Morgunblaðið - 11.06.2005, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
SUMARHÚS HALLKELSHÓLUM
OPIÐ HÚS LAUGARDAG OG SUNNUDAG
Snyrtilegt sumarhús í landi Hallkelshóla í
Grímsnesi. Leigulóð 0,6 ha. Bústaðurinn er á
einni hæð, stofa, eldhús, baðherbergi með
sturtu og tvö svefnherbergi. Verð 7,9 millj.
Farið um veginn að Þrastarlundi og haldið
áfram austur framhjá Kerinu þar til komið er
að afleggjara til vinstri merktur Hallkelshólar.
Gatan heitir Heimagata til vinstri og húsið
Þyrnigerði.
EIGENDUR SÝNA ÁHUGASÖMUM HÚSIÐ FRÁ KL. 13-16
Í DAG, LAUGARDAG OG Á MORGUN, SUNNUDAG. Sími 861 6798.
OPIÐ Á LUNDI Í DAG Á MILLI KL. 12.00 OG 14.00
ALCOA Fjarðaál sf. sendi frá sér í gær
eftirfarandi yfirlýsingu vegna ummæla
sem höfð voru eftir Hjörleifi Guttorms-
syni í Morgunblaðinu í gær í tengslum
við nýfallinn dóm Hæstaréttar.
„Í dómi Hæstaréttar er hvorki lagt
mat á ætluð umhverfisáhrif álvers Al-
coa Fjarðaáls né gæði tiltekinna að-
ferða við hreinsun útblásturs frá ál-
verinu. Niðurstaða réttarins byggist
einkum á því að ákveðnum formkröf-
um hafi ekki verið fullnægt og af þeim
sökum sé úrskurður umhverfisráð-
herra frá apríl 2003, um að álverið
þurfi ekki að sæta nýju mati á um-
hverfisáhrifum, ekki gildur.
Þegar liggur fyrir ítarleg og vönd-
uð samanburðarskýrsla um ætluð
umhverfisáhrif álvers Alcoa Fjarða-
áls sem unnin var af reyndum inn-
lendum og erlendum sérfræðingum.
Fimmtán opinberar stofnanir með
sérþekkingu á sviði verkfræði og um-
hverfismála veittu umsögn um skýrsl-
una. Þessar upplýsingar voru grund-
völlur úrskurðar Skipulagsstofnunar
árið 2002 um að álver Alcoa Fjarðaáls
þyrfti ekki að sæta nýju mati á um-
hverfisáhrifum. Í umræddri skýrslu
kemur fram að heildarlosun efna frá
álveri Alcoa Fjarðaáls verður til
muna minni en hún hefði orðið frá áð-
ur fyrirhuguðu álveri Norsk Hydro.
Heildarlosun efna minni
frá álveri Alcoa Fjarðaáls
!
" ! #!
$
% &
$' ()*+
&
,-%
'
.
/01
20
1/03
21
40
.
/412
22
/153
51
302
" ! #!
$ (
$
% &
$' ()*+
6
$
7&& 8
8
8
8
54
0
4
413
/315
&
Meira á mbl.is/ítarefni
STARFSLEYFI og framkvæmda-
leyfi Alcoa falla ekki sjálfkrafa úr
gildi við dóm Hæstaréttar síðastlið-
inn fimmtudag í máli Hjörleifs Gutt-
ormssonar gegn Alcoa Fjarðaáli og
íslenska ríkinu, að mati Aðalheiðar
Jóhannsdóttur, dósents í umhverfis-
rétti við Háskóla Íslands.
„Það skiptir ekki öllu máli að
Hæstiréttur felldi ekki úr gildi fram-
kvæmdaleyfið og starfsleyfið,“ sagði
Aðalheiður í samtali við Morgunblað-
ið í gær. „Aðalatriðið nú er að ákveðin
lagaskilyrði eru ekki uppfyllt. Í 16.
gr. laga um mat á umhverfisáhrifum
segir að það sé óheimilt að gefa út
leyfi, þar með talið starfsleyfi, fyrir
matsskyldri framkvæmd fyrr en úr-
skurður um mat á umhverfisáhrifum
liggur fyrir og segir að leyfisveitandi
skuli taka tillit til hans. Einnig byggir
27. grein skipulags- og byggingar-
laga, um framkvæmdaleyfi, á þessari
sömu forsendu, svo og reglugerð um
starfsleyfi fyrir mengandi atvinnu-
rekstur. Viðkomandi stjórnvöld
hljóta nú að taka afstöðu til starfs-
leyfisins þar sem grundvöllur þess er
brostinn. Meginskilyrði starfsleyfis-
ins, í þessu tilviki mat á umhverfis-
áhrifum, er ekki lengur uppfyllt.
