Morgunblaðið - 11.06.2005, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍSLAND hefur tekið við formennsku í Eystra-
saltsráðinu næsta árið, og verður á þeim tíma lögð
sérstök áhersla á samvinnu innan ráðsins á sviðum
orku- og umhverfismála. Auk
þess verður lögð áhersla á
samvinnu við önnur svæðis-
bundin samtök, t.d. Norður-
skautsráðið.
Þetta kom fram í ræðu Dav-
íðs Oddssonar á fundi utanrík-
isráðherra aðildarríkja
Eystrasaltsráðsins í Stettin í
Póllandi í gær. Þar sagði hann
ráðið hafa mikilvægu hlutverki
að gegna við að stuðla að hag-
sæld og stöðugleika á svæðinu. Hann sagði að á
síðasta áratug hefðu miklar breytingar átt sér
stað, en ráðið hefði áfram mikilvægu hlutverki að
gegna, t.d. vegna samvinnu við norðvesturhluta
Rússlands. Davíð sagði að á meðan Ísland gegndi
formennsku í Eystrasaltsráðinu yrði lögð áhersla
á samvinnu tengda orku- og umhverfismálum, auk
þess sem samvinna þingmanna á svæðinu yrði
aukin, sem og samvinna við Úkraínu. Einnig sagði
hann mikla áherslu verða lagða á að stuðla að sam-
vinnu við önnur svæðisbundin samtök, svo sem
Norðurskautsráðið, Norrænu ráðherranefndina
og Barentshafsráðið. Starf efnahagssamvinnu-
nefndarinnar yrði eflt, og nefnd um málefni barna
veitt sérstök athygli.
Orkumálaráðherrar funda á Íslandi
Ísland mun gegna formennsku í þremur nefnd-
um ráðsins næsta árið; efnahagssamvinnunefnd,
orkumálanefnd og í nefnd háttsettra embættis-
manna. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, hefur boðað til fundar orkumála-
ráðherra Eystrasaltsráðsins á Íslandi í október.
Aðild að Eystrasaltsráðinu, sem var stofnað ár-
ið 1992, eiga allar Norðurlandaþjóðirnar, Eist-
land, Lettland, Litháen, Rússland, Pólland og
Þýskaland, auk Evrópusambandsins.
Íslendingar taka við formennsku í Eystrasaltsráðinu næsta árið
Áhersla á samvinnu um
orku- og umhverfismál
Davíð Oddsson
FJÓRIR karlmenn og kona réðust
að ómerktri lögreglubifreið í Hafn-
arfirði snemma í fyrrinótt og unnu á
henni talsverðar skemdir. Tveir
óeinkenndisklæddir lögreglumenn
voru í bifreiðinni og náðu þeir að
handtaka tvo karlmenn á staðnum.
Hin voru svo handtekin í húsi í
Reykjavík í gærmorgun og við yf-
irheyrslur kom í ljós að árásin átti
ekki að beinast gegn lögreglunni
heldur töldu fimmmenningarnir sig
þekkja mann í bifreiðinni sem þeir
áttu óuppgerðar sakir við. Því hefði
verið ákveðið að vinna skemmdir á
bílnum. Telst málið upplýst og verð-
ur fljótlega sent ákæruvaldi til frek-
ari ákvörðunar.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Hafnarfirði var ómerkta
bifreiðin við eftirlit í umdæminu þeg-
ar henni var ekið út í kant á Hverf-
isgötu í Hafnarfirði til að hleypa bíl
framhjá sem hafði þá elt lögreglu-
mennina í nokkra stund. Var sá bíll
þá stöðvaður og segir lögreglan
skyndilega árás hafa verið gerða.
Fremri hliðarrúður ómerkta lög-
reglubílsins hafi verið brotnar, bæði
ökumanns- og farþegamegin, og
skemmdir unnar á vélarhlífinni og
fleiri stöðum. Telur lögreglan mark-
mið árásárinnar hafa verið að ná til
þeirra sem í bílnum voru. Náðu lög-
reglumennirnir sem fyrr segir að yf-
irbuga og handtaka tvo á staðnum en
hinum tókst að flýja. Leit að þeim
bar svo árangur í gærmorgun.
Réðust fimm á ómerktan lögreglubíl
Töldu sig eiga
sökótt við mann
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt framkvæmdastjóra
og stjórnarformann fyrirtækis,
sem varð gjaldþrota í desember
2002, í sex mánaða skilorðs-
bundið fangelsi hvorn og einnig
til að greiða hvor um sig 14,5
milljónir króna í sekt fyrir að
skila ekki innheimtum virð-
isaukaskatti á árunum 2001 og
2002 og fyrir að standa ekki skil
á staðgreiðslusköttum sem haldið
var eftir af launum starfsfólks
fyrirtækisins á sama tímabili. Alls
námu þessar fjárhæðir um 14,7
milljónum.
