Morgunblaðið - 29.05.2005, Blaðsíða 57
ERTU
AÐ
SAFNA
PUNKTUM?
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MAÍ 2005 57
DAGBÓK
Félagsstarf
Breiðfirðingabúð | Félagskonur, farið
verður í hinna árlegu vorferð laug-
ardaginn 4. júní frá Umferð-
armiðstöðinni kl. 9. Farið verður á
Blönduós. Gestir velkomnir með. Til-
kynnið þátttöku hjá Gunnhildi í síma
564 5365 eða hjá Ellu í síma 566
6447.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dansleikur í kvöld kl. 20, Caprí–tríó
leikur. Fyrirhugað er að námskeið í
stafgöngu hefjist 31. maí kl. 10. Uppl.
og skráning á skrifstofu FEB, s. 588–
2111. Eigum laus sæti í 2ja daga ferð
um Snæfellsnes 14. júní og einnig í
ferð um Austurland, 4 dagar, 19. júní.
Uppl. og skráning í s. 588 2111.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Þjóðhátíð í Gullsmára. Það stendur til
að vera með grillveislu í Gullsmára í
hádeginu 16. júní. Skráning fyrir 6.
júní á töflu eða í síma 564 5260.
Harmonikkuspil og dans á eftir. Allir
velkomnir. Sumarhátíð Gjábakka.
Fimmtudaginn 2. júní verður sumri
fagnað í Gjábakka. Tískusýning. Ólaf-
ur Ólafsson spilar og syngur. Sum-
arlegt hátíðarborð.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 14. 30
syngur Gerðubergskórinn í Blönduós-
kirkju undir stjórn Kára Friðrikssonar,
undirl. Árni Ísleifs., Unnur Eyfells,
Arngrímur Marteinsson, Benedikt Eg-
ilsson og Þorgrímur Kristmundsson,
allir velkomnir.
Furugerði 1 | Handavinnu- og list-
munasýning félagsstarfsins og leir-
listarhóps Blindrafélagsins verður
sunnudag 29. og mánudag 30. maí
frá kl. 13.30 til kl. 17.00. Kaffiveit-
ingar. Allir velkomnir.
Hvassaleiti 56–58 | Handverkssýn-
ing á munum sem unnir hafa verið í
félagsstarfinu í vetur verða til sýnis í
dag og á morgun, mánudag. Sýningin
er opin kl. 13–17. Kaffi og gott með-
læti. Allir velkomnir.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Félagsvistin fellur niður á
morgun, mánudag 30. maí. Þriðju-
daginn 31. maí kl. 14 kynna Aðalbjörg
Traustadóttir og Árni R. Stefánsson
nýja hverfaskipan borgarinnar. Allir
velkomnir. Uppl. í síma 568 3132.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hand-
verkssýning á munum sem unnir hafa
verið í félagsstarfinu í vetur verður
sunnudaginn 29. maí og mánudaginn
30. maí kl. 13–17. Komið og skoðið fal-
legt handverk og kynnið ykkur þá
þjónustu sem í boði er. Kaffiveitingar.
Vesturgata 7 | Ferð á sýningar.
Mánudaginn 30. maí kl. 13 verður far-
ið á handverkssýningar á Aflagranda
40, og Hvassaleiti 56–58. Einnig
verður farið á stefnumót við safnara í
Gerðubergi og myndlistarsýningu
Lóu Guðjónsdóttur í Gerðubergi.
Upplýsingar og skráning í síma 535
2740. Allir velkomnir.
Kirkjustarf
Háteigskirkja | Á þriðjudögum og
fimmtudögum verður púttað í Há-
teigskirkju í sumar. Klukkan 11.00 og
klukkan 14.00, báða dagana. Hafið
samband við kirkjuvörð. Njótið fé-
lagsskapar og útverunnar.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
• Stórt framleiðslufyrirtæki með matvæli.
• Þekkt sérverslun með byggingavörur. Ársvelta 180 mkr.
• Efnalaug í 105 Reykjavík. Stór viðskiptamannahópur.
• Heildverslun með þekkt efnavörumerki.
• Verslanir í Kringlunni og í Smáralind.
• Rótgróið veitingahús í Hafnarfirði. Mjög góður rekstur.
• Ferðaskrifstofa með sérhæfðan rekstur.
• Þekkt innrömmun í austurbæ Reykjavíkur. Hentar vel hjónum.
• Stórt iðnfyrirtæki. Ársvelta 450 mkr.
• Fiskvinnsla í eigin húsnæði á Eyrarbakka.
• Þekkt fataverslun við Laugaveg. Ársvelta 30 mkr.
• Rótgróin heildverslun með sérhæfðar tæknivörur. Ársvelta 60 mkr.
• Þekkt vöruhús með innflutning og smásölu á heimilis- og gjafavöru.
• Stór heildverslun með hjólbarða. Vel tækjum búin.
• Heildverslun með þekktan fatnað.
• Rótgróin sérverslun með mikla vaxtarmöguleika. Ársvelta 37 mkr.
• Þekkt lítil bílaleiga.
• Heildverslun með búnað og vélar til notkunar í iðnaði. Ársvelta 130 mkr.
• Gistihús í Hafnarfirði. 25 herbergi.
• Stórt ferðaþjónustufyrirtæki úti á landi.
• Þekkt sérverslun-heildverslun með fallegar vörur fyrir heimili og fyrirtæki. Ársvelta 50 mkr.
• Heildverslun með tæknivörur. Ársvelta 80 mkr.
• Dalakjör. Verslun, veitingasala og bensínstöð í Búðardal. Góður rekstur. Ársvelta 170 mkr.
• Stór blómaverslun í góðu hverfi.
• Heildverslun-sérverslun með rafmagnsvörur. Ársvelta 200 mkr.
• Lítil heildverslun með tæki fyrir byggingariðnaðinn. Heppilegt fyrir trésmið sem vill breyta til.
• Þekkt veitingahús í eigin húsnæði. Velta 10-12 mkr. á mánuði.
• Gott fyrirtæki í kynningar- og markaðsþjónustu. Hentar vel til sameiningar.
• Rótgróið þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði. Ársvelta 250 mkr.
• Sérvöruverslun með 220 mkr. ársveltu. EBIDTA 25 mkr.
• Arðbært útgáfu- og prentþjónustufyrirtæki.
• Sérverslun með fatnað.
• Þekkt verslun með föndurvörur. Ársvelta 60 mkr.
• Vörubílaverkstæði með mikil föst viðskipti. 4-5 starfsmenn. Vel tækjum búið, í eigin húsnæði
á góðum stað.
• Stór trésmiðja með þekktar vörur.
Engar stríðsminjar í Viðey
NÚ er verið að tala um að setja upp
skrúfu úr herskipi sem minnisvarða
í Viðey og er það sagt vegna beiðni
Kanadamanna. Mér finnst það alveg
fráleitt að setja stríðsminjar þarna
út í eyju. Ég fór þarna í fyrra með
eldri borgurum, þarna er fallegt og
gaman að koma þarna, en að setja
stríðsminjar þarna upp er fráleitt.
Beini ég þeim tilmælum til stjórn-
enda í Reykjavík að koma í veg fyrir
þetta.
J.M.
Myndasýningar
á Austurvelli
ÉG get ekki orða bundist, nú verður
enn ein sýning á Austurvelli. Þetta
er einn fallegasti staðurinn í allri
Reykjavík, sem maður vill fá að
njóta í allri sinni litadýrð á sumrin.
Mér finnst þessi staður ekki til þess
fallinn að hafa sýningu af þessu tagi,
það er svo mikil fyrirferð á þessu.
Það væri miklu nær að hafa sýn-
ingar af þessu tagi hjá Hallgríms-
kirkju, þar er miklu meira pláss,
með fullri virðingu fyrir ljós-
myndaefni RAX.
Svona sýningar eiga ekki að vera
á Austurvelli, ekki hægt að þverfóta
fyrir þessari steinsteypu sem mynd-
irnar eru settar á.
Svava.
Engin þjónusta í
Efra-Breiðholti
ÉG er ellilífeyrisþegi og bý í Efra-
Breiðholti og þar er búið að taka alla
þjónustu frá okkur sem þar búum.
Fyrst var pósthúsið flutt, síðan Ís-
landsbanki og nú apótekið. Það var
svo þægilegt að hafa apótekið við
hliðina á heilsugæslunni. Og er þessi
starfsemi öll flutt niður í Mjódd. Á
veturna kemst ekki eldri fólkið niður
í Mjódd, margir eru ekki á bílum og
fólk sem er komið um og yfir áttrætt
er ekki á bílum.
Ellilífeyrisþegi.
Jósefína er týnd
JÓSEFÍNA týndist í Seljahverfi í
Breiðholti sl. miðvikudag þar sem
hún var í pössun. Hún býr í Sala-
hverfi og gæti því
reynt að komast
heim til sín. Hún er
eyrnamerkt og var
með svarta ól með
bjöllu og símanúm-
eri. Þeir sem hafa
orðið Jósefínu varir
eru beðnir að hafa samband í síma
897 4439, 663 4439 eða 557 4439.
Grár dísarpáfagaukur týndist
GRÁR dísarpáfagaukur týndist frá
Ástúni 10 í Kópavogi sl. þriðjudag.
Þeir sem hafa orðið hans varir hafi
samband í síma 567 2275.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Í DAG kl. 15 mun Ólafur J. Eng-
ilbertsson, sagnfræðingur og sýn-
ingahönnuður, flytja fyrirlestur
sem hann nefnir Að skapa skart
úr skít – um söfnun, endurvinnslu
og listræna sköpun. Ólafur er sýn-
ingarstjóri sýningarinnar Stefnu-
mót við safnara II sem var opnuð
í Gerðubergi 30. apríl sl.
„Í erindinu hyggst Ólafur taka
fyrir sjálfsprottna söfnunar-
ástríðu einstaklinga, sem hafa
ekki átt sér nein fordæmi eða fyr-
irmyndir. Þeir hafa ýmist skapað
skart úr því sem flestir telja skít,
eða hirt gull úr glatkistu sorp-
hauganna.“
Frekari upplýsingar er að finna
á www.gerduberg.is
Skart úr skít
LJÓSMYNDARARNIR Ami Vitale
og Rui Camilo halda fyrirlestra í
Salnum í Kópavogi í dag kl. 14. Í til-
kynningu frá Ljósmyndarafélagi Ís-
lands um fyrirlesarana: „Frétta og
heimildaljósmyndarinn Ami Vitale
hefur á undanförnum árum vakið
verðskuldaða athygli fyrir verk sín
og hlotið ýmis verðlaun víða um
heim. Rui Camilo er vel þekktur
bæði í heimalandi sínu Portúgal,
Þýskalandi og víðar. Segja má að
hann einskorði sig ekki við eina
tegund ljósmyndunar þótt hans
helsti vettvangur sé auglýsinga-
ljósmyndun því Rui stundar ljós-
myndun sem listgrein jafnt sem iðn-
grein.“
Fyrirlestrar
um ljósmyndun