Stjórnvöld hljóta því að minnsta kosti
að íhuga það að afturkalla starfsleyf-
ið. Það er ekki útilokað að einhver
einstaklingur eða jafnvel lögaðili geti
átt svo einstaklingsbundna hagsmuni
að hann geti krafist þess að starfs-
leyfið verði fellt úr gildi. Jafnvel þótt
starfsleyfið og framkvæmdaleyfið
falli ekki sjálfkrafa úr gildi með þess-
um dómi er ekki þar með sagt að
stjórnvöld þurfi ekki að aðhafast eitt-
hvað. Þetta er kannski það sem vekur
stærstu spurningarnar varðandi
þennan dóm.“
Tvö aðskilin meginatriði
Aðalheiður, sem nú dvelur í Upp-
sölum í Svíþjóð, segir ekkert hafa
komið sér á óvart í fyrrgreindum
dómi Hæstaréttar. Hún bendir á að í
dóminum sé tekið á tveimur meginat-
riðum, sem halda verði aðskildum.
Annars vegar er sú ákvörðun
Hæstaréttar að ógilda ákvörðun um-
hverfisráðherra um að Alcoa þurfi
ekki umhverfismat. „Sú niðurstaða
Hæstaréttar styðst við lagaákvæði.
Það segir skýrt í 6. grein [laga nr.
106/2000], samanber 2. viðauka með
lögunum um mat á umhverfisáhrif-
um, að það er ekki mögulegt byggja á
6. grein laganna nema búið sé að gefa
út starfsleyfi. Í þessu tilviki var ekki
búið að gefa út starfsleyfi fyrir álver
Reyðaráls. Af þeirri ástæðu var ekki
hægt að byggja ákvörðun Skipulags-
stofnunar um að það þyrfti ekki nýtt
umhverfismat, sem ráðherra síðan
staðfesti, á 6. greininni. Það þarf því
að gera fullt mat á umhverfisáhrifum
fyrir álver Alcoa í samræmi við 5.
grein laganna,“
sagði Aðalheiður.
Sú ákvörðun
Hæstaréttar að
staðfesta frávísun
umhverfisráð-
herra á kæru
Hjörleifs Gutt-
ormssonar vegna
aðildarskorts kom
Aðalheiði ekki
heldur á óvart.
„Hún er í sam-
ræmi við lög. Það segir ekkert um að-
ildina í lögum 7/1998, um hollustu-
hætti og mengunarvarnir. Það gilda
almennar reglur og Hjörleifur telst
ekki eiga einstaklingsbundna og lög-
varða hagsmuni, né vera í þeirri stöðu
að geta beitt grenndarréttarsjónar-
miðum.“
Mikilvægt að
vanda málsmeðferð
Aðalheiður segir dóminn leiða hug-
ann að mikilvægi þess að vanda alla
málsmeðferð þegar starfsleyfi eru
undirbúin. „Það er ef til vill athygl-
isverðast að Hæstiréttur segir í dóm-
inum að afgreiðsla athugasemda við
drög að starfsleyfi og útgáfu þess sé
mikilvægur hluti ferlisins. Þetta er
t.d. kjarninn í 6. grein Árósasamn-
ingsins [sem fjallar m.a um þátttöku
almennings í ákvarðanatöku sem hef-
ur áhrif á umhverfið].“
Aðalheiður hefur gert sérstaka
rannsókn á 6. grein Árósasamnings-
ins, en Ísland hefur ekki enn fullgilt
samninginn. Hún telur gott að fá
þessi tilteknu ummæli Hæstaréttar.
„Það er ekki nóg að veita fólki rétt til
að gera athugasemdir við drög að
starfsleyfi. Það verður einnig að
vinna úr athugasemdunum og taka
tillit til þeirra. Í dóminum kemur
fram að í þessu tilviki er ýmislegt at-
hugavert við málsmeðferðina sem
slíka, þó að málið falli ekki á því.
Starfsleyfisþátturinn fellur á því að
það eru ekki neinar sérstakar laga-
reglur um aðildina.
Þetta segir okkur einnig að
ákveðnar meginreglur umhverfis-
réttarins – nýmæli eins og rýmkun á
aðildarreglum – verða ekki sjálfkrafa
hluti af réttarkerfinu. Það þarf að
taka afstöðu til þess hverjir geti kært
ákvarðanir eins og starfsleyfi. Þetta
þarf að gera með lögum. Eins og
kemur skýrt fram í dóminum duga
grenndarreglurnar einar og sér afar
skammt til að tryggja mönnum kæru-
rétt, hvað þá aðildarrétt í dómsmáli.“
Aðalheiður Jóhannsdóttir, dósent í
umhverfisrétti við Háskóla Íslands
Aðalheiður
Jóhannsdóttir
Meginskilyrði
starfsleyfis
ekki uppfyllt
RJÚPNATALNINGAR Nátt-
úrufræðistofnunar Íslands nú í vor
sýna að meðaltali 78% vöxt í stofn-
inum en vorið 2004 sýndu samsvar-
andi talningar 104% vöxt á milli ára.