Mennirnir kröfðust sýknu á
þeirri forsendu, að fjármálastjóri
fyrirtækisins hefði haft alla fjár-
málastjórn félagsins á sinni hendi
og í þeim efnum notið fyllsta
trausts þeirra. Hann hefði ekki
upplýst þá um vangoldna af-
dregna staðgreiðslu af launum
starfsmanna fyrirtækisins eða
vangoldinn innheimtan virð-
isaukaskatt en fjármálastjóranum
var sagt upp í ársbyrjun 2002.
Dæmdir fyrir
vanskil á virð-
isaukaskatti
LÖGREGLAN á Akureyri stöðvaði
21 árs gamlan ökumann á 162 km
hraða laust fyrir miðnætti á Eyja-
fjarðarbraut Eystri á fimmtudag-
inn.
Að sögn lögreglunnar má öku-
maðurinn ungi búast við því að
verða sviptur ökuleyfi sínu í tvo
mánuði auk þess að hljóta væna
sekt.
Ofsaakstur
á Akureyri
UMSÓKNARFRESTUR um starf
forstjóra Samkeppniseftirlitsins
rann út í gær og bárust fjórar um-
sóknir.
Umsækjendur eru:
Eggert B. Ólafsson, héraðsdóms-
lögmaður, Reykjabyggð 32, Mos-
fellsbæ, lögmaður á Lögfræðistofu
Reykjavíkur.
Guðmundur Sigurðsson, við-
skiptafræðingur, Barmahlíð 30,
Reykjavík, forstöðumaður sam-
keppnissviðs Samkeppnisstofn-
unar.
Páll E. Halldórsson, hag- og
rekstrarverkfræðingur, Hraðastöð-
um 5, Mosfellsbæ, framkvæmda-
stjóri Industria á Íslandi.
Páll Gunnar Pálsson, héraðs-
dómslögmaður, Logafold 154,
Reykjavík, forstjóri Fjármálaeft-
irlitsins.
Forstjóri Fjármála-
eftirlits meðal umsækj-
enda um starf forstjóra
Samkeppniseftirlitsins
DAVÍÐ Oddsson utanríkisráðherra fundaði
með Adam Daniel Rotfeld, utanríkisráðherra
Póllands, í kjölfar fundar utanríkisráðherra
Eystrasaltsráðsins í Póllandi í gær. Á fundi
sínum ræddu Davíð og Rotfeld leiðir til þess
að efla viðskipti á milli Íslands og Póllands.
Davíð tók einnig upp íslensk hagsmunamál
við starfsbróður sinn, sem varða innri markað
Evrópusambandsins, svo sem tolla á síld og
bann við notkun fiskimjöls sem fóður fyrir
jórturdýr, að því er fram kemur í tilkynningu
frá utanríkisráðuneytinu. Á fundinum sam-
þykktu ráðherrarnir að auka samvinnu ís-
lenskra og pólskra stjórnvalda á sviði utanrík-
ismála.
Efla viðskipti
við Pólland
ALDURSMUNURINN á elsta og yngsta þátttak-
andanum í kvennahlaupi Hrafnistu í Hafnarfirði
sem fram fór í gær var heil 91 ár, yngsti þátttak-
andinn var reyndar bara eins árs en sá elsti 92
ára. Alls tóku um 40 manns þátt í hlaupinu í gær,
ef með er talið starfsfólk sem var til aðstoðar.
Kvennahlaup Hrafnistu er eins konar und-
anfari hins eiginlega Kvennahlaups sem fram fer
í dag. Sigurbjörg Gísladóttir var óumdeildur ald-
ursforseti hlaupsins, og hefur hún tekið þátt í
kvennahlaupinu á Hrafnistu öll þrjú árin sem
það hefur verið haldið. Yngsti þátttakandinn var
svo ekki hár í loftinu, en það var hin eins árs
gamla Embla Guðmundsdóttir, sem svindlaði
reyndar örlítið og fékk pabba sinn til að ýta sér í
kerru.
Sigurbjörg segir að það muni miklu að vera
duglegur að hreyfa sig, en hún fer í góðan
göngutúr einu sinni í viku, og stundar þess á
milli leikfimi með íþróttakennaranum Helenu
Björk Jónsdóttur. „Það er ábyggilega ekki verra
að hreyfa sig, það liðkar liðamótin og eykur
blóðflæðið,“ segir Sigurbjörg.
„Ég reyni að taka mikinn þátt í félagsstarfinu,
en ég er nú dálítið misjöfn eftir dögum,“ segir
Sigurbjörg, sem segist kunna vel við sig á Hrafn-
istu. Þar hefur hún nóg við að vera, við handa-
vinnu, en hún setti einmitt upp sýningu með
handavinnu sinni á Hrafnistu á dögunum. Auk
þess tekur hún þátt í kórstarfi Hrafnistukórsins,
sem nýtur þess heiðurs að teljast elsti kór lands-
ins, þ.e. ef reiknaður er saman meðalaldur
söngvaranna.
91 árs aldurs-
munur á
þátttakendum
Morgunblaðið/ÞÖK
Sigurbjörg Gísladóttir fékk dygga aðstoð frá Helenu Björk Jónsdóttur íþróttakennara.