni sín í
Iðu, Lækjargötu.
Handverk og hönnun | Starfshópur frá
Lyhty ry í Helsinki sýnir verk sín.. Lyhty ry
er sjálfseignarstofnun sem er allt í senn
heimili, skóli, verkstæði og vinnustaður
fyrir fólk með námsörðugleika. Til sýnis
eru ljósmyndir sem Pekka Elomaa ljós-
myndari hefur unnið með hópnum ásamt
öðrum verkum.
Dans
Borgarleikhúsið | Nýja svið kl. 17, Nomadi
Productions, Finnlandi sýna Flow eftir Arja
Raatikainen og Lucid Dreaming eftir Alpo
Aaltokoski Borgarleikhúsið, stóra svið kl.
20, Tanec Praha, Tékklandi, sýna Night
Moth eftir Petra Hauerova Mi non Sabir
eftir Karine Ponties www.artfest.is.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Hljóð-
leiðsögn um húsið, margmiðlunarsýning
og gönguleiðir í nágrenninu. Opið frá kl.
10–17.
Smámunasafnið í Sólgarði | Eyjafjarð-
arsveit. Opið alla daga í sumar fram til 15.
september frá kl. 13–18.
Þjóðmenningarhúsið | Fyrirheitna landið
er heiti sýningar sem segir frá ferðum
fyrstu Vestur-Íslendinganna; mormónanna
sem settust að í Utah.
Mannfagnaður
Snarrót | Páll H. Hannesson, alþjóða-
fulltrúi BSRB, mun flytja erindi um vatn hjá
Menningar- og friðarsamtökunum, 31. maí
kl. 18.30–21. Vatn telst til mannréttinda og
eignarhald á drykkjarvatni þarf að vera
samfélagseign. Hlaðborð. Ágóði af mat-
sölu fer til lagfæringa á nýrri Snarrót.
Fundurinn er öllum opinn.
Fréttir
Lagadeild Háskóla Íslands | Sesselja Sig-
urðardóttir heldur fyrirlestur um efni
kandidatsritgerðar til embættisprófs í lög-
fræði, 1. júní kl. 16.30–17.15, í stofu 101 í
Lögbergi. Ritgerðin ber heitið: Takmörk
valdheimilda Öryggisráðs SÞ í ljósi mann-
réttinda og hugsanleg úrræði í þeim efn-
um. Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Fundir
Norræna húsið | Umræðufundur í Nor-
ræna húsinu kl. 15–18. Fjallað verður um
lýðhyggjutilhneigingar í menningar- og
stjórnmálum og tengsl þeirra við sam-
tímalist. Þátttakendur eru: Jakob Boeskov,
Jakob Fenger og Jani Leinonen sem taka
þátt í Populism-sýningunni, einn sýning-
arstjóranna, Christina Ricupero, og sýn-
ingarstjórinn Vanessa Muller. Nánari uppl.
á www.nordice.is.
Fyrirlestrar
ADHD samtökin | Fyrirlestur um stað-
reyndir og goðsagnir um athyglibrest, of-
virkni og rítalín, verður í Safnaðarheimili
Háteigskirkju 30. maí kl. 20. Fyrirlesarar
eru: Ólafur Ó. Guðmundsson barnageð-
læknir og Stefán J. Hreiðarsson, sérfræð-
ingur í fötlunum barna. Allir velkomnir.
Askja – Náttúrufræðihús HÍ | Dr. Hilmar J.
Malmquist líffræðingur og forstöðumaður
Náttúrfræðistofu Kópavogs flytur erindi
sem hann nefnir: Hlýnun Elliðavatns og
áhrif á lífríki. Greint verður frá nið-
urstöðum úr eins árs vöktunarverkefni á
eðlis- og efnaþáttum og smádýrastofnum í
Elliðavatni. Fyrirlesturinn er í Öskju – Nátt-
úrufræðihúsi Háskóla Íslands kl. 17.15–
18.15.
Gerðuberg | Ólafur J. Engilbertsson, sagn-
fræðingur flytur fyrirlestur í Gerðubergi kl.
15, sem hann nefnir „Að skapa skart úr
skít – um söfnun, endurvinnslu og listræna
sköpun“. Aðgangseyrir er kr. 500, kaffi/te
innifalið. Félagsmenn í Akademíunni greiða
aðeins fyrir kaffið.