Rjúpum fjölgaði í öllum lands-
hlutum á milli ára, en hlutfallslega
var aukningin mest á Austurlandi
eða 145% að meðaltali. Að sögn
Ólafs Karls Nielsen, fuglafræðings
hjá Náttúrufræðistofnuninni, á
þessi mikli vöxtur tvö ár í röð sér
ekki hliðstæðu á síðari árum, en
ástand rjúpnastofnsins nú er í sam-
ræmi við þær væntingar sem gerðar
voru til tímabundinnar friðunar
haustið 2003.
„Rjúpnastofninum hafði fram að
veiðibanni verið að hnigna jafnt og
þétt á umliðnum áratugum og afföll
fullorðinna fugla nálgast það að
vera 60–70% árlega. Fyrir fáeinum
árum töldum við að það stefndi í
hreint óefni og að hin náttúrlega
sveifla í stofninum, sem gengur yfir
á tíu ára tímabili, væri að hverfa og
stofninn þar með að festast í stöð-
ugu lágmarki,“ segir Ólafur og
bendir á að eina stjórntækið hafi
verið veiðibann. Rifjar hann upp að
fuglafræðingar hafi spáð því að
uppsveifla stofnsins í veiðibanni
gæti orðið 50–60% í stað 20–30%
eins og verið hafði, en uppsveiflan í
stofninum nú sé hins vegar langt
umfram það sem fræðingar þorðu
að vona. Segir Ólafur allt stefna í
stóran topp í rjúpnastofninum, sam-
bærilegan við toppinn sem ein-
kenndi fyrri hluta síðustu aldar, en
síðasti stóri toppur var árið 1955, en
þá um haustið taldi rjúpnastofninn á
bilinu 600–800 þúsund fugla.
Vortalningin nú fór fram 25. apríl
til 20. maí og tók á fimmta tug
manna þátt í henni. Rjúpur voru
taldar á 41 svæði, í öllum lands-
hlutum. Að sögn Ólafs sýna frum-
niðurstöður að fjölgun varð á 36
svæðum en fækkun á sex svæðum
samanborið við árið á undan. Er þar
m.a. um að ræða Krossanesborgir á
Norðausturlandi, Skógarströnd á
Vesturlandi og Hegranes í Skaga-
firði. Spurður hvernig skýra megi
fækkun rjúpunnar á þessum ein-
stöku svæðum bendir Ólafur á að
hvert svæði hafi sín sérkenni og
sína sögu, en ýmsir tilviljana-
kenndir atburðir geti skýrt sveifl-
urnar. Nefnir hann sem dæmi varð-
andi Hegranes að þar hafi tófa
nýlega sest aftur að eftir nokkra
fjarveru.
Að mati Ólafs er nauðsynlegt að
tryggja að sú mikla uppsveifla sem
hafin er nái að halda áfram næstu
tvö til þrjú árin, en þá má búast við
náttúrulegri lægð.
Veiðar verði takmarkaðar
„Verði rjúpnaveiðar leyfðar aftur
í haust leggjum við hjá Nátt-
úrufræðistofnun til að þær verði
takmarkaðar verulega þannig að
þær dragi ekki úr möguleikum
stofnsins til að ná aftur sambæri-
legri stærð og lengst af á síðustu
öld, jafnframt því að veita stofn-
inum tækifæri til að sveiflast með
eðlilegum hætti. Eigi það að ganga
eftir þarf veiðiálag á stofninn í heild
að vera mun minna í framtíðinni en
áður og í takt við ástand hans og
veiðiþol hverju sinni. Stilla þarf
veiðinni þannig í hóf að heildar-
afföllin haldist innan skynsamlegra
marka,“ segir Ólafur og bendir á
ljóst sé að rjúpnastofninn hafi verið
ofveiddur áratugum saman. Nefnir
hann sem dæmi á að árið 1998 hafi
verið veiddir 150–160 þúsund fugl-
ar árlega sem hafi verið langt um-
fram það sem stofninn þolir.
Að sögn Ólafs er það mat Nátt-
úrufræðistofnunar að skynsamlegt
sé þegar rjúpnaveiðar hefjast að
nýju að engar veiðar verði leyfðar
um nokkurra ára skeið á Suðvest-
urlandi líkt og verið hefur und-
anfarin ár, auk þess sem æskilegt
væri að tvö stór svæði, annað á Suð-
vesturlandi og hitt á Norðaust-
urlandi, verði lokuð fyrir skotveið-
um vegna samanburðarrannsókna.
Tæplega 80% vöxtur í rjúpnastofninum milli 2004 og 2005
Allt stefnir í stóran topp
*
$
9 & &
4
8 $
Morgunblaðið/Golli
Taldir voru 2.800 karrar í talningunni og eru það 2,5% af áætluðum heild-
arfjölda karra í landinu. Rjúpnatalningin fór fram á rúmlega 2,6% af grónu
landi neðan 400 metra hæðar dagana 25. apríl til 20. maí í vor.
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is