Viðskipta- og hagfræðideild HÍ | David
Cairns, sérfræðingur í reiknings-
skilastöðlum alþjóðlega reikningsskil-
aráðsins og prófessor í endurskoðun við
London School of Economics, heldur opinn
fyrirlestur á vegum viðskipta- og hag-
fræðideildar Háskóla Íslands um fortíð, nú-
tíð og framtíð alþjóðlegra reiknings-
skilastaðla, goðsagnir og veruleika og áhrif
þeirra á rannsóknir og kennslu. Fyrirlest-
urinn er í Lögbergi stofu 101, 30. maí, kl. 12.
Allir velkomnir. Nánar á www.vidskipti.hi.is.
Námskeið
Gerðuberg | Skráning í listsmiðjurnar
Gagn og gaman er hafin. 6.–10. júní – 6–9
ára, 20.–24. júní – 10–13 ára. Smiðjustjóri
er Harpa Björnsdóttir, myndlistarmaður.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
1. e4 e5 2. Bc4 Rf6 3. d3 Rc6 4. Rf3 Bc5
5. c3 d6 6. O-O O-O 7. Rbd2 a6 8. Bb3
h6 9. h3 Ba7 10. He1 Rh5 11. Rf1 Df6
12. Re3 Rf4 13. Rg4 Dg6 14. Bxf4 exf4
15. Rh4 Dg5 16. Rf3 Bxg4 17. hxg4
Dxg4 18. d4 Hae8 19. Dd3 He7 20. He2
Hfe8 21. Hae1 Rd8 22. e5 Dd7 23. Rh4
d5 24. Rf5 Re6 25. Df3 c6 26. Bc2 g6 27.
Rxh6+ Kg7 28. Rg4 Hh8 29. Rf6 Dc8
30. Dg4 Hh6 31. Hd2 Dh8 32. Kf1 Hh4
33. Df3 Rg5 34. Dd1
Staðan kom upp á armenska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í
Erevan. Gabriel Sargissjan (2630)
hafði svart gegn Artur Chibukhchian
(2406). 34... f3! 35. gxf3 Re6! og hvítur
gafst upp þar sem eftir 36. Ke2 Rf4+
37. Ke3 Hxe5+ hefur svartur gjör-
unnið tafl.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
ÁRLEG vormessa fer fram í Krýsuvíkurkirkju í dag
kl. 14 þar sem altaristafla kirkjunnar Upprisan,
myndverk eftir Svein Björnsson, verður hengt upp.
Eftir messu verður svo farið í Sveinshús þar sem
drukkið verður messukaffi og sýningin Fuglar í
myndum skoðuð.
Fuglar í myndum er þriðja sýning Sveinssafns í
Sveinshúsi í Krýsuvík
Fuglinn tekur að birtast í myndheimi Sveins
Björnssonar skömmu eftir að hulduandlitin og
köngurlóarvefurinn höfðu haslað sér þar völl um
1960.
Í kynningartexta um sýninguna segir m.a.: „Sýn-
ingunni er ætlað að gefa lítils háttar tilfinningu fyr-
ir því sérstæða og margþætta hlutverki sem fuglinn
hefur leikið á myndsviði Sveins Björnssonar um
langt skeið.
Um leið og sýningin Fuglar í myndum gefur yf-
irlit yfir þróun fuglsins í myndlist Sveins Björns-
sonar dregur hún fram nýja túlkun á hlutverki
fuglsins, sem listamaðurinn minntist aldrei á þegar
hann var á dögum, ekki frekar en að hann minntist
á Bláhöfðann, sem var umfjöllunarefni síðustu sýn-
ingar: Samkvæmt þessari túlkun virðist sem fuglinn
hafi þróast yfir í að verða eins konar táknmynd inn-
blásturs eða hugmyndaflugs listamannsins, sem er
frjálst eins og fuglinn fljúgandi á lofti holsins í
Sveinshúsi.“
Vormessa og fuglar í mynd-
um Sveins Björnssonar
Morgunblaðið/RAX
Að venju í vormessu verður altaristaflan eftir Svein
Björnsson sett upp í Krýsuvíkurkirkju.
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni